Þjóðviljinn - 05.07.1991, Qupperneq 18
Reshevsky spillti afmælis
gleði Smyslovs
Langt er um liðið frá því börð-
ust um heimsmeistaratitilinn Mik-
hael Botvinnik og Vasilij Smyslov.
Og sú kynslóð stórmeistara fyrir
löngu tekin að að fella laufin; fyrir
tuttugu árum lagði Botvinnik
„loppuna á hilluna", Kotov og Ker-
es eru dánir, Petrosjan líka og var
þó einn hinna ungu og efnilegu í þá
tíð. En Smyslov er eilífur. 24. mars
sl. varð hann sjötugur og sovéska
skáksambandinu efhdi til afmælis-
móts. Eins og oft við slík tækifæri
var boðið til leiks ýmsum sam-
ferðamönnum meistarans en af
ástæðum sem að ffaman greinir var
ekki létt verk að finna marga slíka.
Þó tókst að ná í 10 þekkta stór-
meistara en því miður sáu Brons-
tein og Tal sér ekki fært að taka þátt
í mótinu. Hætt er við að nöfh sumra
sovésku stórmeistaranna komi
ókunnuglega fyrir: Bagirov, Gipsl-
is, Kholmov, Krogius . Aðrir eru
meira þekktir: Geller og Vasjukov.
Frá Bandarikjunum tókst að ná í
Samuel Reshevsky sem er á 80.
aldursári, Júgóslavann Knezevic og
Þjóðvetjann Unzicker. Smyslov var
i essinu sínu og var efstur fyrir síð-
ustu umferð en þá gat sá gamli re-
fur Samuel Reshevsky ekki verið til
friðs og spillti „boðinu“ með að
leggja afmælisbamið. Efsta sætið
kom i hlut Geller og Vasjukov:
1.- 2. Geller og Vajsukov 5 1/2
v. ( af 9 )
3.- 5. Smyslov, Bagirov og
SKAK
Gipslis 5 v.
6. Reshevsky 4 1/2 v.
7. - 8. Krogius og Kholmov 4 v.
9. Unzicker 3 1/2 v.
10. Knezevic 3 v.
Það er hægt að hafa mörg og
fogur um Vasily Smyslov. Kristals-
tær stíll hans hefur verið mörgum
hugleikinn, strax um 17 ára þegar
hann varð Moaskvumeistari voru
að koma ffam þeir þættir í stíl hans
sem mörgum árum síðar bmtu nið-
ur allar hindranir á leið til heims-
meistaratignar, sem Smyslov öðl-
aðist 1957. Hann sat i hásæti í eitt
ár. Mikhael var útsmoginn og kom
upp reglum sem gerðu honum kleift
að tefla strax ári síðar við Smyslov
og værukær Vasilij tók ekki við sér
fyrr en of seint og Mikjáll endur-
heimti titilinn.
Smyslovs kom fyrst til íslands
1974 og síðan sem aðstoðarmaður
Spassklij í einviginu við Hort 1977.
Þátttaka hans á Reykjavíkurmótinu
1974 var afar minnisstæð. Hann
sigraði með yfirburðum, hlaut 12
vinninga af 14 mögulegum. Vissu-
lega var allmikill styrkleikamunur á
keppendum en Smyslov var í al-
gjörum sérflokki. Leikir hans voru
áreynslulausir; komu eins og að
sjálfú sér, þegar andstæðingiuinn
hugsaði svar sitt settist Smyslov
gengt sýningarborðinu og íhugaði
stöðuna sallarólegur. Hann tefldi
ffekar hratt og virtist ekki reikna
marga leiki ffam í tímann, byggði
ákvarðanir sínar að því er virtist
á innsæi og fágætum skilningi á
stöðubarattu. Sigur hans yfir
Friðrik Ólafssyni var besta skák
Helgí
Ólafsson
Vassily Smyslov lætur engan
bilbug á sér finna þrátt fyrir árin
70. Hann tekur reglulega þátt (
stórmótum
mótsins. Friðrik varð að vinna til
þess að eiga möguleika á að veija
sigur sinn frá mótinu 1972. Þegar
gengið var til leiks voru menn þó
hóflega bjartsýnir; Friðrik hafði yf-
irleitt ekki riðið feitum hesti ffá
viðureignum sínum við Smyslov.
Reykjavíkurmótið 1974:
Vasilij Smysiov - Friðrik Óiafsson
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. RJ3 g6
3. c4 Bg7 4. Rc3 c5
5. e3 0-0
(Skarpara er 5. .. cxd4 6. exd5
d5 en sennilega hefði Smyslov leiið
6. Rxd4.)
6. dxc5 Ra6 7. Be2 Rxc5
8. 0-0 b6 9. Rd4 Bb7
10. b4 Rce4 11. Rxe4 Rxe4
12. Bb2 d5 13. f3 Rd6
14. cxd5 Bxd5 15. e4 Bb7
(Ekki 15. .. Bc4 16. Rc6! Dc7
17. Bxg7 Kxg7 18. Bxc4 Dxc6 19.
Bd5 og vinnur skiptamun eða 15...
Rc4 16. Bxc4 Bxc4 17. Rc6! Dxdl
18. Rxe7+ Kh8 19. Bxg7+ með
peðsvinningi.)
16. Dd2 Hc8 17. Hfdl De8
(Enn mátti svartur vara sig, 17.
.. Rc4 strandar á 18. Bxc4 Hxc4 19.
Rf5! o.s.frv.)
18. a4 Rc4 19. Bxc4 Hxc4
20. Rb5 Bxb2 21.Dxb2Db8
22. Hd7 a6 23. Ra3 Hc7
24. Hd2 Hd8 25. Hadl Hxd2
26. Hxd2!
(Minnisstæðasti leikurinn í
skákinni. Ég var áhorfandi að þess-
ari stórmeistaraskák að Kjarvals-
stöðum og ffam að þessu þóttist ég
geta lesið hugsun Smyslovs, hallaði
mér aftur og lét mig dreyma:“ Ég er
Smyslov og leik 26. Dxd2. NB. til
að halda tökum á d - línunni." Þeg-
ar upprunalega eintakið lék 26.
Hxd2 svo að segja um leið, skynj-
aði maður að einfoldu leikimir hans
Smylsovs væru kannski ekki svo
einfaldir. Eitthvað meira bjó að
baki, ofvaxið skilningi mínum. Fáir
leikir ullu mér meiri heilbrotum
þetta árið þó núna finnist manni
það dálítið heimskulegt því eftir 26.
Dxd2 rofhar „augljóslega" ákveðið
samræmi.)
26... Hc8 27. Rc2 Bc6?
(Svartur leggur út i vafasamar
aðgerðir, betra er tvímælalaust 27.
.. Hd8 þó hvítur stendi betur eftir
28. Rd4 því 28... De5 strandar á 29.
Re6! og vinnur. 28. Re3 kemur
einnig til greina. Riddari og drottn-
ing vinna allajafna betur saman en
drottning og biskup í stöðum sem
þessum og Friðrik sneiðir hjá svo
tæknilegri stöðu hjá Smyslov þó
ekki verði annað séð en jafnteflis-
möguleikar hans séu all þokkaleg-
ir.)
28. b5 axb5 29. axb5 Df4
30. Rd4!
(Það virðist dálítið glannalegt
að hleypa drottningimni til e3 en ís-
köld skynsemi Smyslovs mat dæm-
ið svo að ein og óstudd áorkaði ekki
miklu.)
30. ..De3+ 31. Kfl Be8
32. Rc6!
a b c d e f g h
(Þetta vakti fyrir Smyslov.
Vegna máthættu i borðinu fær
svartur nú að glíma við ffípeð á c6.)
32.. . Bxc6 33. bxc6 Dc5
34. Hc2 Dd6 35. e5 Dc7
36. Db5 Ha8 37. Hcl Kg7
(37. .. Ha5 er best svarað með
38. Dd3 t.d. 38. .. Hxe5 39. Dd7 og
vinnur.)
38. f4 h5 39. h3 h4
(Ónákvæmur leikur en svörtu
stöðunni verður ekki bjargað.)
40. Db2 e6 41. Df2
(Hér fór skákin í bið.)
41.. . Hh8 42. Kgl b5
43. Dc5 Hb8 44. Kh2 Da5
45. Hdl Da4 46. c7 Dxf4+
47. Kgl Hc8 48. Hd8!
- Drottningin valdar alla mikil-
væga reiti og Friðrik gafst upp því
48... Hxc7 má svara með 49. Df8+
Kh7 50. Dh8 mát.
Frábær árangur
Eins og kunnugt er orðið hafn-
aði íslenska karlalandsliðið í 4. sæti
á nýafstöðnu Evrópumóti. Aðcins
vantaði 1 vinningsstig til að jafna
árangurinn frá Brighton '50, er ís-
land náði 3. sæti.
Liðið spilaði 25 landsleiki.
Sigraði í 18 leikjum, jafntefli í 2
leikjum og tapaði 5 leikjum. Sam-
tals skoraði liðið 467 stig út úr spil-
uðum leikjum, sem gerir 18.68 að
meðaltali úr leik. Til gamans má
geta að sú skor hefur oftast nægt til
að bera sigur úr býtum á Islands-
mótinu í svcitakeppni. Með þessum
góða árangri á Irlandi, vann liðið
sér rétt til þátttöku í næstu heims-
meistarakeppni sem spiluð verður í
Japan, í lok september í haust. Þar
munu 16 lið mæta til leiks, frá öll-
um heimsálfum.
Liðið skipuðu: Aðalsteinn Jörg-
ensen, Jón Baldursson, Guðlaugur
R. Jóhannsson, Öm Amþórsson,
Guðmundur Páll Amarson og Þor-
lákur Jónsson. Fyrirliði án spila-
mennsku var Bjöm Eysteinsson.
Bretar sigmðu á mótinu, og var
lið þeirra skipað eftirtöldum spilur-
um: Forrester, Robson, Armstrong,
Kirby, Smolski og Sowter.
Að sögn Helga Jóhannssonar,
forseta Bridgesambands Islands, er
mikilvægt að ísland nýti sér réttinn
til þátttöku á HM í Japan í haust;
sérstaklega með hliðsjón af því að
ísland hefúr sótt um að fá að halda
þetta mót 1997. Stjóm Evrópusam-
bandsins styður umsókn okkar um
HM á Islandi, en það virðist allt
velta á góðvilja Alþjóðsambandsins
í okkar garð. Stuðningur fyrrver-
andi forsætisráðherra, Steingríms
Hermannssonar og núverandi for-
sætisráðherra, Davíðs Oddssonar er
ómetanlegur. Þeir hafa báðir sent
Alþjóðasambandinu bréf, þar sem
lýst er yfir áhuga á að fá mótið heim
1997. Þcssar athafnir þeirra hafa að
vonum vakið athygli innan raða
sambandsins og geta haft úrslita-
áhrif.
Akvörðun um HM 1997 verður
tekin í Japan í haust, og undirstrikar
það enn á ný mikilvægi þess að ís-
land mæti þar til leiks.
Umsjónarmaður verður að játa,
að ffammistaða þessa liðs kom hon-
um talsvert í opna skjöldu. Ekki, að
liðið gæti þetta ekki, heldur þær að-
ferðir sem notast var við í sambandi
við undirbúning og endanlegt val
liðsins. Einmitt þess vegna, er ár-
angur þessara 6 frábæm spilara enn
athyglisverðari. Hvað gætu þeir ef
rétt væri að málum staðið, og per-
sónulegur tími þeirra leyfði? Til
hamingju, strákar.
Eftirtaldar sveitir hafa tryggt
sér sæti í 16 liða úrslitum Bikar-
keppni Bridgesambandsins:
Sveit Eiríks Hjaltasonar Kópa-
vogi. Sveit Lúsifers Reykjavík.
Sveit Sigmundar Stefánssonar
Reykjavík. Sveit Ævars Jónassonar
Tálknafirði. Sveit Myndbandalags-
ins Reykjavik. Sveit Ásgrims Sig-
urbjömssonar Siglufirði og sveit
Bemódusar Kristinssonar Reykja-
vík.
Ólokið er þá 7 leikjum úr I.
umferð. Á morgun verður einn leik-
ur, í Grundarfirði, milli heima-
manna undir forystu Ragnars Har-
aldssonar gegn Samtex Reykjavík.
sæti, ef heppnin verður með okkar
mönnum. Norðmenn eiga trúlegast
sterkasta liðið í þessum aldurshópi,
með undrabamið Geir Helgemo
fremstan í flokki. Lið íslands skipa:
Hrannar Erlingsson, Matthías Þor-
valdsson, Steingrímur Gautur Pét-
ursson og Sveinn R. Eiríksson.
•Liðsstjóri er Guðmundur Sv. Her-
mannsson.
Jöfn og góð þátttaka er í Sumar-
bridge. Mest er hún á fimmtudög-
um, um og yfir 60 - 70 spilarar á
kvöldi og svipuð þátttaka er á
þriðjudögum. Öllu lakari þátttaka
er á mánudögum og dræmust hefúr
þátttakan verið á miðvikudögum
(bytjendur).
Og íslandsmetið í „lágskor" í
einum leik, á trúlegast sveit Ólafs
Þorsteinssonar gegn ónefndri sveit,
á árunum upp úr 1960. í 20 spila
leik vora lokatölur 5 impar gegn 3
impum...
í dag er ekki óalgengt að tölur
séu svona 95 gegn 75 í 20 spilaleik.
Því má svo bæta við, að á þessum
áram vora iðulega spiluð 40 spil
milli sveita á kvöldi, og spila-
mennska hófst kl. 20.00. Um mið-
nættið hófst svo kapphlaupið í
strætó, en síðasti vagn í Kópavog
og Hafnarfjörð lagði af stað af
Lækjartorgi kl. 24.00. Og það tókst.
Laufléttar úrspilsþrautir era sí-
fellt vinsælar (og sígildar) á vett-
vangi sem þessum. Lítum á eina:
Sagnir hafa gengið:
Vestur Norður Austur Suður
llauf Dobl 2tíglar 2spaðar
pass 31auf pass 3spaðar
pass 4spaðar pass pass
pass
Og Vestur spilar út tígulás. í
öðram slag spilar Vestur spaða-
fjarka, ás og tvisturinn frá Austur. í
þriðja slag leggur þú væntanlega
niður spaðakóng og Austur hendir
tígli. Hvað nú?
Freistandi er að leggja niður
Iaufaás og trompa lauf heim, taka
spaðann og spila hjarta, að kóng.
En hvað svo? Til að vinna spilið
með þeirri spilaaðferð, verður Vest-
ur að eiga ásinn annan í hjarta. En
ef Vestur á ásinn þriðja í hjarta?
Getum við þá unnið spilið? Hvað
með laufadömu í fjórða slag? Vest-
ur lendir væntanlega inni á kóng.
Hann gerir best að skila meira laufi,
sem við trompum heima. Tökum
spaðann af Vestur, spilum hjarta
upp á kóng (við hentum tígli úr
blindum) og trompum okkur heim á
síðasta trompið með laufi úr borði
og spilum enn hjarta. Vestur lætur
væntanlega lágt og þá er einfalt að
spila þriðja hjartanu úr borði. Vest-
ur á ekkert nema lauf eftir og ásinn
BRIDGE
Olafur
Lárusson
íslenska landsliðið í yngri
flokki er þessa dagana að jafna um
frændur okkar á Norðurlandamóti
yngri spilara. Mótið er spilað í
Finnlandi. 9 sveitir taka þátt í mót-
inu. Eftir 3 fyrstu umferðir mótsins
vora okkar menn í 5. sæti. Ég hef
trú á að liðið nái einu af þremur
efstu sætum mótsins, jafnvel 2.
S: ÁK H: KD74 T: 863 L: ÁD76 í borði verður innkoma á fríhjartað. 10 slagir. Einfalt? Látum það liggja á milli hluta, en fallegt er það. Hendur A/V vora:
S: DG8763 H: 1065 T: DG4 L: 3 S: 10954 H: Á93 T: Á L: KGH1082 S: 2 H: G82 T: K10752 L: 954
18 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 5. júlí 1991
tíi AGIÖ — i I YH IKtír uu; c