Þjóðviljinn - 05.07.1991, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 05.07.1991, Blaðsíða 19
Með pabba í vinnunni Konan á HÆNSNAPRIKINU þarf stundum að hafa viðskipti við litla prentstofu í Þingholtunum. Venjulega er bara prentarinn að afgreiða, en um daginn var hjá honum 5 ára strákur. Strákurinn var niðursokkinn í að Bart Simpsson og fjölskylda. - Friðrik Már 5 ára teiknaði. teikna. Og konan á Hænsnaprikinu varð svo hrifin af myndunum hans, að hún bað um að fá að birta þær í blaðinu. Strákurinn heitir FRIÐRIK MÁR ÆVARSSON og segist stundum fara með pabba sínum í vinnuna. Friðrik Már: Ég er í tveimur vinn- um. Ein vinnan heitirSunnuborg. Það er leikskólinn minn. Og ein heitir Prentstofan. Hænsnaprikið: Og hvað gerirðu í vinnunum þínum? Friðrik: Ég leik mér í leikskólan- um. En ég teikna og Ijósrita í prent- vinnunni. Friðrik Már sýnir mér langan mjó- an renning, sem hann byrjar að teikna á. Og hann tekur upp þykkt búnt af enn mjórri renningum, sem pabbi hans hefur skorið utan af blaðabúnka. Pabbi hans var á leið- inni að henda búntinu, en Friðrik vildi geyma það. Hann ætlar að nota renningana. Og á örskammri stuna er hann búinn að lita fínt ennisband. Það er margt hægt að gera við all- an þann pappír, sem fellur til á prent- stofu. Hann heftar og límir, klippir og Ijósritar. Og svo leikur hann sér með skjaldbökukallana. Hann er með hatt. Af því þegar skjaldbökurnar dulbúast, þá fara þær í frakka og setja upp hatt. Góði riddarinn Friðþjófur berst við vonda riddarann Arraband um prins- essuna Arabara Nöru. Arabara Nara hellir vatni yfir Arraband. - Teikn- inguna gerði Friðrik Már Ævarsson 5 ára. Kveðja Festist í lyftu Friðrik: Ég hef fest í lyftu. Hp: Var það í Periunni? Friðrik: Nei. Það var í rauða hús- inu í Síðumúlanum. Ég var með mömmu minni í vinnunni. Hún vinnur á þremur stöðum. Hp: En hvernig stóð á því, að þú festist í lyftunni? Friðrik: Það var eitthvert ókunnugt fólk, sem ýtti á takkann. Hp: Varstu ekki hræddur? Friðrik: Jú, ég fór að hágráta. Friðrik segir mér, að bráðum eigi hann að hætta á leikskólanum, af því hann á að byrja í grunnskóla í haust. Hann hlakkartil. En kvíðirlíka pínulít- ið fyrir. Friðrik: Mig dreymdi, að strákur í svörtum galla var að stríða mér. Hann var 7 eða 9 ára. Sofa riddarar í náttfötum? Ég bið Fiðrik Má um að segja mér söguna, sem hann hugsar sér með teikningunni. Teikningin er af tveim Friörik Már Ævarsson dulbúfnn að hætti skjaldbökukarianna. - Mynd: Kristinn riddurum með langar lensur og þeir eru að berjast um prinsessuna. Friðrik: Hvorum heldur þú með? Konan á Hænsnaprikinu á erfitt með að gera upp á milli þessara glæsilegu riddara. Loks bendir hún á annan. Friðrik: Þessi heitir Friðþjófur. Hann er góði riddarinn. Hann er að berjast til að fá góðu prinsessuna á svölunum. Góða prinsessan hellir vatni yfir vonda riddarann. Hp: Hvað heitir vondi riddarinn? Friðrik: Hann heitir Arraband. Og góða prinsessan heitir Arabara Nara. Hp: Hvað gera riddarar? Friðrik: Þeir fara í búning og berj- ast á hestum. Það deyr smávegis af góðum riddurum, en allir þessir vondu deyja. Á kvöldin fara þeir úr búningunum. En ég veit ekki hvernig náttfötin þeirra eru? Sofa riddarar í náttfötum? Konan á Hænsnaprikinu varð al- veg mát við þessa spurningu. En ef einhver lesandi veit svarið, sendið það þá til Hænsnapriksins. Heimilisfangið er: Þjóðviljinn, Síðumúla 37,108 Reykjavík. Föstudagur 5. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.