Þjóðviljinn - 10.08.1991, Side 5

Þjóðviljinn - 10.08.1991, Side 5
Þýskaland greiðir fyrir útflutningi til Króatíu og Slóveníu Þýskaland steig skref áfram í stuðningi við Króatíu og Slóveníu í gær er Theo Waigel, fjármála- ráðherra, tilkynnti að stjórnin myndi endurnýja tryggingar á lánum veittum til að greiða fyrir útflutningi til lýðveldanna tveggja, en ekki til Serbíu. Þýska stjómin afnam slíkar lánatryggingar viðvíkjandi útflutn- ingi til Júgóslavíu allrar eftir að Króatia og Slóvenía lýstu yfir sjálfstæði 25. júní. Ákvörðun þýsku stjómarinnar í gær gera Króatíu og Slóveniu mögulegt að flytja inn frá Þýska- landi varahluti^ neysluvömr, lyf og sjúkragögn. Ofriðarástandið og truflun viðskipta af völdum þess hefúr aukið mjög efnahagsörðug- leika lýðveldanna tveggja, sem og Júgóslavíu allrar. Waigel sagði að stjómin hefði til athugunar frekari aðstoð við Króata og Slóvena og gaf i skyn að þýska stjómin liti svo á að ófriðar- ástandið í Júgóslavíu væri fyrst og fremst Serbum að kenna. Þeir Eilemdak FKETTTR A Umsjón: Dagur Þorleifsson Waigel - hjálpað upp á Króata og Slóvena en ekki Serba. Helmut Kohl, sambandskanslari Þýskalands og Hans-Dietrich Gen- scher, utanríkisráðherra, hafa haft forgöngu um að Evrópubandalagið taki til athugunar að viðurkenna formlega sjálfstæði Króatíu og Slóveníu. Tiltölulega kyrrt var i gær í Króatíu en sumsstaðar kom þó til skothríðar milli serbneskra skæm- liða og króatísks liðs. Striðsaðilar neituðu og á nokkrum stöðum að færa sig úr skotfæri hvor ffá öðr- um, eins og forsætisráð Júgóslavíu fyrirskipaði er það lýsti yfir vopna- hléi. Ráðherra í Króatíustjóm sagðist í gær telja að vopnahléð væri aðeins bragð með það fyrir augum að undirbúa sókn á hendur Króötum. Virðist Ijóst að lítið megi út af bera til að bardagar bijótist út að nýju. Hizbollah segist vilja fá gíslamálið út úr heiminum Sheikh Mohammad Huss- ein Fadlallah, helsti and- legi leiðtogi líbanska sjíta- flokksins HizboIIah, sem hlynntur er íran, fordæmdi í gær síðasta mannránið í Beirút, er Jerome Leyraud, franskur líknarstarfsmaður, var numinn á brott. Kallaði sjeikinn þetta „meiningarlaust athæfi“ og skoraði á mannræningjana að láta Leyraud lausann þegar í stað. Fadlallah sagði ennfremur að allir vestrænir gíslar_ í Líbanon yrðu lámir lausir ef Israelar létu lausa hundmð Líbana og Palest- ínumanna sem þeir handtóku í Suður-Líbanon. „Við viljum binda endi á þetta mál,“ sagði Fadlallah. Talið er að hópar þeir, sem hafa vestrænu gíslana, 11 að tölu, í haldi, séu flestir í tengslum við Hizbollah, enda þótt fomstumenn flokks þessa neiti þvi að svo sé. Margir telja að íran og Sýrland hafi komið hreyfmgu á gíslamálið í þeim tilgangi að greiða fyrir batn- andi samskiptum sínum og Vestur- landaríkja. Ræningjar þeir er námu Leyraud á brott virðast hinsvegar staðráðnir að koma í veg fyrir það, ef marka má hótun þeirra um að drepa Frakkann ef fleiri gíslar verði látnir lausir. Fadlallah - „meiningarlaust" að ræna Leyraud. Kúvæteldar menga tífalt á við allan iðnað og orkuver Bandaríkja ýska tímaritið Der Spi- egel skýrir svo frá að seint sækist að slökkva olíueldana í Kúvæt, sem íraski herinn skildi þar eftir sig, og slökkvistarfið verði sí- fellt meiri erfiðleikum bundið. Fréttum ber ekki saman um það, hve mörgum olíulindum Irakar hafi kveikt í, og ekki heldur hve mörgum hafi verið slökkt í. Spiegel segir að írakar hafi lagt eld í 732 lindir, sem er hærri tala en sumir aðrir fréttamiðlar hafa verið með um þetta, og að sögn blaðsins logar enn í um 530 þeirra. Úr lindunum rennur þar að auki olía sem myndar sífellt stækkandi tjamir og læki á olíu- svæðunum og þetta logar einnig. I sumarhitanum hefur reyk- mökkurinn upp af eldunum kom- ist i um 7000 metra hæð, að sögn National Science Foundation í Washington. Þar með hefur mökkurinn hækkað sig um helm- ing frá því í vor. Sót frá Kúvæt- eldum hefúr uppgötvast í Norður- Japan og sovéskir vísindamenn segja að regn í suðurhluta Sovét- ríkjanna verði óðum súrara. Worldwatch Institute í Wash- ington telur að mánaðarlega stígi upp i andrúmsloftið frá Kúvæt- eldum 2,5 miljónir smálesta af sóti, ein miljón smálesta af brennisteini og og um 100.000 smálestir af köfnunarefnisoxíði. Það er tíu sinnum meira en það magn skaðlegra efna, sem ger- vallur iðnaður Bandaríkjanna og öll orkuver þeirra sleppa út i loft- ið á jafnlöngum tíma. Utboð Austurlandsvegur um Teigará Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboð- um í gerð Austurlandsvegar um Teigará í Jökuldal. Lengd kafla 0,46 km, fylling og burðarlag 7.000 rúmmetrar og stál- plöturæsi 3,5 m i þvermál og 30 m að lengd. Verki skal lokið 15. október 1991. Útboðsgögn verða afhent hjá Vega- gerö rikisins á Reyðarfirði og i Reykjavlk (aðalgjaldkera) Borgar- túni 5, frá og með 13. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fýrir kl 14:00 þann 26. ágúst 1991. Vegamálastjóri Auglýsið í Þjóðviljanum Hvirfilbylur veldur tjóni í Sjanghaí Hvirfilbylur skall á fimmtudaginn á Sjang- haí, mestu borg í Kína, og nágrenni. Að sögn Alþýðudagblaðsins í Peking fór- ust 14 manns af völdum óveðurs- ins, 161 slasaðist og um 3000 hús eyðilögðust. Steypiregn og flóð hafa undan- farið valdið miklu tjóni og vand- ræðum í Sjanghaí, sem hefúr um 13 miljónir íbúa. Utboð Lýsing Óshlíðar 1991 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum f lýs- ingu á Djúpvegi (61) milli Hnlfsdals og Bol- ungarvikur. Helstu magntölur: Ljósastaurar 68 stk., tengikassar 8 stk., lengd lagnaskurða 3.000 metrar og frágangur axla 2.200 ferm. yerki skal lokið 15. nóvember 1991. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rík- isins á (safirði og I Reykjavlk (aðalgjald- kera), Borgartúni 5, frá og með 12. þ.m. Skila skal tilboöum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 26. ágúst 1991. Vegamálastjóri Síða 5 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. ágúst 1991 r • - I .VI

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.