Þjóðviljinn - 10.08.1991, Síða 7

Þjóðviljinn - 10.08.1991, Síða 7
Raforka flutt með sæstreng fyllilega samkeppnisfær Frumathuganir sem _gerðar hafa verið á hagkvæmni þess að flytja raforku frá Islandi um hafið til Skotlands benda til þess að orka flutt með þessu móti kunni að vera samkeppnis- fær við aðra raforku á Bretlandseyjum. Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði í samtali við blaðið í gær, að þær takmörkuðu athuganir sem þegar hefðu verið gerðar bentu tii þessa. Nýlega voru hér á landi fulltrú- ar ffá frönsku fyrirtæki, ALKAT- EL, sem m.a. framleiðir og selur sæstrengi til raforkuflutninga. - Þetta franska fyrirtæki hefur sýnt mikinn áhuga á þeim hugmyndum sem við höfum verið að kanna varðandi raforkuflutning með sæ- streng yfir hafið. Að þeirra mati er fullkomlega raunhæft að gera ráð fyrir því að framkvæmdatími við lagningu slíks sæstrengs til Skot- lands sé þetta þnú til fiögur ár, sagði Halldór. Á næstu dögum er von á til- boði ffá ffanska fyrirtækinu um tæknilega hagkvæmnisathugun á framkvæmdinni. Halldór sagði að eins og sakir stæðu gæti hann vitanlega ekki sagt til um hvaða afgreiðslu það tilboð myndi fá, en það yrði alla- vega igrundað vel áður en afstaða til þess yrði tekin. Þá fóru tæknimenn ffá Lands- virkjun nýlega á fund fulltrúa eins stærsta orkufyritækis á Bretlands- eyjum, Eastem Electricity, til að kynna þær frumhugmyndir sem Landsvirkjun hefúr um möguleika á orkuflutningi og orkusölu til Bretlands. - Slíkir orkuflutningar og sala gætu þó aldrei orðið að veruleika fyrr en upp úr aldamótunum. Áður en af slíkri framkvæmd yrði þarf að vera búið að kanna mun gaum- gæfilegar allar hliðar þessa máls, tæknilega, varðandi alla fram- kvæmd og markaðs- og sölumál, sagði Halldór. Aðspurður um hugsanlegt verð sem fengist í Bretlandi fyrir raf- orku sem flutt yrði með sæstreng, sagði Halldór að enn væri of snemmt að segja með nokkurri vissu til um það hvaða orkuverð byðist. - Þær athuganir sem þegar hafa verið gerðar benda þó til þess að orka sem flutt væri með sæstreng geti verið samkeppnisfær við raf- orku sem ffamleidd er úr nýjum kola-, olíu- og kjarorkustöðvum. Hins vegar bendir ýmislegt til að mjótt yrði á mununum með samkeppnishæfni raforku úr sæ- streng og orku sem ffamleidd er úr gasi, sagði Halldór. Áð hans sögn á Landsvirkjun von á skýrslu ffá bresku markaðs- og ráðgjafarfyrirtæki um breskan orkusölumarkað og um hugsanlega samkeppnishæfni íslenskrar raf- orku með tilliti til einkavæðingar á raforkuffamleiðslu og sölu í Bret- landi. — Þrátt fyrir þær augljósu tak- markanir sem eru á þeim athugun- um sem gerðar hafa verið, sýnist okkur fúll ástæða til að gefa þenn- an möguleika ekki ffá okkur og halda ffekari athugunum áfram, sagði Halldór Jó.iatansson. -rk Unglingahús í miðbæinn Bergþór Halldórsson, yfirverkfræðingur sjálfvirku sfmstöövarinnar, Hrefna Ingólfsdóttir, blaðafulltrúi og Þorvarður Jóns- son, framkvæmdastjóri tæknisviðs, á blaðamannafundinum ( gær, þar sem skýrt var frá kaupunum á nýja tæknibúnaðin- um. Mynd: Jón Fjörnir. Símstöðin kaupir nýjan hugbúnað ^ borgarráðsfundi sl. þriðjudag lagði minni- hlutinn í ráðinu fram jL JLbókun og tillögur er varða unglingana öðrum fremur. í bókuninni segir að enn einu sinni flytji minnihlutinn tillögur um sérstakt unglingahús í eða við miðbæ Reykjavíkur. Einnig lögðu fulltrúar minnihlutans til að komið verði á fót félagsað- stöðu í Seljahverfi og telur að með því megi minnka komu ung- linga úr þeim hverfum í miðbæ- inn. Umræður um helgarölt ung- linga í miðbæ Reykjavíkur hafa verið teknar upp á hveijum fundi undanfarið. Borgarráðsfulltrúar minnihlutans hafa fagnað mjög þeim ákvörðunum borgarstjóra að bregðast á einhvem hátt við slæmu ástandi sem oft skapist í miðbæ Reykjavíkur um helgar. 23. júlí sl. var Markús Öm Antonsson, borg- arstjóri, spurður á borgarráðsfúndi, hvort hann ætlaði sér að stíga skrefið ti! fulls, taka undir og gera að sínum tillögur í þessu efni, sem minnihlutinn hefur flutt árlega nú í mörg ár fyrir daufum eyrum meiri- hlutans. Tillögur þær sem minni- hlutinn minnist á fialla um stór- bætta hreinlætisaðstöðu og aðstöðu fyrir unglinga með rekstri ung- lingahúss í miðborginni. Borgarstjóri svaraði síðan fyr- irspum minnihlutans á fúndi borg- arráðs 30. júlí sl. Þar kemur m.a. fram að lögreglan hafi Qölgað í eftirlitssveitum sínum til þess m.a. að hafa nánari gætur á sibrota- mönnum og öðrum sem líklegir teljast til líkamsárása. Einnig segir að gerðar hafi verið ráðstafanir til að bæta aðstöðu fyrir leigubíla, sorpílátum hafi verið fiölgað, sal- emisaðstöðu sé verið að bæta og raflýsing í miðbænum verði aukin. Hins vegar segir í svari borgar- stjóra að skiptar skoðanir séu um hvaða gagn yrði af rekstri ung- lingahúss, því með öllu sé óvíst að skipulögð starfsemi af því tagi höfði til unglinga sem safnast sam- an í miðborginni um helgar. Minnihlutinn í borgarráði lagði því ffam bókun og tillögur á síð- asta fúndi borgarráðs sem fram fór 6. ágúst sl. Þar segir að í svari borgarstjóra við fyrirspum um að- gerðir í miðbænum komi margt fram sem verði til bóta. Aðgerðir þær sem hann boði breyti þó engu um það, að enn vanti samkomu- og skemmtistaði fyrir unglinga sem em of ungir til þess að sækja vín- veitingastaði en finna ekki lengur vettvang við sitt hæfi í félagsmið- stöðvum hverfanna. Minnihlutinn lagði því ffarn eftirfarandi tillögu: „Borgarráð samþykkir að leita nú þegar eftir kaupum á húsnæði fyrir unglingahús í eða við miðbæ Reykjavíkur. Það verði rekið með öðru sniði en félagsmiðstöðvar hverfanna og ætlað eldri ungling- um en þeim sem þær sækja. Tillög- ur um starfsemina verði mótaðar af starfsmönnum Iþrótta- og tóm- stundaráðs Reykjavíkur og Ung- lingadeildar.“ Minnihlutinn í borgarráði sagði einnig í bókun sinni að í Selja- hverfi og í hverfúm milli Snorra- brautar og Vesturbæjar vanti enn félagsaðstöðu fyrir unglinga. Það sé því lítið annað að gera fyrir þessa unglinga en að hittast og skemmta sér í miðbænum. Minni- hlutinn lagði því fram tillögu þar sem borgaryfirvöld eru hvött til að koma félagsmiðstöðvum á fót í þessum hverfum. í lok bókunar minnihlutans segir að enn betur þurfi að huga að inöguleikum Utideildar og Ung- lingadeildar til þess að sinna for- vamarstarfi. Hann hvetur því til þess, að við gerð næstu Qárhags- áætlunar verði betur komið til móts við óskir deildanna um stöðuheim- ildir en gert hefúr verið til þessa. -sþ Skáleyjar í byggð í Nýju Helgarblaði í gær var sagt að Flatey væri eina eyjan í Breiðafirði sem er í byggð allt árið um þessar mundir. Það er rangt. í Skáleyjum búa bræð- urnir Eysteinn og Jóhannes Gíslasynir félagsbúi allt árið. Þá var í greininni Undraheim- ur Breiðafiarðar sagt frá Dímon- um. Þær eyjar heita ekki bara Dímonar heldur Dímona-klakkar og eru oflast kallaðir Klakkamir eða Klakkseyjar. Em lesendur beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum. -Sáf a kveðið hefur verið að /\ kaupa nýjan hugbúnað xVfyrir stýrikerfi símstöðvar- innar hér á landi og áætlað er að hann verði tekinn i notkun í byrjun næsta árs. Við bilanir sem urðu í sjálf- virku símstöðinni í Landssímahús- inu í síðasta mánuði komu í ljós ákveðnir veikleikar í stöðinni. Til þess að auka rekstraröryggi hennar hefur nú verið skipt um ákveðnar vél- og hugbúnaðareiningar í stjórnkerfi símstöðvarinnar og vona menn að það verði til þess að halda stöðinni gangandi þar til nýr hugbúnaður verði tekin í notkun. Þess má geta að ekki hefúr enn fúndist slfyring á bilunum þeim sem urðu í símstöðinni í síðasta mánuði. Framleiðendur búnaðarins, Er- icson, hafa fylgst vel með þessu máli og veitt aðstoð við viðgerðir. Þeir hafa lýst því yfir að þeir líti þessar bilanir mjög alvarlegum augum og muni gera það sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir fleiri slíkar trufianir á rekstri símstöðvarinnar. Nýi hugbúnaðurinn, sem keyptur verður, er sá sami og Dan- ir eru í þann mund að taka í notk- un. Framtíðarþróun þessa hugbún- aðar verður því sameiginleg fyrir Island og Danmörku. Nýi hugbúnaðurinn eykur bæði afkastagetu og rekstraröryggi sím- stöðvarinnar. Með hliðsjón af fyrr- nefndum bilunum verður þessari breytingu hraðað eins og unnt er. Einnig er til athugunar hvort 'T síðasta þingi var ríkis- A stjórninni heimilað að yfirtaka 1.200 miljón JL JLkróna skuld Byggða- stofnunar. Þetta gerði stofnun- inni kleift að leggja þá upphæð í afskriftarsjóð stofnunarinnar. Þá eru í afskriftarsjóði 1.655 milj- ónir króna. Það þýðir að stofn- unin ræður við að verða fyrir þetta miklum áföllum, og for- ráðamenn hennar búast við því að verða fyrir þetta fjárfrekum áföllum og að minnsta kosti það. Upphaflega taldi stofnunin sig þurfa að fá ríkið til að yfirtaka skuldir uppá þijá miljarði króna. En Guðmundur Malmquist for- stjóri Bygðastofnunar sagði að þá hefði allt verið tínt til. En bætti við að 1.200 miljónir væru algert lág- mark. flýta skuli uppsetningu tveggja sér- stakra skiptistöðva fyrir höfuð- borgarsvæðið til þess að koma í veg fyrir að rekstrartruflanir ein- stakra stöðva hafi víðtæk áhrif á símakerfi svæðisins. -KMH Matthías Bjamason stjómarfor- maður sagði ástæðuna fyrir því að stofnunin þyrfti svona mikið fé í afskriftasjóð vera þá, að hún væri ekki banki, heldur þyrfti oft að lána áhættufiármagn. Hann og Guðmundur benda á að undanfarin ár hafi stofnunin verið látin taka að sér mörg áhættusöm verkefni, svo sem í fiskeldi, og hafi tekið til þess erlend lán. Þau lán þarf að borga til baka með vöxtum og þannig hafi eiginfiárstaða stofnunarinnar nálg- ast hættumörk. Eigið fé stofnunar- innar er nú á fiórða miljarð króna. Þessi 1,6 tniljarður króna í afskiftasjóð þýðir að í honum er um 17 prósent af útistandandi lán- um stofnunarinnar. Tapist ekki meira en það á næstunni stendur stofnunin vel. -gpm Byggðastofnun afskrifar 1,6 miljónir S(ða 7 ÞJÓÐVILJINN. Lgugardagur 10. ágúst,19ai, » , / i : l'feVl ) i 'i’'"l'tJSÚVLeií J il“i 1 J'Vini .

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.