Þjóðviljinn - 13.09.1991, Side 3

Þjóðviljinn - 13.09.1991, Side 3
Kvikmyndir Bíó afa fyrir bí Þýska kvikmyndahátíðin í Regnboganum hefst á morgun. Þessi kvikmyndahátíð flytur okkur það nýjasta sem gerst hefur í þýskri kvikmyndagerð. Þar hefur ný kyn- slóð kvikmyndagerðaramanna fest sig í sessi og „Nýja þýska kvik- myndin“, sem svo var kölluð, er ekki lengur ný. Fyrir tæpum tveim áratugum varð vart við unga, reiða menn á stutt- myndahátíð í Oberhausen í Þýska- landi. Þeir höfðu hátt eins og Þjóð- veija er siður, kváðu „bíó afa“ löngu dautt úr öllum æðum og sögðu sinn tíma kominn. Með „bíói afa“ áttu þeir við væmnar sveitalífsmyndir sem gerðar voru í Þýskalandi á þeim tíma. Þessir ungu menn snem sér síðan að kvikmyndaffamleiðslu og nokkrir þeirra urðu verulega ffægir. Nægir þar að nefha Fassbinder, Herzog, Volker Schlöndorff og Wim Wenders til dæmis. En árin líða og ekkert stendur kyrrt. Fassbinder er dauður, Herzog í andlegri kreppu, Volker Schlöndorff kominn með lasburða fót milli stafs og hurðar í Hollywood og Wim Wenders stendur einn eftir. Þeir eru sjálfir orðn- ir „afar“ í kvikmyndagerðinni. „Nýjasta þýska kvikmyndin" er ekki Iengur alþýsk. Hún verður sífellt evrópskari. Hún stefnir að því að vera ljóðræn og gróf, ljót og falleg, villt og hljóðlát, fyndin og sorgmædd. A morgun gefst okkur kostur á því að sjá hvort þetta hefur tekist. Meðal þeirra mynda sem sýndar verða er sakamálagamanmyndin Sázka, eða Veðmálið, sem er 80 mín- útna verðlaunamynd eftir Martin Walz. Hún verður sýnd annað kvöld í Regnboganum kl. 23.00. Glæpir í lestum eru að visu þekkt fyrirbrigði en guðir á glaspabrautinni með Bruno Ganz í broddi fylkingar geta ekki kallast venjuleg uppákoma. En eru guðimir sekir? Hvað með parið sem er að koma úr misheppnuðu sum- arffii? Eða lögregluforingjann, þá leiðu homös? Það fá þeir einir að vita sem fara á myndina. Martin Walz, handritshöfundur og leikstjóri, er fæddur í Sviss árið 1964. Hann vann sem leikari áður en hann sneri sér að kvikmyndaleikstjóm. Úr kvikmyndinni Sázka eða: "Veð- málið " sem sýnd verður á þýskri kvikmyndahátið um helgina. Stuttmyndin Vals verður einnig sýnd kl. 23.00 annað kvöld. Hún er eftir sama höfund og hlaut veiðlaun áhorfenda á evrópsku stuttmyndahá- tíðinni í Berlín 1989 og aðalverðlaun á stuttmyndahátið í Biberach. Klukkan níu þetta sama kvöld verður sýnd kvikmyndin um síðustu göngufor Wallers. Það er margfold verðlaunamynd eftir einn gesta hátíð- arinnar, Christian Wagner, sem verður viðstaddur sýninguna. A sama tíma verður sýnd kvikmynd sem heit- ir:Jafnvægið. Það er 8 mfnútna teikni- mynd eftir Cristoph og Wolfgang Lauenstein. Hún heftir fengið óskars- verðlaun. Á sunnudag kl. 19.00 verður sýnd 6 mínútna hreyfimynd sem heitir „Yndislegt kvöld“ og jafnffamt heim- ildamyndin:“Síðasta árið um borð f Titanic". Sú kvikmynd er eftir Andre- as Voigt sem er einn af gestum hátið- arinnar og verður viðstaddur sýning- una. -kj Allip bílar með 30.000,-kr afslætti, frá kr 459.500,- stgr. Aðeins kr 150.000,- út eða bíll uppí -eftirstöðvar til allt að þriggja ára > o (S z avorit er góðurfjölskyldubíll. Fallega hannaður fimm dyra I 3 h Ul ogfimm gíra, framhjóladrifinn, rúmgóður, léttur í stýri og < s eyðslugrannur. Favorit hefur hlotið lof bílagagnrýnenda víða um heim og verið tilnefndur sem hagkvœmasti bíllinn, „bestu kaupin' o. sv.fr. JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI 2 • S: 42600 NÝTT HELGARBLAÐ 3 FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.