Þjóðviljinn - 13.09.1991, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 13.09.1991, Blaðsíða 12
Auglýsingar FJÖLBRAUTASKÓLi SUÐURU\NDS Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi leitar eftir bókasafnsfræðingi til starfa. Upplýsingar gefur skólameistari, sími 98- 22111. Akraneskaupstaður - Samkeppni um lag og texta Akraneskaupstaður efnir til almennrar sam- keppni um lag og texta í tilefni af 50 ára af- mæli kaupstaðarins. Eftirfarandi reglur gilda um samkeppni þessa og gangast þátttakendur undir þær: 1. Keppnin er almenn og öllum opin. 2. Leitað er að frumsömdu lagi með frum- sömdum íslenskum texta sem tengist Akra- nesi. Lag og texti mega hvorki hafa komið út á hljómplötu, snældu eða geisladiski, né hafa tekið þátt í söngvakeppni. Lagið má ekki taka meira en 4 mínútur í flutningi. 3. Lögum skal skilað á snældum og texti skal fylgja með. Snælda og texti skulu merkt heiti lagsins. Rétt nafn, símanúmer og heimilisfang höfundar skal vera í lokuðu umslagi sem er merkt heiti lagsins og dul- nefni höfundar. Allt skal þetta sett í eitt umslag og sent til dómnefndar. 4. Hverjum höfundi er heimilt að senda fleiri en eitt lag í keppnina en þá skulu þau send hvert í sínu umslagi og hvert undir sínu dul- nefni. 5. (dómnefnd sitja: 1. Gísli Einarsson 2. Lárus Sighvatsson 3. Ragnheiður Ólafsdóttir 4. Jensína Valdimarsdóttir 5. Steingrímur Bragason Lögunum skal skila til formanns dómnefnd- ar eða bæjarstjórans á Akranesi, Kirkjubraut 28, Akranesi, fyrir 20. desember 1991. 6. Dómnefndin velur þrjú lög til flutnings á af- mælishátíð bæjarins og ákveður röð þeirra til verðlauna. Eftirfarandi verðlaun verða veitt: Fyrir besta lag og texta kr. 50.000,- Fyrir þau tvö lög og texta sem dómnefnd telur rétt að verðlauna kr. 20.000,- 7. Akraneskaupstaður áskilur sér rétt til notk- unar laganna á afmælisárinu. Þátttakendur beri allan kostnað af þátttöku í keppni þessari. Afmælisnefnd Akraneskaupstaðar Hafnarfjarðarbær Lóðaúthlutun Hafnarfjarðarbær mun á næstunni úthluta lóðum fyrir einbýlishús á Hvaleyrarholti og í Setbergslandi. Umsóknarfrestur er til þriöjudags 24. sept- ember n.k. Eldri umsóknir þarf að endurnýja. Nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6. Bæjarverkfræðingur Umsóknir um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir um- sóknum um framlög ur sjóðnum fyrir árið 1992. Eldri umsóknir þarf að endurnýja. I heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu liggja frammi sérstök umsókna- reyðublöð. Ætlast er til að umsækjendur sendi teikningar að fyrir- huguðum byggingum og endurbótum ásamt lýsingu húsnæðis, s.s. hlutverki rýma, fjölda vistrýma, verk- stöðu og skýringum á þeim þjónustuþáttum sem áætl- að er að efla. Áætlanir um byggingar- og rekstrar- kostnaö skulu fylgja. Þá skal með vistunarmati sýnt fram á þörfina fyrir nýj- ar framkvæmdir. Skrifleg loforð byggingaraðila um fjár- framlög vegna þess hluta fjármögnunar, sem þeir munu ábyrgjast, skulu fylgja. Endurnýjuðum umsóknum skulu fylgja endurskoðaðir reikningar fyrir árið 1991 frá löggiltum endurskoðanda og yfirlit um framkvæmdakostnað yfirstandandi árs. Umsóknum ber aö skila til Framkvæmdasjóðs aldr- aöra, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 105 Reykjavík, fyrir 1. desember 1991. Framkvæmdasjóður aldraðra FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Siðumúla 39 — 108 Reykajvík — Sími 678500 Félagsráðgjafi Félagsráðgjafi óskast til starfa í 50% stöðu á Áfangastaðinn Amtmannsstíg 5A. Nánari upp- lýsingar veitir forstöðumaður í síma 26945. Umsóknarfrestur er til 30. september n.k. Starfsmaður Starfsmann vantar í 46% starf við Unglingaat- hvarfið Tryggvagötu 12. Um er að ræða kvöld- starf með afmörkuðum hópi unglinga. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun eða reynslu sem nýtist í skapandi meðferðarstarfi. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 20606. Umsóknarfrestur er til 30. september n.k. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsókna- reyðublöðum sem þar fást. Umhverfisvarnarmála deild Bandaríkjahers Það hefur vakið tals- verða athygli hvernig hið ísienska umhverfísráðu- neyti bregst við tíðindum af HeiðarfjallL Eftir að gasmælinga- menn ftá ráðuneytinu höfðu lokið ætlunarverki sínu í á- kaflega miklu næði fyrir fxéttamönnum, voru þeir heimsóttir af landeigendum Eiðis, j>eim Bimi Erlends- syni og Sigurði R. Þórðar- syni. Það kom landeigendum nokkuð á óvart að sjá mæl- ingamennina stikla yfír olíu- bletti og hrasa um blýraf- geyma á staðnum án þess að þeir gerðu tilraun til þess að taka jarðvegssýni í grennd- inni. í fyrri greinargerðum ráðuneytisins um ferðir rann- sóknarhóps prófessors Jónas- ar Eliassonar var varað við því að hrófla mikið við haug- unum sökum hættu á að ban- eitruð efni kynnu að gjósa upp. Þama var samt hægt, án lífshættu, að ná sýnum á yfir- borðinu, sem einhveija vis- bendingu gætu gefið um það, hvað þama leyndist. Menn voru komnir alla leið á Langanes en tóku bók- staflega það hlutverk sitt svo að reyna einungis að mæla rokgjöm, lífræn efni, að vakti undran landeigenda Akváðu þeir því sjálfir að taka sýni til efhagreining- ar og vora ekkert að fara í felur með það, mynduðu verknaðinn í bak og fyrir í viðurvist heilbrigðisfulltrúa Þórshafhar. Niðurstöður efnagrein- inganna hafa síðan farið mjög fyrá btjóstið á sérfræð- ingi ráðuneytisins í gróður- vemdarmálum (eða ætti ég frekar að segja fjölmiðlafull- trúa?), Jóni Gunnari Ottós- syni. Hann lýsti yfir því í út- varpsfféttum, miðvikudaginn 11. september, að þessar töl- ur væra marklausar sökum þess að ranglega hefði verið staðið að sýnatökurmi. Þetta er ekki fyrsta glori- an sem kemur frá Jóni Gunn- ari úr umhverfisráðuneytinu. Það er hins vegar umhugsun- arefni, hvers vegna hann og fleiri hamast við að gera mál- flutning landeigenda og til- raunir þeirra til að sanna hann sem tortryggilegust. Sýni, sem tekið er úr jarðvegi undan blýrafgeymi og inniheldur brot úr honum er að sjálfsögðu ekki sönnun þess að meðalstyrkur blýs i Heiðarfjalli sé 3%, heldur einungis staðfesting þess að eiturefni, eins og blý, eru far- in að berast út í jarðveginn. Samkvæmt munnlegum upplýsingum héraðsmanna, sem störfiiðu við ratsjárstöð- ina á fjallinu, var hundruðum geyma af svipuðu tagi hent þama í sorpgryfjumar. Einar Vaiur Ingimundarson skrifor Jarðvegssýni, sem í mæl- ast sjö hundraðshlutar tor- kennilegrar olíu, eru heldur ekki vísbending Jæss að ís- lendingar muni brátt gerast aðilar að OPEC, heldur þess, að þrátt fyrir tuttugu ára veðrun á Heiðarfjalli hafa ó- þekkt, lífræn efiii, ekki náð að brotna niður. Af ffásögnum erlendra tímarita má ráða, að víða um lönd hafi ameriski herinn skilið eftir sig eiturhauga. I sumum þeirra hefur eiturefn- ið PCB fundist. Ekki liggur ljóst fyrir hvort spennum, sem inni- héldu PCB, var hent á sorp- haugana á Heiðarfjalli. Það era einmitt svör við þvi, sem þeir Bjöm og Sigurður krefj- ast. Og þykir engum mikið. Umhverfisráðuneyti er sett á stofn á íslandi til að flýta fyrir ýmsum úrbótum á sviði umhverfismála, sem flestir landsmenn virðast vera sammála um. Vamarmálaskrifstofa ut- anríkisráðuneytisins gætir hins vegar hagsmuna amer- íska hersins hér á íslandi. Eg leyfi mér að gera þá kröfu, að þessu tvennu verði ekki raglað saman. Jón Gunnar Ottósson með fagmannlega tekið sýni. RIKISSKIP VIÐ FLYTJUM FISKINN SÉRSTAKIR ÍSFISKGÁMAR Þegar þú þarft að senda fisk á fiskmarkað innanlands skaltu tala við okkur. Við bjóðum sérstaklega o w' ísfiskgáma sem uppfylla ströngustu kröfúr um fiskflutning. 28822 Hafðu samband við næsta ^ - umboðsmann og fáðu allar upplýsingar um hvernig þú kemur aflanum fljótt og örugglega á næsta fiskmarkað. RIKISSKIP ÞJÓÐBRAUT Á SJÓ Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu. Pósthólf 908,121 Reykjavík. Sími Fax 28830. L NÝTT HELGARBLAÐ f 2 FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.