Þjóðviljinn - 13.09.1991, Síða 17
Helgarrúnturinn
M a t s e I j a n
Þrjú galopin leikhús
Mynd: Jim Smart.
Hollensk nýlist
í tilefni af 50 ára af-
mæli Félags íslenskra leik-
ara verður opið hús á morg-
un í Þjóðleikhúsinu, Borg-
arleikhúsinu og hjá Leikfé-
lagi Akureyrar. Aðgangur
er ókeypis og gestir vel-
komnir .Boðið verður upp á
skemmtun af ýmsu tagi.
Borgarleiichúsið verður
Félagsstarf
aldrabra í
Gerðubergi
Félagsstarf aldr-
aðra í Gerðubergi í dag
verður sem hér segir:
Fyrir hádegi hár-
greiðsla og fótsnyrting.
Kl. 12 hádegishressing.
Eftir hádegi spilað og
spjallað. Kl. 15 kaffi.
Söngur og
vatnslitir
í litlum sýningarsal
í Amamesi, nánar til-
tekið í Gunnarssal að
Þemunesi 4, opnar
Torfi Jónsson sýnmgu
á 24 vatnslitamyndum
sem gerðar eru á Italíu
og Vestfjörðum. Sýn-
ingin verður opnuð á
morgun kl. 15.00 og
Ester H. Guðmunds-
dóttir söngkona syngur
við opnunina.
Sýning Torfa
stendur þessa og næstu
helgi en þegar henni
lýkur mun Ingibergur
Magnússon taka við og
sýna pastelmyndir o.fl.
í Gunnarssal.
opiðffákl. 10.30-16.00. Kl.
11.00 hefst opin æfing á
Dúfhaveislunni eftir Hall-
dór Laxness á stóra sviðinu.
Leikarar taka á móti gestum
og aðstoða þá. Kl. 13.30
verður boðið upp á skoðun-
arferðir um húsið, litið inn á
æfingu á Þéttingu á litla
sviðinu en uppi í æfingasal
á 4. hæð verður sýning fyrir
bömin. Tónlist verður leik-
in i forsal en kaffiveitingar
verða í matsal á 3. haeð.
Húsinu verður lokað kl.
16.00.
I Þjóðleikhúsinu hefst
opin æfing á bamaleikritinu
Búkollu ld. 13.00, laugar-
dag á stóra sviðinu. Miðar
verða afhentir í miðasölu
frá kl. 13.00 í dag, 13. sept-
ember, og milli ld. 12.00 og
13.00 á laugardag. Frá ld
15.00 er gestum boðið í
skoðunarferð um húsið og
þá gefst jafhffamt tækifæri
til að iæða við leikhúsfólk-
ið. Ymsar uppákomur
verða á víð og dreif um
húsið og kaffiveitingar í
Þjóðleikhúskjallaranum.
Húsinu verður lokað kl.
18.00.
Hjá Leikfélagi Akur-
eyrar verður opið hús ffá kl.
13.00-17.00. Opin æfing
verður á Stálblómum kl.
13.00-15.00. Því næst sest
Valgeir Skagfjörð við flyg-
ilinn í anddyri þar sem leik-
arar og gestir fá smjörþef-
inn af þeim fjölda sönglaga
sem prýða munu jólasöng-
leikinn: Tjútt og trega. A
sama tíma verður hægt að
rölta rnn leikhúsið baksviðs
en kaffiveitingar verða á
Borgarasal Sarnkomuhúss-
ins.
Fons Brasser er sjálf-
menntaður listamaður.
Hann hefur haldið 14 sér-
sýningar víða um Evrópu
og tekið þátt í rúmlega 40
samsýningum vestan hafs
og austan. Hann mun
mála myndverk á einn
vegginn í Nýlistasafninu
við Vatnsstíg og opna
sýningu sína þar á morgun
kl. 14.00. Þá gefst mönn-
um kostur á að sjá hvort
hann hefur máiað skratt-
ann á vegginn.
Þetta er annars hin
merkasta farandsýning og
hún er skipulögð af Ný-
listasafninu undir stjóm
Kees Vissers, varafor-
manns safnsins. Héðan fer
sýningin til Noregs 29.
september, þaðan til Dan-
merkur en endar í De
Beyerd listasafninu í
Breda í Hollandi.
Blús Lifandi ó barnum tónlíst á leikur KGB . Það eru
Blúsbarnum Laugavegi Kristján Guðmundsson,
73, öll k' iröld nema Steingrímur Guðmunds-
mánudagaog i þriðiudaga. son og Stef 'án Ingólfs-
Súfóban i á föstu- son.
son. Kjartan Valdimnrs- leikur Tríó E jörns Tltor-
son, Hafþór Guðmunds- oddsen frá kl . 22.00.
son og Þc irður Guð- Með Bir ni eru þeir
mundsson leika frá Bjarni Sve inbjörnsson
kl.23,.00. A laugardagskvöldi og Guðmuti grímsson. tdur Stein-
Frum-
sýning
í kjallara
Hlað-
varpans
Alþýðuleikhúsið
frumsýnir á laugardag kl.
20.30 leikritið: Undir-
leikur við morð.
Sýningin er i kjallara
Hlaðvarpans á Vestur-
götu 3.
Með hlutverk fara
Viðar Eggertsson, Hjálm-
ar Hjálmarsson, Jórunn
Sigurðardóttir, Bryndís
Petra Bragadóttir og Þor-
steinn Backmann. Miðað
við það hvemig gekk á
æfingu á miðvikudags-
kvöldið lofar þessi sýn-
ing góðu.
Mynd:
Jim Smart.
Stiklað á stóru
Gönguferðir
Vikuleg laugardagsganga Hana nú verður á
morgun. Það verður lagt af stað frá Fannborg
4 kl. 10.00 og með fréttatilkynningu Hana nú
fylgja þessi spaklegu vísdómsorð: „Nú hallar
sumri og hauststemmningin breytir náttúrunni
og veðrið getur tekið allar stefnur. Ekkert er
betra í slíkum þáttaskilum í náttúrunni en að
koma upp úr hálftíu að Fannborg 4 og drekka
molakaffi og skiptast á almæltum tíðindum og
rölta síðan saman í klukkutíma".
Sjálfsagt gildir svipuð speki um gönguferð Úti-
vistar kl. 10.30 á sunnudag en þar er boðið
upp á dagsferðir um helgina. Þar verður aftur
tekið til við Reykjavíkurgönguna sem er laus-
tengd raðganga úr Básum til Reykjavíkur, í
framhaldi af Þórsmerkurgöngunni.
Rólegheitarölt um Höskuldarvelli hefst kl.
13.00. Það er heppileg ganga fyrir fólk með
börn og byrjendur í gönguferðum.
Tónleikar
Sinfóníuhljómsveit Islands verður í Laugalandi
í Holtum í dag, í Þorlákshöfn á morgun og í
Vestmannaeyjum á sunnudag.
Myndlist
Gífurleg aðsókn er að sýning-
unni:“Úr myndheimi Muggs“ sem
nú stendur yfir í Listasafni (s-
lands. I tilefni af sýningunni hefur
verið gefið út veglegt rit þar sem
rakinn er ferill listamannsins og
fjallað um þá einstöku mynda-
flokka sem eru á sýningunni. Einnig hefur verið
gefið út plakat og kort.
Sýningin stendur til 3. nóvember næstkom-
andi. Listasafn íslands er opið alla daga nema
mánudaga kl. 12.00-18.00. Aðgangur að sýn-
ingunni er ókeypis og kaffistofa safnsins er op-
in á sama tíma.
Auðveld og góð ostakaka
Einn allrabesti eftirréttur sem
um getur er ostakaka. Þær eru til i
ýmsum útgáfum, bakaðar og
óbakaðar, þykkar og þunnar og
botnarnir geta verið margskonar.
Það er alveg óþarfi að hugsa um
allar hitaeiningarnar sem í kð-
kunni eru þvi það er briðhoUt að
kitla bragðiaukana með smá sæ-
tindum stundum.
Ostakakan sem hér fer á eftir
hefur aldrei misheppnast svo ég viti
og hafa þó nokkrir fengið hjá mér
uppskriftina sem er stolin og stæld
úr amerískri bók sem heitir því fal-
lega nafhi „The joy of Cheesecake“.
Uppskriffin hljóðar svona:
Byijið á að hita ofninn í 175 C.
Botn:
1/3 bolli sykur
1 og 1/2 bolli mulið hafrakex (ekki
samt alveg i duft)
6 msk. brœtt smjör
(ekki smjörliki)
Þessu er blandað vel saman og
sett í smurt springform og geymt í
frysti á meðan kökudeigið sjálft er
búið til en í því eru:
3 stór egg
3/4 bolli sykur
500 gr rjómaostur
riftnn börkur af litilli sítrónu
1 tappi vanilludropar
Þessu er hrært saman, helst með
handþeytara eða í hrærivél. Ef þið
hafið ekki slík tæki má vel nota pí-
skara en þá er mjög áríðandi að ost-
urinn hafi verið látinn standa við
stofúhita í a.m.k. klukkustund. Þetta
á að vera vel blandað.
Þessu er hellt yfir botninn og
bakað við 175 C undirhita i ca. 50-
55 mín. Tekið út, ofninn stilltur á
225 C og effirfarandi blöndu hellt
yfir:
Ofaná: 1 dós sýrður ijómi sem í
er hrært 2 msk. sykri og 1 tappa af
vanilludropum.
Þessu er hellt yfir og kakan aftur
sett í ofninn í 5 mínútur.
Eftir að kakan er bökuð er hún
kæld og svo sett f isskáp yfir nótt.
Svo er hún skreytt með hveiju sem
ykkur finnst hæfa. Ég legg til kivi-
sneiðar og/eða jarðarber. Einnig má
nota bláber.
Að lokum kemur hér smá „leyni-
vopn“ sem gott er að beita við bakst-
ur og skurð ostakökunnar. Til að fyr-
irbyggja að kakan verði þurr er gott
að hafa ofnskúffu með smá vatni
undir ristinni sem formið stendur á
meðan verið er að baka þvi þá eykst
rakastigið f ofhinum. Ef kakan er
hins vegar dálítið þurr er stundum
erfitt að skera hana og þá má nota
tannþráð til þess (ekki samt með pip-
armyntubragði) þannig fást fallegar
sneiðar.
M e ð f 1 u g
í h ö 1 f ð i n i
Ég hét því síðast að koma með
alíslenska sjóbirtingsflugu. Sjó-
birtingur, þ.e. urriði sem gengur
til sjávar, er víða á landinu. Þetta
er harðgerður fiskur sem kemst af
með furðurýra aðstöðu í fersku
vatni. Hann þarf að geta haft að
éta þar til hann gengur í fyrsta
skipti til sjávar eins og allir vita og
eftir það dugar honum að nærast í
sjónum. Þetta höfum við áður
skoðað. Við vitum líka hvernig
möguleikar hans hafa verið skertir
með framræslu og ýmsu „sem til
framfara horfði“, á sínum tima.
Nú eru viðhorfin að breytast hvað
þetta varðar. Meira um það síðar.
Sjóbirtingsveiði á flugu í skol-
uðu vatni er afskaplega spennandi.
Ég glfmdi við það í nokkur ár að búa
til flugur sem hentuðu til þessa
brúks. Auðvitað urðu til margar
„tímamótafiugur“ sem mörkuðu
„þáttaskil“, og svo aðrar sem jafhvel
höfundurinn sjálfur sá að myndu
varla nothæfar. Þetta gekk svona upp
og ofan. Það var svo f júní '86 að ég
sat og hnýtti og ákvað að hnýta
straumflugu sem væri öðruvísi en ég
hafði áður séð eða hnýtt. Mér þótti
árangurinn ekkert merkilegur en
stakk þó flugunni í boxið. Um haust-
ið varð mér ljóst að flugan þessi var
alveg furðulegt veiðitæki fýrir birt-
inginn í skoluðu vatni. Ég lýsi því
eldcert hér enda eru veiðisögur held-
ur Ieiðinlegar. Þess er þó að geta að
stundum hefur aflinn verið mikill,
jafnvel úr öllu hófi, en það er nú
ekki með öllu slæmt.
Við .skulum nú lfta á uppskrift-
ina: Flæðarmús heitir hún og sam-
kvæmt þjóðtrúnni er það kynjamús
sem dregur eiganda sínum auðæfi úr
sjó.
1. Öngull: Nota skal CS 17 nr. 2- 4-
6.
2. Skott: Einlit blá hár úr ikorna-
skotti.
3. Loðrönd: Svört jon af strútsjjöður
(herl).
4. Búkur: Aftari hluti er vafinn með
silfurlitu tinsel-chenille, fremri
hluti með dumbrauðri ull. A þann
hluta eru sett gullvöf (Ával x tin-
sel).
5. Langskegg: Hvít hár af isbirni
eða úr hjartarhala. Saman við þau
er blandað svolitlu af silfur Flas-
habou. Þetta þarf að ná rétt aftur
jyrir beyjuna á önglinum.
6. Vœngur: Fyrst koma dumbrauð
hjartarhalahár. Þau eiga að ná
jafnlangt skottinu. Síðan koma
dumbrauðar fjaðrir sín hvoru
megin, og yst koma tvœr grábekkj-
óttar (Grizzly) líka sín hvoru meg-
in. Fjaðrirnar þurfa að ná aðeins
lengra en skottið.
7. Haus er svartur, með rauðu auga,
með gulum punkti i.
Ekki verður sagt að þessi fiuga
sé auðveld. Mér hefur löngum þótt
erfitt að láta vænginn fara vel. Ef
fjaðrimar vilja snúast, reynið þá að
láta tvinnann grípa örlítið inn á fan-
imar. Það heldur betur.
C
80 i— n O CO tO
CD -O
GD Q_
NÝTT HELGARBLAÐ
1 7 FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991