Þjóðviljinn - 17.09.1991, Qupperneq 4
Alagsþættir í
tengslum við
barnsfæðingu
Dr. Dyanne D. Affonso,
prófessor í fjölskylduhjúkrun
við hjúkrunardeild Kalifomíu-
háskóla í San Fransisco er
stödd hér á landi í boði
námsbrautar í hjúkrunar-
fræði við Háskóla (slands.
Hún flytur á morgun, mið-
vikudaginn 18. september,
fyrirlestur um andlega og fé-
lagslega álagsþætti í tengsl-
um við barnsfæðingu, en dr.
Affonso er þekkt fyrir rann-
sóknir sínar sem einkum
varða streitu og vanliðan
mæðra í tengslum við með-
göngu og fæðingu. Fyrirlest-
urinn er í stofu 101 í Lög-
bergi kl. 16-17.30. Þá verður
dr. Affonso með námskeið í
samstarfi námsbrautar í
hjúkrunarfræði og endur-
menntunarnefndar Háskól-
ans sem eru ætluð fagfólki í
heilbrigðisþjónustu. Fyrra
námskeiðiö nefnist Þverfag-
leg viðfangsefni er varða
heilsu og atferli, og verður í
dag, fimmtudaginn 19. sept-
ember og föstudaginn 20.
september kl. 13 til 16 hvern
dag. Námskeiðsgjald er kr.
5000. Síöara námskeiðið
nefnist Hugtök og fyrirbæri
innan hjúkrunar. Kenningar,
notkun í starfi og rannsóknir,
og fer fram dagana 26. sept-
ember og 3. október kl. 9 til
16 báða dagana. Nám-
skeiðsgjald kr. 7.500. Skrán-
ing og upplýsingar um nám-
skeiðin annast endurmennt-
unarnefnd Háskólans.
Kvöldganga
um miðbæ
Reykjavíkur
(tilefni þess að Útivist
hefur flutt skrifstofu sína í
Iðnaðarmannahúsið Hall-
veigarstíg 1, býður félagið
öllum í göngu í kvöld, þriðju-
dagskvöld, um miðbæ
Reykjavíkur. Lagt verður af
stað frá Grófinni 1 kl. 20 og
gengið upp Duusbryggjuna
og gegnum gamla Bryggju-
húsið, áfram Aðalstrætið og
litið inn í nýja Ráðshúsið.
Þaðan verður gengið suður í
Hljómskálagarð með Tjörn-
inni að vestanverðu. Úr
Hljómskálagarðinum verður
genginn austurbakki Tjarnar-
innar og um Lækjargötu,
Bankastræti, Ingólfsstræti að
nýja skrifstofuhúsnæði Úti-
vistar, sem verður opið frá kl.
20 til 22 til kynningar.
Rabb um
rannsóknir og
kvennafræði
Annan og fjórða miðviku-
dag hvers mánaöar ætlar
Rannsóknastofa í kvenna-
fræðum að hittast í hádeg-
inu, borða saman hádegis-
snarl og rabba um tilteknar
rannsóknir, ráðstefnur eða
annað fróðlegt á sviði
kvennafræða. Viðfangsefni
verða ákveðin jafnóðum og
dagskrá hvers tíma mun
liggja frammi með amk. 3
vikna fyrirvara. Fyrsta há-
degisrabbið verður á morg-
un, miðvikudag 18. septem-
ber, í stofu 202 (Odda. Þá
munu Guðný Guðbjömsdótt-
ir, Lilja Mósesdóttir og Sig-
ríöur Dúna Kristmundsdóttir
rabba um nýafstaðna ráð-
stefnu um Evrópskar
kvennarannsóknir, sem hald-
in var í Álaborg 18. til 22.
ágúst. Yfirskrift ráðstefnunn-
ar var „Konur i breyttri Evr-
ópu“. Allt áhugafólk um
kvennarannsóknir velkomið.
_____________íÞESymR______
TÍlþrifalitlu móti lokið
[ upphafi Islandsmótsins bjuggust fæstir við því að Vlkingar sætu uppi sem sigurvegarar ( mótslok og hvað
þá að FH myndi verða það lið sem fengi á sig flest mörk ( einum leik, eða ein átta. Mynd: Jim Smart.
Með frábærum enda-
spretti í 1. deildinni í
fótbolta náðu Vík-
ingar að tryggja sér
ísiandsmeistaratitilinn þegar
þeir báru sigurorð af Víði í
Garði með þremur mðrkum
gegn einu í lokaumferð mótsins
sem fram fór á laugardag. Á
sama tíma unnu Framarar lið
Eyjamanna með þremur mörk-
um gegn engu. Bæði Víkingur
og Fram hlutu 37 stig, en
markahlutfall Víkinga var einu
marki betra og því hrepptu þeir
hinn eftirsótta titil.
Þessi sigur Víkinga var þeirra
fyrsti í 1. deildinni frá því á gull-
aldarárum liðsins i byrjun_ síðasta
áratugar þegar liðið varð íslands-
meistari tvö ár í röð, 1981 og
1982. Hinsvegar er þetta í fyrsta
skipti sem Framarar vinna ekki
annaðhvort bikar eða deild frá því
Ásgeir Elíasson byrjaði að þjálfa
þáárið 1985.
Hetja Víkinga í leiknum gegn
Víði var án efa varamaðurinn
Bjöm Bjartmarz sem skoraði tvö
gullfalleg mörk og lagði upp eitt
fyrir félaga sinn Helga Bjamason.
Áftur á móti fer ekki á milli mála
að Logi Ólafsson er þjálfari ársins
og gullskóinn hlýtur Guðmundur
Steinsson Víkingi sem skoraði
þrettán mörk í fimmtán leikjum.
Hörður Magnússon FH skoraði að
vísu jafn mikið, en lék þremur
leikjum meira en Guðmundur sem
hampar nú íslandsmeistartitli ann-
að árið í röð. En hann var í sigur-
liði Fram í fyrra.
Af úrslitum annarra leikja á
laugardag bar einna hæst hina
háðulegu útreið sem FH hlaut
gegn bikarmeistumm Vals á Hlíð-
arenda þegar þeir töpuðu 1:8.
Þessi ósigur FH mun vera sá
stærsti skellur sem Hafnfirðing-
amir hafa fengið frá því þeir hófu
að leika i 1. deildinni. Ekki síður
kom það á óvart að KR skyldi
tapa viðureigninni gegn KA norð-
ur á Akureyri, 2:3. Þá vann
Breiðablik Stjömuna með einu
marki gegn engu i viðureign lið-
anna í Garðabænum.
Það verða því Stjaman og
Víðir í Garði sem falla í aðra
deild, en upp koma Skagamenn
og Þórsarar frá Akureyri og Leift-
ur Ólafsfirði og BI úr þriðju í aðra
deild.
Þrátt fyrir það að ytri aðstæður
hafa sjaldan eða aldrei verið betri
til knattspymuiðkunar en í sumar,
sól og blíða svo til allt tímabilið,
var fótboltinn ekkert sérstakur í
það heila tekið. Engu að síður sá-
ust oft skemmtileg tilþrif, en þau
vom því miður alltof tilviljakennd
og fá. Mörg liðanna í 1. deild ollu
vonbrigðum og nægir í því sam-
bandi að nefna lið eins og KR, Val
og Fram. Miklar væntingar vom
bundnar við fyrstnefnda liðið í
upphafi móts og til marks um það
var því spáð sigri í deildinni. Nið-
urstaðan varð hinsvegar þriðja
sætið, með 28 stig eða 9 stigum á
eftir efstu liðunum. Valsmenn
byrjuðu mótið vel og vom með
fullt hús stiga eftir þrjár umferðir,
en síðan datt allur botn úr liðinu
þar til í síðustu umferðunum þeg-
ar það náði að bjarga sér frá falli
og skaust upp í fjórða sætið. Þeir
náðu að vísu að vinna bikarinn, en
að mati gárunganna var það fýrst
og fremst vegna þess að keppnis-
fyrirkomulag bikarkeppninnar
hentaði vel leikstíl liðsins. Eftir
afspymulélega byrjun náðu Fram-
arar að krafsa í bakkann og um
tíma leit út fyrir að þeir ætluðu að
vinna mótið annað árið í röð. En
einhverra hluta vegna virðist sem
leikmenn Fram hafi vantað þann
nauðsynlega metnað sem þurfti til
að klára dæmið, og því fór sem
fór.
Breiðabliksmenn ættu að geta
unað vel við sitt að lenda í fimmta
sæti deildarinnar á sínu fyrsta ári í
deildinni í langan tíma. Þeir byrj-
uðu þó mjög vel, en þegar líða tók
á mótið misstu þeir flugið. KA
kom á óvart og náði sjötta sætinu,
en fyrirfram höfðu sérfræðingam-
ir spáð því falli. Frammistaða
Eyjamanna og FH hefur trúlega
valdið stuðningsmönnum þeirra
sem og leikmönnum miklum von-
brigðum. Eyjamenn lentu í sjö-
unda sæti og FH í því áttunda.
Það sem stendur uppúr hjá þess-
um liðum eftir mótið er þó fyrst
og fremst árangur einstakra leik-
manna þeirra eins og Harðar
Magnússonar FH og Leifs Geirs
Hafsteinssonar ÍBV sem urðu í
öðm og þriðja sæti yfir marka-
hæstu menn mótsins.
-grh
ÍSLANDSMÓTIÐ
í knattspyrnu 1 . deild
Lið L U J T M S
Víkingur..l8 12 1 5 36-21 37
Fram 18 11 4 3 29-15 37
KR 18 8 4 6 34-18 28
Valur 18 8 2 8 30-24 26
UBK 18 7 5 6 26-27 26
KA 18 7 4 7 21-23 25
ÍBV 18 7 3 8 28-36 24
FH 18 6 4 8 26-32 22
Stjaman...l8 4 6 8 23-27 18
Víðir 18 2 3 13 17-47 9
ÍSLANDSMÓTIÐ
í knattspyrnu 2. deild
Lið ,..L U J T M S
Akranes... ..18 14 1 3 55-12 43
Þór Ak .18 12 2 4 38-22 35
Keflavík.. .18 10 4 4 47-22 34
Grindavík.18 10 3 5 28-17 33
Þróttur R.. .18 9 3 6 33-25 30
Fylkir .18 7 6 5 31-22 27
ÍR .18 8 2 8 43-35 26
Selfoss .18 5 2 11 23-38 17
Haukar .18 2 2 14 16-67 8
Tindastóll.18 1 1 16 18-72 4
Stórleikir í Laugardal
Ahugamenn um knatt-
spyrnu hafa örugglega
í mörg horn að líta
þessa vikuna því fram-
undan eru þrír stórleikir á
Laugardalsvellinum. í dag
mæta Valsmenn svissnesku bik-
armeisturunum Sion í Evrópu-
keppni bikarhafa, á morgun
miðvikudag keppir Fram við
gríska liðið Panathinaikos í
Evrópukeppni meistaraliða og á
fimmtudag fer fram viðureign
KRinga við ítalska stórliðið
Torino í Evrópukeppni félags-
liða. Allir leikirnir hefjast
klukkan 17,30.
Andstæðingar Valsmanna, Si-
on, er fyrsta svissneska liðið sem
kemur hingað til lands í Evrópu-
keppni. Tvisvar áður hafa þó ís-
lensk lið keppt á móti þarlendum
liðum, ÍBA gegn FC Zurich 1970
og Fram gegn Basel 1973, en báð-
ir leikimir fóru fram ytra. Það
sem af er keppnistímabilinu hefur
Sion vegnað vel og er í 2.-3. sæti í
svissnesku deildinni ásamt Laus-
anne, einu stigi á eftir Grashopp-
ers, liði Sigurðar Grétarssonar.
Andstæðingar Framara, gríska
liðið Panathinaikos vann bæði
bikar og deild í fyrra, en þeirra
besti árangur á alþjóðavettvangi
var þegar liðið komst i úrslit gegn
Ajax í Evrópukeppni meistaraliða
1970/1971 á Wembley í London.
Ásgeir Elíasson þjálfari Fram
sagði í gær að hann gæti trúlega
stiílt upp sínu sterkasta liði, en þó
væri ólíklegt að Rikharður Daða-
son gæti leikið vegna meiðsla sem
hann hlaut i viðureigninni gegn
Eyjamönnum á laugardag. Hann
sagði að leikurinn yrði án efa erf-
iður, en engu að síður legðist hann
vel í sig.
Þriðji og síðasti stórleikurinn
verður svo viðureign KRinga
gegn ítalska stórliðinu Torino á
fimmtudag.
-grh
Q
</>
rnig er það. Ætl-
ðir pú ekki að ^ ~
upaþénbué?^^
jd' huasa um
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 17. septembert 1991
Síða 4