Þjóðviljinn - 20.09.1991, Side 3

Þjóðviljinn - 20.09.1991, Side 3
M y n d I i s t Kyrrar hringiður og mál- aðar högg myndir Myndlistarmennimir Grétar Reynisson og Guðjón Ketilsson á sýningu sinni i Austursal Kjarvalsstaða. Mynd: Jim Smart. Myndlistarmennirnir Grétar Reynisson og Guðjón Ketilsson opna sýningu í Austursal Kjar- valsstaða á morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem þeir félagar svna verk sín saman. Guðjón synir málverk og tréskúlptúra sem hann hefur unnið síðastliðin þrjú ár, en Grétar sýnir myndverk unnin með olíu, akrýl og blýanti á krossvið, striga, járn og papp- ír. Guðjón sagði að sér fyndist gefandi að fást við skúlptúra og málverk á víxl. Þetta eru olíkar að- ferðir, en það er eins og þær auðgi hvor aðra. Það hefúr aldrei böggí- ast neitt fyrir mér, sagði Guðjón þegar hann var spurður að því hvort það væri ekki óvenjulegt að beita svona mismunandi aðferðum við vinnu sína. Hann tekur skorpur í þessu hvoru fyrir sig og vissulega má sjá að þetta flæðir saman. Guð- jón sagðist alls ekki vilja gera upp á milli þessara tveggja aðferða. Ser fyndist þær báðar skemmtilegar. Grétar Reynisson sagðist ekki treysta sér til að skera úr um það hvort hann ætti að kalla myndimar sínar blýantsteikningar eða mál- verk. Hvað stærðina snertir eru þetta málverk. Þetta er ekki gert með blýanti á pappír. Ætli megi ekki segja að ég se að leika rpér að því gagnsæja í blýantinum. Eg vil ekki beinlínis segja að blýanturinn sé ómerkilegt verkfæri, en ég þreiði meira úr honum en tíðkast. Eg hef verið að reyna að ná kyrrð inn í myndimar. Þess vegna kem ég að sama spíralnum aftur og aft- ur. Eg hef verið að vinna með hríngi undanfarín ár en nú er það spírallinn sem gildir. Grétar var spurður að því af hvetju hringiðan kæmi aftur og aft- ur inn í myndimar hans og hann sagðist einna helst giska á að þetta hefði bytjað með þvi að krota með blýanti á blað og svo vafið upp á sig. Þessar myndir em ekki af neinu, sagði Grétar. Þær em það sem þú sérð og ekkert annað. - Em þetta þá ekki myndir af hringiðu? spurði viðmælandinn og lét þess getið að hringiðan er sígild mynd af því að sogast inn í eitt- hvað, oft 1 tengslum við að hverfa og deyja. - Það er mjög gott að þú segir þetta, sagði Grétar. Þó að myncfin sé ekki af neinu þá vonar maður einmitt að áhorfandinn haldi áfram með það sem hann sér. Frammi á gangi em högg- myndir Guðjóns og þar er Gretar með litlar myndir af hringnum, fessu fmmformi sem er svo aleitið myndum hans. En af hveiju fást menn við frumformin í myndlist? Em þau ekki öll komin á hreint fyrir löngu? Allar myndir em að einhveiju leyti fmmform, segir Grétar. Þú sleppur hvorki ftá línunni, fem- ingnum né hringnum. Það er skemmtilegur leikur að útskýra myndlist, en hann er ekki nauðsyn- legur. Sumir læra þetta og leggja það fyrir sig. Aðrir ganga að því sem áhugamenn. Stundum kæfa menn myndlist- ina í skilgreiningum og ofskýring- ar geta líka verið leiðinlegar. -kj Hver fær bóka- verðlaunin? Nú eru komnir yfir 900 nýir áskrifendur. 1000. nýi áskrifandinn fær vegleg verálaun; PERLUR í NÁHÚRU ÍSLANDS eftir Guámund P. Olafsson en Mál og Menning gefur þessi verálaun. Þióðvi Áskriftarsími 91-681333 SKÖIA OSTUR í KÍLÓPAKKNINGUM MEÐ15% AFSLÆTTI 0G FU SPARAR Wm M*iÉ KR./KG VAR: 767.- KR./KG VERÐUR: 667.- KR./KG NÝTT HELGARBLAÐ 3 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.