Þjóðviljinn - 20.09.1991, Síða 3
M y n d I i s t
Kyrrar
hringiður
og mál-
aðar högg
myndir
Myndlistarmennimir Grétar Reynisson og Guðjón Ketilsson á sýningu sinni i
Austursal Kjarvalsstaða. Mynd: Jim Smart.
Myndlistarmennirnir Grétar
Reynisson og Guðjón Ketilsson
opna sýningu í Austursal Kjar-
valsstaða á morgun. Þetta er í
fyrsta sinn sem þeir félagar svna
verk sín saman. Guðjón synir
málverk og tréskúlptúra sem
hann hefur unnið síðastliðin þrjú
ár, en Grétar sýnir myndverk
unnin með olíu, akrýl og blýanti
á krossvið, striga, járn og papp-
ír.
Guðjón sagði að sér fyndist
gefandi að fást við skúlptúra og
málverk á víxl. Þetta eru olíkar að-
ferðir, en það er eins og þær auðgi
hvor aðra. Það hefúr aldrei böggí-
ast neitt fyrir mér, sagði Guðjón
þegar hann var spurður að því
hvort það væri ekki óvenjulegt að
beita svona mismunandi aðferðum
við vinnu sína. Hann tekur skorpur
í þessu hvoru fyrir sig og vissulega
má sjá að þetta flæðir saman. Guð-
jón sagðist alls ekki vilja gera upp
á milli þessara tveggja aðferða. Ser
fyndist þær báðar skemmtilegar.
Grétar Reynisson sagðist ekki
treysta sér til að skera úr um það
hvort hann ætti að kalla myndimar
sínar blýantsteikningar eða mál-
verk. Hvað stærðina snertir eru
þetta málverk. Þetta er ekki gert
með blýanti á pappír. Ætli megi
ekki segja að ég se að leika rpér að
því gagnsæja í blýantinum. Eg vil
ekki beinlínis segja að blýanturinn
sé ómerkilegt verkfæri, en ég
þreiði meira úr honum en tíðkast.
Eg hef verið að reyna að ná kyrrð
inn í myndimar. Þess vegna kem
ég að sama spíralnum aftur og aft-
ur. Eg hef verið að vinna með
hríngi undanfarín ár en nú er það
spírallinn sem gildir.
Grétar var spurður að því af
hvetju hringiðan kæmi aftur og aft-
ur inn í myndimar hans og hann
sagðist einna helst giska á að þetta
hefði bytjað með þvi að krota með
blýanti á blað og svo vafið upp á
sig. Þessar myndir em ekki af
neinu, sagði Grétar. Þær em það
sem þú sérð og ekkert annað.
- Em þetta þá ekki myndir af
hringiðu? spurði viðmælandinn og
lét þess getið að hringiðan er sígild
mynd af því að sogast inn í eitt-
hvað, oft 1 tengslum við að hverfa
og deyja.
- Það er mjög gott að þú segir
þetta, sagði Grétar. Þó að myncfin
sé ekki af neinu þá vonar maður
einmitt að áhorfandinn haldi áfram
með það sem hann sér.
Frammi á gangi em högg-
myndir Guðjóns og þar er Gretar
með litlar myndir af hringnum,
fessu fmmformi sem er svo aleitið
myndum hans.
En af hveiju fást menn við
frumformin í myndlist? Em þau
ekki öll komin á hreint fyrir löngu?
Allar myndir em að einhveiju
leyti fmmform, segir Grétar. Þú
sleppur hvorki ftá línunni, fem-
ingnum né hringnum. Það er
skemmtilegur leikur að útskýra
myndlist, en hann er ekki nauðsyn-
legur. Sumir læra þetta og leggja
það fyrir sig. Aðrir ganga að því
sem áhugamenn.
Stundum kæfa menn myndlist-
ina í skilgreiningum og ofskýring-
ar geta líka verið leiðinlegar.
-kj
Hver fær bóka-
verðlaunin?
Nú eru komnir yfir 900
nýir áskrifendur.
1000. nýi áskrifandinn
fær vegleg verálaun;
PERLUR í NÁHÚRU
ÍSLANDS eftir Guámund
P. Olafsson en Mál og
Menning gefur þessi
verálaun.
Þióðvi
Áskriftarsími 91-681333
SKÖIA
OSTUR
í KÍLÓPAKKNINGUM
MEÐ15% AFSLÆTTI
0G FU SPARAR
Wm M*iÉ KR./KG
VAR: 767.- KR./KG
VERÐUR: 667.- KR./KG
NÝTT HELGARBLAÐ
3 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991