Þjóðviljinn - 20.09.1991, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 20.09.1991, Blaðsíða 9
Miðvikudaginn 25. september leikur íslenska karla- landsliðið í knattspyrnu sinn fyrsta leik undir stjórn Ásgeirs Elíassonar í Evrópukeppni landsliða og mun hann tilkynna sinn fyrsta sextán manna landsliðshóp á blaðamannafundi á sunnudag. Mótherjamir eru heldur ekki af verri endanum, sjálft spænska landsliðið. Engu að síður leggst leikurinn vel í nýja landsliðsþjálfarann þótt erfitt verði að byrja í leik gegn Spánverjum. Hann segir að leikmenn spænska landsliðsins séu í senn snöggir, grimmir, fljótir en oft og tíðum leiðinlegir. Ráðning Ásgeirs í stöðu landsliðsþjálfara hefur yfirleitt mælst mjög vel fyrir enda hefur Ásgeir náð mjög góðum árangri með 1. deildar lið Fram frá þvf hann tók við þjálf- un þess árið 1985. Að undanskildu þessu sumri hefur lið- ið ávallt unnið annaðhvort Bikarkeppnina eða íslandsmót- ið, undir stjórn Ásgeirs, sem segir meira en mörg orð um hæfni hans sem þjálfara. Asgeir er fæddur og uppalinn í Reykjavík, fjörutíu og eins árs að aldri, íþróttakennari að mennt, kvæntur Soffiu Guðmundsdóttur hjúkrunarfræðingi og kennara. Þau eiga tvo stráka. Sá eldri er að verða sautján ára og nemandi í Verslunarskóla íslands en sá yngri er sjö ára. Fjölskyldan er búsett í Mosfellsbæ. Asgeir er í gegnum tíðina ekki aðeins landsþekktur sem knatt- spyrnuþjálfari, því hann var leikjahæstur í 1. deildarinni með 225 leiki með Fram, Þrótti og FH þar til í sumar þegar Sigurður Björgvinsson KR sló það met. Þar að auki var Ásgeir vel liðtækur í handbolta og gott ef hann lék ekki einnig með landsliðinu í þeirri vinsælu íþrótt. Nýjasta fjöðrin bættist svo í hatt Ásgeirs þjálfara í fyrradag þegar Fram-liðið velgdi gríska at- vinnumannaliðinu Panathinaikos undir uggum í Evrópukeppni meistaraliða. Þar voru Framarar tilleiðanlegur að taka að sér stöðu landsliðsþjálfara, ef þess yrði farið á leit við hann. Sjálfur er hann fullur tilhlökk- unar að takast á við þetta nýja starf sem er að mörgu leyti frá- brugðið þjálfun félagsliðs. Hann segir að sem landsliðsþjálfari geti hann valið þá menn sem hann telji vera þá bestu á hveijum tíma, sem ekki er alltaf hægt hjá félagsliði. Auk þess sem þeir bestu eigi að geta tileinkað sér nýjar hugmyndir á skemmri tíma en aðrir, að öllu jöfnu. Hann segir það einnig koma vel til greina að nota dauða tímann á milli vertíða til landsliðsæfmga. Um það hvort menn eigi von á einhverjum áherslubreytingum varðandi landsliðið segist hann ætla að reyna að færa yfir til landsliðsins þann leikstíl sem ein- kennt hefur Fram-liðið undanfarin ár. Jafnframt segist hann ætla að reyna að stilla landsliðinu upp á dálítið annan hátt en verið hefur, allavega að prófa það. Þetta sé Fram- stíllinn í landsliðið óheppnir að ná ekki að knýja fram sigur en leiknum lyktaði eins og kunnugt er með jafntefli 2:2. Ás- geir mun hætta með Fram-liðið eftir seinni leik liðsins gegn grísku meisturunum, sem fram fer í Grikklandi í byrjun næsta mánað- ar. Af erlendum fótbolta segist Ásgeir ekki horfa mikið á ítalska boltann þótt óneitanlega séu þar samankomnar skærustu stjörnur knattspymunnar. í Englandi finnst honum Liverpool spila skemmti- legasta boltann, en uppáhaldslið hans hér í eina tíð var þó hol- lenska landsliðið frá 1974. Jafn- framt hefur hann sterkar taugar til brasilíska landsliðsins sem hann segir spila allt öðruvísi bolta en við eigum að venjast í Evrópu. Þeir séu með svo skemmtilega mýkt í sínum leik og hafi yfir að ráða mjög mikilli tækni. Ásgeir segir að þjálfarastarfið hjá félagi eins og Fram hafi að sjálfsögðu tekið mikinn tíma og það sé nánast ekki hægt fyrir fjöl- skyldumann að standa í þvi nema með fullum stuðningi frá fjöl- skyldunni. Hún hefur líka tekið sinn þátt í þessu með Ásgeiri og hvatt hann til dáða. Þá er eldri sonurinn þegar á kafi í boltanum en sá yngri mun minna og segir Ásgeir það einkum vera vegna þess að hann hafi ekki haft tíma til að sinna honum sem skyldi. Áherslubrevtingar hjá landsíiðinu Ásgeir segir að þegar í sumar- byrjun hafi forystumenn Knatt- spymusambandsins komið að máli við hann og spurt hvort hann væri spuming um útfærslu fremur en að hann hyggist skipta svo mikið um mannskap. Þá hyggst hann reyna að láta leikmenn halda boltanum betur en verið hefur. Hann segir að þó að það sé gott að sækja hratt og það séu oftast bestu sóknimar, þá sé það stundum ekki hægt og þá þurfi að reyna eitthvað annað. Ert hjá landsliðinu hefur það viljað brenna við að þegar ekki hafa ver- ið skyndisóknir þá hefur liðið samt látið boltann frá sér, eins og menn væm nánast hræddir við að vera með ‘ann. Þessu þyrfti einnig að breyta til betri vegar eins og svo mörgu öðru. Aðspurður um það hvort liðið verði látið leika meiri sóknarknattspyrnu en til þessa segir Ásgeir að það fari allt eftir leikjunum. Hann segir að þjálfarinn geti í raun engu um það ráðið hvemig hinir einstöku leikir þróist. „Þegar þú hefur ekki boltann verðurðu að verjast og öfugt þegar þú ert með ‘ann“. En hafa íslenskir leikmenn nægilega mikla trú á sinni getu þegar þeir spila gegn erlendum at- vinnumannaliðum?_ Mörgum finnst svo ekki vera. Ásgeir segist kannast við þetta sjónarmið og getur að mörgu leyti tekið undir með þeim sem þessu halda fram. En ástæðurnar fyrir þessu geta verið margar og að hans mati er ein skýringin sú að félagsliðin spila svo lítið við þessi Iið, auk þess sem langur tími er á milli leikja. Sem dæmi nefnir Ásgeir leik Fram gegn grísku meistumn- um í fyrradag. í fyrri hálfleik vom Framarar meira með boltann en ógnuðu marki andstæðingsins mjög lítið. Það var eins og þeir hefðu ekki trú á að þeir gætu stað- ið í honum. Það var svo ekki fyrr en Framarar skoruðu sitt fyrsta mark að þetta fór að lagast og menn fylltust sjálfstrausti. Vantar sprengikraft og snerpu Um knattspyrnuna í sumar segir Ásgeir að obbinn af 1. deild- ar Iiðunum hafi spilað verr en þau gerðu í fyrra. Hvað Fram-liðið varðar er það skoðun hans að liðið hafi aldrei almennilega náð þeim takti sem það hefur hafl á liðnum summm. Sömuleiðis telur hann að Eyjamenn hafi spilað verr í sumar en í fyrra, en þó ekki Stjaman. Þar á bæ hefðu hlutimir einfaldlega ekki gengið, upp auk þess sem þeir hefðu verið óheppnir. Vals- liðið og KR hafi einnig verið slappari í sumar en í íyrra og enn- fremur FH. Á móti telur hann að bæði Víkingar og KA séu í raun einu liðin í deildinni sem spiluðu betur í sumar en þau gerðu fyrir ári. Þrátt fyrir þetta segir Ásgeir að það sé engin spuming að leik- mennimir séu sífellt að verða lík- amlega sterkari og tæknilegri og sá hópur fari stækkandi. Það sem á vantar er hinsvegar meiri snerpa og sprengikraftur til jafns við það sem gerist meðai erlendra leik- manna. Hann segist hafa hugsað um þessi mál lengi en engu að síð- ur sé erfitt að koma auga á hvað veldur, nema helst fámennið. Hinsvegar séu leikmenn eins og Þorvaldur Örlygsson, Baldur Bjamason hjá Fram, Arnór Guð- johnsen og Atli Einarsson hjá Víkingi gæddir þessum eiginleik- um. Ásgeir telur að Pétur Ormslev sé sá besti sem leikið hefur í deildinni á undanfomum ámm og eigi fullt erindi í landsliðið. Að hans mati var ekki meiri harka í boltanum í sumar en verið hefur. Hinsvegar hefur boltinn breyst mjög mikið frá því hann var innan vallar sem leikmaður. Þá spilaði hann á miðjunni og i þá daga höfðu menn miklu meira pláss til að athafna sig en nú til dags. Ásgeir segir að dómgæslan í sumar hafi verið alveg þokkaleg, en hann segist ekki hugsa mikið um þeirra störf þegar hann_ er að horfa á leiki sem áhorfandi. I eigin leikjum er hann stundum ánægður með dómgæsluna og stundum ekki. Hann segir dómara ávallt vera að reyna að gera sitt besta og það sé aldrei hægt að koma í veg íyrir að dómari geri mistök f leik. Áf einstökum mörkum sem skor- uð voru í sumar segist Ásgeir halda mest uppá markið sem Þor- valdur Örlygsson Fram gerði á móti Val á Hlíðarenda. En af minnisstæðum leikjum þegar Ásgeir var sjálfur leikmaður er bikarúrslitaleikurinn gegn Val 1979, sem Fram vann með einu marki gegn engu, efstur á blaði. Ennfremur myrkvaleikurinn gegn Keflavík í bikarnum 1973 sem Fram vann og kom þannig í veg fyrir að Suðumesjamennimir ynnu tvöfalt það árið. Sömuleiðis er Ás- geiri minnisstæður Evrópuleikur- inn gegn Real Madrid á Laugar- dalsvellinum árið 1974. Þjálfari velur alltaf besta liðið En hvað finnst honum um þá gagnrýni að verið sé að kalla heim leikmenn til að leika með lands- liðinu á sama tíma og þeir komast ekki í lið ytra og em oft og tíðum ekki í mikilli leikæfíngu? Hann segir það ekki nema eðlilegt að þetta sé gagnrýnt, en á móti komi að viðkomandi leik- menn séu í fótbolta allan tímann og hljóti því að vera í einhverri æfingu. Hinsvegar hljóti það ávallt að vera mat sérhvers þjálf- ara hverjir séu bestir á hverjum tíma. „Þjálfari stillir alltaf upp því liði sem hann telur vera best. Hann gerir alltaf það sem hann telur vera best fyrir þann sem hann er að vinna fyrir.“ En hvað með að markahæstu menn Islandsmótsins hveiju sinni hafa ekki hlotið náð fyrir augum landsliðsþjálfarans. Hentar það ekki leikstíl liðsins eða hvað? Ásgeir segir að þetta sé alltaf spuming um það hvaða menn við- komandi þjálfari telji henta liðinu best í það og það sinnið. Viðkom- andi leikmaður getur fallið vel inn í leikstíl síns félags en ekki eins vel inn í landsliðshópinn. Þannig að þetta sé alltaf spuming um val og eðlilegt að það sé gagnrýnt, fmnist mönnum annað. Hvort ein- hver breyting verður á þessu með nýjum manni mun koma í ljós á miðvikudaginn. En man nýráðinn landsliðs- þjálfari hvar hann var daginn fræga þegar landinn tapaði 14:2 fyrir Dönum? Ekki gjörla en hitt er þó enn í fersku minni að þetta sögulega sumar, nokkm fyrir eða eftir leik A-liðsins, tapaði ung- lingalandsliðið, sem Ásgeir var í, fyrir Svíum á Norðurlandamóti með tíu mörkum gegn engu. Það var þeirra happ að þessi háðulega útreið gleymdist alveg vegna þess sem gerðist á Idrætsparken í Kaupmannahöfn. -erh NÝTT HELGARBLAÐ 9 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.