Þjóðviljinn - 20.09.1991, Síða 12

Þjóðviljinn - 20.09.1991, Síða 12
Sumarferð um Norður-Noreg sftastihiuti Noregur er alltof, alltof langur Eftir að hafa frætt mig um hrafna og sitt hvað fleira skemmtilegt bsuð húsráðandi upp á kaffi og sagði svo: „Viltu ekki tefla við mig? Allir fslendingar eru góðir að tefla. Þú færð ókeypis gistingu og veitingar ef þú vinnur mig.“ Þar sem ég hafði af tilviljun kíkt í bókaskáp heimilisins, þá baðst ég undan taflmennsku, enda er trú- legt að hann hefði haft lítið gaman af að tefla við mig. Ég hafði séð all- ar skákbækurnar. Eftir á sagði hann mér að hann væri nr. 24 í norska meistaraflokknum, og að allir hefðu orðið að greiða fyrir gistinguna sem enn hefðu um hana teflt. „Veistu hvað þetta er?“ sagði hann svo og tók í fangið stóran, gulan köggul, og þar sem ég vissi það ekki, upplýsti hann að þetta væri hreint vax, sem lægi þar á fjörum frá því í síðustu heimsstyrjöld, að skip hlaðið vaxi fórust útifyrir firðinum. Nú hafði hann safnað saman mörghundr- uð kílóum af þessum reka og bræddi í ígulker og setti kveik í og seldi sem minjagripi.Þama var margt fleira til skemmtunar en skipsströnd, hrafnar og tafl, utar í firðinum eru mikil fúglabjörg og þangað flutti hann fólk í skoðunarferðir. Það komu nokkrir Þjóðverjar til hans um kvöldið og pöntuðu far, og hann tók okkur með íyrir hálfvirði, þótt við hefðum ekki mátað hann. Okkur tókst hins vegar fyrirhafnarlítið að lesa á rúnastein- inn, og máttum því alls ekki borga tvær bjórflösklur sem við pöntuðum ok'.ur fyrir svefninn. Það kom hreint ekki til mála. Hann vakti okkur með eggi og kornflexi klukkan sex morguninn eftir, nú skyldi farið í fuglabjörgin. Sjálfúr var Vidar kapteinn á öðrum bátnum, hinum bátnum stýrði hæg- gerður, Norðlendingur, hann átti í svolítlum tjáskiptaörðugleikum við Þjóðveijana og því vorum við sett í bátinn hans sem túlkar. Sjórinn var eins og spegill og sólin hafði skinið alla nóttina og við brunuðum út fjörðinn. Þama er hvergi tré að sjá eða runna, en skaflar niðurundir sjávarmáli, landslagið var víða svip- að og á Ströndunum. Nokkur eyði- býli móktu í víkurbotnum eða þar sem mótaði fyrir undirlendi. Allt fólk var fyrir löngu flutt burt. Fuglabjargið „Stauran" eða Staurinn, sem hótelið dró nafn af var fyllilega meira en einnar messu vert. Þarna eru ógrynnin öll af mávum, fyl, álku, lunda og skarfi, og efst á staumum sjálfum, sem er makalaus skúlptúr ffá skaparans hendi, er þétt súlubyggð. Einhverra hluta vegna fór ég að hugsa um góðkunningja minn Ama Johnsen úr Eyjum. Þetta væri svolítið fyrir hann. Eg ætla bara að vona að hann sé ekki svo upptekinn við stjómmálastörf að hann finni sér tíma til að skoða Staurinn í Sylte- firði. Þjóðverjamir fóm f land lengst úti í fjarðarkjaftinum og ætluðu að ganga yfir fjöllin heim. Vidar þusti heim á tómum bátnum og þurfti að fara til Bátsfjarðar i innkaup fyrir hótelið, okkar kapteinn hélt líka heimleiðis en fór hægar. Þegar við fómm aftur framhjá Staumum hægði hann á vélinni og lagði bátnum upp í litla klettavík og drap á honum.. Kveikti sér í sígarettu og varð spek- ingslegur. Allt í einu æpti hann: „Sjáiði öminn!“ Og viti menn, stærð- ar assa renndi sér niður með fugla- bjarginu og fuglagerið gaus upp á móti henni að stugga henni frá. Það varð allt vitlaust í bjarginu og heyrð- ist ekki mannsins mál fyrir gargi. Þetta var sérsýning fýrir okkur. Hann sagði okkur eftir á að hann hefði séð arnarhjónin á útleiðinni en ekkert verið að vekja athygli Þjóðveijanna á þeim. Við kvöddum þetta skemmtilega fólk í Syltefirði með söknuði og er- um alveg ákveðnir að koma þangað aftur. Og nú var heimferðin hafin. Við ókum sem leið liggur frá Tanabrú Frá Staumum. Súlur ogfleiri fiiglar. upp Tanadalinn meðffem landamær- um Finnlands og Noregs til Karasjok í landi Samanna. I Tanadalnum em myndarleg bændabýli, þar búa flestir við baulu og sauð, en hreinabændur em þar einnig. í Karasjok vomm við Böövar Guðmundsson skrifar eina nótt og héldum okkur mest inni- við vegna mýbits. Mýflugurnar þarna eru heljarstórar hlussur og haldnar óseðjandi blóðþorsta. Það var alveg sama hvað við bárum á okkur af ólyfjan, það eina sem dugði var að steypa flugnaneti yfir höfúðið og fara í regnföt og gúmístígvél og hanska. Þær bíta nefnilega í gegnum öll venjuleg fot, bölvaðar. Karasjok er eiginlega ekkert ann- að en nokkur hús í skógi. Mörg þeirra em lokuð og tóm að sumrinu, þar sem Samamir fylgja hreindýra- hjörðunum í sumarhögum. Daginn eftir fómm við svo til Kautokeino, sem er háborg og höfuðstaður Sa- manna. í Kautokeinohreppi er sam- íska opinbert tungumál og langt ffá að öllum sé tamt að bregða fyrir sig norsku. Við keyptum okkur vistir í kaupfélaginu í Kautokeinu og af- greiðslustelpurnar sögðu eitthvað óskiljanlegt og flissuðu og ég varð spéhræddur. Einhvem veginn er ég hálfsmeykur við Sama. Stendur ekki alveg á Sama. Hvað segir líka ekki Petter Dass: Þvi heiðninnar þoka, já því er nú ver, sem þrúgandi plága hjá Löppunum er, þó prestarnir liggi ekki á liði og prédiki og hóti sem hirðunum ber, þá halda með þrákelkni Lapparnir sér við feðranna forneskjusiði. (Þýð. Kristján Eldjám) Mýbitið var ekki betra í Kauto- keino, en það hrein ekkert á Sömun- um, þeir kveða það af sér með ein- hverri fomeskju sem ekki er á ann- arra valdi. Þó gengum við upp i kirkjugarð, það var nú einu sinni orðinn vani hjá okkur, en við bjugg- umst ekki við að finna þar íslensku á steini. Ég varð þvf svolitið hissa þeg- ar við blasti á svo til hveijum einasta steini skrifað með gullnu letri: HÆTTA. Fyrst hélt ég að þetta væri einhvers konar viðvömn til þeirra sem um garðinn gengju, það væri hætta á aflurgöngum eða einhveiju slíku, eða þá að sá eða sú er undir steininum svaf væri í þeirri hættu sem bíður allra brotlegra sálna. En hvorug tilgátan reyndist nú rétt. Langstærsta ættin í Kautokeino hefúr þetta ættamafn. Það sannfrétti ég þegar við komum aftur heim á tjald- stæðið úr kirkjugarðsleiðangrinum og spurði manninn í móttökunni um orsakimar fyrir öllum þessum hætt- um. Hann benti mér á slaltið yfir hlið tjaldstæðisins, þar stóð „Hætta- Camping". Ættamafn konunnar hans var lika Hætta. Og hér þraut okkur lyst og löng- un til ffekari ferðalaga og ákváðum að hætta, því það em takmörk fyrir þvf hvað athyglin endist þegar farið er hratt um nýjar slóðir. Morguninn eftir, þann 15. júlí ókum við suður að finnsku landamæmnum. Að hætti ís- lenskra ferðalanga hnoðaði ég þar saman visu, en það var engin beina- kerling til að stinga henni í svo ég verð að nægjast með að láta hana í Þjóðviljann: Eg er þreyttur, ferðafúll og svangur ogfyrir löngu hœtt að þykja gaman, Noregur er alltofi alltof langur, það œtti að reyna að þjappa honum saman. Heimleiðis fómm við skemmstu leið yfír Finnland og Svíþjóð, við keyrðum og keyrðum, höfðum vaktaskipti á stýrinu og náðum loks heim til Danmerkur að kvöldi fjórða dags. Þá vantaði 100 kílómetra upp á að við hefðum lagt 8000 kílómetra að baki. Svíþjóð er líka alltof, alltof löng. En svo sannarlega em Norðland, Troms og Finnmörk landsvæði sem þú ættir að hyggja að, lesandi góður. Þar býr skemmtilegt fólk f undur- fögru landi. En fyrir alla muni, sé pyngju þinni ek'.a íþyngt með öðm en því sem rithöfúndar og opinberir starfsmenn fá í sinn hlut, taktu þá með þér allan próvíant ásamt söng- og ferðaolíu. Og ekki gleyma flugna- netinu, þá mun þér vel famast. B r i d g e _____ Urslit um helgina Nú er ljóst hvaða fjórar sveitir hafa áunnið sér rétt til þátttöku í undanrásum Bikarkeppni Bridge- sambandsins. Dregið var sl. sunnu- dag og mætast eftirtaldar sveitir: Ásgrímur Sigurbjömsson Siglu- firði gegn Eirik Hjaltasyni Kópavogi. Tryggingamiðstöðin Reykjavík gegn Landsbréfúm Reykjavik. Sveit Ásgrims sigraði sveit Roche Reykjavík um 49 stiga mun, sl. föstu- dag. Hafa þeir feðgar og frændur komið skemmtilega á óvart i sumar og Ijóst að leikur þeirra og Eiríks verður skemmtilegur. Að sögn hafa þeir leitað eftir stuðningi (liðssöfnuði) suður yfir heiðar, en þar era nokkur pör á lausu, sem ekki hafa tekið þátt í Bikarkeppninni fram að þessu. Koma þar sterklega til greina gamalreyndir spilarar, þarsem allavega annar aðil- inn á ættir að rekja til Siglufjarðar (kannski báðir). Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar fór nokkuð létt með Myndbandalagið á sunnudaginn. Lokatölur urðu 92 stig gegn 45. Meiri munur en menn höföu kannski reiknað með, en á það er að líta að leikurinn var spilaður á sunnu- degi. Slíkur dagur er oft erfiðari hjá ýmsum, í ljósi þess, að sunnudagur fylgir oftast í kjölfar laugardags. Leikur keppninnar, til þessa, var viðureign Landbréfa og Lúsifers (Svavars Bjömssonar). Leikurinn fór hægt af stað, og leiddu Landsbréf. Fyrir siðustu lotuna munaði 12 stig- um, Landsbréfúm til góða. Síðustu 10 spilin vom æsispennandi, og báðir að- ilar gátu lagfært nokkur spilin, svona eftir á að hyggja. Úrslit lotunnar urðu að ungu mennirnir í sveit Svavars jöfnuðu leikinn og stóðu þá leikar 79 stig gegn 79 stigum. Samkvæmt regl- um keppninnar vom Landsbréf sigur- vegarar, þarsem þeir leiddu fyrir síð- ustu lotuna. Dramatísk úrslit. Þess má geta að Valur Sigurðsson gekk til liðs við Lúsifers-menn í þessum leik og munar um minna. Skipan þeirra fjögurra sveita sem hafa áunnið sér rétt i undanrásum 1991 er: Ásgrímur Sigurbjörnsson, Jón Sigurbjömsson og synir hans, ÓI- afur og Steinar Jónssynir. Eiríkur Hjaltason, Páll Hjaltason, Hjalti Elíasson, Oddur Hjaltason, Hrannar Erlingsson. Tryggingamiðstöðin: Sigtryggur Sigurðsson, Bragi Hauksson, Hrólfur Hjaltason, Ásgeir Ásbjömsson, Páll Valdimarson og Ragnar Magnússon. Landsbréf: Magnús Ölafsson, Bjöm Eysteinsson, Sverrir Ármanns- son, Matthías Þorvaldsson, Aðal- steinn Jörgensen og Jón Baldursson. Undanrásir verða spilaðar á morgun, laugardag (48 spila leikur) og úrslit síðan á sunnudaginn (64 spila leikur). Spilað verður í höfuð- stöðvum Islandsbanka, Kringlunni 7. 4 4 4 Landsliðið heldur utan til Japans á miðvikudaginn, til þátttöku í heims- meistaramótinu í sveitakeppni lands- liða. Spilamennska hefst svo annan mánudag. Með liðinu fylgja bestu óskir um farsælt gengi. 4 4 4 Amar Geir Hinriksson og Einar Valur Kristjánson urðu VestQarða- meistarar í tvímenningskeppni 1991 (einu sinni sem oftar). Ekkert varð úr Opna mótinu, sem til stóð að spila á ísafirði um síðustu helgi. Um þessa helgi er svo Jökla- mótið á Homafirði og um næstu helgi er svo Opna Flugleiðamótið á Akur- eyri. Afmælismót DV er svo laugar- daginn 5. október og laugardaginn þar á eftir fer fram Opna minningarmótið á Selfossi. Skráning er hjá BSI. 4 4 4 Útlit er fyrir, er reikningsárinu lýkur hjá Bridgesambandinu (í enda september) að um 2 miljónir króna hafi verið greiddar í árgjöld ffá félög- unum. Inni í þær tölur vantar enn 9 félög sem em án greiðslu (bæði tíma- bilin) og 2 félög með fyrri hluta árs greiðslu. Ekki svo ýkja slæmt ár, með hlið- sjón af því að öll mót á vegum sam- bandsins skila tekjum. Nánar síðar. 4 4 4 Hjá Skagfirðingum í Reykjavík er að hefjast 4 kvölda barometer- tví- menningskeppni næsta þriðjudag. Fyrirfram skráning er hjá Ólafi Láras- syni í s: 16538. Sl. þriðjudag var eins kvölds keppni. Efstu pör urðu: Helgi Her- mannsson / Kjartan Jóhannsson og Sigrún Jóhannsdóttir / Ingólfúr Lilli- endahl. 4 4 4 Leikur Landsbréfa og Lúsifers (Svavars Bjömssonar) í 3. umferð Is- landsbankabikarkeppninnar (sem er 27 stafa orð) var æsispennandi undir lokin. Þeir fýimefndu leiddu með 12 stigum, eftir að Lúsifer hafði unnið þriðju lotuna með 10 stigum gegn 0. I fjórðu lotunni (þeirri síðustu) kom þetta spil fýrir: 4 Á1087532 ¥K4 ♦ 1098 •ÞÁ 4 G V ÁD10765 ♦ K54 *876 Vestur (ísak Örn Sigurðsson) vakti á 1 grandi (14-16). Magnús Ól- afsson í Norður kom inná með 2 spöðum. Austur (Svavar Bjömsson) sagði pass. Suður (Bjöm Eysteinsson) sagði 3 hjörtu og Vestur pass. Magn- ús sá enga ástæðu til að „yfirmelda" sjölitinn sinn í spaða, heldur lyfti ein- faldlega í 4 hjörtu, sem enginn sá neitt athugavert við. Isak spilaði út Iaufa- kóng í bytjun. Tillaga um ffamhald? Það em tvær leiðir sjáanlegar í ffamhaldinu. Sú fýrri er að taka „tví- svíninguna“ í tígli, fyrir drottn- ingu/gosa í Austur, eða að trompa niður laufin með hjörtunum á borði og spila upp á að gosinn komi stakur eða annar niður í ás/dömu/tfu hjá sagnhafa. Og spurningin er: Hvor leiðin er betri? Bjöm var ekki í vafa. Tók útspilið með laufaás og spilaði tfgultíu yfir á gosa Vestur. Þá kom hjarta (besta vöm), lítið, gosi og drottning. Lauf trompað í borði og úrslitastundin rann upp. Tígulnía úr borði, lítið ffá Austur og sagnhafa. Og Vestur drap á drottn- ingu. Einn niður. Á hinu borðinu vom spilaðir 4 spaðar (Valur Sigurðsson og Sigurður Vilhjálmsson gegn Jóni Baldurssyni og Áðalsteini Jörgensen) sem unnust, þegar kóngur/drottning í spaða komu niður, hjá Vestur. Hendi Vestur var: KD932 ÁDG6KD102 Jamm, ísak á þetta til. Að vekja á 1 grandi (14-16) með heila 17 punkta. Þetta spil gaf Lúsifer 12 stig og setti mikla spennu í lokaumferðma. Henni Iauk með 39 stigum gegn 27 og lo- kastaða því 79 stig gegn 79 stigum. Svona eiga bikarleikir að vera... Ólafur Lárusson skrifar NYTT HELGARBLAÐ 1 2 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.