Þjóðviljinn - 20.09.1991, Qupperneq 15
r é t t i r
Austurstræti opnað bílum
í hálft ár til reynslu
Borgarstjóm samþykkti í gærkvöld með níu atkvæðum gegn
sex tillögu skipulagsnefndar um að opna Austurstræti fyrir bí-
laumferð til reynslu í sex mánuði. Jafnframt var samþykkt
breytingartillaga borgarfulltrúa Nýs vettvangs og Framsóknar-
flokksins um að Vallarstræti verði tekið í notkun sem göngu-
gata samhliða tímabundinni opnun Austurstrætis fyrir bílaum-
ferð og að athugun verði gerð á breytingu á deiliskipulagi sem
geri ráð fyrir lokun meginhluta Thorvaldsenstrætis fyrir bílaum-
ferð.
Heitt var í kolunum á borgar-
stjórnarfundinum í gær og stóð
fundur langt fram eftir kvöldi.
Umræður um Austurstræti stóðu í
þrjá klukkutíma og í þetta sinn
féllu atkvæði ekki samkvæmt
hefðbundinni skiptingu í meiri-
hluta og minnihluta. Atkvæði á
móti tillögunni greiddu þau Sigur-
jón Pétursson, Elín G. Ólafsdóttir,
Guðrún Zoega, Katrín Fjeldsted,
Páll Gíslason og Magnús L.
Sveinsson. Tillaga Elínar G. Ólafs-
dóttur um að fram færi skoðana-
könnun um vilja borgarbúa var
felld með átta atkvæðum gegn
þremur en fulltrúar Nýs vettvangs
sátu hjá þar sem þeir ícváðust telja
rétt að skoðanakönnun færi fram
að lokinni tímabundinni opnun
Austurstrætis fyrir bílaumferð.
Markús Öm Antonsson borgar-
stjóri tók ekki til máls fyrr en langt
var liðið á umræðuna og mælti
hann með að tilraun væri gerð en
lagði jafnframt mikla áherslu á að
hér væri um tilraun að ræða og
menn hefðu fijálsar hendur um að
endurskoða afstöðu sína að henni
lokinni. Hann kvaðst hafa miklar
efasemdir um að Vallarstræti yrði
hentug göngugata og kvaðst ekki
sjá að eðlilegt sambýli gæti orðið á
milli göngugötu þar og Austurvall-
ar. Tíma tæki að skipuleggja hana
vel ef mynd ætti að verða á.
Katrin Fjeldsted, borgarfúlltrúi
Sjálfstæðisflokks, kvaðst harma
mjög niðurstöðu borgarstjómar.
Við umræður benti hún á að sam-
kvæmt lista yfir fyrirtæki sem hafa
hætt rekstri í miðbænum væri að-
eins að finna tvö sem hefðu verið
starfrækt f göngugötunni. Ef efla
ætti viðskiptalífið í miðbænum
væri því nær að auka veg göngu-
götunnar. „Félagar mfnir í Sjálf-
stæðisflokknum hafa látið undan
háværum þrýstihópi örfárra manna
og gengið þannig gegn hagsmun-
um borgarbúa,“ sagði hún að lok-
inni atkvæðagreiðslu.
Þegar Þjóðviljinn fór í prentun
var borgarstjómarfundi enn ekki
lokið og átti eftir að ræða tillögu
borgarfulltrúa Nýs vettvangs um
skipun rannsóknamefndar vegna
kostnaðar við Perluna.
-vd.
Bílamir munu hafa forgangfram yf-
ir gangandi vegfarendur í einu
göngugötu Reykjavikur, Austur-
strœti, i sex mánuði að minnsta
kosti. Mynd: Jim Smart.
1 '*|g -% i' WlmMf!
. M
Almennur vilji áb halda
kvóta Elínar innan fjóróungsins
Ibúar á Suðureyri við Súgandafjörð bíða nú í ofvæni eftir því
hvað kemur út úr þeim viðræðum sem stjórn Fiskiðjunnar
Freyju á við hina ýmsu aðila um sölu á hlutabréfum þess í út-
gerðarfyrirtækinu Hlaðsvík hf., sem gerir út togarann Elínu Þor-
bjarnardóttur. Það er þó mat heimamanna að fátt eitt muni ger-
ast í málefnum fyrirtækisins fyrr en á næsta stjórnarfundi
Byggðastofnunar sem haldinn verður í lok mánaðarins.
Togarinn liggur enn bundinn
við bryggju vegna vangoldinna op-
inberra gjalda og þegar hefur fast-
ráðningarsamningi fiskvinnslu-
fólks verið sagt upp. Eins og kunn-
ugt er þá bámst alls sjö tilboð í
Hlaðsvík hf., en að mati stjómar
Freyju var ekkert þeirra nægilega
gott. Lilja Magnúsdóttir oddviti
Suðureyrarhrepps og formaður
verkalýðsfélagsins segir að starfs-
fólkinu sé efst í huga hvort því
verði endanlega sagt upp störfum á
næstunni eða ekki. Fari það á
KR - Torino 0:2. Italska stórliðið Torino vann sannfærandi sigur á KR-
ingum í fyrri leik liðanna i Evrópukeppni félagsliða, sem fram fór á
Laugardalsvelli í gær. KR- ingar voru mun frískari i fyrri hálfleik en í
Iþeim seinrii og höfðu ekki erindi sem erfiði uppi við mark andstæðing-
anna að þessu sinni. Mynd: Kristinn.
versta veg getur svo farið að þriðji
hver maður í plássinu verði at-
vinnulaus. I gær var verið að yinna
afla af línubátnum Sigurvon ÍS og
er reiknað með vinnu út þessa
viku.
I íyrradag fúnduðu tveir stjóm-
armenn í Freyju ásamt forstjóra
Byggðastofnunar með fram-
kvæmdastjóra Fáfnis hf. á Þingeyri
þar sem hann gerði grein fyrir hug-
myndum þeirra um lausn á málefn-
um Freyju hf. Guðmundur Malm-
quist, forstjóri Byggðastofnunar
sagði eftir fundinn að þetta hefði
aðeins verið upplýsingafundur.
Hinsvegar sagði hann að það væri
almennur vilji allra hlutaðeigandi
að reyna að halda kvóta Elínar inn-
an Vestfirðingafjórðungs. í því
sambandi væru menn að horfa til
þess að innan fárra ára yrði norð-
anverður kjálkinn eitt atvinnu- og
þjónustusvæði með tilkomu jarð-
ganganna.
Fyrir utan Fáfni hf. á Þingeyri
hafa fleiri fiskvinnslu- og útgerðar-
fyrirtæki á norðanverðum Vest-
fjörðum sýnt áhuga á málefnum
Freyju. Þar má nefna Frosta hf. í
Súðavík og Norðurtangann hf. á
ísafirði, Hrönn hf. á ísafirði sem
gerir út aflaskipið Guðbjörgu ÍS
46, og þá hafa fýrirtækin í Bolung-
arvík og á Flateyri einnig sýnt mál-
inu áhuga.
-grh
Bessastaðahreppur
og Búseti byggja
fyrir unga fólkib
Fulltrúar Búseta og Bessa-
staðahrepps skrifuðu undir
samning í gær um byggingu
þriggja fjögurra íbúða húsa í
hreppnum. Sigurður Valur As-
bjarnarson sveitarstjóri sagði að
með þessu væri sveitarfélagið að
reyna að svala þörf ungs fólks
fyrir ódýrara húsnæði.
Hann sagði að byggt yrði við
hlið skólans i hreppnum og væri
þetta fyrsta fjölíbúðabyggingin í
hreppnum fyrir utan nokkur par-
hús. Hann sagði að verið væri að
fara inná nýjar brautir í bygginga-
málum til að sinna þörf ungs og
eldra fólks og að ljóst væri að
þessu þyrfti að halda áfram.
Sveitarfélagið leitaði til Búseta
að fyrTa bragði um samvinnu við
bygginguna og sagði Sigurður
ástæðuna meðal annars þá að Bú-
setaformið væri mjög skemmtilegt
rekstrarform. Sveitarfélagið sótti
um lán til Húsnæðistofnunar til
byggingar húsanna og framseldi
lánið til Búseta.
Óskað var eftir umsóknum í
fyrra og sóttu 18 manns um þessar
12 íbúðir.
-gpm
Innsiglaö hjá
GuájónÓ hf
Lögreglau iuntiglaöi
Prentsmiðjuna GuöjónO hf.é
miðvikudagsmorgun að krðfu
rikistollstjóra. Samkvæmt
heimildum Þjóöviljans skuld-
ar fyrirtækið átta miljónir
króna f virðisaukaskatt.
Prentsmiðjan prentar meðal
annars spariskírteini ríkis-
sjóðs og avisanahefti fyrir Is-
landsbanka og Búnaðar-
banka.
Við innsiglunina lokaðist
eitthvað af birgðunum inni.
Bjöm Bjömsson bankastjóri Is-
landsbanka sagði þó, að fólk
þyrfti ekki að örvænta því bank-
mn ætti nokkrar birgðir af ávís-
anaheftum.
Jón, Friðjónsson hjá Seðla-
banka Islands sagði það sama.
Til væm birgðir af skírteinum
út árið þar sem nvkomin vasru í
hús 70 púsund skirteini.
Sigurður Nordal sem rekur
prentsmiðjuna lét ekki ná i sig i
gær.
-gpm
Okraó á
neyslulánum
sem sölu-
aöilar bjóba
Það er oft einsog fólk sé að
fó jólagjöf þegar það fær lón,
sagði Solrun Halldórsdóttir
hja Neytendasamtökunum
um óstæðu þess að fólk gerði
sér ekki grein fyrir að það
væri stundum að borga 66
prósent meira fyrir vöruna
með því að fó hana að lóni.
Þegar lónin eru tekin til langs
tima til dæmis til tveggja og
hóifs órs þó er bara mannlegt
að taka ekki eftir þeim þús-
undkðllum sem fara aukalega
ó hverjum mónuði.
I fréttatilkynningu frá sam-
tökunum segir að nokkuð hafi
borist af kvörtunum frá fólki
sem hafi verið boðnar vörur til
sölu með mjög löngum gjald-
fresti án þess það átti sig á
kostnaðinum því samfara. Neyt-
endasamtökin taka dæmi af
vöru sem kostar 107 þúsund
krónur staðgreidd, sé útborgun i
vörunni hinsvegar greidd með
skuldabréfi til tólf mánaða og
afgangurinn með munaláni tfl
30 manaða kostar varan ekki
107 þúsund krónur heldur
177.773 krónur.
Þessi 66 prósent aukalega
skiptast þannig:
1. Þóknun til fjármögnunarfýr-
irtækis: 8.982 krónur.
2. Vátrygging: 1.360 krónur.
3. Lántöku- og stimpilgjald:
2.928 krónur.
4. Afborgunarverð umfram
staðgreiðsluverð: 10.000
krónur.
5. Innheimtukostnaður: 20.160
krónur.
Samtals krónur: 43.430.
Við þetta bætist siðan
vaxtakostnaður sem er áætlaður
27.200 krónur.
Neytendasamtökin benda
hinsvegar á að ef neytandinn
hefði tekið lán i banka fyrir vör-
unni og staðgreitt hana hefði
hann greitt fvnr vöruna 143.577
krónur, þvi miðað við sama
vaxtakostnað hefði lántöku-
kostnaðurinn í bankanum num-
ið 34.156 krót;:im.
-gpm
Vísitalan
hækkar
Vísitala byggingarkostnaðar
er 0,3% hæm í september en í
ágúst. Hagstofan hefúr reiknað
hana út eftir verðlagi um miðjan
september og reyndist hún vera
187,0 stig.
Þessi vísitala gildir fyrir
október. Síðastliðna tólf mánuði
hefúr vísitala byggingarkostn-
aðar hækkað um 8,4%. Síðustu
þijá mánuði hefúr hún hækkað
um 0,6% og samsvarar það
2,4% árshækkun.
-vd.
NÝTT HELGARBLAÐ
t 5 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991