Þjóðviljinn - 20.09.1991, Qupperneq 17
Helgarrúnturinn Matseljan'
Norskar úrvalsmyndir
Hrekkja-
lómurinn
Christoph
í kvöld klukkan 23.00
verður sýnd í Regnboganum
kvikmyndin: Síðasta árið
um borð í Títanic. Leikstjóri
er þýski kvikmyndagerðar-
maðurinn Christoph
Schlingensief sem hefur orð
á sér íyrir.að vera öðru vísi
en aðrir. I viðtali í heima-
lapdi sínu sagði hann m.a.:
„Eg vil ekki vera móralisti
ó að alltaf sé verið að troða
ví þlutverki uppá mig...
Eg er hrifinn af ofbeldi
og perversjónum. Það er
eins og 1 „peep-show“.
Maður er búinn að hlaupa
eins og btjálæðingur um alla
borgina, tala við marga og
orðinn blautur í fætuma og
sest síðan inn í þennan litla
tréklefa, horfir á sora og
finnst maður vera kominn
heim til sín.
Á fyrsta degi norskrar
kvikmyndaviku, laugardag-
inn 21. september, verður
kvikmyndin Tvennir tímar
sýnd kl. 19.00 og 21.00.
Myndin er með íslenskum
texta. Hún er 90 mínútna
löng og leikstjóri er Martin
Asphaug.
I myndinni er fengist við
svipað þema og Friðrik Þór
glímir við í Bömum náttúr-
unnar. Það er farið fijálslega
milli fortíðar og nútíðar,
draums og veruleika.
Myndin er ljóðræn og lít-
ur á tilveruna af kíminni ást-
úð.
sveifla
Blús og sveifla
ráða rikjum á Blús-
barnum um helgina.
A laugardags-
kvöld leika blús-
sveittir Perezfélagar,
sem era Pálmi Sigur-
hjartarson á píanó,
Sigurður Sax Jóns-
son, Eðvarð Lárus-
son gítar, Bjöm Vil-
hjálmsson bassa og
Jón Borgar Loftsson
trommur.
Á sunnudags-
kvðld birtast KGB,
helstu fulltrúar
sveiflunnar, á svið-
inu, en það eru þeir
Kristján Guðmunds-
son píanó, Stefán
Ingólfsson bassi og
Einar Valur Sche-
ving trommur.
\- <>n
Ljúfir nikkutónar
Nú fer hver að verða síð-
astur að hlusta á harm-
onikkuleik Karls Jónatans-
sonar í Árbæjarsafhi.
Sunnudaginn 22. sept-
ember mun Karl leika við
Árbæ og Dillonshús á milli
kl. 15.00 og 16.30.
Kaffiveitingar fást í Dill-
onshúsi, en í Árbænum
verður hægt að gæða sér á
gómsætum lummum. Þar
verður einnig fengist við tó-
vinnu og í Efstabæ verður
sýnt hvemig á að vefa.
Krambúðin verður opin og
allar sérsýningar safnsins
svo sem ljósmyndasýningin
„Bær í gær“ og sýningin á
fomminjum sem fundist
hafa við uppgröftinn í Við-
ey.
Þakkartónleikar i Bústaóakirkju
I tilefni af því að tíu ár eru liðin frá
stofnun íslensku hljómsveitarinnar verð-
ur efnt til sérstakra þakkartónleika i Bú-
staðakirkju. Tónleikamir hefjast kl. 16.00
sunnudaginn 22. september.
Flutt verða: „Fimm lög fyrir kammer-
sveit“ eftir Karólínu Eiriksdóttur,
„Hræra“ fyrir blásarakvintett eftir Þorkel
Sigurbjömsson, „Oktett“ eftir Hróðmar I.
Sigurbjömsson, „Stig“ fyrir sjö hljóðfæri
eftir Leif Þórarinsson og „Adagio fyrir
flautu, hörpu, píanó og strengjasveit“ eft-
ir Jón Nordal, auk sönglaga eftir Áma
Bjömsson og Jón Ásgeirsson.
Á myndinni eru stjómendur Islensku
hljómsveitarinnar á tíunda starfsári: Há-
kon Leifsson, Guðmundur Óli Gunnars-
son, Páll P. Pálsson, Guðmundur Emils-
son, Ragnar Bjömsson og Öm Óskars-
son.
Arkitektar
ó Freyju-
gotu
1 samvinnu við Menn-
ingarstofnun Bandarikjanpa
heldur Arkitekt^félag Is-
lands sýningu í Ásmundar-
sal, Freyjugötu 41. Sýningin
verður opnuð á morgun kl.
17.00.
Sýndur verður þver-
skurður af verkum síðmó-
demískra arkitekta frá New
York; teikningum þeirra,
ljósmyndum og líkönum.
Sýningin grípur víða niður,
allt ffá husgögnum að há-
hýsum. Það má segja að
þessi sýning sé tilraun til
mótvægis við arkitektúr
glanstímaritanna.
Kristín
Guórún í
Nýhöfn
Á sýningunni í Nýhöfn,
Hafharstræti 18, eru 12 ol-
íumálverk, máluð á árunum
1988- 91. Sýningin er opin
virka daga kl. 10-18 en um
helgar 14-18. Á mánudög-
um er lokað. Sýningunni
lýkur 2. október.
Kristín Guðrún Gunn-
laugsdóttir fæddist á Akur-
eyn 1963. Hún hóf mynd-
listamám hér heima en
hafði síðan vetursetu í Róm
1987-88 og nam helgi-
myndamálun(ikonagerð) og
hefur stundað hana sapi-
hliða málverkinu síðan. Ár-
ið 1988 innritaðist Kristín í
Ríkisakademíið í Flórens
og leggur þar, stund á
freskumálun. Á sumrin
dvelur hún hins vegar
heima á Akureyri og málar.
Stiklað á stóru
Gönguferðir
Árleg haustlita- og grillferð Útivistar í Bása verður
farin 20.- 22. september. Boðið verður upp á fjölbreytt-
ar gönguferðir, flallgöngur og láglendisgöngur. Göngu-
garpar geta síðan snætt sameiginlegan kvöldverð á
laugardagskvöld, sungið við varðeld, tekið þátt í kvöld-
vöku og svo framvegis. Fararstjórar verða þeir Hákon
J. Hákonarson og Sigurður Einarsson. Áhugasamir eru
beðnir að athuga að skrifstofa Útivistar er flutt í Iðnað-
armannahúsið við Hallveigarstíg 1 en símanúmerin eru
óbreytt.
Þeir sem ekki ætla í Bása hafa þó úr ýmsu að velja
því á sunnudaginn hefst 19. áfangi póstgöngunnar
Oddi-Selalækur- Ægissíða kl. 10.30. Gengið verður
upp Reynivelli frá Odda um Selalæk að Ægissíðu.
Vegalengdin er 12 kílómetrar og verða göngukortin
stimpluð á Hellu. Stansað verður við Árbæjarsafn og
Fossnesti.
Á sunnudaginn verður líka farið I dagsferð upp á
Skaga og haldið af stað með Akraborginni kl. 12.30 frá
nýja ferjulæginu við Ægisgarð. Gengið verður um Akra-
nesbæ, bær og söfn skoðuð og komið til baka kl.18.
Myndlist
Nú fer hver að verða síðastur til að sjá sýningu Sig-
rúnar Sverrisdóttur ( Gallerí Borg við Austurvöll því
þessi sýningarhelgi er sú síðasta og lýkur sýningunni
24. september. Þetta er fyrsta sýning Sigrúnar hér á
landi og sýnir hún nú myndvefnað og þrykk. Hún hefur
unnið mörg opinber verkefni í Stokkhólmi og eru verk
hennar á opinberum stöðum. Tvö verka hennar eru í
eigu Listastofnunar ríkisins. Sigrún fékk listamannalaun
sænska ríkisins 1989, hefur haldið tvær einkasýningar
í Stokkhólmi og tekið þátt I nokkrum samsýningum síð-
ustu ár. Sýningin er opin frá kl. 14 til kl. 18.
Einar Þ. Einarsson hefur síðustu vikur sýnt málverk
í Eden í Hveragerði og er síðasta sýningarnelgi einnig
runnin upp þar, en sýningunni lýkur á þriðjudaginn.
Einar fæddist 1925 í Bandaríkjunum en fluttist ungur til
Islands og ólst upp hjá ömmu sinni í Austurbænum í
Reykjavík. I fréttatilkynningu segir einnig frá því að Ein-
ari Þ. hafi ekki fýrr en á miðjum aldri gefist tóm frá
brauðstritinu til að huga að málverkinu og hann sé að
mestu sjálfmenntaður ( listinni. Þetta er hans fyrsta
málverkasýning.
Uppáhalds pasta
Pasta er hollur og góður
matur og feUur flestum vel.
Fyrir þá sem telja sig ekki
vera sérlega listakokka og
treysta sér ekki í flókinn mat-
artilbúning eru einfaldir
pastaréttir góðir. Piparsveina
landsins vil ég líka minna á
aö matarlykt er miklu betri
en sambland af táfylu og rak-
spíralykt og vænlegri tií vin-
sælda ef tðfra skal dðmu upp
úr skónum. í Sjafnaryndi
stendur minnir mig eitthvað
um aö góð máltíð sé besti
undanfari ástarleikja og þá
er auðvitað um aö gera að
belgja sig ekki út af þung-
meltum steikum og eru
pastaréttir því fyrirtak.
Það er fátt skemmtilegra en
bjóða góðum vinum sínum í
mat.
Pastarétturinn sem hér fer á
eftir er alltaf vinsæll og auk
þess mjög auðveldur. Það sakar
heldur ekki að það sem út i
sósuna er látið þarf ekki nauð-
synlega að vera í ákveðnu
magni eða einhveijum sérstök-
um hlutföllum og maður getur
valið grænmeti að eigin smekk
og eftir efnum og ástæðum.
Hér kemur uppskriftin:
EFNI:
Nokkrir strimlar bacon
nokkrar sneiðar skinka í striml-
um eða bitum
3-5 gulrœtur i strimlum
I laukur
3 stór hvitlauksrif
1 paprika (litur að eigin vali)
rifinn Parmesan, Romano eða
annar ostur
ca 200 gr rœlgur
rjómapeli
(hvítvínsglas ef það er til)
pipar, oregano, basil
Baconið er steikt á pönnu.
Síðan er hitínn lækkaður og
marinn hvítlaukur og laukur í
sneiðum látinn krauma i ba-
confeitinni en laukurinn má
alls ekki brenna því þá kemur
beiskt leiðindabragð sem eng-
um finnst gott. Eftír það er söx-
uðu grænmetinu og skinkunni
bætt i og látíð mýkjast í feit-
inni. Þegar þetta er tilbúið er
ijómanum hellt yfir og hitað að
suðu. Svo er rifinn ostur settur i
og kryddað með oregano, basil
og nýmöluðum pipar. Að síð-
ustu eru rækjumar settar í. Ef
þið drekkið hvítvín með er
glasi af því bætt i í lokin.
Þess má svo geta að svepp-
ir i sneiðum saka ekki út í sós-
una og sumum finnst sneitt
selleri gott þótt það falli ekld
að mínum smekk.
Meðan verið er að elda
sósuna er pasta að eigin vah
soðið eftir leiðbeiningum á
pakka, nema þið séuð svo for-
ffömuð að búa til ykkar eigið
pasta sem að sjálfsögðu er það
besta. Mér finnst Tortellini
með ostafyllingu gott með
þessu en hvaða pasta sem er
má nota; þess vegna spaghetti.
Með þessu borðum við sal-
at og gott brauð.
í dag er síðasti Iaxveiöi-
dagur sumarsins. Lögin
heimila ekki laxveiðar lengur
en til 20. september. Það er
nú svo, að þó landið okkar sé
litið þá er náttúrufar þess
ekki hið sama allsstaöar.
Víða er þessi tími ágætur til
að hætta en annarsstaðar
býsna fráleitur.
Nú er laxinn fyrst að mæta
í einhverri alvöru á sum svæðin
sem þó er búið að beija síðan í
júní. Þetta er auðvitað ósköp
raunalegt, að fullomir menn
skuli nenna því áratugum sam-
an að fara heim samkvæmt
lögum og hætta við veiði, þeg-
ar laxinn er að koma í alvöru,
samkvæmt sínum lögum.
Eitt sinn var þvi lætt að
fólki hér, að við þyrftum ein
lög og einn sið. Það er auðvitað
rétt, en óþarfi að skilja þetta
svo þröngum skilningi. Það
væm ein lög ef menn settu sér
að veiða lax þegar hann er á
veiðisvæðunum, hvað sem
dagsetningum líður.
Nú hugsið þið eflaust að
hægt sé að breyta þessu, breyta
bara lögunum. Þið ættuð að
prófa slíkt svona einu sinni. í
fýrsta lagi mynduð þið hitta
fólk sem segði: ,Jæja, hefur
þetta nú ekki verið svona?“ í
öðm lagi mynduð þið hitta
embættismenn sem brygðust
ókvæða við og héngju eins og
hundar á roði á því að ekki eigi
að breyta neinu. Þeir væm
kannski frábrugðnir þeim fer-
fætta að því leyti að þið sæjuð
ekki örla á glettninni sem
hundurinn sýnir. Ég veit að
svona tal flokkast ekki með
kurteisi, en byggist því miður á
reynslu. Ég prófaði ýmis stig
málsins '84 og síðan, og fleiri
hafa reynt einnig. Þetta gætí
hafst eftír fáeinar kynslóðir.
Nú er best að vera ekki
svona leiðinlegur og líta á
flugu vikunnar.
Spruce heitir hún og er al-
þekkt.
1. Öngull: Ég notaði Bartlect
frá Partridge.
2. Skott: Nokkrar fanir af Pe-
acock Svord.
3. Búkur: Aftari helmingur
rautt flos, en fremri hlutinn
bronslitur Peacock
4. Vœngur: 2 Badger fjaðrir
sem mynda samloku.
5. Skegg: Badger fjöður,
hringvafin.
6. Haus er svartur.
Þessi fallega straumfluga
lokkar allskonar fiska. Ef þið
viljið vita hvemig farið er að
því að sveigja vængfjöðrina
svona fallega, er sjálfsagt að
gefa það upp. Þið setjið hana í
grænt box og farið svo norður
á Strandir og upp í Laxá og
austur að Iðu og þá er þetta nú
komið. Einfaldara getur að
varla verið.
13 C
o o
i- w
13 w
COCL
NÝTT HELGARBLAÐ
1 7 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991