Þjóðviljinn - 20.09.1991, Side 20
Helgarblað
Föstudagur 20. september 1991
Getur guö orðið
vímugjafi?
Karl Marx kallaði einu sinni trúar-
brögðin ópíum fyrir fólkið og fékk
bágt fyrir. Nú hefur bandarískur
prestur valdið miklu fjaðrafoki
með þvi að halda þvi fram að
hann sjálfur og margir aðrir noti
trúna og söfnuð sinn sem vímu-
gjafa: Rétt eins og alkóhólistinn
reynir að koma lagi á líf sit með
drykkju, vonar trúarfíkillinn að
guðs orð komi öllu í lag.
Leo Booth heitir presturinn
sem um ræðir og hefur þjónað
Biskupakirkjunni. I bók sinni
„Þegar guð verður að dópi“ talar
hann einkum um kristnar hreyfíng-
ar, en hann telur að hvaða trú sem
er geti breyst í vímugjafa. Bæði sú
trú sem stunduð er í sértrúarflokk-
um og í virðulegum kirkjudeildum,
austurlensk trúarbrögð sem nú eru
í tísku og Nýjöldin svokölluð - að
ógleymdri pólitískri trú á þá kenn-
ingu sem öllu á að bjarga.
Meginhugsun Booths er sú, að
öll „misnotkun“ eigi sér svipaðar
forsendur og þróist með svipuðum
hætti. Alkóhólisti, eiturlyfjaneyt-
andi, vinnubytta og sá sem misnot-
ar trú sína, þeir eru allir haldnir
samskonar áráttu. Og ástæðan er
einföld: hún á rætur að rekja til
þrár manneskjunnar eftir hamingju
og samræmi.
Manneskja sem er í sæmilegu
jafnvægi gerir ráð fyrir þvi að dag-
ar mannsins séu misjafnir: sumir
glaðir, aðrir myrkir og óendanlega
leiðinlegir. Vímuflkillinn hefur
hinsvegar ekki lært að ráða við
þessar sveiflur, hann er hræddur
við „myrkrið“ og gerir allt til að
sneiða hjá grimmri fjölbreytni lífs-
ins. Hann vill láta sér líða vel á
degi hverjum („gerðu þér dagamun
á hverjum degi“ segja sjónvarps-
auglýsingamar). Misnotkun (efna,
trúar) er tilraun til að ná tökum á
lífi sínu og endurskapa týnda Pa-
radís.
Og fyrst í stað skilar vímugjaf-
inn árangri. „Maður slappar af með
áfengi, það gerir glatt í geði að fá
sér eitthvað sætt í munninn, sá sem
fer í kirkju fær þá tilfinningu að
hann eigi heima þar sem kærleik-
urinn býr.“
Vandinn er svo sá að það er
ekki hægt að stjóma lífinu með
þessum ráðum. Menn fá ekki flúið
tilfinningar sínar. Verst er að til-
finningin fyrir vonleysi og sjálfs-
fyrirlitningin sem em ástæðan fyrir
því að fikillinn þolir ekki veruleik-
ann eins og hann er, þessar kenndir
eflast og vaxa. Að lokum finnst
fiklinum hann vera eins og hver
önnur gólftuska.
En gólftuskan „bítur frá sér“.
Því dýpra sem fikillinn sekkur í
sjálfsfyrirlitningu þeim mun meir
reynir hann að fá aðra með sér.
Þeim sem misnota trúna, segir
Booth, finnst þér séu dæmdir af
guði og því dæma þeir aðra. Þeim
finnst þeir aumir syndarar og því
vilja þeir að öðmm finnist hið
sama. Þeir vilja telja aðra á að trúa
og óttast eins og þeir.
„Ef þú kannt ekki við sjálfan
þig, ef þér finnst þú ekki nógu góð-
ur til að guð kannist við þig, ef þér
finnst þú vera syndari sem guð
einn getur frclsað, þá misnotar þú
trúna - eins og ég hefi gert,“ segir
Booth.
En hver er þá rauna bót?
Booth mælir ekki með því að
menn láti af trú sinni. Heldur finni
þeir guð í hvunndagsleikanum og
bættu sjálfsmati. Trúarfiklinum
finnst guð vera almáttugur dómari
sem gefi og taki eftir því sem hon-
um sýnist. Aðeins ef maður sé
nógu auðmjúkur, nógu heittrúaður,
rétti guð manni fingur og láti mann
fá hlutdeild í sínum gjöfúm. En í
rauninni, segir séra Booth, má guð
sín iítils án mannanna. Það emm
við sem getum breytt heiminum til
batnaðar. Guðs gjöf er ekki ham-
ingjan - heldur möguleikinn á að
skapa okkur sjálfum og öðmm
hamingju. Og til þess að geta orðið
meðhjálpari guðs verður trúarfik-
illinn að endurheimta sjálfsvirð-
ingu sína og styrk, segir Booth.
Sem hefur haft forgöngu um að
stofna „stuðningshópa" fyrir þá
sem misnota trúrarbrögð - rétt eins
og alkóhólistar og eiturlyfjaneyt-
endur hafa gert.
ÁB tók saman
o
Gæðatölvur á lága veröinu fyrir alla
AST Bravo 486/25
- vinnustöð framtíðarinnar.
Aflmikill Í486 25MHZ örgjörvi. 2MB innra minni,
stækkanlegt. 14" Super VGA litaskjár. Miklir
tengimöguleikar. Úrval diska frá 52MB - 1GB.
Verö frá 299.9C kr. stgr. m/vsk.
Tilboö í september.
AST Premium Exec - ferðatölva
Mjög hraövirkur örgjörvi (80386 SX 20 MHZ).
2 MB innra minni, staekkanlegt. 40 MB diskur.
Disklingadrif 3,5" 1,44 MB. Fislétt (rúm 3 kg).
3 klst. samfelld notkun án hleöslu. VGA skjár - 32
gráskalar. Tengi fyrir mús, litaskjá, prentara o.fl.
VICTOR V386MX
80386 SX örgjörvi. 1 MB innra minni, stækkan-
legt. 14" VGA litaskjár. 52 MB diskur. Disklinga-
drif 3,5" 1,44 MB. MS-DOS. WINDOWS.
Hólf fyrir ADD-PAK, (færanlegur haröur diskur).
Uppfæranleg. Tengi fyrir mús, prentara o.fl.
139.950 kr. stgr. m/vsk.
Tilboö í september.
Victor og AST
eru löngu viöurkennd gæöamerki
í tölvuheiminum fyrir áreiöanleika,
tæknilega fullkomnun og framsýni.
Hvers vegna Victor og AST
gæbatölvur?
■ Fjárfesting til framtíbar,
þær hafa þá sérstöbu ab fást uppfæran-
legar sem þýbir ab líftími þeirra er lengri
en sambærilegra tölva og eigendurnir
sitja ekki skyndilega uppi meb úrelta
tölvu - þær vaxa meb verkunum.
■ Öflugar, afkastamiklar og hljóblátar.
■ Fyrsta flokks EJS þjónusta og
þekking.
VICTOR V386MWX
-nett disklaus vinnustöð á netið.
80386SX örgjörvi. 1MB minni, stækkanlegt.
14" VGA litaskjár. Tengi fyrir mús, prentara o.fl.
109.980 kr. stgr. m/vsk.
Tilboö í september.
QS
EINAR J. SKULASON HF
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík, Sími 6869B3
-lykill að árangri