Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995
Fréttir i>v
Verkalýðshreyfingin boðar uppsögn kjarasamninga:
Mælirinn er f ullur
- segir Bjöm Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambandsins
„Þaö sem hefur verið aö gerast í
launamálum ráöherra, alþingis-
manna og æðstu embættismanna er
dropinn sem fylhr mælinn hjá fólki.
Þaö streyma til okkar ályktanir frá
verkalýösfélögum alls staðar af land-
inu um að nú beri aö segja samning-
um upp. Það var líka skoðun allra í
framkvæmdastjóm Verkamanna-
sambandsins á fundinum um helgina
að samningum eigi að segja upp.
Miðstjóm ASÍ hefur líka sagt að sið-
ferðislega séu forsendur kjarasamn-
„Það er alveg ljóst að ef þingmenn
og ráðherrar ætla að skjóta sér á bak
við kjaradóm og segja að þeim komi
þessar laimahækkanir ekki við, það
hafi verið kjaradómur sem ákvað
þær, þá þurfum við að fá okkar eigin
kjaradóm sem segir til um hvaða
laun fólk á að hafa,“ sagði Benedikt
Davíðsson, forseti Alþýðusambands-
ins, í samtali viö DV í gær.
Davíö Oddsson forsætisráðherra
sagði í samtali við Ríkisútvarpið í
inganna brostnar. Menn geta talað
um að verðlagshækkanir þurfi til að
forsendur samninga séu brostnar.
En í allri umræðunni við gerö kjara-
samninganna í vetur, hjá stjórnvöld-
um, aðilum vinnumarkaöarins og
bara öllum sem komu þar nærri var
rætt um að þeir lægst launuðu fengju
mest og að allt yröi gert til að við-
halda stööugieikanum í þjóðfélaginu.
Allt sem gerst hefur síðan í launa-
málum, og þá ekki síst nú hjá kjara-
dómi og þingmönnum, gengur í þver-
gærkvöldi að dómi kjaradóms um
laun þingmanna, ráðherra og æðstu
embættismanna yrði ekki hnekkt.
Hann sagði enga aðferð færa að gera
þær kröfur og það væri heldur ekki
skynsamlegt. Hann sagði jafnframt
að engar forsendur væru fyrir því
að segja kjarasamningunum upp.
Úrskuröur kjaradóms geti ekki
orðið tfi þess að forsendur kjara-
samninga bresti og sá úrskurður geri
ekki hag neins launamanns í landinu
öfuga átt við alla stefnumótun al-
mennu kjarasamninganna," segir
Björn Grétar Sveinsson, formaður
Verkamannasambandsins, um hina
haröorðu ályktun framkvæmda-
stjórnarinnar.
Hann sagði að ummæli forsætis-
ráðherra í gær um að þessi launa-
hækkun þingmanna og ráðherra
hefði engin áhrif á afkomu launþega
væri ekki rétt.
„Forsætisráöherra á að vita það að
allar launahækkanir sem eru um-
lakari. Hann sagði kjarasamningana
byggjast á því að verðlagsþróunin í
landinu væri þannig að þær launa-
bætur, sem kjarasamningamir
ákváðu á sínum tíma, röskuðust ekki
vegna verðlagshækkana.
Benedikt Davíösson var spurður
hvort hann teldi líklegt að kjara-
samningum yrði sagt upp frá og með
næstu áramótum?
„Ég get aö sjálfsögðu ekki fullyrt
neitt um það á þessari stundu en
fram okkar kjarasamninga hafa
áhrif inn í lánskjaravísitölu, þótt það
sé minna en var. Eins þykir mér að
: kjaradómur skuldi þjóðinni skýr-
ingu á samanburðarfræði þeirri sem
hann notar. Við könnumst ekki við
þær launahækkanir sem hann notar
tfi viðmiðunar þegar hann hækkar
laun þingmanna og ráðherra eins og
hann gerði,“ sagði Bjöm Grétar
Sveinsson.
menn hafa heyrt ályktun fram-
kvæmdastjórnar Verkamannasam-
bandsins. Hún er afar harðorð og
skýr. Tónninn í fólki er líka mjög
harður um allt land og ég tel að álykt-
un Verkamannasambandsins endur-
spegli þessa reiði almennings. Það
kemur mér mjög á óvart ef forsætis-
ráðherra og þingmenn heyra ekki
svipaðan tón þar sem þeir fara um,“
sagði Benedikt Davíðsson.
Lyfjumstoliðúr
skipumogbrot-
istinníapótek
Brotist var inn í tvö skip, Börk
NK og Beiti NK, á laugardags-
kvöld eða aðfaranótt sunnudags
þar sem þau lágu við bryggju í
Neskaupstað. Stolið var sterkum
deyfiiyíjum úr skipunum en litlar
skemmdir voru unnar á þeim. Er
ljóst að þjófarnir vissu hvar átti
að ganga að lyfjunum en þetta er
þriðja innbrotið í Börk á síðast-
liönum tveimur árum.
Þá var gerð tilraun tfi innbrots
í apótekið á Reyðarfirði en þjóf-
arnir flýðu af vettvangi þegar
öryggiskerfið fór í gang. Innbrot-
in eru í rannsókn en enginn hafði
enn verið handtekinn i gærkvöld.
-PP
Sparkaðíhöfuð
ligsjandimanns
Sparkað var í höfuð liggjandi
manns í átökum í Lækjargötu
aðfaranótt sunnudags. Maðurinn
var fluttur á slysadeild en fékk
að fara heim eftir að gengið hafði
verið úr skugga um að meiðsl
hans voru ekki alvarleg. Lögregla
handtók árásarmanninn. -pp
Vattíhálku
Fólksbíll valt sökum hálku í
Hveradalabrekku á laugardags-
kvöld. Tveir menn voru i bílnum,
sem er mikið skemmdur, en þeir
sluppu með minni háttar meiösl.
Að sögn lögreglu á Selfossi er hér
um fyrsta hálkuóhapp vetrarins
aöræða. -DD
Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að dómi kjaradóms verði ekki hnekkt:
Þurf um þá að f á okkar eigin kjaradóm
- segir Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins
Milljónatjón varó þegar eldur kom upp i nótaveiðiskipinu Júlla Dan trá
Grindavik. Skipið var við bryggju i Reykjavik og var verið að skipta um vél
i þvf. Eldurinn kom upp á gangi á millidekki og náði að teygja sig aftur f
skipið og myndaðist mikill hiti undir nótakassa þess. Ljóst er að nótin er
skemmd og einhverjar skemmdir urðu á rafleiðslum í skipinu. Skipið átti
að fara til veiða eftir hálfan mánuð. DV-mynd S
Sænsk brúðhjón giftu sig 1 Hálsanefshelli:
Svarrandi brimið og
gnauðið í vindinum heillaði
- segir Ann-Britt Newton sem telur sig hafa komið 1 hellinn 1 fyrra lífi
„Við komum hingaö fyrst fyrir ári
og vorum staðráðin í því að koma
aftur. Þá komum við í þennan helli
og fannst hann svo fallegur að við
afréðum að gifta okkur í honum ef
við myndum einhvem tíman láta
verða af því aö gifta okkur. Hann er
eins og kirkja; stuðlaberg, svarrandi
brimið fyrir utan og gnauðið í vindin-
um - allt hefilaöi þetta okkur,“ segir
Ann-Britt Newton, sem giftist Clar-
ence Newton í Hálsanefshelli í Reyn-
isfialli á laugardag.
Ann-Britt, sem er sérkennari aö
atvinnu, og Clarence Newton ljós-
myndari eru frá Svíþjóð hefiluðust
þau af landinu þegar þau komu hing-
að fyrst fyrir rúmlega ári. Þau voru
staðráðin í að heimsækja landið á
ný en í fyrri ferö sinni til landsins
komu þau í Hálsanefshelli.
Vikingar i fyrra lífi?
Ann-Britt, sem hefur orð fyrir þeim
hjónakomum, segir að þeim hafi
fundist staðurinn mjög kunnuglegur
þegar þau komu þangað fyrst.
„Eins undarlega og þaö kann að
hljóma þá var eins og við hefðum
komið þangað áður í öðru lífi. Lík-
lega sem víkingar," segir Ann-Britt.
Séra Haraldur Kristjánsson, sókn-
arprestur í Vík, gaf brúðhjónin sam-
an en vottar að vígslunni vom tveir
starfsmenn bifreiðaumboðsins
Heklu, en Clarence er í hlutastarfi
hjá því bifreiðaumboði í Svíþjóð sem
flytur inn Volkswagen þar í landi.
Þeim farinst athöfnin hin fallegasta
og eru staðráðin í að koma aftur tfi
landsinsfljótlega. -pp
Verkamannasambandið:
Kjarasamn-
ingum verði
sagtupp
Framkvæmdastjórn Verkamanna-
sambandsins hélt fund í Vestmanna-
eyjum um helgina. Þar var samþykkt
ályktun þar sem uppsögn kjara-
samninga um næstu áramót er
studd. Alyktunin hljóðar svo.
„Fundur framkvæmdastjómar
Verkamannasambands íslands,
haldinn í Vestmannaeyjum 22. tfi 24.
september 1995, furðar sig á því að
forráðamenn þjóöarinnar, sem lögðu
þunga áherslu á það við gerð kjara-
samninga í vetur að samið yrði um
hóflegar launahækkanir, fylgja nú
ekki sömu launastefnu og þeir hvöttu
tfi þá, heldur taka sér margfalda
hækkun almennra launa. Fram-
kvæmdastjóm VMSÍ telur að for-
sendur fyrir kjarasamningum séu
því brostnar og tekur undir með
miðstjóm ASÍ og verkalýðsfélögum
um land allt, um að kjarasamningum
verði sagt upp þannig að þeir verði
lausir 31. desember 1995.“
Björgunarbátur Slysavarnafélagsins, Henry A. Hálfdansson, dró Fleyg NK, þriggja tonna plastbát, til hafnar i
Reykjavik i gærkvöld. Báturinn bilaði á leiðinni frá Arnarstapa til Reykjavikur en talið er víst að öxull hafi brotnað
í vél. Önnur trilla fékk að fljóta með Henry til hafnar en skipverjar um borð í henni óttuðust veðrið en yfir 8 vind-
stig voru þar sem skipin sigldu. Á myndinni eru skipverjar um borð í Henry ásamt Hans Sigurgeirssyni af Fleyg NK.
DV-mynd S
Stuttar fréttir
Forseii í heimsókn
Martti Ahtisaari, forseti Finn-
lands, kemur í opinbera heim-
sókn tfi íslands á morgun ásamt
eiginkonu sinni, Eevu. Heim-
sóknin stendur í tvo daga.
VSÍog búvörusamningur
Vinnuveitendasambandið telur
sig, samkv. RÚV, eiga mikilla
hagsmuna að gæta við gerð bú-
vörusamnings. VSl hefur kynnt
bændum hugmyndir til úrbóta.
Magnesíumverksmiðja
Hátt verð og eftirspum á mark-
aði gera magnesíumframleiðslu
að fýsilegum kosti, samkvæmt
því sem segir í áliti verkefnis-
stjómar sem kannað hefur mögu-
leika á framleiðslu á Reykjanesi.
Sfldveíðin glædist
Síldveiði glæðist fyrir austan
land. Hólmaröst kom með 300
tonn tfi löndunar á Hornafirði í
fyrrinótt. Jóna Eðvaids kom með
80 tonn samkv. RÚV. -rt