Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Síða 27
MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995
39
Eitt verka Hafdisar Ólafsdóttur á sýningu hennar í Geröarsafni.
Hafskurðir
- Hafdis Ólafsdóttir í Gerðarsafni
Á síðustu árum hefur graflklistin verið að færa út kvíarnar hérlendis,
bæði hvað snertir íjölda sýninga og nýstárleg efnistök þar sem gjarnan
er leitað í aðrar listgreinar. Einþrykk hafa færst í vöxt með því að þar
er sótt á mið málverksins og með aukinni vegsemd lágmynda í seinni tíð
hafa grafíklistamenn farið út í formtilraunir með ramma og sýnt jafnvel
frumplöturnar sjálfar. Hafdís Ólafsdóttir hefur verið virk í sýningahaldi
íslenskrar grafíkur síðustu árin og hefur hún mestmegnis unnið tréristur
en meðhöndlað þær nánast eins og
málverk. Þannig notar hún margar
plötur í hverja mynd og þrykkir í
mörgum litbrigðum. Hún er nafni
sínu trú í listinni og er hafið henn-
ar meginviðfangsefni.
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
Vatn
Raunar má segja að vatn í hinum ýmsu myndum hafi veriö til fjölda
ára uppistaðan í verkum Hafdísar. Þar birtast öldur, hyljir, straumar,
flóð og fjara hafsauganu sem allt sér. Á sýningunni, sem Hafdís opnaði
í Gerðarsafni í Kópavogi á laugardag, eru 24 verk þar sem vatn er upp-
sprettan. Tréristur eru meginuppistaðan, hkt og fyrr, en fimm verkanna
eru einþrykk af koparplötum og eru þau talsvert ólík því sem Hafdís
hefur sýnt áður. Verk þessi eru smærri en tréristurnar og þar er yfirbragð-
ið mýkra og jafnframt flatara þar sem ekki gætir áferðar viðarins. Að
mínu mati standa verk þessi tréristunum nokkuð að baki vegna þess að
myndefni og efniviður bæta ekki hvort annað upp líkt og í tréristum lista-
konunnar. Sakir einfaldleika myndefnisins er það hins vegar stórt atriði.
Landsýn
Verkunum er raðað upp í tveggja tii fimm mynda heildir og er sú ráð-
stöfun mjög til heilla fyrir sýninguna því svipuð stærð myndanna og ein-
faldleiki þeirra kallar á slíka hjálp frá rýminu. Margt er vel gert í röð
trérista nr. 17 til 21 og er athyglisvert að skoða tvö verk sem bæði bera
heitið Straumar, því þar kemur skýrt fram hvernig listakonan notar plöt-
ur oftar en einu sinni en í mörgum litum þannig að ekkert verk verður
eins, enda eru þau merkt á þá lund. í verki nr. 21, Flæði, kemur hinn
grafíski eiginleiki tréristunnar hvað best fram og mætti Hafdís hugleiða
að gefa teikningu skurðarins gaum í fleiri verkum. Hér sést að henni
lætur einmitt vel að fækka litatónum en auka þess í stað skurðlistina í
verkum sínum. Að mati undirritaðs rís sýningin þó hæst í síðustu þrem-
ur verkunum sem standa sem röð við endavegginn, nr. 22 til 24. Þar er
að finna meiri dýpt en í öðrum verkum á sýningunni og hin mörgu lög
vinna þar vel saman að mótun landsýnar á mörkum hillingar og veru-
leika i ljósaskiptum.
Sýning Hafdísar Ólafsdóttur stendur til 8. október.
Smáauglýsingar - Sími 550 5000
MMC Pajero ‘92, 5 d., V-6 super, ABS
o.fl., ek. 97 þ., v. 2.950 þ., skipti.
AMC Cherokee ‘89, 5 d., 4,0 1, A/T,
krómf., ek. 126 þ., v. 1.600 þ., skipti.
MMC Pajero ‘90, 3 d., V-6, 31”, ek. 84
þ., v. 1.400 þ., skipti.
VW Golf station CL 1400 ‘95, álf. o.fl.,
ek. 6 þ., v. 1.320 þ., bein sala.
Vantar Daihatsu Rocky, langan, dísil,
‘84-’87. Uppt. á bílasölu Höldurs hf.,
Akureyri, s. 461 3019,461 3020.
Vörubílar
VolvoF-12árg.‘83.
Vel útbúinn dráttarbill með grjótpalli.
Upplýsingar í síma 565 7627.
Til sölu Topper vinnulyfta, í góöu lagi.
Bjóðum góð greiðslukjör. Úpplýsingar í
síma 562 5815 eða 567 2312 laugardag
til miðvikudags.
Menning
Fyrstu tónleikarnir
Fyrstu áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands voru haldnir sl.
fimmtudag í Háskólabíói. Hljómsveitarstjóri var Osmo Vánská og einleik-
ari Kalle Randalu. í vetur er ætlunin að beina athygli sérstaklega að
verkum Þorkels Sigurbjörnssonar og hófust þessir tónleikar á verki hans,
Rímu.
Rímu samdi Þorkell árið 1974 og byggir verkið á stuttri tónhendingu
sem unnið er úr á stigvaxandi veg. Vefur Þorkels er fjölbreyttur og stund-
um litríkur og á heildina er verkið áferðarfallegt og áhugavert og ber
höfundinum gott vitni hvað handbragð snertir. Osmo Vánska leiddi hljóm-
sveitina vel og ákveðið sem skilaði
sér í góðum flutningi verksins.
Píanókonsert nr. 24, K.491 í c-
moll, eftir Mozart var næstur á efn-
isskrá. Finnski pianósólistinn
Kalle Randalu lék einleikshlut-
verkið með hljómsveitinni.
Þessi konsert er, eins og þeir sem
á eftir komu frá hendi Mozarts,
ekki síður sinfónískur að allri gerð
og byggingu en sjálfar sinfóníur
sama höfundar. Verkið býður upp
á skáldlegan leik og í því brást
Randalu ekki. Ásláttur hans er
mjög fallegur og var túlkunin
margþætt litróf tilfinninga sem þó
voru alltaf hamdar í stílinn. Undir-
ritaður þekkti ekki kadensumar
og væri það sannarlega vel þegið
af áheyrendum og sjálfsögð kurt-
eisi við einleikarann að nefna í efn-
isskrá höfunda kadensa í eldri verkum, svo sem þessu. Fyrir utan smá-
hnökra í byrjun verksins hjá tréblásurum svo og inntónunar í öðrum
þætti, var verkið annars flutt af næmi og tilfinningu við fíngert slag Osmo
Vánská.
Lokaverk tónleikanna vom þættir út ballettinum Rómeó og Júlíu eftir
Sergei Prokoffief. Hljómsveitarstjórinn, Osmo Vánská, valdi hér nokkra
þætti úr hljómsveitarsvítunum tveimur. Þetta er yfirþyrmandi músík,
falleg, kraftmikil, glaðleg og sorgleg, frábærlega skrifuð og snilldarlega
útfærð fyrir hljómsveitina.
Hljómsveitin lék verkið af sannkallaðri andagift undir góðri stjórn Osm-
os Vánskás.
Osmo Vanská stjórnaði Sinfóníu-
hljómsveitinni af öryggi.
Tónlist
Áskell Másson
Til þín sem
missir hárið
Ég vil gjarnan vita meira um Appolohár
Nafn:____________________________
Heimili:
Póstnr.____
Heimasími:,
Vinnusími:
GREIFIM
HÁRSENTER
HRINGBRAUT 119
SÍMI 552 2077
SPARISJOÐANN
Heimabanki sparisjóðanna veröur
kynntur á sýningunni
Tækni og tölvur - inn í nýja öld.
Sýningin veröur í Laugardalshöllinni,
28. september til l.október.
þegwþérhentar