Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Síða 29
MÁNUDA.GUR 25. SEPTEMBER 1995
41
Hringiðan
Indíáni íReykjavík
Á laugardaginn var frumsýnd í Háskólabíói franska kvikmyndin Indíáni í stórborginni. Aðalleikari myndarinnar,
hinn 13 ára gamli Ludwig Briand, var viðstaddur frumsýninguna og mátti hafa sig allan við að gefa eiginhandarárit-
anir. Eyrún Káradóttir og Kristín Ingibergsdóttir fengu sína áritunina hvor og voru hæstánægðar meö það.
DV-myndirTJ
Opinn dagur hjá MS-félaginu
MS-félag íslands hefur ákveðið að tileinka einn dag árlega baráttunni gegn
MS-sjúkdómnum eða multiple sclerosis. Á laugardaginn var opið hús hjá
félaginu og starfsemin kynnt. Ólafur Jónsson og Elín Þorkelsdóttir voru á
staðnum að kynna og kynna sér starfsemina en Elín er formaður MS-félags-
ins.
Sýningar í Gerðarsafni
Á laugardaginn voru opnaðar þrjár myndlistarsýningar í Gerðarsafni. Syst-
urnar Svanfríður og Svanborg Jónsdætur og Kristín Einarsdóttir voru að
kíkja á verk Hafdísar Ólafsdóttur þegar DV bar að garði.
Eva sýnir í Listhúsinu
í Listhúsinu í Laugardal var á laugardaginn opnuð myndlistarsýning Evu
Benjamínsdóttur. Sigríður Jónsdóttir og Kristrún Þórðardóttir voru viðstadd-
ar opnunina og höfðu gaman af.
Frumsýning i Þjóöleíkhúsinu
Á fóstudaginn var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins leikritið Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson. Her-
mann Hermannsson, Ingólfur Helgason, Hanna Birna Björnsdóttir og Bryndís Steinarsdóttir voru á frumsýningunni
og létu vel af.
Lucky People Center á Tunglinu
Sænska grúvbandið Lucky People Center spilaði á Tunglinu fóstudags- og
laugardagskvöld. Sveitin leikur fjöruga danstónlist og gestirnir fóru ekki
varlúuta af því, eins og þessi yngismær sem sveif um gólfið í nettum svana-
dansi.
Margt um manninn hjá Jóni á Reykjum
Fjölmenni fagnaði með Jóni M. Guðmundssyni, bónda á Reykjum og fyrrver-
andi oddvita Mosfellshrepps, í sjötíu og fimm ára afmælisveiSlu hans þann
19. september síðastliðinn. Hér er það Salome Þorkelsdóttir, fyrrverandi for-
seti Álþingis, sem árnar afmælisbaminu heilla. Til hægri er Magnús Gunn-
laugsson á Miðfelli.
Á laugardaginn var í fyrsta sinn
haldinn MS-dagur á vegum MS-fé-
lagsins. Af því tilefni mætti Bubbi
Morthens í hús dagvistar MS-félags-
ins og tók nokkur lög fyrir viðstadda.
Jeppakallar
Um helgina var haldin jeppasýning í Laugardagshöllinni. Þar var margt um
manninn og ýmislegt merkilegt að sjá. Oscar Bjarnson, Magnús Skúlason
og Jón Ágúst Brynjólfsson eru hinir mestu jeppakallar og áhugamenn um
bílvélar eins og sjá má.