Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Page 32
44
MANUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995
Eru ráðherrar að blekkja lands-
lýð?
Blekkingar
ráðherra
„Það er grundvallarblekking
þegar ráðherrar ríkisstjórnar-
innar halda því fram að þeir séu
að framkvæma markmið GATT-
samningsins hér á landi.“
Jón Baldvin Hannibalsson
í Alþýðublaðlnu.
Neikvæð umræða?
„Dalandi fylgi ríkisstjórnar-
innar hlýtur að endurspegla þá
neikvæðu umræðu sem verið
hefur um stjórnmál og stjórn-
málamenn undanfarið."
Björn Bjarnason í DV.
Ummæli
Menn segja ekki svona
nema einu sinni
„Það hjálpaði okkur verulega
að vera spáð 12. og neðsta sæti.
Menn segja ekki svoleiðis nema
einu sinni við Eyjamenn."
Þorbergur Aðalsteinsson,
þjálfari ÍBV, í DV.
Sjálfum sér verstur
„Við komum aðallega sjálfum
okkur á óvart með andleysi.
Maður er sjálfum sér verstur,
ekki andstæðingurinn."
Jóhann Ásgeirsson,
ÍR, eftir tap,í DV.
Þessi eiturslanga er af gerðinni
kóbra.
Eitruðustu
eiturslöng-
urnar
Eitruðustu slöngur í heimi eru
í sjónum og sú eitraðasta er
sæslangan (hyrophis belcheri).
Hún hefur hundrað sinnum
máttugra eitur en ástralska
taipa-slangan (Oxyuranus
scutellatus). Mikil mergð þessar-
ar sæslöngu er umhverfis As-
hmorerif í Timorhafi undan
strönd Norðvestur-Ástralíu.
Eitraðasta landslangan
Eitaraðsta landslangan er hin
tveggja metra langa Paradem-
ansia microlepidotus er liftr við
Diamantinafljót og á votlendis-
svæðum í Queensland og vestan
til í Nýja Suður-Wales í Ástralíu.
Eitur hennar er níu sinnum
Blessuð veröldin
máttugra en eitur tígurslöngunn-
ar (Notechis scutatus) sem
einnig lifir í Ástralíu og á
Tasmaníu.
800 deyja á ári
Fleiri deyja af slöngubiti á Sri
Lanka en nokkru öðru svæði í
heiminum. Að jafnaði eru 800
dauðsföll á ári af slöngubiti þar í
landi og 95% þeirra eru af þrem-
ur tegundum slangna, krætu-
slöngu, ceylonkóbru og russels-
höggormi.
Skúrir, él og slydda
í dag verður vaxandi norðan- og
norðaustan stinningskaldi eða all-
hvasst en þó hvassara á Vestfjörð-
um og við Breiðafjörö. Þá má búast
við éljágangi norðan heiða og einnig
verða skúrir eða slydduél sunnan-
Veðrið í dag
lands til að byrja með. Hiti á bilinu
0 til 4 stig norðan til en 3 til 8 sunn-
anlands. Á höfuðborgarsvæðinu
verður í dag norðaustan stinnings-
kaldi og rigning eða skúrir til að
byrja með en styttir upp síðdegis.
Hiti 3 til 7 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 20.07
Sólarupprás á morgun: 7.23
Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.49
Árdegisflóð á morgun: 7.08
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið klVl2 á hádegi
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri léttskýjaö 4
Akurnes léttskýjaö 6
Bergsstaðir skýjaó 3
Bolungarvik skýjað 1
Egilsstaöir skýjaö 4
Keflavíkurflugvöllur skýjaö 6
Kirkjubœjarklaustur skýjaó 4
Raufarhöfn skýjaö 5
Reykjavík skýjað 6
Stórhöfði skýjaö 6
Bergen súld 10
Helsinki skýjaö 14
Ka upmannahöfn skýjaö 16
Ósló alskýjaö 15
Stokkhólmur hálfskýjaó 15
Þórshöfn úrkoma 8
Amsterdam skýjaó 16
Barcelona hálfskýjað 23
Berlín skýjaö 18
Chicago léttskýjað 3
Feneyjar heiðskírt 20
Frankfurt skýjaó 16
Glasgow léttskýjað 12
Hamborg skýjaö 17
London skúr 16
Los Angeles heióskírt 18
Lúxemborg skýjað 13
Madríd heiðskírt 20
Mallorca skýjaó 21
Montreal heiöskírt 4
New York léttskýjaö 12
Nice léttskýjaö 22
Nuuk snjókoma -1
Orlando hálfskýjaö 23
Paris skýjaö 17
Róm skýjaó 22
Valencia léttskýjaö 23
Vin léttskýjaó 19
Winnipeg skýjaö 8
Sigfús Halldórsson tónskáld:
Hef fundið að fólki
þykir vænt um lögin mín
„Þessi dagskrá varð til vegna
velvilja Kópavogskaupstaðar sem
vildi sýna mér heiður og vinskap í
tilefni 75 ára afmælis míns. Jónas
Ingimundarson á veg og vanda af
þessu og hefur verið þungamiðjan
í flutningnum en hann leikur und-
ir í öllum lögunum," segir Sigfús
Halldórsson, tónskáld, málari og
heiðursborgari Kópavogs, en und-
anfamar helgar hefur verið flutt
dagskrá í Listasafni Kópavogs sem
nefnist Söngvar Sigfúsar og hefur
Maður dagsins
alltaf verið fullt hús. Er dagskráin
í sjötta skipti í kvöld. Þessi dag-
skrá átti í fyrstu aðeins að vera
eina helgi en nú er þriðja helgin
liðin og ekkert lát á aðsókninni.
„Þaö eru allt Kópavogsbúar sem
koma fram á tónleikunum en ég og
Kristinn Hallsson erum að vísu
gamlir Reykvíkingar og innfluttir
Kópavogsbúar," segir Sigfús, en
hann er búinn að búa í Kópavogi
síðan 1963 og hefur alltaf búið á
Sigfús Halldórsson.
sama stað í Víðihvamminum. „Það
hefur mikið breyst frá því ég flutti
hingað og má segja að gjörbylting
hafi orðið á bænum.“
Sigfús segir að það séu bæði
gömul og ný lög sem flutt eru á
söngdagskránni og lögunum bland-
að saman. „Það er nauösynlegt að
vera með eitthvert nýmeti með.
Maður verður að brydda upp á ein-
hverju nýju svo fólk verði ekki
leitt." Þess má geta að í lok tónleik-
anna leikur Sigfús á píanóið og
Friðbjörn G. Jónsson syngur. „Við
leikum og syngjum þrjú lög og er
eitt þeirra Sól, stattu kyrr, mjög
gamalt lag sem aldrei hefur heyrst.
Ég held að ég hafi verið sextán eða
sautján ára þegar ég samdi það við
texta eftir Sigurð frá Amarholti."
Sigfús sagðist vera afskaplega
glaður og ánægður yfir viðtökun-
um. Mér þykir vænt um þetta í
tvennum skilningi. Fyrst að bæjar-
félagið skuli gera þetta fyrir mig
og svo að finna það að lögin mín
eru svona vinsæl. Ég hef litla hug-
mynd um hvemig þau eru sungin
um allt land, hef engin tök á að
fylgjast með þvi, en ég hef fundið
það að fólki þykir vænt um þessi
lög.“
Sigfús er enn, þrátt fyrir háan
aldur, að semja lög og mála: „Ég
hef ágæta heilsu og læt mér aldrei
leiðast. Ég syng ekki lengur og er
hættur að fara út að skemmta; geri
þetta meira fyrir sjálfan mig að
setjast við píanóið og taka fram
pensilinn. Það að geta gert þetta
eru eiginleikar sem ég þakka fyrir
á hverjum degi.“
Hvessir augun Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingarorði
Þrír leikir við
erlend lið
Það er frekar rólegt í innlend-
um íþróttum þessa dagana og má
segja að nú sé lognið á undan
storminum því handboltinn,
körfuboltinn, blakið og fleiri
íþróttir sem stundaðar era að
vetri til eru í startholunum. Aö
Iþróttir
vísu er byrjuð 1. deildarkeppni í
handbolta en handboltinn er
samt ekki almennt kominn í
gang.
Á næstu dögum era þrír leikir
við erlend lið. Á morgun leikur
Akranes við skoska liðið Raith
Rovers. Akranes þarf að vinna
helst með þriggja marka mun til
Skák
Sveit Taflfélags Reykjavíkur tapaði
5-1 fyrir Empor Berlín í undanrásar
iðli Evrópukeppni taflfélaga i Clich)
um helgina. í liði Þjóðverja voru engii
aukvisar - Vladimir Kramnik á fyrsk
borði og Alexei Sírov á 2 borði, sen
unnu skákir sínar gegn Jóhanni Hjart
arsyni og Hannesi Hlífari Stefánssyni
Karl Þorsteins og Helgi Áss Grétars
son gerðu jafntefli en Þröstur Þórhalls
son og Benedikt Jónasson töpuðu sín
um skákum.
Hér er staða úr öðrum riðli keppn
innar, sem fram fór í Maribor í Sló
veníu. Kortsnoj, Vín, hafði hvitt og átt
leik gegn heimamanninum Barle.
32. Be4 Hcc7 33. Hd8+ HfB 34.
Bxh7+! Á einfaldan hátt hefur
Kortsnoj unnið peð því að 34. - Kxh7
gengur ekki vegna 35. HxfB. Eftir 34. -
Kf7 35. Bg6+ Ke7 36. Hd2 vann hvit-
ur létt. Jón L. Árnason
Bridge
Undanfarin ár hefur þátttaka sífellt
verið að aukast hjá Bridgefélagi
Reykjavíkur sem ber ægishjálm yfir
önnur félög hvað stærð varöar. Nýhaf-
inn er aðaltvímenningur félagsins með
þátttöku 67 para. Spilaformið er Mon-
rad-barómeter sem hefur veriö reynt í
sumarbridge við töluverðar vinsældir.
Þetta spilaform verður notað í stór-
móti Flugleiða í tvímenningi í febrúar
á næsta ári. Hér er eitt spil frá fyrsta
spilakvöldinu í keppninni. Vestur gjaf-
ari og allir á hættu:
Þrjú grönd voru spiluð á 19 borðum
af 33 i keppninni og samningurinn
stóð á 15 þeirra. í alflestum tilfellum
stóöu 5 grönd (660 í NS), sennilega eft-
ir spaðasókn varnarinanr. ímynda má
sér að sagnir gangi þannig (standar-
kerfi hjá NS):
4 D2
* 9
* D85
* ÁKG10953
4 763
ÁD1042
+ 9762
4 D
4 ÁG10
* G763
4 Á43
* 872
Vestur Norður Austur Suður
pass 14 14 Dobl
24 34 pass 3G
p/h
Dobl suðurs er neikvætt og lofar
flórlit í hjarta og suður telur sig eiga
fyrir þremur gröndum með ágætis
stöðvara í spaða og 10 punkta eftir
þriggja laufa sögn norðurs. Flestir
spilarar í vestursætinu hafa sennilega
spilað út spaða í lit félaga og þannig fá
NS 660 í sinn dálk. Spaðaútspil frá
vestri er hins vegar frekar andlaust.
með enga punkta í litnum. Hjartalitur
inn er sterkur og þó að neikvætt dobl
suðurs lofi fjórlit í hjarta er ekkert
sem segir að það lofi endilega kóngn-
um í litnum. Enda fengu þeir verð-
skulduð verðlaun, spilararnir sem
spiluðu hjarta út og fengu 58 stig af 60
mögulegum fyrir að setja þrjú grönd
einn niður. ísak Örn Sigurðsson