Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Qupperneq 14
14
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnartormaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.
Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
Kjarasamningar losna ekki
Launahækkun stjórnmálamanna og embættismanna
gefur stéttarfélögum ekki tækifæri til að segja upp
samningum. Hækkunin hefur ekki slík áhrif á verðlag,
að það leiði sjálfkrafa til opnunar á kjarasamningum.
Hækkunin er siðlaus, en hún er eigi að síður lögleg.
Forustumenn Alþingis hafa fallið frá skattfrelsinu,
sem fór verst í fólk. Þar með er ekki annað við launa-
hækkun stjórnmálamanna og embættismanna að at-
huga en, að þær eru umfram aðrar hækkanir í landinu
og stríða gegn þjóðarsátt um jöfnun launamisréttis.
Alþingi hefur hlotið skaða af máli þessu. Komið hefur
í ljós, að með stuðningi alls þorra þingmanna er því
stjórnað af taumlausri græðgi manna, sem ekkert hafa
til þjóðmálanna annað að leggja en að skara eld að eigin
köku og köku umbjóðenda sinna, svonefndra gæludýra.
Fleiri hafa hlotið skaða. Þar fer fremst embætti Ríkis-
skattstjóra, er allir kónar segja, að hafi bent á
skattsvikaleiðina, sem síðan var hætt við. Þar með er
upplýst, að stofnunin hefur veitt valdastéttinni óviður-
kvæmilega aðstoð við að reyna að koma tekjum undan
skatti.
Kjaradómur og kjaranefnd hafa líka hlotið skaða.
Komið hefur í ljós, að stofnanir þessar eru skálkaskjól
í samtryggingu embættismanna um að efla tekjur stétt-
arinnar umfram aðrar stéttir í landinu. Þessar siðlitlu
stofnanir hafa ekki reynzt valda hlutverki sínu.
Mest sker í augu lágkúran í vörnum stjórnmála-
manna. Sumir þeirra væla yfir bágum kjörum, alveg
eins og fátækt eigi að réttlæta lögbrot og siðleysi. Aðr-
ir væla yfir góðum kjörum gagnrýnenda sinna, alveg
eins og tekjur manna eigi að stjórna skoðun þeirra á
máli þessu.
Lágkúran hefur sokkið á það stig, að tilraunin til
skattsvika er varin með því, að hliðstæð skattsvik hafi
tíðkazt um langan aldur, einkum í kjörum ráðherra. Þar
með vjrðist valdastéttin telja sig hafa aflað sér eins kon-
ar hefðarréttar á slíkum lögbrotum og siðferðisbresti.
Svo er beinlínis rangt hjá talsmönnum subbuskapar-
ins, að gagnrýnendur hafi látið fyrri skattsvik sér í léttu
rúmi liggja. Til dæmis hefur allt það svindl árum sam-
an verið harðlega gagnrýnt hér í blaðinu. Sú gagnrýni
hefur bara ekki hlotið nægan hljómgrunn fyrr en núna.
Hallærislegust var tilraun yfirmanna Alþingis og
þingflokka til að bera sín aumu laun saman við kjör
starfsbræðra í nágrannalöndunum. Það var eins og
þeim væri gersamlega ókunnugt um, að laun íslenzkr-
ar alþýðu eru stórum lakari en alþýðu manna í ná-
grannalöndunum.
Sem betur fer hafa undanbrögðin framlengt umræð-
una og opnað augu manna fyrir því, að skattsvikin voru
ekki eina hneykslið í málinu, þótt þau væru sýnu verst.
Fólk er að átta sig á, að fleiri atriði í gerðum Alþingis
og Kjaradóms fara langt út fyrir almennt velsæmi.
Það eru léttvæg málsrök að segja kjör valdastéttar-
innar þurfa að batna í samanburði við aðrar stéttir í
landinu. Slík rök geta gilt á tímum, þegar ekki er al-
mennt stefnt að kjarajöfnun í samningum vinnumark-
aðarins. Hækkun hálaunamanna er tímaskekkja á
þessum tíma.
Eftir fráhvarfið frá skattsvikunum situr það eftir, að
samsæri Alþingis, ríkisstjórnar, Kjaradóms, Kjara-
nefndar og Ríkisskattstjóra er löglegt, þótt það sé sið-
laust fráhvarf frá kjarajöfnunarstefnu gildandi þjóðar-
sáttar. Samsærið er þvi ekki tilefni til að taka upp
kjarasamninga.
Fólkið í landinu verður að finna sér pólitíska en ekki
stéttarpólitíska leið til að ná sér niðri á gráðugri valda-
stétt, sem skarar markvisst eld að sérhagsmunakökum.
Jónas Kristjánsson
Hernámsstjórn víkur
fyrir sjálfsstjórn
Tveim árum eftir aö forsætisráð-
herra ísraels og foringi Frelsissam-
taka Palestinumanna tókust í
hendur í garði Hvíta hússins í
Washington til staðfestingar sam-
komulagi um framtið landsins sem
verið hefur hernámssvæði israels-
manna i 28 ár hittust Yitzhak
Rabin og Jasser Arafat aftur á
sama stað til að undirrita sameig-
inlega áætlun um framkvæmd ann-
ars áfanga samkomulagsins.
Fyrsti áfanginn, frá því í maí í
fyrra, færði Palestínumönnum yf-
irráð á Gaza-svæðinu og borginni
Jeríkó á vesturbakka Jórdans. Nú
hefur náðst samkomulag um
hversu aðrar byggðir Palestínu-
manna á Vesturbakkanum komist
undir stjóm þeirra sjálfra á næstu
tveim árum.
Mánaða töf hefur orðið á niður-
stöðu frá því sem ætlun var og stóð
lengst á því að ákveða yfirráð í
borginni Hebron. Af aðstæðum þar
má marka hver tormerki kunna
enn aö koma upp á framkvæmd
ákvæða plaggsins sem nú hefur
verið undirritað.
Hebron geymir stað sem er helg-
ur jafnt i augum gyðinga og já-
tenda íslams. Þar hafa sagnir eign-
að ættfeðrunum Abraham og ísak
legstað og yfir hann
hefur verið reist
grafhýsi sem trú-
aðir gyðingar og
múslimar vilja
báðir geta sótt.
Fram á fjórða
tug aldarinnar
var forn- gyðinga-
byggð í Hebron en
í uppreisn Palest-
ínumanna gegn
umboðsstjórn
Breta í Palestínu
voru þeir vegnir
eða hrökkluðust á
brott. Þegar ísra-
elsher hemam svo
Hebron 1967 var
það eitt megin-
markmið hreyf-
ingarinnar sem
gengst fyrir land-
námi gyðinga á
herteknu svæðun-
um að ná aftur fót-
festu í Hebron.
Þar búa nú um
450 gyðingar í borg
sem hýsir um
100.000 Palestínumann. Úr þeim
herskáa hópi var Baruch Goldstein
sem ísraelskir verðir hleyptu vopn-
uðum inn i bænahússhluta
múslíma af Grafhýsi ættfeðranna
þar sem hann varð að minnsta
kosti 29 mönnum að bana er þeir
lágu á bæn.
Með þessa fortíð í huga er ekki
furða þótt illa hafi gengið að semja
um hver ráða skuli yfir Hebron. Að
ráði varð að skipta borginni i þrjú
svæði. Eins gæta Palestínumenn,
annars ísraelsmenn og þess þriðja
Erlend tíðindi
Magnús torii Ólafsson
báðir í sameiningu. Vegur verður
svo lagður milli gyðingahverflsins
og stærri landnemabyggðar utan
borgar.
Vegarlagningin tekur misseri og
fyrr getur umsamin tilfærsla yfir-
ráða frá ísraelsher til sveita palest-
ínskra yfirvalda á Vesturbakkan-
um ekki átt sér stað til fullnustu.
Sami frestur verður því á að
Palestínumenn geti gengið að kjör-
borði til að kjósa þing sitt, Palest-
ínuráðið, en kjördagur skal vera
innan 22 daga frá því valdatil-
færslu lýkur.
Að tíu dögum liðnum frá undir-
rituninni í Washington skal brott-
för ísraelshers hefjast frá byggðum
Palestínumanna. Til þeirra teljast
borgirnar Jenin, Nablus, Tulkar-
em, Kalkylia, Ramalla, og Bethle-
hem auk 450 smærri bæja og
þorpa. Á öðrum byggðum bólum
Palestínumanna sjá palestínsk yfir-
völd um löggæslu en ísraelsher hef-
ur yfirumsjón öryggismála. Loks
hefur Israelsher óbreytt yfirráð
yfir landnemabyggðum gyðinga,
óbyggðum og skilgreindum her-
svæðum.
Þessi skipun skal rikja fram til
þess að niðurstaða verður af þriðja
áfanga friðargerðarinnar, sem
hefst í maí 1966. Þá á að fjalla um
framtíðarstöðu Jerúsalems, rétt
landflótta Palestínumanna til að
snúa heim, framtíð landnema-
byggða gyðinga, öryggisráðstafanir
og ýmis önnur mál.
Forusta Frelsissamtaka Palest-
ínumanna telur það sér einkum tU
tekna gagnvart sínu fólki að nú sé
fastmælum bundið að Palestínu-
menn fái yfirráð yfir níu tíundu
hlutum eigin lands innan tveggja
ára. ísraelsstjórn bendir hins vegar
sínum þegnum á að einungis þrír
tíundu hernumins lands verði látn-
ir af hendi þegar í stað.
Þá skiptir Palestínumenn miklu
að fangar úr þeirra röðum í haldi
ísraelsmanna verða látnir lausir í
áföngum. í fyrsta 1300 manna
hópnum verða allar konur, ungir
karlar og aldnir, sjúkir og þeir sem
eiga skammt eftir að hafa afplánað
dóm. Annar hópur verður látinn
laus þegar kosningar Palestínu-
manna hafa verið boðaðar.
Andstæðingar friðarsamkomu-
lagsins í röðum Palestínumanna
hóta enn sem fyrr að beita öllum
ráðum til að bregða fæti fyrir fram-
kvæmdina. Likud, helsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn í ísrael, hefur
ekki lengur við orð að afsegja sam-
komulagið komist hann til valda
en boðar kröfu um endurskoðun
tiltekinna atriða.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti býður Jasser Arafat velkominn til undirritunarathafnarinn-
ar í Hvíta húsinu á fimmtudag.
Símamynd Reuter
skoðanir annarra
Undir Rabin og Arafat komið
„Þótt allt hafi verið gert til þess að komast að not-
ihæfri málamiðlun um smáatriði, sem varða stjórn,
öryggi og efnahagsmál í samningi þessum (nýjum
friðarsamningi ísraels og PLO), veröur það að miklu
; leyti undir Yitzhak Rabin og Yasser Arafat komið að
sjá til þess að allt gangi upp. Báðir munu þurfa, eins
og áður, að verjast harðlínumönnum í eigin herbúð-
’ um.“
Úr forustugrein New York Times
27. september.
Perot stekkur í sviðsljósið
Í„Við því var ekki að búast að Ross Perot léti Col-
in Powell eftir alla athyglina, leyfði honum að ein-
oka umræðuna um þriðja stjórnmálaflokkinn og
koma fram sem eina von óánægjuaflanna. En erfið-
ast er að þola hvernig Perot bregður sér í allra kvik-
inda líki, hverfur og birtist eftir geðþótta. Hann
svarar sjaldnast beinskeyttum spurningum um
stefnumál sín, heldur svarar út í hött. Hann elur
stöðugt á óánægju og reynir að finna henni farveg
um hreyfingar sem hann bæöi stjórnar og fjármagn-
ar.“
Úr forustugrein Washington Post
28. september.
Dugmiksð fólk frá Hong Kong
„Á sama tima og dyrnar standa opnar fyrir þús-
- undum ólöglegra innflytjenda skeilir ríkisstjórn
hennar hátignar hurðinni á dugmikið fólk frá Hong
Kong. Straumur ólöglegra innflytjenda eykst. Meðan
mál þeirra eru tekin fyrir eru þeir á framfærslu hins
opinbera. Allt öðru máli gegnir um innflytjendur frá
Hong Kong sem óttast um frelsi og líf sitt þegar Kín-
verjar taka við 1997. Þeir eru fremstir í verðmæta-
sköpun og munu auka velferö hér til muna.“
Úr forustugrein Daily Mail 26. september