Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995 Dagur í lífi Steinunnar J. Kristjánsdóttur fornleifafræðings: Hauskúpa komin í hús Steinunn J. Kristjánsdóttir fornleifafræðingur hjá minjasafni Austurlands á Egilsstöðum. Ég var ákveöin í aö taka daginn snemma þótt mikið heföi verið að gera síðustu daga. Rétt eftir klukk- an sjö er fjölskyldan komin á fætur og börnin sest að morgunverðar- borðinu. Morgunstundirnar eru oft þær einu sem við eigum saman í næði; morgunmaturinn eina mál- tíð dagsins sem hægt er að snæða í friði áður en annir dagsins byrja. Þetta reyndist líka verða langur dagur og viðburðaríkur, svo er fornmanninum í Skriðdal fyrir að þakka. Klukkan átta er sonurinn Sigur- hjörtur kominn í skólann og við Helga dóttir mín förum í bíltúr upp í Skriðdal að líta á fornmanninn sem allt snýst um. Kappinn í kuml- inu verður þó að bíða fram eftir deginum því fyrst þarf að sinna ýmsum störfum á minjasafninu. Fyrsta morgunverkið er að huga að innbúi sem safninu hefur borist að gjöf frá afkomendum séra Gutt- orms Pálssonar á Hallormsstað. Það þarf að fara yfir búslóðina og kanna hvernig hægt er að koma henni fyrir í safninu. Stöðugur straumur fjölmiðlamanna Næði til þeirra starfa verður þó ekki mikið því eftir fáar mínútur er hringt frá Dægurmálaútvarp- inu. Vilborg Davíðsdóttir vill ræða um fornmanninn í Skriðdalnum. Það er ekki alltaf mikill friður fyr- ir fjölmiðlunum þessa dagana og þeir hringja margoft á dag. Að vitalinu við Vilborgu loknu er fornmaðurinn enn á 'dagskrá. Nú er að ræða við Halldóru Ásgeir- dóttur, forvörð á Þjóðminjasafn- inu, um frágang á beinunum áður en þau verða send á safnið til rann- sóknar. Og svo að byija að pakka beinunum inn í sýrufrían pappír. Ég rétt náði að byija áður en Anna Ingólfsdóttir, fréttaritari Morgun- blaðsins, hringdi og bað um að fá að koma og sjá. Fyrst er þó fundur um safnið og næstu verkefni þar. Það er mikið starf fram undan við að skipu- leggja það og koma öllum munun- um fyrir. Nú og svo kemur Anna frá Mogganum og ljósmyndari frá vikublaðinu Austra á sama tíma. Og svo koma þeir frá Stöð 2 að mynda og fræðast um það nýjasta úr Skriðdalnum en alltaf liggja beinin sem allt snýst um óhreyfð. Það er komið hádegi og eiginlega hefur ekkert orðið úr verki annað en að tala við fjölmiðlafólk. Við Þórhildur systir mín höfð- um mælt okkur mót í hádeginu og rétt náum að setjast niður til að borða og ræða málin áður en ég verð að fara með Helgu í skólann og að' borga reikningana sem átti að borga í síðustu viku. „Gengið frá" gömlum víkingi Þá loks er tími til að fara aftur upp á safn og „ganga frá“ blessuð- um fornmanninum, hvað sem á nú aö kalla hann. Það þarf að vefja hvert bein inn í pappír og koma þeim í kassa. Og alltaf gerist eitthvað spenn- andi meðan verið að fást við beinin. í moldinni á hauskúpu fornmanns- ins liggur rafperla sem sennilega hefur verið hluti af hálsmeni. Meðan ég er að búa um beinin kemur Sigurður Arnarson, bóndi á bænum þar sem kumlið fannst. Hann hefur verið mjög hjálplegur við uppgröftinn og við ræðum sam- an daglega um það sem upp hefur komið. Loks eru beinin komin í kassa og þá taka við störf við skipulagn- ingu safnsins. Niðurstaðan er að halda fund í næstu viku. Þetta er starf sem tekur allan veturinn. Áhugi fólks á safninu er mikiU og hefur aukist skyndilega. Fornmað- urinn hefur því þegar látið nokkuð gott af sér leiða. Nú kemur bókavörðurinn á bókasafninu með fyrstu bókina sem minjasafnið fær að gjöf. Að sjálfsögðu er það Kuml og haugfé, doktorsritgerð Kristjáns heitins Eldjárns. A eftir þarf að afhenda nokkra gripi sem fara eiga á sýn- ingu um sauðkindina sem klúbbur kvenna á Egilsstöðum stendur að. Langaði að sjá hauskúpuna Sigurhjörtur sonur minn hringdi og hann vill fá að koma þegar skólinn er búinn og sjá haus- kúpuna. Þetta er ekki síður spenn- andi fyrir börnin en þá fullorðnu. Þegar klukkan er að verða sjö er loks tími til að fara heim og láta störfum dagsins lokið. Heima bið- ur að gefa krökkunum að borða og sjá til að þeir læri heima. Eftir það tekur við að gera ís sem búið var að lofa að gera í síð- ustu viku og átti að borða síðasta sunnudag og mitt í ísgerðinni þarf að tala við tölvufræðing sem ætlar að sjá um tölvumál minjasafnsins - og setja í eina þvottavél. ísinn verður borðaður á morgun, viku síðar en ætlað var. Betra að loka húsinu vel Krakkarnir eru orðnir hálf- draughræddir eftir allt umstangið með fornmanninn og það er talið tryggara að loka húsinu vel áður en farið er að sofa. Engu er aö treysta þegar gamlir víkingar eru annars vegar. Og loks þegar klukkan nálgast miðnætti er tími tO að fara í hátt- inn og safna kröftum fyrir næsta dag. Fommaðurinn Ævar Skriðdal eða hvað hann hefur heitið, er ekki farinn enn og næsta verkefni er að „koma honum suður í rannsókn“. Finnur þú fimm breytingar? 328 Nafn:. Heimili: - Vinningshafar fyrir þrjú hundruð tuttugustu og sjöttu getraun reyndust vera: 1. Drífa Sigurðardóttir Skaftahlíð 26 105 Reykjavík 2. Sigríður S. Guðmundsdóttir . Efstasundi 62 104 Reykjavík Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á. myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið- stööinni, Síðumúla 2, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verðlaun heita Líkþrái maðurinn og Athvarf öreigans, úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, aö verðmæti kr. 1.790. Bækumar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni; Finnur þú fimm breytingar? 328 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.