Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
23
I
I
I
>
í
>
>
Reynisdrangar.
DV-mynd Páll
Náttúruperlur í Mýrdal:
Reynisdrangar
Páll Pétursson, DV, Vík:
Þjóðsaga segir að Reynisdrangar
hafi orðið til með þeim hætti að tvö
tröll hafi ætlaö að draga þar þrísiglt
skip aö landi en dagað uppi og orðið
að steini.
Drangarnir, sem eru 66 m háir þar
sem þeir eru hæstir, rísa úr sjó fram
undan Reynisfjalli og sjást vel frá
Vík. Fuglalíf er mikið í Reynisdröng-
um og Reynisfjalli, og má þar nefna
lunda, langvíu, fýl og ritu, og situr
fuglinn oft á hverri syllu í dröngun-
um. Eggjatekja var nokkur fyrr á
öldum og drógu Mýrdælingar sér
björg í bú með þeim hætti en veöur
og sjólag réð þvi að mestu hvort
hægt var að nýta þessi hlunnindi.
Björgunarsveitarmenn frá Vík fara
einu sinni á vori í eggjaleit í Reyn-
isdranga og er þá klifið upp í drang-
ana úr bát sem leggst upp að þeim.
Hjólabátarnir í Vík eru notaðir í
þessum tilgangi en yfir sumarið eru
þeir notaðir til útsýnissiglinga með
ferðamenn að Reynisdröngum og að
Dyrhólaey. Þá er komið að dröngun-
um austanmegin og siglt suður fyrir
og á milh þeirra. Drangarnir hta út
fyrir að vera hthr og lágreistir þegar
horft er á þá frá Vík en þegar siglt er
í kring um þá á hjólabátnum virka
þeir ógnandi og tröllslegir þar sem
þeir standa upp úr þungri undiröldu
Altantshafsins.
Stuðlaberg, sandur
og sjór
Frá Reynisdröngum er siglt í land
sunnan undir Reynisíjalh og þar
blasir við fahegur stuðlabergshellir
er nefnist Hálsanefshellir. Siglinga-
leiðin að dröngunum liggur með
fram Reynisfjalli sem gengur þver-
hnípt í sjó fram vestan Víkur í Mýrd-
al og er 340 metra hátt yfir sjó þar
sem það er hæst. Hamrarnir eru víða
sléttir, líkt og þeir hafi verið skornir
með hnifi (var einhver að tala um
tröh) og víða nær gróður alveg upp
að brún. Oft hefur hrunið úr fjallinu,
síðasta stóra skriðan var fyrir fimm
árum síðan þegar breið klettafylla
losnaði efst í fjallinu og hrundi í sjó
fram. Sú skriða er hundrað metrar á
breidd og sést mjög vel frá sjó.
Reynisdrangar hafa staðið lengi,
og ekki er ólíklegt að Ingólfur Arnar-
son hafi barið þá augum þegar hann
kom til landsins í leit sinni aö skatta-
paradís og líkast til verða þeir uppi-
standandi um langa framtíð, afkom-
endum okkar til augnayndis.
25 paskaliljur
440 kr.
75 tulipanar
890 kr. bl. litir
ERICA
390 kr
Tilvalin á leiði
40 krókusar
490 kr. bl. litir
25 túlipanar
390 kr. ýmsir litir
Opið alla daga
10-22
QarÖshom
v/Jossvogskirkjugarð sími 55 40 500
mm-
MALNING 15-50% GOLFDUKAR 15-50% STOK TEPPI15%
. GÓLFTEPPI15-50% FLÍSAR ÓTIOGINNI15-50%
DYRAMOTTUR OG DREGLAR 15-50%
BLÖNDUNARTÆKI15-50%
HREINLÆTISTÆKI15-50%
QUICK STEP PARKET 15%
ÚTIUÓS/INNIUÓS 15%
METRO
- miðstöð heimilanna
OPIÐ ÖLL KVÖLD OG ALLAR HELGAR
T
Reykjavík
Málarinn Skeifunni 8
581 3500
T
Reykjavík
Hallarmúla 4
553 3331
Reykjavík
Lynghálsi 10
567 5600
Akureyri
Furuvöllum 1
461 2785 461 2780
Akranesi
Stillholt 16
431 1799
Isafirði
Mjallargötu 1
456 4644
>
\
FACMENNSKA I FYRIRRÚMI
KÆRKOMIN NÝJUNCÁ DISKINN ÞINN
FLOKKS
NATTURUAFUKP