Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Síða 29
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
29
Magnús Magnússon segir að best
sé að hleypa gamla klárnum í haga
þegar hann glatar snerpunni.
Vinsældir „Snillinga" dala:
Magnús
Magnússon
hættir
meá
Mastermind
Magnús Magnússon, ísTenski
þáttagerðarmaðurinn hjá BBC, hef-
ur ákveðið að hætta umsjón Master-
mind þáttarins. Magnús lét hafa eft-
ir sér í the Sunday Times að þáttur-
inn krefðist snöggra viðbragða og
óneitanlega yrði maður seinni til
með aldrinum. I tilvikum sem þess-
um væri best að sleppa gamla klárn-
um í haga.
Þátturinn varð vinsælastur undir lok
áttunda áratugarins og dró þá rúm-
lega 22 milijónir áhorfenda að skján-
um.
Magnús hefur verið umsjónarm-
aður Mastermind í 23 ár. Ætlunin er
að gera tvær syrpur til viðbótar og
láta þar með staðar numið eftir ald-
arfjórðung. Hugmyndir voru um að
láta annan taka við umsjón þáttar-
ins þegar Magnús hætti en forráða-
menn BBC eru ekki á þeim buxun-
um enda hafa vinsældir Masterm-
ind dalað verulega.
Hugmyndina að Mastermind átti
Bill Wright, framleiðandi hjá BBC.
Hann ákvað að útfæra yíirheyrslu-
aðferðir nasista, sem hann hafði
upplifað í seinni heimsstyrjöldinni,
í sjónvarpsþátt — spyrjandi og kast-
ljósi beint að fórnarlambi í svörtum
stól. Þátturinn náði gríðarlegum
vinsældum undir lok áttunda ára-
tugarins. Árið 1979 voru 22,6 millj-
ónir áhorfenda að honum. Árið 1984
horfðu að meðaltali 8,7 milljónir á
þáttinn en í ár horfa að jafnaði 4,5
milljónir á þáttinn.
Skiptar skoðanir eru um ástæður
minni vinsælda. Sigurvegarar
seinni ára halda því fram að áður
fyrr hafi þátturinn verið á besta
sýningartíma en nú sé hann orðinn
að eins konar jaðar-sjónvarpsefni.
Aðrir halda því fram að breska þjóð-
in sé orðin fávísari og því sé hug-
myndin gengin sér til húðar.
-PP
Bridgefélag
Barðstrendinga
Félagið hóf starfsemi sina með eins kvölds
upphitunartvímenningi og mættu 25 pör á
fyrsta spilakvöldinu. Spilaður var Mitchell,
meðaískor var 270 stig og hæstu skorina í NS
fengu eftirtalin pör:
1. Ragnar Björnsson - Leifur Jóhannesson 349
2. Halldór Þorvaldsson - Kristinn Kristinsson
321
3. Friðgerður Friðgeirsdóttir - Friðgerður Bene-
diktsdóttir 316
3. Friðjón Margeirsson - Valdimar Sveinsson
316
Og hæsta skorið í AV:
1. Haukur Guðmundsson - Fróði Pálsson 315
2. yiðar Guðmundsson - Pétur Sigurðsson 296
2. Óskar Karlsson - Þórir Leifsson 296
4. Þorleifur Þórarinsson - Þórarinn Árnason
295
Fimm kvölda hausttvímenningur félagsins
sem hefst þann 2. október.
Unglingaæfingar
Fram að áramótum verða eftirfarandi æfing-
ar í boði fyrir spilara sem fæddir eru 1. janúar
1971 og síðar:
3. október 1995 í Þönglabakka 1
17. október 1995 í Þönglabakka 1
27. -29. október 1995 í Ölfusborgum
31. október 1995 í Þönglabakka 1
14. nóvember 1995 í Þönglabakka 1
28. nóvember 1995 í Þönglabakka 1
Þriðjudagsæfingarnar verða opnar öllum
yngri spilurum en valinn verður hópur á helg-
aræfinguna í Ölfusborgum. Þeir sem hafa
áhuga á að vera með vinsamlega hafi samband
við Einar Jónsson, s. 554 5402, (sem verður yfir-
leiðbeinandi) eða Jón Baldursson í s. 557 7223.
Ætlast er til að þeir unglingar sem áhuga
hafa á að vera valdir til spilamennsku í yngri
spilara landsliði íslands í bridge mæti eða láti
vita af sér ef búseta er ekki á Reykjavíkursvæð-
inu. Æfingarnar eru á vegum BSÍ og Alfreðs-
sjóðs.
r
í einmenningi
Skráning stendur nú yfir í íslandsmótið i
einmenningi sem haldið verður í Þönglabakka
helgina 7.-8. október. Spilað verður sama stand-
ard-sagnkerfið sem í notkun hefur verið síðan
einmenningurinn var endurvakinn og verður
kerfið sent heim til þátttakenda. Spilaðar verða
3 lotur og fá 3 efstu í hverjum riðli gullstig fyr-
ir hverja lotu. Keppnisgjald er 2.500 krónur og
skrifstofa BSÍ tekur við skráningu í síma 587
9360.
sunnudasa
cftir hádesi
HAGKAUP
m a t v a r a
HAGKAUP
H3HHE
SiÁnDJA:
VEdES
MIRABELLE
CAFÉ/BRASSERIE
Nýr veitingastaður i Kringlunni
BYG6TOBUIÐ
Þessar verslanir og veitingastaðir í
verða framvegis opnar alla sunnudaga