Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Page 34
42 unglingaspjall
■*
Unglingaspjall:
Sætur strákur í Ijóði
Eitt af áhugamálum mínum
eru ljóð. Þáð eru ekki mjög al-
gengt áhugamál hjá unglingum
á mínum aldri. Sumum finnst
ljóð vera væmin, hallærisleg
eða jafnvel leiðinleg. Mér finnst
þau hins vegar rómantísk og
heillandi. Það eru auðvitað til
unglingar sem hafa þetta sama
áhugamál og ég en þeir eru fáir
sem ég þekki. Sennilega kann
fólk betur að meta ljóð eftir þvi
sem það eldist eða eftir þann
aldur sem allt er halláerislegt.
Ein vinkona mín hefur þó jafn-
gaman af ljóðum og ég. Einnig á
ég frænda, sem er tveimur
árum yngri, sem er sniðugur að
semja ljóð.
Ég samdi og las mikið af ljóð-
um í bamaskóla í svokölluðum
ljóða- og smásögutímum. í
gaggó samdi ég hins vegar ekk-
ert og pældi heldur ekki í því.
Þetta breyttist þegar ég fór í
framhaldsskóla og varð ástfang-
in. Þá settist ég aftur niður og
byrjaði að skrifa.
Ég les allar ljóðabækur sem
ég kemst yfir en þær eru þó aðallega
í skólarium. Sjálf á ég ekki mikið af
slíkum bókum. Mér finnast öll ljóð
skemmtileg en þó sérstaklega um
ástina. Ekki man ég eftir neinum
sérstökum eftirlætishöfundi. Þeir
eru margir sem heilla mig. Mig
langar að halda áfram að skrifa í
framtíðinni, kannski að skrifa litla
ljóða- og smásögubók. Það versta er
að ég verð að vera í sérstöku skapi
til að geta samið eitthvað gott en í
þannig skapi er ég ekki nógu oft.
Ég hef sent ljóð í samkeppni, t.d.
á síðasta ári, en komst því miður
ekki í úrslit. Á fimmtudagskvöldið
flutti ég Ijóð í skólanum á sérstöku
leiklistarkvöldi. Það er ljóð sem ég
ætla að birta hér með og fjallar um
strák sem ég er ástfangin af. Ég hef
skrifað nokkur ljóð um hann. Þessi
strákur er hættur í skólanum núna
þannig að ég er búin að týna hon-
um.
í fjölskyldu minni er ekki mikill
ljóðaáhugi þannig að ég veit ekki
hvemig þessi áhugi minn er tilkom-
inn. Mér þætti hins vegar bæði snið-
ugt og skemmtilegt ef til væri ljóða-
klúbbur unglinga. Þá gætu ungling-
ar rabbað saman um ljóð og flutt
þau á ljóðakvöldum. Ég veit ekki til
þess að neitt þannig sé til. Mann
langar að fá birt eftir sig en veit
ekki hvert maður á að leita til þess.
Auk þess vil ég ekki vera að troða
mér fram þó mig langi í tæki-
færið - og það hef ég fengið
núna.
Annað áhugamál mitt er ljós-
myndun. Ég valdi mér nám á
fjölmiðlabraut Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti vegna þess og
þar er ég nú á þriðja ári. Mig
langar í framtíðinni að vera
innan um mannlífið, lýsa því í
myndum og á ljóðrænan hátt.
Hér á eftir fer ljóðið mitt,
Yamaha YT 260, en það er um
strákinn sem á var minnst hér
að ofan. Ljóðið skíri ég í höfuð-
ið á mótorhjóli hans og senni-
lega veit hann um hvern er ort
ef hann les það.
Yamaha YT 260
Vindurinn þýtur um
vangann
og umleikur þig og mig.
hraði, sumarið og ástin,
við erum eitt.
En allt í einu, gatan lokuð
skrans, öskur, fall
ég fell, ástin hvarf
Dauði...
En þú varst
og verður aldrei minn,
hvorki þú eða vindurinn,
ég var á valdi drauma.
En kannski að það leynist í þér
vinur
og vindurinn verði þinn og
minn
hraði, sumarið og vinir,
hver veit,
kannski, kannski.
íris Dögg Helgadóttir
nemi í Fjölbraut í Breiðholti
in hliðin
Ungfrú Island er algjör gyðja
- segir Arnar Gunnlaugsson, markakóngur íslandsmótsins
Daníel Ólafsson, DV, Akranesi:
Arnar Gunnlaugsson knatt-
spyrnumaður sýnir á sér hina
hliðina að þessu sinni. Arnar varð
íslandsmeistari með Skagamönn-
um um síðustu helgi auk þess sem
hann tryggði sér markakóngstitil-
inn í íslandsmótinu í knattspyrnu,
skoraði 15 mörk í sjö leikjum. Ef
hann hefði spilað alla leiki Skaga-
manna hefðu mörkin getað orðið
38. Áður en Amar kom tii Akra-
ness hafði hann leikið með Feyen-
oord og Numberg. Nú er stefnan
hjá Arnari og Bjarka bróður hans
tekin á að komast að hjá erlendu
liði og nokkur lið munu vera að
fylgjast með þeim bræðrum. Amar
segist heldst vilja spila í Englandi
ef hann fengi tilboð þaðan.
Fullt nafn: Arnar Bergmann
Gunnlaugsson.
Fæðingardagur og ár: 6. mars
1973.
Arnar
Gunn-
laugsson
marka-
kóngur.
raN£5-
Kærasta: Já, og hún er algjör
gyðja.
Börn: Nei, ég á engin böm.
Bifreið: Ég á ekki bifreið sem
stendur og verð því að skokka eða
fá far hjá öðram.
Starf: Starf mitt er knattspymu-
maður og vonast ég til að komast í
fast starf sem slíkur á erlendri
gmnd á hausti komanda.
Latrn: Þau eru ekki gefin upp.
Áhugamál: Ég hef mjög gaman
af tónlist og má segja að ég sé
alæta á hana. Þá eru góðar kvik-
myndir einnig í uppáhaldi hjá
mér.
Hefur þú unnið 1 happdrætti
eða lottói? Nei, ég hef ekki haft
heppnina með mér ennþá.
Hvað frnnst þér skemmtileg-
ast að gera? Að sjá knöttinn
syngja í netmöskvunum finnst
mér ákaflega skemmtilegt.
Hvað flnnst þér leiðinlegast
að gera? Því er fljótsvarað - að
þurfa að taka til.
Uppáhaldsmatur: Humar með
sósunni hans Alla.
Uppáhaldsdrykkur: Kók og
Bailys.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Bjarki Gunn-
laugsson tvíburabróðir minn er í
miklu uppáhaldi.
Uppáhaldstimarit: Vanity Fair
og Interview.
Hver er fallegasta konan sem þú
hefur hitt? Mér finnst þessi sem
kjörin var ungfrú ísland algjör
gyðja.
Ertu hlynntur eða andvfgur
ríkisstjórninni? Frekar hlynntur.
Hvaða persónu langar þig
mest að hitta? David Bowie og
spyrja hvort þetta sé satt með
Mick Jagger.
Uppáhaldsleikari: Daniel Day
Lewis.
Uppáhaldsleikkona: Isabella
Adjani.
Uppáhaldssöngvari: Bubbi
Morthens er alltaf góður.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Davíð Oddsson.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Vinirnir Tommi og Jenni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Eins
og gefur að skilja snýst líf mitt um
fótbolta og þess vegna hlýtur hann
að vera uppáhaldssjónvarpsefni
mitt.
Uppáhaldsveitingahús: Skóla-
brú er finn staður.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Ævisögu Mick Jagger til að
komasf að því hvox-t þetta sé satt
með David Bowie.
Hver útvarpsrásanna finnst
þér best? FM 95,7.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Vin-
ur minn Rósant Birgisson, hinn
röggsami íþróttafréttamaður Bylgj-
unnar á Akranesi.
Hvort horfir þú meira á Stöð 2
eða Sjónvarpið? Stöð 2 hefur
vinninginn.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Ég get ekki gert upp á milli Rósa
og Stefáns Jón Hafsteins.
Uppáhaldsskemmtistaöur:
Astró.
Uppáhaldsfélag í fþróttum:
Það er að sjálfsögðu ÍA.
Stefnir þú að einhveiju sér-
stöku í framtíðinni: Ég á mér
leyndan draum. Þar sem áhugi
minn á kvikmyndum er mikill
gæti ég alveg hugsað mér að gera
eins og eina kvikmynd en við lát-
um þetta ekki fara lengra.
Hvað gerðir þú f sumarfrfinu?
Sumarfríið var fótbolti. Ég tók
bara þátt í þessu venjulega hjá
Skagamönnum að tryggja íslands-
meistaratitilinn i fótbolta og vera
markakóngur i leiðinni.
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995 DV
Jonathan Taylor Thomas:
Heitasta unglingastjarnan
Ein heitasta unglingastjarna
Bandaríkjanna um þessar mundir
er Jonathan Taylor Thomas sem
leikur Randy Taylor í sjónvarps-
þáttunum Home Improvement eða
Handlaginn heimilisfaðir eins og
þeir nefiiast á Stöð 2.
Jonathan fæddist í Betlehem í
Pennsylvaníu í Bandaríkjunum en
flutti til Sacramento í Kalifomíu
ásamt íjölskyldu sinni fyrir sjö
áram. Jonathan hóf feril sinn sem
fyrirsæta í auglýsingum fyrir
Burger Kings, Canon, Kellogg’s
komfleks og marga aðra.
Jonathan var valinn sem rödd
fyrir Simba, litla ljónið, í Walt Dis-
ney kvikmyndinni, The Lion King. í
framhaldi af því fékk hann hlutverk
í kvikmyndinni The Man of the Ho-
use sem Farrah Fawcett og Chevy
Chase léku aðalhlutverkin í.
Fyrsta hlutverk i sjónvarpi var í
þáttunum The Brady’s þar sem
hann lék son Gregs Bradys. Þá hef-
ur hann leikið í heimildarmyndum
og á leiksviði í heimabæ sínum.
Mikill veiðimaður
Jonathan er þrettán ára gamall
og helstu áhugamál hans eru fisk-
veiðar, fótbolti, körfubolti og skíðaí-
þróttin.
Jonathan hefur nýlokið leik í
tveimur nýjum Disneymyndum,
Tom Sawyer og Gosa, sem beðið er
eftir með eftirvæntingu.
Jonathan segist vera venjulegur
unglingur þó hann hafi leikið svona
mikið í sjónvarpi og kvikmyndum.
„Ég held að fólki finnist ég ósköp
venjulegur,” segir hann. „Ég geri
sömu hluti og allir aðrir krakkar,
stunda íþróttir, horfi á sjónvarpið
og kjafta í símann. Ég er mikill
veiöimaður, held ég, að minnsta
kosti reyni ég að vera það. Ég á
næga þolinmæði eins og veiðimenn
þurfa að hafa. Ég fór til Alaska og
veiddi þar 60 punda lúðu. Það var
Jonathan Taylor Thomas í kvik-
myndinni Man of the House.
Með meðleikurum sínum, Farrah
Fawcett og Chevy Chase.
svolitið kalt þar en maður gleymdi
því í spenningnum."
Jonathan segir að honum komi
vel saman við móður sína sem sér
um öll viðskipti fyrir hann. „Hún
passar upp á að ég sé eins og aðrir
krakkar. Það þýðir t.d. ekkert fyrir
mig að reyna að sleppa við heima-
námið, hxin fylgist vel með þvi. En
ég hef fengið góðar einkunnir svo
hún þarf ekkert að vera með þessar
áhyggjur."
Góðir vinir
Það era næg verkefni hjá Jonath-
an þar sem hann leikur af fullum
krafti í myndinni Handlaginn heim-
ilisfaðir, auk þess sem hann lánar
rödd sína í teiknimynd sem nefnist
Itsy Bitsy Spider.
Éins og þeir þekkja sem horft
hafa á þættina Handlaginn heimilis-
faðir er alltaf mikið að gerast hjá
fjölskyldunni og sumum finnst hún
láta fremur fiflalega. Jonathan segir
að leikurunum í þáttunum komi vel
saman og strákarnir leiki sér oft á
milli upptaka. „Ég fer líka oft í bún-
ingsherbergið og hringi í vini
mína,“ segir hann. Jonathan segist
ekki finna fyrir öfund í sirm garð
vegna velgengninnar frá öðrum
krökkum. „Góðir vinir standa með
manni.“
Jonathan segist elska að fá bréf
frá aðdáendum. Oft er hann spurður
um hvernig hægt sé að gerast
stjama og stelpur láta í ljós hversu
sætur hann sé.
Þeir sem vilja skrifa Jonathan
geta skrifað til:
Jonathan Taylor Thomas
c/o Home Improvement,
Touchstone Television,
500 South Buena Vista Street,
Burbank, CA 91521 USA