Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Qupperneq 36
« fréttir
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995 JL>V
Vangaveltur um nafn og heimilisfan^fornmannsins í Skriðdal:
Vísbendingar ur Landnámu
benda á Ævarr inn gamla
- sumir telja þó örnefni og hæð kumlbúans vísa til Þóris háva
$ "W, 'W’ W* 0
>'A'
Ferðalangurinn hvílir nú lúin bein í plastkörfu á Þjóðminjasafninu um sinn að minnsta kosti.
Hávaxinn á sextugsaldri
Sigurður Sigurjónsson röntgen
og almennt notuð allt fram á fyrri
hluta 10. aldar, og tvö innflutt sverð-
ið sér bústað við Þórisá og borið
bein sín þar.
DV-mynd S
„Ég sé ekki annan líklegri en
Ævar Þorgeirsson. Tímasetningin
Mikið hefur verið rætt og ritað
um jarðneskar leifar fornmannsins
sem fannst ríkulega heygður í
kumli í Skriðdal á Héraði. Ekki síst
hafa menn reynt að geta sér til um
nafn hans og hefur nafn Ævars
gamla Þorgeirssonar, landnáms-
manns í Skriðdal, oftast borið á nú-
tíma góma. Nafni Brynjólfs bróður
hans hefur þó verið haldið á lofti,
sömu sögu er að segja af nafni Þóris
háa, Hrafnkels Hrafnssonar og síð-
ast en ekki síst Graut-Atla.
heldr, er sannra reynist
Ef gluggað er i Landnámabók
kemur í ljós að nefndur „Ævarr inn
gamli“ Þorgeirsson er sagður hafa
komið að landi í Reyðarfirði. Bróðir
hans „Brynjólfr inn gamli“, en nafn
hans hefur einnig verið spyrnt við
fornmanninn, hafði áður numið
„Fljótsdal alian ofan Hengiforsá fyr-
ir vestan, en fyrir ofan Gilsá fyrir
austan, Skriðudal allan, ok svá Völl-
una út til Eyvindarár" Brynjólfur
gaf bróður sínum Skriðudal allan
fyrir ofan Gilsá og bjó Ævar á Am-
aldsstöðum.
Fréttaljós
á laugardegi
Þess ber að geta að heimildargildi
Landnámu hefur verið dregið í efa
þótt Ari fróði Þorgilsson hafi skrif-
að: „En hvatki er missagt er í fræð-
um þessum, þá er skylt at hafa þat
heldr, er sannara reynist." í formála
sem Guðni Jónsson ritar að íslend-
ingasögum, en þar er Landnámabók
að finna, segir hann til dæmis að
ekki megi taka hana of bókstaflega.
Hún sé byggð á arfsögnum sem
söguritarinn og hans viðmælendur
heyrðu mann fram af manni í
nokkra ættliði.
Ríkulega búinn
Margir munir fundust með bein-
um fornmannsins. Má þar nefna
hringnál, keltneska að uppruna.
Hringnálar, eins og sú sem fannst,
voru þó tengdar verslunarvöru og
hafa fundist víðar á Norðurlöndum
og segir Steinunn Kristjánsdóttir,
fornleifafræðingur og umsjónar-
maður uppgraftarins í Skriðdal, nál-
ina ekki þurfa að segja tU um upp-
runa mannsins. Þá fannst brons-
sylgja í Borrestíl, norsk að uppruna
bryni, um 40 sentimetra löng. Tví-
eggja, 90 sentimetra langt sverð
fannst við hlið mannsins en á
röntgenmyndum kom fram að
sverðið var líklega silfurslegið. Þá
fannst skjaldarbóla, rafþerla, öxi,
hringur, glerhallur steinn og tvö
spjót. Loks fannst grýta. Nokkrar
grýtur hafa fundist við fornleifaupp-
grefti hér á landi en enginn þó jafnt
stór og heil eins og þessi. Um er að
ræða svokallaða klébergsgrýtu sem
flutt hefur verið inn frá Noregi og
voru þær mikið í notkun á 9. öld og
þeirri 10. Ásamt beinagrind manns-
ins fundust beinagrindur hunds og
hests sem heygðir hafa verið með
honum. Þær eru nú til rannsóknar.
læknir, sem skoðað hefur beinin,
telur að höfðinginn, sem hér um
ræðir, hafi verið á sextugsaldri þeg-
ar hann lést. Hann segir einnig að
hesturinn, sem fannst í kumlinu
með manninum, hafi verið ungur
þegar hann var sleginn af. Steinunn
telur haugbúann hafa verið um 180
sentímetra á hæð en meðalhæð
landsmanna á þessum tíma var um
170 sentimetrar. Allur umbúnaður
mannsins og aldursgreining mun-
anna, gerð út frá útliti þeirra, gefa
til kynna að um sé að ræða höfð-
ingja sem heygður var snemma á 10.
öld, á landnámsöld.
Hvað heitir maðurinn?
Sú staðreynd að maðurinn var
búinn á fund guðanna í Valhöll með
norska grýtu sér við hlið hefur feng-
iö ýmsa til að álykta sem svo að hér
sé á ferð líkamsleifar Graut-Atla,
sem nam eystri strönd Lagarfljóts
og bjó i Atlavík, en rétt um tveir
kUómetrar skUja að landnám Graut-
Atia og kumlsins þar sem fommað-
urinn fannst.
í ljósi norsku grýtunnar hafa
norskir fiölmiðlar reynt að gera
haugbúann að norskum ævintýra-
manni en einnig hafa þeir vísað tU
hæðar hans.
Hæð mannsins hefur orðið tilefni
annarra vangaveltna. Landnáms-
maður í Vöðlavík hét „Þórir inn
hávi“. í ljósi viðurnefnis Þóris og
hæðar fornmannsins hafa menn
leitt getum að því að hann gæti ver-
ið hér á ferð en einnig því að kum-
lið var staþsett ekki langt frá Þórisá.
Þótt Þórir sé skráður til heimUis í
Vöðlavík eða Krossavík í Landnámu
hafa menn leitt getum að því að
har.n hafi verið á faraldsfæti og tek-
Nafn Hrafnkels Hrafnssonar hef-
ur líklega verið nefnt tU sögunnar af
því að hann áði eitt sinn í Skriðdal
og sofnaði þar. Skriða féll úr fiaUi
sem HrafnkeU svaf undir en hann
komst undan eftir að hafa vaknað
við undarlegar draumfarir en „gölt-
ur og griðungur" sem hann átti
urðu undir skriðunni. Hrafnkell
nam hins vegar land í Hrafnkelsdal
og bjó að Steinröðarstöðum.
Aðrar getgátur, sem líklega eru
byggðar á Landnámabók, en eru þó
öUu ólíklegri, eru að fornmaðurinn
sé einn sona Ævars hins gamla en
hann átti þá tvo. Brynjólfur bróðir
hans átti hins vegar tíu böm af
fyrra hjónabandi en tók að sér þrjú
til viðbótar er hann fékk Helgu er
átt hafði Herjólfur og hefur heyrst
fleygt að fornmaðurinn sé einn sona
hans.
Frekari rannsóknir, sem eiga eft-
ir að fara fram á kumlinu, gætu
varpað ljósi á hver þar sé á ferð en
eins og einn viðmælandi DV orðaði
það eiga aUar getgátur jafiian rétt á
sér í dag þótt flestir séu á því máli
að Kér sé á ferðinni seinustu um-
merki Ævars gamla enda er haugur-
inn þannig staðsettur að vel sést
yfir landnám Ævars frá honum.
Hafa ber þó í heiðri orð Ara fróða að
komi annað í ljós, þá her að hafa
það sem sannara reynist.
Vangaveltur samtímamanna
„Persónulega giska ég á að mað-
urinn hafi verið frá Noregi. Grýtur
brotna mjög auðveldlega og ég tel
menn ekki hafa verið aö þvælast
með þetta á miUi landa. Það er hægt
að tegundagreina dýrabeinin og þá
kemur þetta betur í ljós,“ segir
Steinunn.
passar við hann. Þetta þarf ekki að
vera Graut-Atli þótt þarna hafi ver-
ið grýta. Það þurftu fleiri grýtur en
hann. Ég legg trúnað á Landnáma-
bók þótt einhverjir landnámsmenn
hafi líklega verið búnir tti eftir ör-
nefnum, en flestir eru raunveruleg-
ir,“ segir Jónas Kristjánsson, fyrr-
um forstöðumaður Stofnunar Árna
Magnússonar.
Helgi Hallgrímsson, fyrrum sögu-
kennari í Menntaskólanum á Akur-
eyri og Austfirðingur, hefur látið
sér detta í hug að þarna sé líklega
heygður Þórir hávi. Byggir hann
það á Þórisár-nafninu. „Mér finnast
vissar líkur á því að þetta sé Þórir,
ef sá maður hefur einhvern tíma
verið til á annað borð og menn
leggja trúnað á Landnámu," segir
Helgi.
„Menn telja helst að þetta hafi
verið Ævar hin gamli og mér finnst
það líklegt. Hann bjó þarna í Skrið-
dal og sjálfsagt hafa þessir menn
haft mikið um sig fyrst þeirra var
getið í sögum og á þeim forsendum
finnst mér ekki ólíklegt að þetta sé
Ævar,“ segir Hákon Aðalsteinsson í
Bekkugerðishúsum.
„Fundurinn er einn hinn
merkasti í seinni tíð. Hann hefur'
mikla þýðingu fyrir fornleifafræði á
íslandi. Hann gefur miklar upplýs-
ingar um grafsiði í heiðni. Það hafa
mörg kuml verið grafin upp á ís-
landi en fá í seinni tíð eftir að forn-
leifafræðingar fóru að taka sýni eins
og í dag og gera vettvangsteikning-
ar,“ segir Steinunn Kristjánsdóttir.
Heimild: Haraldur Matthíasson:
Landið og Landnáma, Rvík 1982, kort
af Austfjörðum nyrðri og Austfjörð-
um syðri sem finna má í lok bókar-
innar.