Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Page 39
47
\T LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
Áhugi á Kína fer vaxandi meðal íslendinga:
Þau vilja kenna Islendingum kínversku
„Samskipti Kína og Islands hafa
aukist mikið seinustu misseri. Dav-
íð forsætisráðherra var nýlega í
Kína, sömu sögu er að segja um Vig-
dísi forseta og borgarstjórinn er
núna í Kína. Þá hafa kínverskir
ráðamenn verið að koma til lands-
ins. Það er ekki bara á stjórnmála-
sviðinu sem samskiptin milli Kina
og íslands hafa aukist heldur hafa
viðskiptaleg tengsl aukist. íslenskir
athafnamenn eru farnir að flytja
vörur til landsins frá Kína og þjón-
ustu og þekkingu til Kína. Loks hafa
námsmenn sýnt því áhuga að læra í
Kína,“ segir dr. Baohua Yang, kín-
verskur doktor í örrafeindafræði og
starfsmaður raunvísindadeildar Há-
skóla íslands.
Eiginkona dr. Yangs, Fenglan
Zou, er einnig búsett hér á landi.
Hún er lærður bókmenntafræðingur
og kennari og starfaði sem kennslu-
kona í Kína á annan áratug og
kenndi þar kínversku og bókmennt-
ir. Nú starfar hún hér við fram-
reiðslustörf en langar að nýta sér
þekkingu sína og miðla af henni til
íslendinga sem hafa áhuga á að
kynnast kínversku. Þau segjast hafa
orðið þess áskynja að áhugi á kín-
versku hér á landi hafi aukist í kjöl-
far vaxandi samskipta ríkjanna,
einnig hafi kínversk menning og
bókmenntir skipað stærri sess hér á
landi undanfariö. Þetta má meðal
annars sjá á því að nú er í fyrsta
skipti boðið upp á kínversku-
kennslu við Háskóla íslands og hafa
á þriðja tug manna skráð sig til
námsins. Það nám er þó allsendis
óskylt því námi sem dr. Yang og
kona hans, Zou, hyggjast bjóða upp
á.
„Við höfum áhuga á að kenna ís-
lendingum kínversku. Þetta myndi
verða ódýrt, til dæmis munum við
innheimta lágmarkskennslugjald í
fyrstu á meðan fólk er að kynnast
þessu. Ef einhverjir hyggjast hins
vegar fyrir alvöru læra kínversku
þá mun það kosta eitthvað. Tilgang-
urinn með þessu er að fá eitthvað
fyrir eiginkonu mína að gera. Hún
vinnur nú fulla vinnu en langar að
vinna á því sviði sem hún er mennt-
uð á. Ef aðsóknin að námskeiðinu
Dr. Baohua Yang og Fengian Zou. Zou býðst nú til að kenna íslendingum kínversku. DV-mynd GVA
Þrefaldur 1. vinningur!
Nú er að
nota
tcekifœrið!
-vertu viðbúiniw vinningi
Fáðu þér iniða fyrir kl. 20.20 í kvöld.
verður mikil ætlar hún að reyna að
minnka við sig þá vinnu sem hún er
í,“ segir dr. Yang.
Hjónin búa við ÁsvaUagötu og
hyggjast nýta eigin húsnæði til
kennslunnar ef aðsókn hamlar því
ekki. Ef viðtökur verða góðar hyggj-
ast þau þó leita eftir aðstöðu í ein-
hverjum af skólum borgarinnar.
Zou hefur tekið saman kennslubæk-
ur og hljóðsnældur og mun áhuga-
sömum verða kennt tungumálið en
ritun og lestur málsins látin bíða
fyrst um sinn. Sækist hins vegar
einhverjir lengra komnir eftir
kennslu er Zou einnig reiðubúin að
veita þeim leiðsögn. Dr. Yang mun
líka, þegar hans eigin vinna leyfir,
aðstoða við kennsluna.
Dr. Yang segir að i raun eigi ís-
lendingar að eiga auðveldara með
að læra kínversku en ensku. Beyg-
ingar eru til dæmis á margan hátt
mun auðveldari en í ensku og málið
sem þau hyggjast kenna er eins kon-
ar opinber kínverska.
-PP
Áhugaverðir
fyrirlestrar
íApple-básnum
á sýningunni Tækni og tölvur inn í nýja öld,
Laugardalshöll 29. sept. -1. okt.
Laugardagur
10:30 • Macintosh ð heimilinu og internet • Sigurður Másson • Apple-umboðið
11:00 • Hansa - bðkhaldskerfi • Guðmundur Kr. Hallgrímsson • Apple-umboðið
11:30 • CyberHome • Björn Gustavsson • Apple Computer, Parfs
12:15 • ISDN-upplýsingahraðbrautin • Gunnar Guðmundsson* Póstur og sími
13:00• Apple - The Platform • Bo Olofsson • Apple Computer, Stokkhólmi
13:45 • Myndvinnsla í Photoshop • Gunnar Kr. Sigurjónsson • Apple-umboðið
14:15 • Hansa - bókhaldskerfi • Guðmundur Kr. Hallgrímsson • Apple-umboðið
14:45 • CyberHome • Björn Gustavsson • Apple Computer, París
15:30 • Apple - The Platform • Bo Olotsson • Apple Computer, Stokkhólmi
16:15 • Macintosh á heimilinu og Internet • Sigurður Másson • Apple-umboðið
16:45 • Hljóðvinnsla í Maclntosh • Baldur J. Baldursson • Oz -hljóð
17:15 • Photoshop - myndvinnsla • Gunnar Kr. Sigurjónsson • Apple-umboðið
Sunnudagur
10:30 • Macintosh á heimllinu og Internet • Sigurður Másson • Apple-umboðið
11:00* Hljóðvinnsla í Macintosh • Baldur J. Baldursson • Oz -hljóð
11:30» Myndabanki • Einar Erlendsson • Stafræna myndasafnið
12:00 • Macintosh í blönduðu umhverfi • Valdimar Óskarsson • Apple-umboðið
12:30 • Vinnsla á kvikmyndum • Stefán Árni Þorgeirsson • Kjól og Anderson
13:00 • Hansa - bókhaldskerfi • Guðmundur Kr. Hallgrímsson • Apple-umboðið
13:30 • Myndvinnsla í Photoshop • Gunnar Kr. Sigurjónsson • Apple-umboðið
14:00 • MacSea - til lands og sjávar • Þorsteinn Björnsson • Radiomiðun
14:30 • ArchlCAD, draumaforrit hönnuða • Márton Szövényi-Lux • Graphisoft
15:15 • ISDN - upplýsingahraðbrautin • Gunnar Guðmundsson • Póstur og sími
15:45 • Macintosh á heimilinu og Internet • Sigurður Másson • Apple-umboðið
16:15 • Hansa - bókhaldskerfi • Guðmundur Kr. Hallgrímsson • Apple-umboðið
16:45 • Myndvlnnsla í Photoshop • Gunnar Kr. Sigurjónsson • Apple-umboðið
17:15 • Hljððvinnsla í Macintosh • Baldur J. Baldursson • Oz -hljóð
•.Apple-umboðið
Apple-umboðið • Skipbolti 21 • simi 511 5111 • Heimasíðan: bttp:l/www. apple. is
/i\