Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Page 40
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
4. draumalið DV
.4
Sigurvegarinn í draumaliðsleik DV:
„Mörkin hjá
Tanasic gerðu
útslagið"
Njáll Trausti Friðbertsson, 25 ára
gamall Akureyringur, stóð uppi sem
sigurvegari i draumaliðsleik DV
1995. Lið hans, NTF, fékk 157 stig
alls, þremur stigum meira en næsta
lið, eftir æsispennandi baráttu í
lokaumferðum 1. deildarinnar í
knattspyrnu.
„Ég komst á blað strax í 1. um-
ferðinni en svo gekk þetta rólega
lengi vel. í 14. umferð komst ég aft-
ur á lista yfir þá efstu og spennan
var mikil eftir það. Ég fylgdist meö
síðustu umferðinni í sjónvarþinu og
gerði mér vonir um að sigra en hélt
að þetta væri búið hjá mér þegar
Steingrímur Jóhannesson skoraði
■ fyrir ÍBV gegn ÍA þar sem ég var
með þrjá Skagamenn í öftustu línu.
En^svo skoraði Marko Tanasic tvö
mörk fyrir Keflavík, þá sá ég að
möguleikinn var fyrir hendi og þeg-
ar ég sá að hann var valinn maður
leiksins í DV var sigurinn hjá mér í
höfn,“ sagði Njáll Trausti í spjalli
við DV eftir áð hafa tekið við aðal-
verðlaununum, ferð fyrir tvo á leik
í Bretlandi eða annars staðar með
Samvinnuferðum/Landsýn, auk 15
þúsund króna úttektar hjá Útilifi í
Glæsibæ.
Fylgdist betur md ís-
lanasmotinu en aour
„Ég tek yfirleitt ekki þátt í nein-
um getraunum en þegar ég sá kynn-
ingu á draumaliðsleiknum í DV
ákvað ég að vera með. Það var
skemmtilegt að taka þátt í þessu og
þetta leiddi til þess að ég fylgdist
betur með íslandsmótinu í knatt-
spymu en áður og varð að fylgjast
með fleirum en mínum mönnum í
KR,“ sagði Njáll Trausti. Njáll er
KR-ingur þó hann sé búsettur á Ak-
ureyri og lék í yngri flokkunum við
hlið Heimis Guðjónssonar, Rúnars
Kristinssonar, Þormóðs Egilssonar
og Hilmars Björnssonar, sem síðan
hafa gert það gott með vesturbæjar-
liðinu og víðar. „Hér á Akureyri
geri ég ekki upp á milli félaganna en
ber hag þeirra beggja fyrir brjósti,"
sagði sigurvegarinn.
Draumalíð meistarans: NTF
lífílHlii
Da&l Dervlc
KR 9
ívar BJarkllnd
ÍBV 6
Páll Gu&mundsson
Leiftrl 15
Kristján Finnbogason KR • 4
Þóröur Þóröarson ÍA • 7
ífttSÍt
msm...
Milan Jankovlc
Grlndavlk 5
Ólafur Adolfsson Slgurstelnn Gislason
IA 4 ÍA-3
Alexander Högnason
ÍA-5
Olafur Þóröarson
ÍA 23
Gunnar Oddsson
Lelftri 16
Marko Tanaslc
Keflavík 31
Félagaskipti:
Þórður fyrir Kristján 3/7
Ólafur fyrir Alexander 3/7 I .
Páll fyrir ívar 13/7
Tryggvl Guðmundsson
ÍBV 36
Guömundur Benedlktsson
KR 31
Draumaliðsmeistarinn Njáll Trausti Friðbertsson ásamt unnustu sinni, Guðrúnu Gyðu Hauksdóttur. Þau hafa ekki
ákveðið hvernig þau nýta ferðavinninginn en ætla að skoða vel alla möguleika á næstunni. DV-mynd gk
Þjálfari septembermánaðar:
Bjarni Heiðar
skákaði öllum
Bjarni Heiðar Halldórsson, 9 ára
gamall Reykvíkingur, varð „þjálf-
ari septembermánaðar“ í drauma-
liðsleik DV. Lið Bjarna Heiðars,
BÁHS III, fékk 66 stig í september,
þremur stigum meira en næsta lið,
Fótboltafélagið Kári.
Bjami Heiðar var ekki bara í
keppni við hina 1.399. þátttakend-
urna í leiknum heldur fór fram
keppni milli fjölskyldumeðlim-
anna, fjögurra talsins. Þar skák-
uðu synirnir foreldrunum því
Bjarni Heiðar var hæstur af þeim
í heildarkeppninni með 107 stig,
Svanberg bróðir hans, 12 ára, kom
næstur með 87 stig, móðirin, Ása
Bjarnadóttir, fékk 83 stig og faðir-
inn, Halldór Svanbergsson, rak
lestina með aðeins 43 stig.
Fjölskyldan bjó áður á Ólafsfirði
og Bjarni Heiðar sagðist halda
með Leiftri og síðan með Skaga-
mönnum. „Annars hef ég æft fót-
bolta með Fram og handbolta með
Val,“ sagði vinningshafinn sem nú
getur verslað fyrir 15 þúsund krón-
ur hjá sportvöruversluninni
Spörtu, eins og aðrir vinningshaf-
ar í mánaðarleikjunum í sumar.
Halldór Svanbergsson segir að
spennan á heimilinu hafi verið
mikil og búsetan á Ólafsfirði og
stuðningurinn við Leiftur hafi ráð-
ið miklu um liðsval fjölskyldunnar
til að byrja með. „Það má segja að
við höfum flaskað á því í byrjun að
vera með of marga Ólafsfirðinga í
vörninni en þeim var síðan skipt
út enda dýrmætast að vera með
varnarmenn sem fá minnst af
mörkum á sig. Nú er maður búinn
að átta sig betur á leiknum og for-
sendum hans og kemur tvíefldur
til þátttöku í honum næsta vor,“
sagði Halldór í spjalli við DV.