Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Page 44
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
52 sviðsljós
William Baldwin og Chynna
Phillips pússuð saman
- hann sá hana fyrst í flugvál fyrir fjórum árum
Það var ekki fátt stórstjarnanna í brúð-
kaupi nokkru sem fór fram í kirkju heilagrar
Maríu og Jóseps í Southampton í New
York ríki í Bandaríkjunum á dögunum. Þá
voru gefin saman leikarinn William Baldwin
og söngkonan Chynna Philips. Til veislunn-
ar mættu að sjálfsögðu allir Baldwin bræð-
urnir, Alec, Daniel og Stephen, og eigin-
kona þess fyrstnefnda, Kim Basinger,
gengin vel á áttunda mánuðinn.
Chynna Philips er dóttir hjónanna Johns
og Michelle Phillips, stofnenda hljómsveit-
arinnar Mamas and Papas. Chynna fetaði
einmitt í fótspor foreldra sinna fyrir
nokkrum árum og gerði það gott á sviðinu
með dætrum Bryans Wilsons úr the Beach
Boys í hljómsveitinní The Wilson Phillips.
Brúðarkjóll Chynnu var sérhannaður á
hana af Veru Wang, sem var meðal 300
gesta í veislu brúðhjónanna. Vera þessi
Wang lét hafa eftir sér að dagurinn hefði
verið einstaklega rómantískur en allir gest-
irnir fengu geisladisk afhentan með uppá-
halds ástarljóðum hjónanna. Meðal söngva
á diskinum var lag sem Chynna hafði
samið sérstaklega fyrir eiginmann sinn og
ber þann frumlega titil „I Live for You".
Til veislunnar mættu einnig starfssystur
Chynnu úr the Wilson Pillips, Wendy og
Carnei Wilson, en Camei varð einmitt vitni
að fyrsta fundi Chynnu og Williams um
borð r flugvél árið 1991. „Hún gekk fram hjá
honum og við sáum
Billy teygja höfuðið
fram á ganginn til að
horfa á eftir henni,"
lét Camei hafa eftir
sér í viðtali við
People.
Brúðhjónin kveiktu á kerti til að sýna fram á sameiningu sálna sinna.
Eftir að Kim Basinger og Aiec Baldwin mættu til veislunnar gáfu brúðhjónin sér tíma til að stilla sér upp til mynda-
töku meö bræðrum Williams.
Teri Hatcher úr Lois og Clark:
Vergjörn á hvíta tjaldinu
Hin íturvaxna Teri Hatcher.
Teri Hatcher, sem margir
þekkja úr þáttunum Lois
og Clark, sem sýndir eru á
Stöð 2, leikur stórt hlut-
verk í erótískum trylli,
Heaven’s Prisoners, sem
frumsýndur verður eftir
mánaðamótin. í myndinni
sést Teri standa á svölum,
súpandi af Martini- glasi,
og auðvitað er stúlkan
fataiaus í senunni.
Almannarómur sagði
að rætt hefði verið um að
klippa atriðið úr mynd-
inni en Teri barðist fyrir
því að atriðinu yrði haldið
inni.
„Ég sagði við leikstjór-
ann, Phil Joanou, að
pabbi myndi drepa mig
fyrir að berjast fyrir að
halda nektarsenunni inni
í myndinni en mér fyndist
hins vegar atriðið vera
svo lýsandi fyrir þessa
vergjömu persónu sem ég
leik að það væri synd að
klippa það út. Vonandi
tek ég mig vel út í því. Það
eina sem er verra en að
koma nakin fram í bíó-
mynd er að koma nakin
fram og líta illa út,“ sagði
Teri.
Ölyginn
sagði...
. . . að almenningur í Bretlandi væri
hneykslaður yfir syndsamlegu at-
hæfi Játvarðar Bretaprins og unn-
ustu hans, Sophie Rhys Jones.
Parið ku búa í óvigðri sambúð meiri
hluta vikunnar í Buckinghamhöll.
Annars var ungfrú Jones nýverið í
Ballmoralkastala í Skotlandi, sumar-
dvalarstað kóngafjölskyldunnar. Þar
hafði hún þaö gott, svo gott að
stuttu pilsin hennar eru orðin full-
þröng.
... að Keanu Reeves, einn eftirsótt-
ustu piparsveina Hollywood, væri
hinn ánægðasti með eigin frammi-
stöðu í kvikmyndinni Speed. Fleiri
eru ánægðir því ákveðið hefur verið
að gera framhaldsmynd en áður
mun Reeves leika í myndinni A Walk
in the Clouds, mexíkóskri ástarsögu
úr seinni heimsstyrjöldinni. Mótleik-
ari hans er Aitana Sanchez-Gijon,
sem hér sést með Reeves, en hún
var valin úr hópi 500 umsækjenda
um hlutverkið.
... að eiginkona belgíska ofurmenn-
isins Jean-Claude van Damme ætti
von á sér í næsta mánuði. Eiginkon-
an, Darcy La Pier, mætti í brúðkaup
systur van Damme, Véronique,
íklædd bleikum kjól með bumbuna
út í loftið. Fyrrum eiginkona van
Damme var einnig mætt i brúðkaup-
ið með tvö barna sinna og van
Damme.
. . . Woody Allen hefði þegar hafist
handa við nýja bíómynd. Kvikmynd-
in gerist á Sikiley og fer unnusta
Allen og stjúpdóttir, Soon-Yi, með
aðalhlutverkið. Ólyginn sagði einnig
að Soon-Yi hefði Allen undir hæln-
um og ákvæði æ meir hvað gera
skyldi, hvert fara ætti og hvar boröa.
... Al Pacino, smávaxna stjórstjarn-
an, léki nú f kvikmynd um borgar-
stjóra New York. Myndin, sem er
pólitískur þriller, mun heita Ráðhús-
ið eða City Hall elns og titillinn út-
leggst á frummálinu.