Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1995, Blaðsíða 45
 LAUGARDAGUR 30 SEPTEMBER 1995 Tréttir 53 Algert bann við notkun jarðsprengna ekki samþykkt á sárstakri ráðstefnu SÞ: Limlesta eða drepa um 400 manns á viku Um og yfir 400 manns er'u limlest- ir eöa týna lífi í viku hverri vegna þess að jarðsprengja springur undir fótum þeii-ra. Meðal fómarlambanna era börn að leik, bændur við vinnu á ökrum, fólk á göngu á víðavangi og fleiri sem era algerlega grunlausir um þá ógn sem kann að felast rétt undir yfirborði jarðar og upphaflega var ætluð öðrum en saklausum borg- urum. Jarðsprengjunum hefur flest- um verið komið fyrir í löngu liðnum ítökum. Alls er talið að um 110 milljónir virkra jarðsprengna biði fórnar- lamba sinna í 64 löndum, þar á með- al Angóla, Mósambík, Kambódíu og fyrrum Júgóslavíu. Mun ástandið vera einna verst í Kambódíu þar sem 7-9 milljónir jarðsprengna liggja faldar í jörðu. Þar látast 100-200 manns af völdum þeirra í hverjum mánuði og vitað er um 30 þúsund til- felli þar sem fólk á öllum aldri hefur misst útlimi af völdum sprengnanna. f Afganistan liggja um 10 milljónir jarðsprengna faldar í jörðu og í Angóla er vitað til að 9-20 milljónir jarðsprengna hafi verið faldar í jörðu í 20 ára borgarastríði. Samtök- in Læknar án landamæra áætla aö um 70 þúsund manns hafi misst út- limi af völdum sprengnanna í Angóla. Fréttaljós á laugardegi Ekkert öruggt mat liggur fyrir um fjölda jarðsprengna í Bosniu en upplausn Júgóslavíu hefúr or- sakað verstu jarðsprengjuógn sem riðið hefur yfir Evrópu frá síðari heimsstyrjöld. Grafið hér á síðunni er til glöggvunar. Farið fram á algert bann Afleiðingar falinna jarðsprengna, sem enginn veit um, limlestingai' og dauði sáklausra borgara, verða sýni- legar langt fram á næstu öld verði ekkert að gert. Til aö stemma stigu við þessari ógn standa Sameinuðu þjóðirnar fyrir ráðstefnu í Vín í Austurríki sem stendur fram í miðjan október. Þar era mættir fulltrúar þéirra 49 þjóða sem skrifuðu undir sáttmála 1980 en hann fjallaöi um notkun „sérstakra hefðbundinna" vopna (Certain Conventional Weapons). Er end- urskoðun hans meginverkefni ráðstefn- unnar. Aðalritari SÞ, Boutros Boutros- Ghali, fór fram á algert bann við framleiðslu og notkun jarðsprengna í júlí og kom sá vilji fram í upphafsræðu ráöstefnunnar. Hins vegar var strax ljóst að ráðstefnan mun einungis ná að takmarka og setja strangari reglur um jarðsprengjur auk þess að reyna að stöðva þróun nýrra vopna eins og leysigeisla sem orsaka var- anlega blindu. Fulltrúi Bandaríkjanna sagði að ríkin ættu að vinna að algeru banni við fram- leiðslu og notkun jarðsprengna og væri ráðstefnan í Vín fyrsta skrefið í þá átt. Hann sagði að hefði meirihluti ríkja heimsins staðfest sáttmála ráðstefnunn- ar 1980 hefði þúsundum óbreyttra borg- ara verið hlíft frá örkumli og dauða. En einungis 49 ríki staðfestu sáttmálann, þar á meðal fyrrum ríki Júgóslavíu sem í dag eru útötuð jarðsprengjum. Kínverjar segja notkun JARÐSPRENGJUR OGNA UM ALLAN HEIIVI jarðsprengna réttmæta Stærstu framleiðendur jarðsprengna eru Kína, fyrrum Sovétlýðveldi og Ítalía. Belgar voru fyrstir þjóða til að banna framleiðslu, útflutning og notkun jarðsprengna. Frakkar til- kynntu í vikunni að þeir mundu geta í fótspor Belga og eyða auk þess jarð- sprengjulager sínum. Bandaríkin, Bretland, Ítalía, Þýska- land, Israel og Suður-Afríka, sem öll framleiða jarðsprengjur, hafa hins vegar látið nægja að setja bann við útlfutningi þeirra. Ríki eins og Dan- mörk, Norgur og Svíþjóð hafa krafist algers banns við notkun jarð- sprengna en krafa þeirra mun varla fá hljómgrunn. Kínverjar eru alveg sér á parti i af- stöðu sinni. Þeir segja notkun jarð- sprengna réttmæta. ÖU ríki, sérstak- lega þróunarlöndin, eigi rétt á að nota jarðsprengjur til að verjast óvinaárásum. Fulltrúi Kínverja á ráðstefnunni sagðist vilja setja regl- ur sem takmörkuðu notkun jarð- sprengna en menn yrðu að vega mannúðarsjónarmið gegn réttmæt- um hemaðarlegum þörfufn. Góðar og vondar sprengjur Kúrdi sem missti framan af handleggjum sínum þegar hann sté á jarðsprengju gengur hér yfir ímyndað jarð- sprengjusvæði við ráðstefnustað SÞ t Vín. Innandyra þrefa fulltrúar 49 landa auk fulltrúa ýmissa hjálpar- stofnana og mannréttindarsamtaka um bann við notkun jarðsprengna. Símamynd Bandaríkjamenn og fleiri vestræn ríki hafa sett fram málamiðlunartil- lögu sem felst í því að gamaldags eða heimskar jarðsprengjur (dumh mi- nes) verði bannaðar, það er jarð- sprengjur sem eru virkar ótakmark- aðan tíma og geta valdið skaða löngu eftir að átökum lýkur. I staðinn vilja þessi ríki leyfa þróaðri gerð jarð- sprengna (smart mines) sem eru einungis virkar í takmarkaðan tíma, 30-120 daga, eftir að þeim er stungið í jörðu. Tillagan felur einnig í sér að gömlu sprengjurnar verði einungis notaðar á merktum svæðum sem eru undir eftirliti. Bandaríkjamenn vilja bæta við klásúlu um eftirlitsnefndir sem mundu tilkynna um brot á væntanleg- um sáttmála til Sameinuðu þjóðanna. Sú hugmynd hefur hins vegar fallið í grýtt- an jarðveg meðal þróunarlanda, t.d. Pakistan. Fulltrúar hjálparstofnana og mannrétt- indasamtaka sækja einnig ráðstefnuna. Oddviti alþjóðlegrar herferðar gegn jarð- sprengjum segir vestræn ríki eins og Bandaríkin, Bretland og Þýskaland leika tveimur skjöldum. Meðan þessi ríki seg- ist stefna að algeru jai'ðsprengjubanni komi þau með tillögu um notkun „góðra“ og „vondra" jai'ðsprengna. Það séu einmitt þessi ríki sem framleiði „góðu“ jarðsprengjurnar. Blindandi leysigeislar En það er fleira en jarðsprengjur sem kemur til umræðu á ráðstefnunni. Notk- un leysigeisla sem orsaka varanlega hlindu er heitt umræðuefni en á því sviði eru Kínverjar fremstir. Er víðtæk- ur stuðningur við að banna þessi vopn en sem fyrr er búist við andstöðu af hálfu Kínverja sem þegar hafa kynnt slík vopn á hergagnasýningum. En meðan menn þrefa um jarösprengjur í fundarsölum í Vín í þrjár vikur, vænt- anlega án þess að sameinast um bahn við jarösprengjum, limlestast eða deyja allt að 400 manns af völdum þessa skæða óvinar, bæði fullorðnir og höm. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.