Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1996, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996
Fréttir
DV
Dæmdar bætur í Hæstarétti fyrir aö vera lagður nauðugur inn á geðsiúkrahús:
Sérvitur maður
en ekki geðveikur
- var sprautaður með „ýmsum óæskilegum líkamlegum aukaverkunum“
Hæstiréttur dæmdi í gær manni
úr Hafnarfirði 300 þúsund krónur í
bætur auk dráttarvaxta frá haustinu
1993 vegna þess að hann var lagður
gegn vilja sínum inn á geðdeild
Landspítalans og þar m.a. sprautað-
ur nauðugur. Sprautan hafði að mati
lækna „ýmsar óæskilegar, líkamleg-
ar aukaverkanir."
Félagsmálastofhun Hafnarfjarðar
krafðist þess að maðurinn yrði svipt-
ur sjálfræði sumarið 1993 og byggði
það á „hegðun mannsins undanfama
mánuði, eigin umhirðu, svo og
brengluðu hugarfari."
Læknir komst einnig að því að
maðurinn þyrfti að komast undir
læknishendur á geðdeild. Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið samþykkti
þetta 30. júní 1993 og var maðurinn
Rússafiskur á Þórshöfn:
Mun meira
framboð
DV, Akureyri:
„Það hefur verið næg atvinna hjá
okkur og unnið alla daga. Við vinn-
um þann fisk sem berst ferskur að
landi, við höfum haft nægan Rús-
safisk þess á milli og ef við fáum
loðnu eða síld þá frystum við þaö,“
segir Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar.
Síðasti farmur af „Rússafiski"
sem barst til Þórshafnar kom í síð-
ustu viku. Um var að ræða 200 tonn
sem skiptust á milli vinnslustöðv-
anna á Þórshöfn og Raufarhöfn.
„Það er gott framboð á Rússafiski,
nánast eftir hendinni eins og við
teljum okkur geta unnið. Það virðist
vera kominn allt annar tónn í Rúss-
ana, ekki bara varðandi það að selja
okkur fisk til vinnslu heldur einnig
Fyrsti Mjófiröingurinn á þessum áratug fæddur:
Þetta er væn dama
- segir amman, Jóhanna Lárusdóttir á Brekku
in, Kristín Kjartansdóttir, til
næstu daga. Faðirinn, Ingólfur
Sigfússon, bóndi á Brún, sagði í
samtali við DV að fæðingin hefði
gengið seint en þó væru
mæðgurnar við góða heilsu.
„Nei, það er ekki á hverjum degi
sem nýr Mjófirðingur kemur i
heiminn. Þetta er ofurlítil fjölgun í
hreppnum," sagði lngólfur. Nú eru
Mjófirðingar 29 en útlit er fyrir að
fáliðað verði í skóla með yngsta
hreppsbúanum því sá næstyngsti
er orðinn sex ára. -GK
Verslunarskóli íslands:
Forseti nemendafélagsins
lætur af störfum
Forseti nemendafélags Verslunar-
skóla íslands hætti störfum í gær.
Fyrir um það bil viku hætti fé-
hirðirinn og annar hefur komið í
hans stað. Nemendafélagið hefur níu
manna stjórn. Hún var kosin i apríl
á síðasta ári. Þá var, samkvæmt
heimildum DV, við að glíma fjárhags-
legan fortíðarvanda í nemendafélag-
inu. Samkvæmt upplýsingum DV tel-
ur stjórnin sig nú geta ráðið við
vandann en óeining hefur verið inn-
an hennar.
Þorvarður Elíasson, skólastjóri
Verslunarskóla íslands, sagði ástæðu
þess að forsetinn hætti þá að menn
gætu ekki unnið saman. Þorvarður
sagði að féhirðirinn hefði hætt af per-
sónulegum ástæðum og annar hefði
tekið við. Skólastjóri sagðist ekki
vita til að nein vanskil væru hjá
nemendafélaginu. Hins vegar væru
peningar ekki til þar sem búið væri
að eyða þeim. Þess vegna væri ekki
hægt að standa fyrir stórum viðburð-
um sem kostuðu mikla peninga. -ÞK
„Þetta er væn dama, 19 merkur
og 57 sentímetrar," sagði Jóhanna
Lárusdóttir, húsfreyja á Brekku í
Mjóafirði, um fyrsta Mjófirðing-
inn sem fæðist á þessum áratug
og fyrsta barnabarn þeirra hjóna
á Brekku, Sigfúsar Vifhjálmsson-
ar og Jóhönnu. Og langafinn er
Vilhjáfmur Hjáfmarsson, rithöf-
undur og fyrrverandi mennta-
máfaráðherra.
Stúlkan fæddist í fyrradag á
sjúkrahúsinu 1 Neskaupstað. Þar
halda þær mæðgur, hún og móðir-
varðandi önnur viðskipti, og við
höfum verið að selja þeim foðnu- og
síldarafurðir.
Við þekkjum ekki í smáatriðum
hvað veldur þessari breytingu hjá
Rússunum en ætli það sé ekki sú
umræða sem hefur verið í gangi um
heifdarviðskipti. Við studdum líka
tiffögu Rússanna um síldarkvóta-
skiptinguna sem kom fram á fund-
inum í Færeyjum en Norðmenn
voru á móti. Það er ekki ólíklegt að
Rússar telji nóg komið af yfirgangi
Norðmanna og við njótum góðs af.
Norðmenn tala um 10 milljarða
króna tjón ef þeir tapa Rússafiskin-
um þannig að um er að ræða mikla
hagsmuni fyrir okkur að eiga völ á
þessum fiski. Þetta er líka orðið
mjög gott hráefni fyrir vinnsluna og
hefur farið sífellt batnandi," segir
Jóhann A. Jónsson. -gk
lagður inn.
Geðlæknamir Sigurjón B. Stefáns-
son og Tómas Helgason voru ósam-
mála þessu áliti og báru fyrir Hæsta-
rétti að maðurinn væri sérvitur en
ekki svo alvarlega geðveikur að það
réttlætti sjálfræðissviptingu.
Sigurjón sagði m.a. fyrir dómi að
„nauðungarvistun hans á geðsjúkra-
hús hafi verið alvarleg mistök."
Hann sagði manninn og „sérvitran
og með ýmis óvenjuleg áhugamál." í
álit Tómasar kom fram að maðurinn
sé „sérkennilegur" og hafi haft geð-
hvarfasjúkdóm en það réttlæti ekki
nauðuga innlögn á sjúkrahús.
Þá þykir og ámælisvert að enginn
sérfræðinga á geðdeild Landspítal-
ans og ekki heldur yfirlæknirinn
hafi vitað um að maðurinn var lagð-
ur inn.
Vegna þessa hefur því dóms- og
kirkjumálaráðuneytið verið dæmt til
að greiða umræddum manni 300 þús-
und krónur í bætur. Krafist var
einnar millljónar en Hæstarétti þótti
það of mikið. Allur kostnaður við
rekstur málsins í héraði og í Hæsta-
rétti fellur á ríkissjóð.
-GK
Reykjavíkurborg ætlar að skera niður í átaksverkefnum um 110 milljónir króna. Þetta kom fram á blaðamannafundi
sem haldinn var í Ráðhúsinu í gær. Hér má sjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra ásamt embættismönn-
um borgarinnar.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur:
DV-mynd BG
Skorið niður
um 110 milljónir
í átaksverkefni
Reykjavíkurborg stendur fyrir
verulegum framkvæmdum í borg-
inni á þessu ári og verður sérstök
áhersla lögð á leikskóla- og skóla-
málin. Fjárframlög til bygging-
arframkvæmda nema um 2.010
milljónum króna eða 10 milljónum
króna minna en í fyrra. Þar af fara
samtals um 1.200 milljónir í skóla-
byggingar og uppbyggingu í leik-
skólamálum. Þetta kom fram á
blaðamannafundi í Ráðhúsinu en
fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir
1996 var lögð fram á borgarstjórnar-
fundi í gær.
Gert er ráð fyrir að um 830 millj-
ónir króna fari í nýjar skólabygg-
ingar í Reykjavík á þessu ári, þar af*
fara 230 milljónir í byggingu Engja-
skóla og 132 milljónir í nýjan fjöl-
brautaskóla í Borgarholti en hann
verður tekinn til notkunar í haust.
Stefnt er að því að einsetja þrjá
grunnskóla næsta haust og verða þá
14 af 28 grunnskólum borgarinnar
einsetnir.
Fjárhagsáætlun borgarsjóðs 1996
gerir ráð fyrir að 393 milljónir
króna fari í leikskólamálin, sérstak-
lega byggingu tveggja nýrra leik-
skóla og stækkun á gömlum leik-
skólum í borginni.
Þá fara háar fjárhæðir í holræsa-
framkvæmdir og umferðar- og ör-
yggismál. Sú nýjung verður tekin
upp í tveimur hverfum í borginni,
Hlíðahverfi og Lækjahverfi, að hafa
hámarksaksturshraða 30 kílómetra
og verður það rækilega merkt. Þá
verður gerður göngustígur úr Graf-
arvogi í Elliðaárdal og gengið frá
bílastæðum við Hallgrímskirkju,
svo nokkuð sé nefnt.
Athygli vekur að samkvæmt fjár-
hagsáætlun er dregið verulega úr
átaksverkefnum. Aðeins fara um 40
milljónir króna í átaksverkefni
ungs fólks á þessu ári en fóru 150
milljónir úr vasa borgarsjóðs í
fyrra.
-GHS
Alger kyrrstaða í röntgentæknadeilunni
„Þaö hefur nákvæmlega ekkert
gerst í málinu. Við höfum ekki
verið kölluð á neina sátta- eða
samningafundi," sagði Sigrún
Magnúsdóttir, talsmaður
röntgentækna sem eiga í deilu við
Landspítalann, sögðu upp og
gengu út á dögunum.
Félag röntgentækna sem slíkt
tekur ekki þátt í deilunni opinber-
lega enda snertir hún ekki alla
röntgentækna landsins og þeir
sem í deilunni eiga sögðu upp
störfum.
Landspítalinn auglýsti eftir
röntgentæknum fyrir þá sem
sögöu upp en enginn hefur svarað
auglýsingunni og sótt um. -S.dór