Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1996, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1996, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 11 Fréttir Hávaxinn karl veitti minni manni bylmingshögg í andlit og elti síðan: „Minni máttar" dæmdur fýrir grjótkast á flótta 25 ára íbúi í Hrunamannahreppi hefur verið dæmdur í 3ja mánaða fangelsi skilorðsbundið fyrir að hafa kastað grjóti að karlmanni, talsvert miklum að burðum, sem ógnaði honum og elti eftir að'hafa slegið hann bylmingshögg er þeir voru í orðaskaki fyrir utan Hótel Flúðir aðfaranótt 25. júní síðastliðið sumar. Átta tennur_ losnuðu eða brotnuðu í munni mannsins sem veitti ákærða eftirfór. Dómurinn ák- vað að skilorðsbinda refsingu ákærða, sem er 1,70 cm á hæð, m.a. vegna þess að hann var á flótta. Mennirnir tveir voru að karpa fyrir utan Hótel Flúðir þegar sá styttri, ákærði, sagði niðrandi orð um frænda hins stærri, sem er 1,88 cm á hæð. Til að taka upp hanskann fyrir frænda sinn fór sá hærri úr að ofan og sló hinn bylmingshögg svo að hann lá á eftir. Maðurinn lét síð- an mjög ófriðlega og varlíklegur til að berja hinn enn frekar. Vitni bera að sá styttri hefði síðan staðið upp og „bakkað“ talsverðan spöl á und- an hinum sem gerði sig líklegan bæði í orði og athöjnum til að lúskra enn frekar á þeim stutta sem síðan sagðist hafa forðað sér á hlaupum. Hinn stæðilegi fylgdi á eftir og tók flóttamaðurinn þá það til bragðs að taka upp grjót og kasta í hinn til að verjast. Grjótið, sem var að sögn 5 cm í þvermál, hæfði hins vegar beint kjálka hins og var færið 5-10 metrar, samkvæmt frásögn vitna. Ákærði sagði í vörn sinni að stóri maðurinn hefði verið gjörsamlega sturlaður og án tilefnis veist að hon- um og slegið í andlitið, eins og m.a. kom fram í læknisvottorði. Hinn hefði gert sig líklegan til að ráðast á sig aftur og gagntekinn af hræðslu hefði hann snúist til varnar með því að grípa stein og kasta. Maðurinn sem varð fyrir steinin- um sagði þegar hann kom fyrir dóm að fyrir sér væru málsatvik um margt óljós - það mætti jafnvel að einhverju marki rekja til höfuð- höggsins sem hann varð fyrir er ákærði kastaði steinunum í hann. Héraðsdómur Suðurlands taldi ekki að hægt væri að beita svoköll- uðu neyðarvarnarúrræði, það er sjálfsvörn, þar sem færið hefði ver- ið langt og ákærði hefði átt að geta komið sér undan án þess að grípa til svo hættulegrar ákvörðunar að kasta stóru grjóti í „árásarmann- inn“. Sá sem kastaði var því sak- felldur fyrir stórfellda líkamsárás. Við ákvörðun refsingar var hins vegar tekið tillit til þess að ákærði átti undir högg að sækja og var því ákveðið að skilorðsbinda refsing- una. Hins vegar tók dómurinn einnig mið af því að ákærði haföi látið ögrandi orð falla á vettvangi við þann mann sem síðan ógnaði honum. -Ótt Hlutafjáraukning í Krossvík samþykkt í bæjarráöi Akraness: Ríflega 100 milljóna króna bæjarábyrgð felld niður - Haraldur Böðvarsson lagði fram 20,5 milljónir í fyrirtækið V.í. íþróttahús Nokkrirtímar hafá losnað í íþróttahúsi V.í. Kjörið tækifæri fyrir starfsmannahópa. í salnum má m.a. stunda innanhússknattspyrnu, körfubolta, blak og badminton (3 vellir). Upplýsingar í síma 568-8400 Verzlunarskóli íslands Bæjarráð Akraness lagði blessun sína yfir hlutafjáraukningu í út- gerðarfyrirtækinu Krossvík á fundi í fyrradag og felldi niður rúmlega 100 milljóna króna bæjarábyrgð hjá fyrirtækinu. Bærinn var aðaleig- andi fyrirtækisins þar til um ára- mót að hann seldi framkvæmda- stjóranum, Svani Guðmundssyni, fyrirtækið með því skilyrði að hon- um tækist að afla kaupenda að 80 milljóna hlutafé fyrir 10. janúar en Svanur lagði sjálfur fram 25 milljón- ir. Svani tókst þetta sem og að halda kvóta af skipinu Höfðavík í bænum, en skipið sjálft var selt til Húsavík- ur fyrir 180 milljónir króna. Áður en skipasalan fór fram námu skuld- ir Krossvíkur um 600-700 milljónum Hlíðarfjall: Snjórinn fór strax aftur DV, Aknreyri: Erfiðlega ætlar að ganga að hafa skíðabrekkurnar í Hlíðar- fjalli við Akureyri opnar fyrir almenning vegna snjóleysis. Um síðustu helgi var opið tvo daga í fjallinu og voru allar lyft- ur í gangi þótt snjór væri ekki mjog mikill. Síðan hefur verið hláka og talsvert tekið upp af snjó þannig að ekki verður hægt að gangsetja lyfturnar aftur fyrr en snjóað hefur að nýju. Ástandið í Hlíðarfjalli er óvenjulegt en þó ekki einsdæmi. ívar Sigmundsson, forstöðumað- ur í Hlíðarfjalli, segir að fyrir hafi komið að ekki hafi verið hægt að opna lyftur fyrr en í lok febrúar og ekki séu mörg ár síð- an ekki var hægt að opna fyrr en í lok janúar. -gk Leiðrétting í myndatexta á blaðsíðu 2 í DV í gær var sagt að myndin hefði verið tekin á 99 ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur. Það er alrangt. Myndin var tekin á há- tíð í tilefni af 70 ára afmæli Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. króna. Stærsti kaupandi, sem Svani tókst að afla, var Haraldur Böðvars- son hf„ HB, sem lagði fram 20,5 milljónir. Aðrir aðilar í þessum hópi eru Tryggingamiðstöðin með 13 milljóna hlut, Jöklar með 12,5 milljónir, Miðnes með 1? milljónir, Skeljungur með 10 milljónir, Nóta- stöðin með 6 milljónir, Olís með 5 milljónir og Verslunarþjónustan á Akranesi með 1 milljón. Bæjarráð setti það skilyrði fyrir niðurfellingu bæjarábyrgðar að samþykktir yrðu veðflutningar frá Höfðavík yfir á skip HB. Kvóti Höfðavíkur, um 2.300 þorskígildistonn, verður fluttur yfir á skip HB en fyrir hafa þau alls um 9-10 þúsund þorskígildistonn. Svanur Guðmundsson og fram- kvæmdastjóri HB, Haraldur Stur- laugsson, lögðu greinargerð fyrir bæjarráð vegna rekstrarbreytinga á Krossvík. Þar koma fram hugmynd- ir um að sameina fyrirtækin HB og Krossvík og fá ákveðna aðila til samstarfs um úrvinnslu sjávaraf- urða í fiskvinnsluhúsum Krossvík- ur en þar hafa starfað um 60 manns. Samkvaemt heimildum DV stendur m.a. til að fá fyrirtækið íslenskt- franskt eldhús til að setja upp full- vinnslu á ýmsum sjávarafurðum, t.d. laxi sem tilraunir hafa verið gerðar með hjá HB með góðum ár- angri. -bjb Vetrarvertíðin er komin í fullan gang og henni fylgir Ijúfmeti á borð við hrogn og lifur. Fisksalar eru þegar farnir að bjóða kræsingarnar og þeirra á meðal eru Jón Björnsson í Mosfellsbænum og Jón Ingi, aðstoðarmaður hans. DV-mynd S Upplýsingar Lögreglustöðvarnar í Norður- Múlasýslu hafá komið sér saman um einn síma þar sem hægt er að hringja inn upplýsingar um fikni- efni. Þetta er hljóðrituð upptaka með um fíkniefni sama hætti og tíðkast hefur í Reykjavík og víður um nokkurt skeið. Fullum trúnaði er heitið öll- um sem lesa upplýsingar inn á sím- svarann. -GK A RUTU, VORUBIL Með áfangakerfi ræður þú námshraðanum! □ Nýir nemendur byrja vikulega. CZ] Ökuréttindi á öll þrjú ökutækin í einu eöa hvert fyrir sig. □ Reynslumiklir kennarar, fagleg kennsla. □ Góö kennsluaöstaöa. □ Kennsla fer fram á kvöldin og um helgar. □ Stundaskráin er sveigjanleg, þú ræöur feröinni! □ ÖII kennslugögn verða eign nemandans aö loknu námi. □ Verö frá 45.000- stgr. (allt innifaliö nema útg. skírteinis). □ Flestir taka próf á rútu, vörubíl og leigubíl í einu. □ Greiðslukjör (muniö afslátt margra stéttarfélaga). 4 » " rL • • OKU ^KOMNN IMJODD Kennsla til réttinda á hóp-, vöru- og leigubifreiö Skrifstofutími mánudaga-fimmtudaga 13-20, föstud. 13-17 Þarabakka 3, Mjóddinni, 109 Rvík, sími 567-0300

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.