Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1996, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 Stuttar fréttir Utlönd >eim repúblikön- Ahyggjur af vopnun Bretar og Frakkar láta enn í ljós áhyggjur' vegna áætlana um að vopna og þjáifa múslíma í Bosníu. Fleiri treysta Clinton Sam- kvæmt nýrri skoðana- könnun CBS- sjónvarps- stöðvarinnar treysta fleiri Bandaríkja- menn Clin- ton forseta en um sem hann á í höggi við í fjár- lagadeilunni. Nýr í stað Andreottis Kaflaskil urðu i grískum stjórnmálum þegar Costas Simit- is tók viö forsætisráðherrastóln- um af Andreas Papandreou. Árangur i viðræðum Árangur varð í viöræðum sendinefnda Perú og Ekvador í landamæradeilu ríkjanna. Lýsa sig ábyrga Óþekktur hópur sem kallar sig Fýlkingu fyrir frelsun Níger- íu lýsti sig ábyrgan fyrir flug- slysi þar sem 14 manns létust, þar á meðal elsti sonur Sanis Abachas hershöfðingja. Græðir á sundurlyndi Tony Bla- ir, formaður breska Verka- manna- flokksins, höfðar óspart til sundurlynd- is íhaldsmanna þegar hann reynir að sannfæra Breta um aö eðlilegast sé að Verkamanna- flokkurinn leiði Breta inn í næstu öld. Undirbúa kosningar Palestinumenn undirbúa kosningar á Vesturbakkanum meðan ísraelar viöhafa hegðun þess sem ræður. Flóttamannastraumur Um 10 þúsund rúandískir flóttamenn flúðu búðir sínar í norðvestur Búrúndí vegna átaka og héldu til Tansaníu. Um 5 þús- und flóttamenn fylgja í kjölfariö. Bióðugt ár Um 1200 létust og 1600 særðust í átökum í Suður-Afríku á síð- asta ári. Yfirmaður CIA i Bólivíu John Deutch, yfirmaður Bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, er í Bólvíu til viðræðna við forseta landsins um baráttuna gegn fikniefnum. Varar Rússa við Warren Christopher, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, var- aði Rússa við þvi að samskipti þeirra við vestræn fyrirtæki og stofnanir væru í hættu hlýddu þeir ekki alþjóðlegum reglum héldu áfram umbótum. Vill líf í úthverfin Alain Juppe, for- sætisráð- herra Frakka, vill beita skattaí- vilnunum í þeim tflgangi að fá fyrir- tæki til að starfa í niðumíddum úthverfum stórborga. Ræða ófrið Leiðtogar fyrrum Sovétríkja hittast tU viðræðna um efna- hagssamvinnu en fundur þeirra mun væntanlega snúast meira um ofbeldi í Tsjetsjeníu og hvernig halda á friðinn á fleiri svæðum undir Moskvustjóm. Reuter Leiðtogi tsjetsjensku uppreisnarmannanna sagður hafa komist undan: Jeltsín vill þurrka út vígi Tsjetsjenanna Rússneskar hersveitir brutu and- spyrnu tsjetsjensku byssumann- anna, sem héldu tugum gísla í þorp- inu Pervomajskaja, á bak aftur í gær eftir fjögurra daga grimmilega bar- daga. Það hefur þó skyggt á sigur- gleðina að fréttir herma að foringi uppreisnarmannanna kunni að hafa komist undan. 1 Borís Jeltsín Rússlandsforseti lýsti því yfir í gær að aðgerðirnar í Pervomajskaja hefðu borið tflætlað- an árangur. Hann sagði að allir upp- reisnarmennirnir hefðu verið drepn- ir og að 82 af um eitt hundrað gíslum hefðu verið frelsaðir. Forsetinn hét því að halda barátt- unni gegn aðskilnaðarsinnum Tsjetsjena áfram og þurrka út helstu vígi þeirra. En sigurinn yfir upp- reisnarmönnunum kostaði 26 rúss- neska hermenn lifið og óstaðfestar fréttir herma að Salman Radújev uppreisnarforingi hafi runnið Rúss- unum úr greipum. „Það eru tvær útgáfur innan hers- ins,“ sagði Interfax fréttastofan og hafði eftir heimildarmanni í rúss- neska innanríkisráðuneytinu. „Ann- að hvort tókst Radújev að sleppa með lítinn hóp uppreisnarmanna með sér þegar þeir reyndu að brjót- ast út úr hverkví rússneska hersins um Pervomajskaja aðfaranótt fimmtudags eða þá að hann var drep- inn.“ Ekki tókst að finna lík hins skeggj- aða leiðtoga uppreisnarmannanna meðal líka félaga hans sem lágu á víð og dreif í þorpinu eftir harðvítug- ar árásir rússnesku hermannanna. MíkhaO Barsúkov, foringi rúss- neska herliðsins, sagði að einhverjir uppreisnarmenn kynnu að hafa flú- ið. Óháða sjónvarpsstöðin NTV hafði eftir Movladí Údúgov, talsmanni uppreisnarmanna, að Radújev hefði komist undan til Tsjetsjeníu með nokkra gísla með sér, þar á meðal lögregluþjón. Vopnaðir menn, sem fylgja upp- reisnarmönnum í Tsjetsjeníu að mál- um, halda enn um tvö hundruð manns í gíslingu um borð í tyrk- neskri farþegaferju á Svartahafi. Skipsræningjarnir lokuðu fyrir öO samskipti við yfirvöld í landi í morg- Gæslumaður fílanna í dýragarðinum í Chester á Englandi leikur hér við nýjasta afkvæmið í garðinum, mánaðargaml- an fílsunga sem vegur 140 kíló. Eftir er að gefa fflnum nafn en það munu áhorfendur barnatíma í breska sjónvarp- inu gera. Móðir fíisins litla er Thi-Hi-Way frá dýragarðinum í London en faðirinn kom frá dýragarðinum í Kaupmanna- höfn og heitir Chang. Símamynd Reuter Whitewater-máliö: Skjalafundurinn í Hvíta hús- inu verður æ dularfyllri Fundur skjala yfir lögfræðistörf Hillary Clinton í Arkansas, sem tengjast Whitewater-málinu, varð enn dularfyllri eftir yfirheyrslur yfir aðstoðarmanni forsetafrúarinn- ar í gær. Aðstoðarmaðurinn, Caro- lyn Huber, sagði frammi fyrir Whitewaternefnd bandaríska þings- ins að hún hefði fundið skjölin á borði í bókaherbergi í Hvíta húsinu í ágúst. Einungis forsetahjónin, gestir þeirra og helsta aðstoðarfólk hefur aðgang að því herbergi. Huber sagðist ekki vita hver hefði lagt skjölin á borðið og að hún hefði ekki skoðað þau. Þau hefðu verið inni í möppu og hún álitið að hún ætti að taka þau. Sagðist hún hefðu farið með þau tO skrifstofu sinnar og ekki veitt þeim athygli fyrr en fyrir tveimur vikum. Þá hefði hún strax gert sér grein fyrir að skjölin Hillary Clinton forsetafrú. voru afgerandi sönnunargögn í Whitewater-málinu sem hefur verið til rannsóknar í tvö ár. Lögmenn Hiflary sögðu strax frá fundi skjalanna en í Hvíta húsinu gátu menn ekki gert grein fyrir hvers vegna skjölin hefðu ekki ver- ið lögð fram mun fyrr né hver hefði haft þau undir höndum. Huber sagðist ekki álíta að forsetahjónin hefðu lagt skjölin á borðið og að sér hefði ekki verið sagt neitt um þau. Lauch Faircloth, öldungadeOdar- þingmaður repúblikana, sagði merkilegt að skjölin skyldu finnast í öruggasta herbergi í heimi, á þriðju hæð Hvíta hússins. Komast þyrfti að því hver hefði sett þau þar. Fund- ur þeirra kaflaði fram spurningar um hvort forsetahjónin hefðu mögu- lega hindrað framgang réttvísinnar. Reuter un og seinkuðu komutíma sínum til Istanbúl, að sögn tyrkneskrar frétta- stofu. „Þeir sögðust ekki vilja neitt sem stendur og að þeir mundu kalla okk- ur upp ef þeir vildu eitthvað," sagði starfsmaður tyrknesku tollgæslunn- ar. Til stóð að ferjan kæmi til Istan- búl á sjötta tímanum í morgun að ís- lenskum tíma en hún kemur þangað nú um hádegisbflið. Tyrkneskir embættismenn voru bjartsýnir á það í gærkvöldi að skipsræningjarnir mundu fallast á uppgjöf en þeir höfðu hótað að sprengja skipið i loft upp til að mót- mæla aðgerðum Rússa í Pervoma- jskaja. Reuter Major segir engan formanns- ogna stöðu sinni John Major, forsætisráðherra Bretlands, vísaði í gær á bug orðrómi um að forustuhlutverki hans í íhaldsflokknum væri ógnað en var þó ekki fyrr búinn að sleppa orðunum en hann var sakaður um að láta undan hægriöflunum í flokknum sem hafa staðið í vegi fyr- ir því að hann gæti sameinað flokk- inn. Bresku blöðin sögðu í gær að framámenn í þingflokki íhalðs- manna íhuguðu að bola Major úr embætti eftir bæjar- og sveitar- stjórnarkosningar í maí þar sem gert er ráð fyrir að flokkurinn gjaldi mikið afhroð. Aðspurður um slíkar vangaveltur í þinginu í gær, svaraði Major: „Við fáum þessar heimskulegu vanga- veltur í hverri einustu viku sem hefur að geyma fimmtudag. Þetta hefur verið della hingað til og þetta er della núna,“ sagði forsætisráð- herrann. Major er mikið í mun að reyna að saxa á forskot Verkamannaflokks- ins í skoðanakönnunum en það er nú þrjátíu prósentustig. Þingkosn- ingar verða í síðasta lagi eftir 16 mánuði. Reuter John Major er borubrattur. Símamynd Reuter Tvær fjöldagrafir finnast í Bosníu Tvær fjöldagrafir til viðbótar, sem hvor um sig er nógu stór til að rúma hundruð líka, hafa fundist í Glogova, nærri borginni Srebren- ica, í Bosníu, að því er blaðið Christian Science Monitor skýrði frá í morgun. í frétt blaðsins segir að mannabein séu þar á víð og dreif og óþefur af rotnandi holdi liggi yfir öllu. Fréttamaður blaðsins og þrír aðr- ir fundu sundurskotna vöru- skemmu nærri gröfunum og kemur það heim og saman við frásagnir sjónarvotts um að Bosníu-Serbar hafi drepið hundruð múslíma þar í júlí í fyrra. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.