Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Page 2
2 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996 JU’V Skoöanakönnun DV um fylgi flokkanna: Þjóðvaki þurrkast út en Framsókn bætir við sig - Sjálfstæðisflokkur heldur sínu, Alþýðubandalag bætir við en Alþýðuflokkur tapar Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur haldist nær óbreytt um leið og hinn stjórnarflokkurinn, Framsókn- arflokkur, bætir verulega við sig. Alþýðubandalag og Kvennalista auka sitt fylgi en Alþýðuflokkur minnkar sínar vinsældir og Þjóð- vaki þurrkast út af þingi. Þetta eru helstu niðurstöður skoðanakönnun- ar DV um fylgi flokkanna sem gerð var á fimmtudagskvöld. Af þeim sem tóku afstööu í skoð- anakönnun DV sögðust 9,2% styðja Alþýðuflokkinn, 24,3 prósent Fram- sóknarflokkinn, 45,7 prósent Sjálf- stæðisflokkinn, 14,9 prósent Alþýðu- bandalagið, 0,5 prósent Þjóðvaka og 4,6 prósent Kvennalista. Náttúru- lagaflokkurinn, M-listi Flokks mannsins og Vestfjarðalistinn fengu 0,3 prósent fylgi, hver listi. í könnuninni reyndust samtals 70 prósent þeirra sem afstöðu tóku styöja stjómarflokkanna þannig að stjórnarandstaðan nýtur þriðjungs- fylgis þjóðarinnar. Miðað við síöustu skoðanakönn- un DV í lok nóvember hefur fylgi Alþýðuflokksins minnkað um 3,7 prósentustig, fylgi Framsóknar- flokksins aukist um 3,8 prósentu- stig, fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkað um 0,8 prósentustig, Al- þýðubandalagið aukið við sig 1,2 prósentustigum, fylgi Þjóðvaka minnkað um 1,4 prósentustig og fylgi Kvennalista aukist um 0,3 pró- sentustig. Úrtakið í skoðanakönnun DV var 600 manns. Jafnt var skipt á milli kynja og eins á milli höfuðborgar- svæðis og landsbyggðar. Spurt var: „Hvaða lista mundir þú kjósa ef þingkosningar færu fram núna?“ Af öllu úrtakinu reyndust 5,7 pró- sent styðja Alþýðuflokkinn, 15 pró- sent Framsóknarflokkinn, 28,2 pró- sent Sjáifstæðisflokkinn, 9,2 prósent Alþýðubandalagið, 0,3 prósent Þjóð- vaka, 2,8 prósent Kvennalista, 0,2 prósent Náttúrulagaflokkinn, 0,2 prósent Flokk mannsins og 0,2 pró- sent Vestfjarðalistann. Aðrir listar komust ekki á blað. Fleiri taka afstöðu í skoðanakönnuninni reyndust 33 prósent óákveðin og 5,3 prósent neituðu að gefa upp afstöðu sína. Alls tóku því 61,7 prósent aðspurðra 45% 40 35 30 25 20 15 10 5 >\ Kosn. '95 Niðurstöður skoðanakönnunar DV -►' >- 18/1 Kosn. '96 '95 - til samanburðar eru niöurstööur fyrri kannana DV og úrslit þingkosninga - 18/1 Kosn. '96 '95 ' - 18/1 Kosn. '96 '95 jgL -►' i - 18/1 Kosn. '96 '95 ►T I- 18/1 Kosn. '96 '95 45% 40 35 30 25 20 15 10 5 ► > ° 18/1 '96 DV Fylgi flokka Skipan þingsæta — samkvæmt skoöanakönnun — afstöðu í könnuninni sem er mun meira en í síðustu könnunum DV. í könnuninni í nóvember tóku 51,7 prósent aðspurðra afstöðu til flokk- anna. Sé þingsætum skipt á milli flokka samkvæmt fylgishlutfalli í könnun- inni fengi Alþýðuflokkur 6 menn kjörna, tapaði einum miðað við kosningar síðasta vor. Framsóknar- flokkur fengi 15 þingsæti, eins og er á þingi, og hefur því náð aftur þeim 2 sætum sem töpuðust í síðustu könnun. Sjálfstæðisflokkur héldi 30 þingsætum frá síðustu könnun sem er viðbót um 5 sæti frá kosningun- um. Alþýðubandalagið fengi 9 menn á þing sem er sama niðurstaða og í kosningum og síðustu könnun. Þjóðvaki þurrkast hins vegar út af þingi, eins og áður sagði, og fengi engann mann kjörinn. Þjóðvaki fékk 1 þingsæti í síðustu könnun en hefur 4 menn á þingi nú. Kvenna- listi fengi 3 þingsæti ef gengið yrði til kosninga, sem er sami fjöldi og á þingi, en viðbót um eitt sæti frá könnuninni í nóvember. Skekkjumörk í könnun sem þess- ari eru tvö til þrjú prósentustig. -bjb Tíu hestar drápust í eldi við Rauðavatn: Hræðilegt þegar fer svona um skepnurnar - segir Gústaf Jakobsson sem átti fjögur hross í húsinu „Það er hræðilegt þegar fer svona Gústaf Jakobsson bifreiðarstjóri en sem drápust í eldi í Fiárborgum við um skepnurnar, innilokaðar," segir hann átti fjóra af þeim tíu hestum Rauðavatn í gær. Tíu hestar voru í húsinu og drápust þeir allir. Talið er að eldurinn hafi komið upp um hádegisbilið en menn sem voru á ferð á staðnum tilkynntu um brunann til slökkviliðsins klukkan 13.07. Þá var húsið fullt af reyk. Greiðlega gekk að slökkva og tókst að koma í veg fyrir að eldurinn bær- ist í áfasta hlöfu. Reykurinn varð hestunum að fjörtjóni því eldur var ekki mikill. Hestunum var gefið um klutta tíu um morguninn og var þá allt með felldu. Rafmagn var á töflu í húsinu en engin ljós á. Upptök eldsins eru óviss en getum er að því leitt að hann hafi kviknað út frá rafmagn- inu. Gústaf missti þama tvö reiðhross Tíu hross voru í hesthúsinu þegar eldurinn kom þar upp í gær. Þau drápust öll vegna reyks. DV-mynd S og tvö folöld. Hann á nú eitt trippi eftir en það var úti. Hin hrossin sex voru í eigu venslafólks Gústafs. Hann kvaðst 1 samtali við DV ekki viss um hvort hann kæmi sér upp hestum að nýju. -GK stuttar fréttir 15-30% lækkun iðgjalda Skandia og NHK International buðu 15-30% und- ir markaðsverði tryggingarið- gjalda í tryggingaútboði FÍB. Is- lensku félögin buðu ekki lækk- un. Utvarpið greindi frá. 3\ Fákeppni í tryggingum Samkeppnisstofnun segir að fákeppni sé á tryggingamarkaði þar sem þrjú félög ’hafi 80-90% viðskiptanna, skv. Stöð 2. Ósk prests hafnað Sóknarnefnd Langholts- kirkju hafnaði í gær ósk sókn- arprestsins um að segja org- anistanum upp störfum, skv. útvarpi. Málið er í höndum biskups. Samningaviðræður áný Yfirstjórn Landspítala og röntgentæknar áttu samninga- viðræður á ný í gær eftir viku hlé. RÚV sagði frá. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.