Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Blaðsíða 23
 m b m % m t DV LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996 23 Náttúruperlur í Borgarfjarðarhéraði: Hraunfossar Hraunfossar eru einstök og geysi- fögur náttúruperla í Borgarfjarðar- héraði. Hraunfossar eru lindárfoss- ar sem myndast þannig að vatn sprettur fram undan Hallmundar- hrauni á nyrðri bakka Hvítár og fellur í hvítfyssandi fossum fram í ána á um eins kOómetra kafla. Foss- amir og landið undir hraunbrún- inni heita Girðingar. Hraunfossar hafa mikið aðdrátt- arafl og vegfarendur um Hálsasveit staldra gjarnan við hjá þeim. Al- gengt er að fossarnir séu ranglega nefndir Barnafossar en Barnafoss eða Bjarnafoss er í Hvítá og aðeins einn og nokkru ofar Hraunfossum þar sem Hvítá feliur niður í þröngt gljúfur. Ekki ber öllum saman um hvaðan vatnið, sem fossar undan hrauninu, er upp runnið en víðar kemur lind- arvatn undan Hallmundarhrauni en í Hraunfossum. Sumir telja vatnið komið úr Norðlingafljóti eða jafnvel Hvítá. Margir telja vatnið hins vegar kom- ið undan jöklum, vísa m.a. til þess að sáralítið vatn komi frá Langjökli vestan og norðvestanverðum of- anjarðar og mest af því vatni sem kemur bæði úr Langjökli og Eirík- sjökii hverfi ofan í sandinn og hrau- nið. Engin aðstaða hefur verið fyrir ferðafólk við fossana utan malar- bílastæði og ruslagámur en hug- myndir eru uppi um að bæta úr því. Olgeir Helgi Ragnarsson DV-mynd GVA Hraunfossar eru sannkölluð náttúruperla. Bridgefélag Breið- firðinga Fimmtudaginn 18. desember var spilaður eins kvölds jól- amitcheU hjá félaginu og mættu 26 pör til leiks. Sigurvegararnir í hvora átt tóku heim með sér rauðvín í jólamatinn. Lokastaða efstu para í NS varð þannig: 1. Guðlaugur Sveinsson-Lár- us Hermannsson 349 2. Magnús Sverrisson-Guðjón Jónsson 314 3. Vilhjálmur Sigurðsson jr-Sigurður Þorgeirson 305 4. HaUdór Þorvaldsson-Krist- inn Karlsson 300 - og hæsta skor í AV: 1. Jakob Kristinsson-Bjarni Sveinsson 333 2. Sigurjón Tryggvason-Pétur Sigurðsson 316 3. Björn Ámason-Albert Þor- steinsson 306 4. Jón Viðar Jónmunds- son-Sigurbjörn ÞorgeirsSon 292 -ÍS Afsláttardagar í METRO 15-50% afsláttur Parket, 1. gæðaflokkur Quick-Step parket, 1. gæðaflokkur gólfdúkar gólfteppi filtteppi - stök teppi baðmottur - dyramottur I Mffl gúmmímottur blöndunartæki # hreinlætistæki baðkör sturtubotnar X ýmsar gjafavörur málning veggfóðursborðar flísar, úti og inni ísskápar þvottavélar frystikistur Opið öll kvöld og allar helgar iKVMETRÓ MHET8Ó JMiMETRÓ MMETIÓ MMETE8Ó iMiMETRÓ Reykjavík Reylqavík Reykjavík Akureyri Akranesi ísafirði Máiarinn, Skeifunni 8 Hallarmúla 4 Lynghálsi 10 Furuvöllum 1 Stillholti 16 Mjallargötu 1 sími 581 3500 sími 553 3331 sími 567 5600 sími 461 2785/2780 sími 431 1799 sími 456 4644

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.