Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996 JJ V Emilíana Torrini: Viðurkenning sem gaman er að eiga „Tónlistarverðlaunin í fyrra eru viðurkenning sem gaman er að eiga. Þau eru merki um að maður sé bú- inn að ná einhverjum áfanga," segir Emilíana Torrini söngkona við DV. Hún hlaut íslensku tónlistarverð- launin sem söngkona ársins 1994 og sló þar með Björk út. Emilíana fæst við söngnám í Söngskólanum í Reykjavík og hefur nýlokið fjórða stigi. Hún syngur einnig í óperunni Hans og Grétu ásamt því að kynna sólóplötu sína. Emilíana hefur engin sérstök fram- tíðarplön. Hún segir að það sé ekki hægt að ákveða neitt um framtíð- ina. „Það klikkar alltaf, eins og ef maður reynir að plana gamlárs- kvöld,“ segir söngkonan unga. -em Emilíana Torrini var kjörin söngkona ársins í fyrra. íslensku tónlistarverðlaunin 1995 undirbúin Emilíana Torrini og Páll Rósin- krans söngvarar ársins í fyrra Verið er að undirbúa afhendingu íslensku tónlistarverðlaunanna 1995. Þetta er í þriðja sinn sem verð- launin eru afhent en það eru Rokk- deild FÍH, DV og Samband hljóm- plötuframleiðenda sem standa fyrir valinu. Eins og í fyrra verður les- endum DV gefmn kostur á að taka þátt í valinu og verða listar yfir þá sem tilnefndir hafa verið birtir í næstu viku ásamt atkvæðaseðli. í fyrra voru það Páll Rósinkrans í Jet Black Joe og Emilíana Torrini í Spoon sem sópuðu að sér verðlaun- um. Páll var valinn söngvari ársins og hljómsveit hans var valin hljóm- sveit ársins. Einnig var lag þeirra félaga í Jet Black Joe, Higher and Higher, valið lag ársins. Emilíana Torrini var valin söngkona ársins og hljómsveit hennar fékk titilinn bjartasta vonin. Emiliana var ekki aðeins valin besta söngkona ársins, hún var einnig sjálf valin bjartasta vonin. Raggi Bjarna heiðraður Stórsöngvarinn Ragnar Bjarna- son var sérstaklega heiðraður þegar íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent á Hótel íslandi í fyrra. Af öðrum verðlaunum má nefna laga- höfund ársins en þann titil hreppti Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson í Tweety, Gunnlaugur Briem var trommari ársins 1994, Eiður Amar- son var bassaleikari ársins en hann lék einnig með Tweety. Þá má ekki gleyma Kristjáni Kristjánssyni, (K.K.) en hann hlaut fyrsta sætið í flokknum „aðrir hljóðfæraleikarar" en hann leikur á hljómgítar. Jón Ól- afsson var hljómborðsleikari ársins 1994, Eyþór Gunnarsson var jazz- leikari ársins, Andrea Gylfadóttir var textahöfundur ársins og Guð- mundur Pétursson var gítarleikari ársins 1994. Geislaplata ársins var Æ meö hljómsveitinni Unun. Verðlaunahátíðin er hugsuð sem árlegur viðburður. Flestir þekkja til erlendra hátíða éins og Grammy Awards og Brit Awards, sem báðar eru mjög virtar um allan heim. Færri vita þó til þess að í Evrópu og Kanada hafa viðgengist hátíðir síð- astliðin ár sem eru sífellt að sækja í sig veðrið. IFPI Prisen eru afhent í Danmörku í mars á hverju ári, Grammis í Svíþjóð, Edison Awards í Hollandi og Juno Awards í Kanada verða virtari með hverju árinu. Fimm tilnefndir í öllum flokkum Framkvæmdanefnd velur í 40 manna frumvalshóp sem skipaður er fremur breiðum hópi áhugafólks um tónlist og tónlistarmanna sem ekki hafa komið fram á plötum á ár- inu. Hver einstaklingur tilnefnir fimm tónlistarmenn eða hljómsveit- ir í öllum flokkum. Þau tíu nöfn sem fá flest atkvæði i hverjum flokki eru þar með komin í undan- úrslit. í kjölfarið er skipaður starfs- hópur sem dæmir um réttmæti til- nefninganna. Eftir þáð er skipaður 40 manna hópur - ekki þó hinir sömu og í fyrstu umferð. Hver ein- staklingur í þeim hópi velur þrjá af þeim tíu sem komnir eru í undanúr- slit í öllum flokkum. Fimm at- kvæöahæstu aðilarnir úr þessu vali teljast þar með löglega tilnefndir til íslensku tónlistarverðlaunanna. \ Á meðan íslensku tónlistarverð- launin eru að festa sig í sessi hefur verið ákveðið að tilnefna skuli í fimmtán flokka alls. Kosið verður í eftirtalda flokka: bassaleikara árs- ins, blásturshljóðfæraleikara árs- ins, gitarleikara ársins, hljómborðs- leikara ársins, jazzleikara ársins, trommuleikara ársins, önnur hljóð- færi, poppgeislaplötu ársins, rokk- geislaplötu ársins, sígilda geisla- plötu ársins, lag ársins, lagahöfund ársins, textahöfund ársins, björt- ustu von ársins, hljómsveit/flytj- anda ársins. -em Páll Rósinkrans og Emilíana Torrini voru söngvarar ársins ■ fyrra. DV-mynd GVA Jet Black Joe: Verðlaunin hlóðu undir stoltið hjá okkur - segir Gunnar Bjarni, lagasmiður og gítarleikari „Ætli þetta hafi ekki hlaðið svo- lítið undir stoltið hjá okkur. Það var mjög skemmtilegt aö fá viðurkenn- ingu fyrir það sem við vorum að gera,“ segir Gunnar Bjami Ragnars- son, gítarleikari og lagasmiður hljómsveitarinnar Jet Black Joe. Hljómsveitin og meðlimir hennar hrepptu þrenn verðlaun í fyrra á ís- lensku tónlistarverðlaununum. Að sögn Gunnars Bjarna hafa strákarn- ir variö árinu í lagasmíðar þó ein- ungis tvö hafi lög hafi komið út enn þá, I, You, We og I Know. Tónlistin þeirra er alltaf að breytast, segir Gunnar Bjarni. „Við erum að reyna að koma plöt- unni okkar inn á erlenda markaði: Kóreu, Evrópu, Chile og fleiri staði. Síðan stendur til' að taka upp nýja plötu bráðlega í Bretlandi,“ segir Gunnar Bjarni, -em Hljómsveitin Jet Black Joe sópaði til sín verðlaunum í fyrra. DV-mynd ÞÖK V.l. íþróttahús Nokkrir tímar hafa losnað í íþróttahúsi V.í. Kjörið tækifæri fyrir starfsmannahópa. í salnum má m.a. stunda innanhússknattspyrnu, körfubolta, blak og badminton (3 vellir). Upplýsingar í síma 568-8400 Verzlunarskóli íslands DAGSBRÚNARFÉLAGAR Miðvikudaginn 17. janúar kl. 17.00 verður kjörskrá Verkamannafélagsins Dagsbrúnar lokað. Á kjörskrá eru allir þeir sem á félagaskrá voru árið 1995 og skuldlausir við félagið. Allir sem hætt hafa vinnu fyrir aldurá sakir og skuld- lausir voru við félagið og öryrkjar sem voru á félaga- skrá þegar þeir hættu vinnu. Kjörstjórn Verkamannafélagsins Dagsbrúnar nKIISKflLI fSMEMSSSMES Aukið umferðaröryggi Ökuriti - Ökuriti Stjórnendur fyrirtækja, sem annast fólks- og/eða vöru- flutninga og bifreiðastjórar á stórum ökutækjum. ATHUGIÐ. Nýjar reglur varðandi aksturs- og hvíldartíma ökumanna og notkun ökurita samkvæmt reglum EES, hafa tekið gildi. Námskeið um notkun ökurita og ökuritaskífu og kynning á reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, sem aka stórum fólks- eða flutningabifreiðum, verður haldið þriðjudaginn 23. janúar frá kl. 13.00 -17.00. Ökuskóli S.G., sem hefur sérhæft sig í þessum málum annast námskeiðið sem haldið er að Suðurlandsbraut 16, Reykjavík og er skráning í símum: 581-1919, 892-4124 og 897-0845. ATH. Fleiri námskeið fyrirhuguð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.