Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Side 28
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996
32 skák
íslenskir stórmeistarar náöu góð-
um árangri á alþjóðlegum mótum í
Gausdal í Noregi á dögunum og Lin-
ares á Spáni, sem lauk í vikunni. í
Linares tefldu Jóhann Hjartarson
og Hannes Hlífar Stefánsson. Þeir
höfnuðu í 3. sæti með 7,5 v. af 10
mögulegum en sigurvegari varð
Rússinn Shchekachev. í Gausdal
varð Margeir Pétursson í 2. sæti
með 6,5 v. af 9 mögulegum, hálfum
vinningi á eftir Ian Rogers frá Ástr-
alíu. Þröstur Þórhallsson, alþjóðleg-
ur meistari, deildi 3. sæti með 6
vinninga og hækkar við það nokkuð
á stigum í áttina að stórmeist-
aratitli.
Helgi Ólafsson stórmeistari er sá
eini atvinnustórmeistaranna sem
ekki hefur verið á faraldsfæti að
undanförnu. Hann brýtur nú heil-
ann um annars konar viðfangsefni
Sma> .
auglýsingar
Nýjar greinar í Nómsflokkunum
Nýtt...
Fyrrverandi Júgóslavía - saga og trúarbrögð
Saga svæðisins er rakin allt fram á þennan dag. Sérstök áhersla er lögð á þá þróun sem leiddi til skiptingar
landsins í austur- og vestursvæði (þ.e. svæði Króata og Serba, með Bosníu sem „landið á milli“).
Áhersla verður lögð á Tító-tímann og fjallað nánar um þá þætti pólitískrar sögu, trúarbragðasögu og hag-
sögu sem hafa mótað þjóðimar; viðhorf þeirra, örlög og samskipti innbyrðis og við aðrar þjóðir.
10 vikur á kr. 6.600
íslam - sem trúarbrögð, siðakeríl og menningarheild
Fjallað verður um upphaf íslams og pólitíska sögu íslamsheimsins. Einnig hvemig íslam sem trúarbrögð er
samofið mannkynssögunni og hvemig sagan skýrir útþenslu íslams á síðari hluta þessarar aldar.
Sérstök áhersla verður lögð á þýðingu íslams í samtímanum,m.a. hvað varðar bókstafshyggju, afstöðu til
kvenna, afstöðu til Vesturlanda og áhrifa þaðan.
10 vikur á kr. 6.600
Kennari: Dagur Þorleifsson
...og spennandi!
Hestaleigan
Reynisvatni
Viö efnum til verölaunasamkeppni um nafn á folaldinu
sem fæddist svo óvænt síðastliðinn aðfangadag.
Folaldiö er hestur, rauður, tvístjörnóttur.
Verðlaun eru kr. 25,000.- í peningum - og útivistardagur
að Reynisvatni með veiði í vatninu og útreiðartúr fyrir
fjölskylduna.
Þátttakendur þurfa að senda tillögur sínar fyrir 1. febrúar
n.k. til Ólafs Skúlasonar, hestaleigunni Reynisvatni,
Laxalóni, 110 Reykjavík. Formaður dómnefndar er
Örlygur Hálfdánarson bókaútgefandi.
Komi fleiri en ein tillaga að
sama nafninu verður dregið
um vinningshafa.
Reynisvatn,
útivistarperla Reykjvíkur,
fyrir alla fjölskylduna.
sem dómari í spurningakeppni
framhaldsskólanna.
Ónefndur er Helgi Áss Grétarsson
en hann situr nú að tafli í Wij aan
Zee í Hollandi, þar sem fram fer ár-
leg skákhátíð. Helgi Áss teflir í „B-
flokki" sem þrátt fyrir nafngiftina
er skipaður mjög öflugum skák-
meisturum. Stigahæstur er enski
stórmeistarinn Tony Miles með 2635
Elo stig en skák þeirra í 2. umferð
lauk með jafntefli. í fyrstu umferð
gerði Helgi Áss einnig jafntefli við
Garcia frá Kólumbíu en þriðju skák
sinni tapaði hann fyrir Úkraínu-
manninum Stripunski. Að loknum
þremur umferðum höfðu Bologan
og Stripunski hlotið 2,5 vinninga,
Delemarre hafði 2, Onichuk, Van
der Wiel, Antunes, Van de Mortel
og Miles 1,5 v., Helgi Áss 1 og aðrir
minna.
En víkjum sögunni að efsta flokki
í Wijk aan Zee. Keppendavalið þar
varpar ljósi á hvers vegna flokkur
Helga Áss er nefndur „B-flokkur“.
Svo virðist sem óvenjuvel hafi til
tekist, a.m.k. ef dæma má af sérlega
fjörlegri taflmennskunni í byrjun
mótsins.
Að loknum fimm umferðum var
góðkunningi okkar íslendinga, Ivan
Sokolov, einn efstur með 4 vinninga
- hafði aðeins leyft tvö jafntefli. Ro-
bert Hubner, Vassily Ivantsjúk, Al-
exei Dreev og Sergej Tivjakov höfðu
3 v., Gelfand hafði 2,5 og síðan komu
Lekó, Topalov, Anand, Shirov og Pi-
ket með 2,5 v. Timman og Adams
höfðu 1,5 og Van Wely rak lestina
með 1 vinning.
Ivan Sokolov hefur verið búsettur
í Hollandi síðustu ár eftir að hann
hvarf úr heimaborg sinni, Sarajevo.
Hann virðist kunna vel við sig á
nýjum heimavelli og lætur ekki sitt
eftir liggja til að glæða skákirnar
lífi. Skákin við Topalov í fjórðu um-
ferð er gott dæmi um tápmikla tafl-
mennskuna.
Umsjón
JónLÁmason
Hvítt: Ivan Sokolov
Svart: Veselin Topalov
Benónívörn.
I. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 c5 4. d5
exd5 5. cxd5 d6 6. e4 g6 7. f4 Bg7
8. Bb5+
Sokolov velur eitt skarpasta af-
brigðið sem hvítum stendur til boða
gegn Benónívörn svarts. Löngum
hefur verið talið skást fyrir svartan
að svara biskupsskákinni með 8. -
Rfd7 en illt er að þurfa að hreyfa
riddarann sem þegar er kominn
fram á borðið - og kostar tíma.
8. - Rbd7
Slæmt er 8. - Bd7 vegna 9. e5 Rh5
10. Rf3 og svartur á afar erfitt upp-
dráttar. Leikur Topalovs hefur
freistað margra þrátt fyrir að svart-
ur komist nú ekki hjá liðstapi.
9. e5 dxe5 10. fxe5 Rh5 11. e6
Þannig vinnur hvítur manninn á
d7 en fær svartur nægar bætur með
skjótari liðsskipan?
II. - Dh4+ 12. g3! Rxg3 13. hxg3
Dxhl 14. Be3 Bxc3+ 15. bxc3 a6
16. exd7+ Bxd7 17. Bxd7+ Kxd7
18. Db3 b5 19. 0-0-0!
Svartur hefur náð að laga liðs-
muninn. Nú stendur kóngur hans á
bersvæði en sá hvíti fmnur sér á
hinn bóginn prýðilegt skjól. Topalov
hefur trúlega ekki metið þessa stöðu
rétt við undirbúning sinn fyrir
skákina.
19. - Hhe8 20. Bxc5 Hac8 21.
Bd4 Dg2 22. Da3 Dxg3 23. Dxa6
Hxc3+ 24. Kb2! Hcc8 25. Dxb5+
Kd6 26. Kal!
Nú eru úrslitin raunverulega ráð-
in. Öllu skiptir að kóngsstaðan sé
traust í svona opnu tafli.
26. - Da3 27. Bb2 Dc5
28. Da6+ Kd7 29. Da4+!
- Og nú gafst Topalov upp. Svarið
við 29. - Kd6 yrði 30. Ba3 eða 29. -
Kd8 30. Bf6+ Kc7 31. d6+ og eftir at-
vikum d6-d7 og enn er fokið í flest
skjól.
DÚða
epp
ni
SYNING
í PERLUNNI
Það fremsta í íslenskri
umbúðahönnun og
-framleiðslu helgina
20.-21. janúar 1996.
Opið kl.13.00-18.00.