Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Page 32
36 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996 Verður með óvenjulega sýningu í Gerðarsafni: Hef alltaf verið veik fyrir dramatík ... - segir Steinunn Þórarinsdóttir myndhÖggvari Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari með eitt af þeim verkum sem hún er að klára fyrir sýningu sem verður í Lista- safni Kópavogs, Gerðarsafni, í febrúar. DV-mynd Brynjar Gauti \ ; ' Myndhöggvarafélaginu en erum núna um sjötíu." Vinnustofa Steinunnar er í bak- húsi við Framnesveg. Þar hefur hún haft aðstöðu í tólf ár og komiö sér vðl fyrir. Hún segir að upphaflega hafi eitt fyrsta bílaverkstæðið í Reykjavík verið í húsnæðinu og þar var m.a. gert við leigubíla frá Stein- dóri. Þegar Steinunn flutti með vinnustofu sína í húsið deildi hún því með nokkrum öðrum en nú er hún ein eftir. Hún segist ekki finna fyrir einmanaleika. „Það eru oft svo mikil læti heima að mér finnst gott að komast í kyrrðina hér,“ segir hún. „Ég er yfirleitt frá hádegi til sex á daginn við vinnu og reyni að vera skipulögð.“ Hún segist þó stundum fá heimsóknir frá öðrum listamönnum og það sé mjög skemmtilegt. Snyrtilegur sjónvarps- maður ' Steinunn er gift Jóni Ársæli Þórð- arsyni, hinum landsþekkta sjón- varpsmanni á Stöð 2, og eiga þau tvo syni, 13 og 2ja ára. Hún segist fá mikinn stuðning frá fjölskyldunni og þar sem Jón Ársæll sé mikið snyrtimenni komi hann alltaf öðru hverju á vinnustofuna og þrífi. Að auki hefur hann verið mikil hjálp- arhella þegar Steinunn vinmn- með stóra og þunga hluti. Hún segir að gera orginal úr leir, tek mót af hon- um, steypi síðan í það mót gifsi, þá fær Málmsteypan gifsið og gerir annað mót, þannig að þetta er marg- þætt,“ útskýrir hún. „Hugmyndim- ar að þessum verkum era allar ein- hvers konar litlir prívatheimar mannsins en með þeim er ég að glíma við mörkin milli fantasíu og raunveruleikans. Oft eru verkin frá- sagnarkennd þó ég hafi ekki viljað skilgreina þau stíft, enda sér fólk alltaf mismunandi hluti út úr lista- verkum." Fjölgun listamanna Efnahagslægð undanfarinna ára hefur komið við listamenn eins og aðra landsmenn. Steinunn segist hafa fundið fyrir þessum samdrætti. „Fólk sparar fyrst við sig listaverk," segir hún. „Það hefur heldur ekki verið mikið um pantanir á stærri verkum undanfarin þrjú ár. Að auki hefur orðið mikil fjölgun lista- manna á undanfómum árum og það hefur leitt til samkeppni. Svo virðist sem ungt fólk velji sér listgreinar í Steinunn segir að eiginmaður henn- ar, Jón Ársæll Þórðarson, hafi mik- inn skilning á listum, enda skapandi maður. ríkari mæli þegar það fer í fram- haldsnám. Þegar ég kom heim frá námi vorum viö um fimmtán í Jón Ársæll sé mikill listamaður í sér. „Hann er mjög skapandi og nýt- ir það vel í sínu starfi," segir hún. Á heimili þeirra á Bráðræðisholt- inu eru mörg verk, stór og smá, sem Steinunn hefur gert. Hún segir að það sé mikill misskilningur hjá fólki að stór listaverk geti ekki ver- ið inni á heimilum. Steinunn hefur gert mörg listaverk fyrir vini og kunningja sem heillast hafa af verk- unum á heimili hennar. Steinunn hefur starfað sem lista- maður í sextán ár. Hún fór aldrei í myndlistarskóla né á námskeið hér á landi heldur fór í menntaskóla. „Ég hafði ekki áhuga á neinum slík- mn myndlistarnámskeiðum þó að ég hefði mikinn áhuga á listum frá bamsaldri," segir hún. Árið 1974 fór Steinunn til Englands, í listaskól- ann Portsmouth College of Art & Design. Hún tók BA-próf frá Porthsmouth Polytechnic, Fine Arts, árið 1979 og hélt þá til Bologna á Ítalíu í áframhaldandi listnám í Accademia di Belle Arti. „Það var aldrei neitt annað sem kom til greina hjá mér en listir,“ segir hún. Þegar Steinúnn var spurð þeirrar sígOdu spumingar hvort margt listafólk væri í hennar aett svaraði hún brosandi: „Nei, það eru aðaUega prestar og kennimenn í minni ætt.“ Veik fyrir dramatík - En er það ekki frekar sjald- gæfara en hitt að konur velji sér höggmyndagerö? „Ekki núorðið. Það voru ekki margar konur þegar ég kom heim frá námi. Auk þess eru mörkin orð- in minni á milli höggmyndalistar og myndlistar almennt. Það eru alltaf ákveðnir örðugleikar að skOgreina listina, hvað er list og hvað er nytja- list, og menn rífast gjaman um þaö.“ Steinunn segir að hún hafi gaman af að gera stór og krefjandi lista- verk, eins og t.d. minnisvarðana. „Þá er oft spennandi að tengja verk- ið því umhverfi sem það mun standa í,“ segir hún. „Mér þykja sjó- mannaminnisvarðar dramatiskir en ég hef aUtaf verið veik fyrir drama- tík. Einnig hefur verið skemmtOegt að brjóta upp það form sem hafði áður verið hefðbundiö." Hvert einasta verk sem Steinunn hefur gert á sér ákveðna sögu sem hún skráir i bók en hefur ekki gert opinbera. „Oft em þessar útskýring- ar bara ein setning eða eitt orð. Stundum hef ég skráð drauma og þess vegna verða sum verkin draumkennd. Ætli ég sé ekki draumóramanneskja svona í og meö,“ segir Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari. Sýning hennar i Gerðarbergi, Listasafni Kópavogs, mun standa í tvær vikur. -ELA „Ég er búin að vera í eitt og hálft ár að undirbúa þessa sýningu en hún hefur þó verið lengur í gerjun. Ég hef aUtaf unnið mikið með figúr- ur en á síðustu sýningu voru engar manneskjur heldur frekar beinar skírskotanir í náttúruna. Á þessari sýningu verð ég hins vegar aftur með þessar figúrar en ákveðinn samruna með þeim verkum sem ég var með síðast,“ segir Steinunn Þór- arinsdóttir myndhöggvari í samtali við helgarblað DV. Steinunn ætlar að opna sýningu í Gerðarsafni í Kópavogi um miöjan febrúar. Þar verða fjórtán ný verk sem unnin era úr pottjámi, blýi, gifsi og gleri. Steinunn hefur haldið fjölmargar einka- og samsýningar, jafnt hér á landi og erlendis. Verk hennar hafa hvarvetna vakið mikla athygli enda þykir hún ekki fara troðnar slóðir í list sinni. Altaristafla, sem Stein- unn gerði fyrir Kópavogskirkju, þykir t.d. mjög sérstök. Þá hefur hún gert minnisvarða um látna sjó- menn sem standa í Grandarfirði og í Sandgerði. Einnig hefur Steinunn gert verk sem nú eru í eigu Reykja- víkurborgar, Seölabanka Islands, Hafnarfjarðarbæjar, Borgarkringl- unnar, ÁTVR í Mjódd, Stjómsýslu- hússins á ísafiröi og margra fleiri stofnana og heimOa. Steinunn segist hafa unnið mikið með jám í gegnum tíðina en þó ekki pottjárn eins og hún gerir nú, nema í stærstu verkum. „Ég hef alltaf ver- ið tengd dökkum lit og hann hefur fylgt mér. Ætli þaö sé ekki vegna þess að hann tengist íslenskri nátt- úru. Þessi lífræni litur höfðar mjög sterkt til mín,“ segir hún. Erfiðasta sýningin í altaristöfluna í Kópavogskirkju notaði Steinunn grjót sem hún sótti í Borgarholtið, umhverfi kirkjunn- ar, en annar hluti steinsins er inni í kirkjunni og hinn fyrir utan en sama áletrun á þeim báðum. Með grjótinu notaði Steinunn gler en hún segist einmitt hafa mjög gaman af að blanda ólíkum efnum saman. „Ég þarf aOtaf að vinna með mörg efni i einu,“ segir hún. Steinunn segir að mikO vinni liggi í undirbúningi fyrir þessa sýn- ingu. „Þetta er örugglega erfiðasta sýning sem ég hef sett upp. Það er langur aðdragandi frá þvi verk er hafið og þar til því lýkur. Hugmynd- in verður fyrst tO á blaði, i skissu, en einnig skrifa ég ýmsar hugleið- ingar um verkið. Ég byrja á því að Altaristafla Kópavogskirkju sem Steinunn gerði. Minnisvarði um látna sjómenn í Grundarfirði. Þetta verk Áhrif nefnist þetta verk Steinunnar sem hún gerði árið 1987 en það er unn- gerði Steinunn árið 1989 og kailar það Sýn. jð úr leir og gleri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.