Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Side 47
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996
Trausti Sveinbjörnsson
Traustl Sveinbjörnsson raf-
magnsiðnfræðingur, Álfabergi 14,
Hafnarfirði, verður fimmtugur á
mánudaginn.
Starfsferill
Trausti fæddist í Hafnarfirði og
ólst þar upp. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Flensborgarskóla 1963,
lærði rafvélavirkjun hjá Gunnari
Auðuni Oddssyni og lauk sveins-
prófi í þeirra grein 1968, lærði raf-
magnsiðnfræði við Tækniskóla ís-
lands og lauk þaðan prófi 1973.
Trausti vann á verkfræðistof-
unni Rafteikningu 1973-87 en stofn-
aði þá ásamt fleiri verkfræðistof-
una TERU sf. sem hann starfrækir
enn.
Trausti var formaður frjálsí-
þróttadeildar Breiðabliks 1971-73,
sat í stjórn skíðadeildar Hrannar,
var fulltrúi í skíðaráði Reykjavík-
ur fyrir það félag og er þar nú
varafulltrúi, situr í varastjórn
Frjálsiþróttasambands íslands frá
1994, í landsliðsnefnd FRÍ frá 1993
og situr í stjórn frjálsíþróttadeildar
FH. Trausti var landsliðsmaður í
frjálsum íþróttum 1967-70 en hann
keppir enn í frjálsum íþróttum og á
nokkur íslandsmet í öldungaflokk-
um í frjálsum íþróttum og sundi.
Fjölskylda
Trausti kvæntist 3.7. 1971 Ing-
veldi Einarsdóttir, f. 23.1.1950, hús-
móður sem jafnframt starfar við
ræstingar. Hún er dóttir Einars
Ögmundssonar, fyrrv. forstöðu-
manns og vörubifreiðastjóra, og
k.h., Margrétar Bjarnadóttur hús-
móður.
Börn Trausta og Ingveldar eru
Björn, f. 13.2.1971, starfsmaður hjá
ísal, en unnusta hans er Helga
Halldórsdóttir; Bjarni Þór, f. 24.11.
1974, starfsmaður hjá Sorpu; Ólafur
Sveinn, f. 5.5. 1977, nemi við Iðn-
skóla Hafnarfjarðar. Allir eru þeir
bræður í landsliði íslands i frjáls-
um íþróttum.
Systur Trausta eru María, f. 7.12.
1944, bankastarfsmaður, búsett í
Danmörku; Margrét Ólöf, f. 29.6.
1947, bankastarfsmaður í Hafnar-
firði; Ásta, f. 26.1.1955, starfsmaður
á Sólvangi, búsett í Hafnarfirði;
Ólöf Þóra, f. 14.3. 1957, hjúkrunar-
fræðingur og ljósmóðir, búsett í
Keflavík; Erla, f. 20.8. 1962, meina-
tæknir, búsett i Hafnarfirði.
Foreldrar Trausta eru Svein-
bjöm Ólafsson, f. 17.10.1916, renni-
smiður í Hafnarfirði, og k.h., Borg-
hildur Svanlaug Þorláksdóttir, f.
28.6. 1924, húsmóðir.
Ætt
Sveinbjörn er bróðir Guðrúnar,
ömmu Rúnars Kristinssonar,
landsliðsmanns í knattspyrnu.
Sveinbjörn er sonur Ólafs Sveins,
b. að Syðra-Velli, Sveinssonar, b. á
Klöpp á Miðnesi, Högnasonar, b. í
Reykjadal, Árnasonar. Móðir Ölafs
var Ólöf, hálfsystir Ólafs Ólafsson-
ar, fríkirkjuprests í Reykjavík.
Ólöf var dóttir Ólafs, dbrm. og bæj-
arfulltrúa í Reykjavík, Ólafssonar,
b. á Ægissíðu í Holtum, Sigurðs-
sonar og Valgerðar Erlendsdóttur,
b. í Litla-Klofa, Jónssonar. Móðir
Ólafar var Finnbjörg Finnsdóttir,
b. á Reynifélli, Finnbogasonar.
Móðir Sveinbjörns var Margrét,
systir Guðrúnar, langömmu Magn-
úsar Kjartanssonar tónlistar-
manns. Margrét var dóttir Steins,
b. í Miklaholti í Biskupstungum,
Jónssonar, b. í Unnarholti, Odds-
sonar, b. í Austurhlíð, Jónssonar,
b. á Brúnastöðum, Magnússonar.
Móðir Margrétar var Ingunn Þor-
kelsdóttir, b. á Stóru-Borg í Gríms-
nesi, Guðmundssonar. Móðir Ing-
unnar var Guðrún, dóttir Sigurðar
0mælU
Trausti Sveinbjörnsson.
Einarssonar og Ingunnar Bjama-
dóttur, ættforeldra Galtarættarinn-
ar.
Borghildur er dóttir Þorláks, b. í
Veiðileysu á Ströndum, Guð-
brandssonar, b. þar, Guðbrands-
sonar. Móðir Borghildar var Ólöf
Sveinsdóttir, b. á Kirkjubóli í Stað-
ardal, Sveinssonar.
Trausti og Inga taka á móti gest-
um í Iðnaðarmannahúsinu, Hall-
veigarstíg 1, Reykjavík, sunnudag-
inn 21.1. frá kl. 20.00-23.00.
Til hamingju með afmælið 20. janúar
85 ára
Petra Björgvinsdóttir,
Hvannabraut 1, Höfn í Hornafirði.
Margrét Kristinsdóttir,
Víðimýri 7, Akureyri.
80 ára
Jóhannes Þórð-
ur Jónsson,
fyrrv. kaupfélags-
stjóri á Suðureyri
við Súgandafjörð,
síðan starfsmaður
SÍS og Samá-
byrgðar íslands á
fiskiskipum,
Hrafnistu v. Kleppsveg, Reykja-
vík.
Eiginkona hans var Geirþrúður
Svava Valdimarsdóttir sem lést
1990.
Jóhannes býður vinum og vanda-
mönnum í kaffi í sal safnaðar-
heimilis Bústaðarkirkju í dag kl.
15.00.
75 ára
Tómas Haukur Jóhannsson,
Hólmgarði 38, Reykjavík.
70 áxa
Lillý A. Jónsson,
Efstasundi 26, Reykjavík.
60 ára
Baldur Sigurgeirsson,
Digranesheiði 47, Kópavogi.
Jóhann S. Björgvinsson,
Unufelli 33, Reykjavík.
Eyþór Ólafsson,
Skeiðflöt, Mýrdalshreppi.
Ólafur M. Ólafsson,
Blikahólum 4, Reykjavík.
Óli Viktorsson,
Unufelli 24, Reykjavík.
Katrín Kristjánsdóttir,
Hringbraut 52, Keflavík.
Guðbjörg E. Guðmundsdóttir,
Hveriísgötu 78, Reykjavík.
Ævar S. Ragnarsson,
Álfabergi 30, Hafnarfirði.
50 ára
Sigurbjörg Magnúsdóttir,
Meðalbraut 22, Kópavogi.
Jónína Þorgrímsdóttir,
Ytri-Tungu, Snæfellsbæ.
Jóhanna Jensdóttir,
Faxabraut 2A, Keflavík.
Finnur A.P. Fróðason,
Skúlagötu 61, Reykjavík.
40 ára
Tómas Leifsson sölumaður,
Brekkusíðu 2, Ak-
ureyri.
Kona hans er Sig-
ríður Gunnars-
dóttir. Þau taka á
-móti gestum á
Dátanum í Sjall-
anum laugardag-
inn 20.1. kl. 20.00-23.00.
Margrét Rósa Jónsdóttir,
Fífumóa 16, Njarðvík.
Sigríður Halldóra Sveinsdóttir,
Saurbæ, Lýtingsstaðahreppi.
Sigurður H. Tryggvason,
Birkihlíð 11, Vestmannaeyjum.
Kolbrún Pálina Hannesdóttir,
Kársnesbraut 59, Kópavogi.
Hólmfriður G. Sigurðardóttir,
Heiðarlundi 8C, Akureyri.
Guðrún Anna Tómasdóttir,
Fornasandi 3, Rangárvallahreppi.
ísleifur Ólafsson,
Kleifarvegi 11, Reykjavík.
Gyða Jónsdóttir,
Nesbala 98, Seltjarnarnesi.
Hrodny Joffrid Svava Olsen,
Kirkjubæjarbraut 11, Vestm.eyjum.
Haraldur Ólafsson,
Hjallavegi 40, Reykjavík.
Nýjar greinar í Námsflokkunum
Nýtt...
Ritlist I og II - námskeið í að skrifa fyrir börn
Skapandi skrif
Námskeiðið er þjálfun í að skrifa fyrir böm ýmiss konar afþreyingar- og skemmtiefni
og að miðla til þeirra nauðsynlegum upplýsingum.
Þátttakendur fá æftngu í að skrifa fyrir ólíka miðla og þjálfun í að gagnrýna, taka
gagnrýni og að lúta ritstjóm.
12 vikur á kr. 8.800
Kennarar: Arni Arnason og Elísabct Brekkan
Kvikmyndafræði: Saga, rýni og táknfræði
Kvikmyndalistin í eina öld verður rakin með ítarlegum dæmum.
Kvikmyndarýni og táknfræði kynnt með æfingum.
Hópurinn hefur aðgang að stóru myndbandasafni sem geymir allar mikilvægar
myndir allra tíma (innifalið í námskeiðsverðinu).
10 vikur á kr. 6.600
Kennari: Oddur Aibertsson
Innritun stendur yfir í Miðbæjarskólanum, Fríkirkjuvcgi 1.
Sími: 551 2992 og 551 4106
...og spennandi!
Tvöfaldur
1. vinningur!
-vertu viðbúinm vinningi
FÖNDURNÁMSKEIÐ
Vinsælu föndurnámskeiðin okkar eru að hefjast.
NÁMSKEIÐSSTAÐUR:
VÖLUSTEINN,
Faxafeni 14, sími 588 9505
KERAMIKNÁMSKEIÐ: FIMMTUDAGA
GRÆNLENSKUR PERLUSAUMUR: ÞRIÐJUDAGA
SILKIMÁLUN: ÞRIÐJUDAGA
KLÆÐA MACKINTQSH’S DÓSIR: ÞRIÐJUDAGA
FIMO LEIRNÁMSKEIÐ: FIMMTUDAGA
NÁMSKEIÐSSTAÐUR:
TÓMSTUND,
Reykjavíkurvegi 68, sími 656 0165
KLÆÐA MACKINTQSH'SDÓSIR: MÁNUDAGA
KLÆÐAALBÚM: MÁNUDAGA
MOPPUDÚKKUGERÐ: ÞRIÐJUDAGA OG MIÐVIKUDAGA
FIMO LEIRNÁMSKEIÐ: ÞRIÐJUDAGA
SILKIMÁLUN: MÁNUDAGA OG MIÐVIKUDAGA
Öll námskeið hefjast kl. 20.00 á báðum stöðum.
Skráið ykkur tímanlega
^VÖLUSTEINN TÓMSTUND
Fáðu þér miða fyrir kl. 20.20 á iaugardaginn.