Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1996, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1996, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 25 íþróttir Knattspyrna: Spink farinn eftir nítján ára dvöl Markvörðurinn Nigel Spink yfirgaf Aston Villa í gær en hann fékk frjálsa sölu til 1. deild- arliðsins WBA. Spink hefur leik- ið raeð Villa í 19 ár og varð Evr- ópumeistari með félaginu árið 1982. Hall segir aö Asprilla komi John Hall, stjórnarformaður Newcastle, fullyrti í gær að ör- uggt væri að Faustino Asprilla kærai til félagsins frá Parma. Það væri hins vegar eftir að ganga frá nokkrum atriðum við Parma varðandi söluna. Bresk blöð sögðu í gær að svo gæti farið að Asprilla kæmi ekki til Newcastle þó samningar þar aö lútandi hefðu verið undir- ritaðir. Meiðsli hafa hijáð kapp- ann og einnig er sett spurningar- merki viö hvort hann fái at- vinnuleyfi í Bretlandi þar sem hann er á sakaskrá fyrir vopna- burð. Ferguson sigraði í réttarsalnum Duncan Ferguson, leikmaður með Everton, vann í gær baráttu fyrir dómstólum og hnekkti 12 leikja banni sem aganefnd skoska knattspymusambandsins dæmdi hann í fyrir að skalla mótherja meðan hann lék með Rangers. Ferguson hefur þegar tekið út fimm leiki af banninu í Englandi og auk þess hefur hann nýlokið 44 daga refsivist í fang- elsi. Dómsorðið var á þá leið að aganefndinni hefði ekki verið heimilt að dæma eftir skýrslu eftirlitsdómara, en dómari leiks- ins sá atvikið ekki sjálfur. Ferguson getur nú leikið áfram með Everton og má spila með skoska landsliðinu í úrslitum Evrópukeppninnar í sumar. Handbolti: Zivkovic þjálfar lið Júgóslava Það er Zoran Zivkovic sem þjálfar landslið Júgóslavíu í handknattleik, ekki Veselin Vu- jivoc, eins og sagt var í blaðinu í gær. Zivkovic, sem gerði Júgóslava að ólympíumeisturum árið 1984, tók við liðinu á ný í sumar. Vujovic er hins vegar fram- kvæmdastjóri landsliðsins, sér um fjármál þess og skipulagn- ingu. Hann er þjálfari Meta- loplastica Sabac, frægasta félags- liðs Júgóslavíu. UBK-Grindavík (47-23) 70-69 5-2, 12-6, 21-12, 30-16, 40-18, (47-23), 53-28, 5&48, 61-56, 66-60, 66-67, 67-69, 70-69. Stig Breiðabliks: Michael Thoele 24, Halldór Kristmannsson 17, Birgir Mikaelsson 13, Agnar Olsen 8, Einar Hannesson 4, Daði Sigurþórsson 4. Stig Grindavíkur: Rodney Dobart 20, Helgi J. Guðfinnsson 17, Guðmund- ur Bragason 13, Hjörtur Harðarson 8, Marel Guðlaugsson 5, Brynjar Harðar- son 4, Páll Vilbergsson 2. Fráköst: UBK 31, Grindavík 33. 3ja stiga körfur: UBK 20/9, Grinda- vík 19/5. Dómarar: Jón Bender og Kristján Möller, slakir og gerðu aragrúa mis- taka. Áhorfendur: 200. Maöur leiksins: Halldór Krist- mannsson, lR DHL-deildin í körfuknattleik: Blikarnir koma enn á óvart Breiðablik kom geysilega á óvart á heimavelli sínum í gærkvöldi með því að leggja Grindvíkinga að velli með eins stigs mun, 70-69. Grindvík- ingar komust tveimur stigum yfir 30 sekúndum fyrir leikslok, Breiðablik stillti upp í sókninni og tíminn leið, og þegar fimm sekúndur voru eftir lét Halldór Kristmannsson þriggja stiga skot ríða af og boltinn rataði rétta leið. Þegar upp var staðið lenti sigurinn sanngjamt Blika megin og sigurgleði þeirra var ólýsanleg að vonum i leikslok. „Við lékum stórvel í fyrri hálfleik en í þeim síðari slökuðum við á og vömin var ekki eins beitt. Grindvík- ingar komust þá inn í leikinn. Það eru öll stig úr þessu geysilega dýr- mæt og það er vonandi að við höld- um áfram á sömu braut. Ég vissi alltaf að boltinn færi ofan í körfuna. Það var sæt tilfinning," sagði Hall- dór Kristmannsson, stjarna Blikanna í leiknum. Blikar hleyptu Grindvíkingum alltof nærri sér því þeir náðu á tíma yfirburðaforystu og ekkert benti til að þeir misstu hana. í síðari hálfleik beittu Grindvíkingar pressuvörn og gerði sú vöm Blikunum erfitt fyrir. Eins var vörn Blika ekki eins beitt og í fyrri hálfleik. Grindvíkingar léku þennan leik lengstum mjög illa og vom stundum eins og byrjendur. Það þarf örugg- lega að fara langt aftur til að finna jafnt lélegt stigaskor hjá Grindvík- ingum í einum hálfleik. Margt gott býr í Blikaliðinu og er Birgir Guðbjömsson að gera skín- andi góða hluti með lið sem ekki var spáð miklu fyrir tímabilið. Michale Thoele og Halldór Kristmannsson vom bestir hjá Blikum en þó má hrósa öllum liðsmönnum sem fengu að reyna sig í leiknum. Fyrir utan tíu mínútna leikkafla í síðari hálfleik voru Grindvíkingar ekki með í þessum leik. Fyrri hálf- leikur var afleitur hjá þeim og ekk- ert í líkingu við körfubolta. Ekki er hægt að taka neinn leikmann Grind- víkinga út eftir þennan leik. -JKS Góður sigur Vals DV, Sauðárkróki Valsmenn unnu góðan sigur á Tindastóli á Sauðárkróki í gær og halda þar með enn í von um að halda sæti sínu í deildinni. Valsmenn léku miklu betur og höfðu yfirhöndina nær allan leiktimann. Ronald Baileyss átti enn einn stórleikinn með Val og þeir Ragnar Þór Jónsson og Guðni Hafsteinsson stóðu sig vel. Heimamenn vom mjög daprir og vanmátu greinilega andstæðinga sína. Torrey John var sá eini í Tindastólsliðinu sem sýndi sitt rétta andlit. -GG Þór stóð í Keflavík DV, Keflavík: „Það var slæmt að tapa þessum leik eftir að hafa spilað vel lengst af. Það kom slæmur kafli hjá okkur í síðari hálfleik þegar við fórum að spila stuttar sóknir og létum ekki leikkerfin rúlla,“ sagði Konráð Óskarsson, fyrirliði Þórs, eftir tap gegn Keflvíkingum, 93-84. Leikurinn var jafn og skemmtilegur og heimamenn tryggðu sér ekki sigur fyrr en á lokamínútunum. Vendipunkturinn kom þegar staðan var 81-82 fyrir Þór og 4 mínútur voru eftir en þá náðu Keflvíkingar að stöðva lekann með sterkri vöm og á eftir fylgdi hraður og skammtilegur leikur Keflvíkinga á meðan Þórsarar voru að reyna að skora tvær körfur í einni sókn. Lenear Bums var mjög öflugur hjá Keflvíkingum og þeir Falur Harðarson og Guðjón Skúlason léku vel í seinni hálfleik. Davíð Grissom lék sinn fyrsta leik í langan tíma og stóð fyrir sínu. Hjá Þór átti Konráð mjög góðan fyrri hálfleik og þeir Fred Williams og Birgir Birgisson skiluðu hlutverkum sínum vel. -ÆMK Veitir ekki af stigum „Vonandi erum við að rífa okkur upp úr þeim öldudal sem við höfum verið í. Þeir virkuðu hálfþreyttir eftir bikarleikinn og það var okkur í hag. Þetta var ánægjulegur sigur og ekki veitir af stigunum ef við ætlum í úrslitin,“ sagði Jón Örn Guðmundsson eftir sigur ÍRá ÍA, 96-83. Davíð Grissom lék með Keflavík Það var í upphafi síðari hálfleiks að munurinn jókst á milli liðanna. ÍR spilaði góðan varnarleik með John Rhodes í broddi fylkingar og um miðjan seinni hálfleik leiddi ÍR með 17 stigum. ÍA náði að minnka munin í 7 stig en reynsla ÍR-inga og skynsemi í lokin réðu úrslitum. Rhodes var bestur hjá ÍR og þeir Herbert, Jón Öm og Eiríkur léku vel. Hjá ÍA voru Milton Bell og Haraldur Leifsson bestir og Dagur Þórisson kom sterkur inn í lok leiksins. -ÞG Haukar enn í skýjunum Bikarmeistarar Hauka unnu góðan sigur á Skallagrími í frekar tilþrifalitlum leik í Strandgötunni í gær, 86-69. Það var greinilegt að Haukamenn voru ekki komnir niður á jörðina frá því í bikarleiknum. Þeir virkuðu kraftlausir og áhugalitlir í fyrri hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var mjög rólegur en Borgnesingar höfðu þó alltaf frumkvæðið og þar var Ermolinskij fremstur í flokki en hann spilaði vel í vörn og sókn og hirti mörg fráköst. í þeim síðari náðu Haukar 10 stiga forskoti sem þeir héldu út leiktímann. Borgnesingar náðu aðeins að ógna þeim þegar þeir skiptu yfir í svæðisvörn en það dugði ekki til. Skallagrímsmenn báru enga virðingu fyrir bikarmeisturunum og létu finna vel fyrir sér. Þeir spiluðu ágætlega í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik flýttu þeir sér of mikið og hefðu mátt nota Ermolinskij meira sem var þeirra besti maður og Bragi Magnússon lék vel. Haukamenn virkuðu ekki sannfærandi og geta mun betur en þeir sýndu í þessum leik. Jason Willford og Jón Arnar Ingvarsson voru bestir Haukamanna. -SS Jón Ö. Guðmundsson - 21 stig. Keflavík-Þór (48-55) 93-84 44, 16-19, 22-30, 29-39, 40-45, 40-51, (48-55), 52-61, 70-67, 77-78, 81-82, 93-82, 93-84. Stig Keflavlkur: Lenear Bums 29, Falur Harðarson 17, Guðjón Skúlason 16, Sigurður Ingimundarson 13, Davíð Grissom 12, Albert Óskarsson 4, Jón Kr. Gíslason 2. Stig Þór: Fred Williams 23, Konráð Óskarsson 20, Kristinn Friðriksson 14, Birgir Birgisson 12, Böðvar Kristjáns- son 10, Stefán Hreinsson 5. Fráköst: Keflavík 31, Þór 35. 3ja stiga körfur: Keflavík 7, Þór 5. Dómarar: Leifúr S. Garðarsson og Helgi Bragason, gerðu fá mistök. Áhorfendur: 350. Maður leiksins: Lenear Bums, Keflavík. Tindastóll-V alur (37-40) 75-93 0-2, 9-12, 23-21, 27-29, 33-33, (37-40), 42-52, 49-63, 57-70, 66-76, 75-93. Stig Tindastóls: Torrey John 28, Hinrik Gunnarsson 12, Pétur Guð- mundsson 8, Amar Kárason 8, Ómar Sigmarsson 6, Lárus Dagur Pálsson 4, Atli Þorbjömsson 4, Baldur Einarsson 4. Stig Vals: Ronald Baileys 40, Ragn- ar Þór Jónsson 18, Guðni Hafsteinsson 14, Bjarki Guðmundsson 8, Sveinn Zoega 4, Gunnar Zoega 4, Bjarki Gúst- afsson 2, Guðbjöm Sigurðsson 2, Berg- ur Emilsson 2. 3ja stiga körfur: Tindastóll 6, Valur 5. Dómarar: Kristinn Albertsson og Þorgeir Jón Júliusson, dæmdu vel. Áhorfendm-: 320. Maður leiksins: Ronald Baileyss, Val. IR-Akranes (48-41) 96-83 2-0, 6-5, 14-13, 21-20, 32-26, 39-27, (4341), 5343, 6449, 76-59, 85-70, 88-81, 96-83. Stig ÍR: Herber Amarson 26, John Rhodes 25, Jón Öm Gðmundsson 21, Ehíkur önundarson 14, Eggert Garð- arsson 4, Broddi Sigurðsson 4, Guðni Einarsson 2. Stig Akraness: Milton Bell 30, Har- aldur Leifsson 17, Bjami Magnússon 14, Dagur Þórisson 9, Jón þór Þórðar- son 6, Elvar Þórólfsson 3, Sigurður Kjartansson 2, Brynjar Sigurðsson 2. Fráköst: ÍR 28, ÍA 31. 3ja stiga körfúr: ÍR 3, ÍA 4. Vftanýfing: ÍR 25/30, ÍA 13/20. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Rögnvaldur Hreiðarsson, dæmdu vel. Áhorfendur: 240. Maðtnr leiksins: John Rhodes, ÍR. Jordan í stuði Michael Jordan átti enn enn stórleikinn með Chicago í nótt þegar liðið vann öruggan sigur á Sacramento Kings. Jordan skoraði 27 stig og með sigrinum settu leikmenn Chicago nýtt met í NBA-deildinni. Liðið hefur unnið 40 leiki á tímabilinu en aðeins tapað þremur og engu liði í NBA hefur tekist að byrja keppnistímabilið eins vel frá upphafi. í nótt heimsækja Jordan og félagar hans Los Angeles Lakers og er þessa leiks beðið með mikilli eftirvæntingu. Haukar-Skallagrímur (39-35) 86-69 12-12, 19-23, 27-26, (39-35), 41-42, 5949, 68-60, 80-67, 86-69. Stig Hauka: Jón Amar Ingvarsson 23, Jason Williford 20, Pétur Ingvarsson 9, Bergur Eövars- son 9, ívar Ásgrfmsson 6, Sigfús Gizzurarson 6, Björgvin Jónsson 6, Þór Haraldsson 4, Sigurður Jónsson 3. Staðan A-riðill: Haukar 25 21 4 2205-1924 42 Njarðvík 24 20 4 2178-1897 40 Keflavik 25 17 8 2320-2072 34 Tindastóll 25 13 12 1924-1954 26 ÍR 25 11 14 2035- 2052 20 Breiðablik 25 7 18 1981-2298 14 B-riðill: Grindavík 25 17 8 2316-2035 34 KR 24 13 11 2037-2033 26 Skallagr. 25 12 13 1951-2011 24 Akranes 25 7 18 2153-2354 14 Þór, A. 25 7 18 2091-2106 14 Valur 25 4 21 1919-2375 8 Síðasti leikurinn í þessari umferð fer fram í kvöld en þá taka Njarðvíking- ar á móti KR-ingum. Á sunnudags- kvöldið er svo heil umferð en þá leika: ÍA-UBK, Skallagrímur-ÍR, Grindavík-Njarðvik, Þór-Haukar, KR-Tindastóll og Valur-Keflavík. Allir leikirnir hefjast klukkan 20. NBA í nótt: Jordan frábær og nýtt met hjá Chicago Leikmenn Chicago Bulls með Michael Jordan í borddi fylking- ar gerðu sér lítið fyrir í nótt og settu stórglæsilegt met í NBA-deildinni í körfuknattleik. Chicago vann enn einn sigur- inn í nótt og ekkert lið frá upp- hafi hefur byrjað betur í deild- inni. Þetta var 40, sigurleikur liðsins en aðeins hefur liðið tap- að þremur leikjum. Úrslitin í NBA-deildinni í nótt urðu þessi: Sacramento-Chicago .......105-85 Charlotte-Houston .......111-116 Detroit-Indiana............87-70 Miami-76-ers.............124-104 NY Knicks-Orlando .......110-102 Dallas-Seattle...........103-100 Milwaukee-Denver.........103-102 Jordan var frábær Michael Jordan átti enn einn stórleikinn í nótt með Chicago og skoraði 27 stig í leiknum gegn Sacramento. Byrjun Chicago er frábær en reyndar er varla hægt að tala um byrjun því keppnis- timabilið í NBA-deildinni er um það bil hálfnað. Bill Wennington skoraði 14 stig fyrir Chicago og Toni Kukoc og Steve Kerr 12 hvor. „Sumir leikmenn sem léku stórt hlutverk í þessum leik fá nöfn sín væntanlega skráð á spjöld sögunnar og í metabækur . Auðvitað er þessi byrjun dálít- ið til að vera stoltur af en við eigum enn mikla vinnu fyrir höndum á langri leið okkar að meistaratitlinum," sagði Jordan eftir leikinn en hann og félagar hans í Chicago mæta LA Lakers í deildinni um helgina. Mitch Richmond skoraði 30 stig fyrir Sacramento í leiknum og Tyus Edney 17. Ótrúlegar tölur Ótrúlegar tölur litu dagsins ljós hjá Detroit og Indiana. 70 stig er ekkert skor i deildarleik og ótrúleg frammistaða. Otis Thorpe skoraði 23 stig fyrir Detroit en Rik Smits skoraði 21 fyrir Indiana. Aldrei þessu vant sigraði Knicks Orlando. Þetta var annar sigur Knicks í sex leikjum gegn Orlando. Patrick Ewing skoraði 23 stig fyrir Knicks og tók 14 frá- köst. Anthony Mason skoraði 21 og Hubert Davis 17. Nick Anderson var með 30 stig fyrir Orlando og Dennis Scott 22. Horace Grant skoraði 19 stig og Shaquille O’Neal 18. Hakeem Olajuwon skoraði 32 stig fyrir Houston gegn Charlotte. Clyde Drexler náði 20. þrennunni á ferlinum. Hann skoraði 16 stig, tók 10 fráköst og gaf 14 stoðsendingar. -SK íþróttir Júlíus Hafstein, formaöur ÓI: Leikarnir ekki í tveimur löndum á sama tíma „Það er alveg ljóst að Smáþjóða- leikar fara ekki fram í tveimur löndum í einu. Þar af leiðandi verð- ur ekki sundkeppni Smáþjóðaleika á íslandi í Lúxemborg. Ef aðrar þjóðir vilja skipuleggja einhverja aðra íþróttakeppni um leið og Smá- þjóðaleikarnir eru haldnir á íslandi þá er það raunverulega ekkert sem við getum gert að og okkur óvið- komandi. Aftur á móti geri ég ráð fyrir að samstarfsþjóðir okkar, hin- ar sjö sem eru í samtökum smá- þjóða Evrópu, muni ekki líta það hýru auga ef eitt sérsambandið hjá einni þjóðinni færi að skipuleggja íþróttamót á sama tíma og þær væru að keppa uppi á íslandi,“ sagði Júlíus Hafstein, formaður ís- lensku ólympíunefndarinnar, í spjalli við DV í gær. Eins og fram kom í DV í gær rik- ir megn óánægja innan sundsam- bandsins með ákvörðun borgaryfir- valda að ráðast ekki í byggingu á 50 metra yfirbyggðri keppnislaug fyrir Smáþjóðaleikana hér á landi 1997. Kópavogur sýnir keppninni áhuga Júlíus Hafstein hélt áfram: „Þetta er ekki eina ólympiu- nefndin sem tekur ákvörðun um þetta, það er stjóm Smáþjóðaleik- ana en þar eiga sæti fulltrúar þjóð- anna átta í stjórninni. Ég er formað- ur þar næstu tvö árin. Þetta mál og að fara þessa leið er ekki á dagskrá. Sé svo aftur á móti skoðað hvernig aðrar þjóðir standa að þessu er þeg- ar ljóst að eftir leikana hér á landi verða þeir næst í Liechtenstein og þar er búið að ákveða og með sam- þykki allra þjóðanna að sundkeppn- Landsmót Ungmennafélags ís- lands árið 2001 verður haldið á Eg- ilsstöðum, í umsjón UÍA. Þetta var ákveðið á stjómarfundi UMFÍ um síðustu helgi. UÍA hélt landsmót síðast árið 1968 og þá fór það fram að Eiðum. Þrír aðilar sóttu um mótið en auk in fer fram í 25 metra innilaug. Laugin býður upp á þokkalegar að- stæður en þar er hins vegar lítið áhorfendarými. Þótt Sundsamband Islands telji sig ekki geta haldið leikana hér í 50 metra útilaug, sem þó verður kannski löguð mikið til áður en til leikanna kernur, þá mun það verða gert hjá öðrum þjóðum. Ég mun fljótlega eiga viðræður við embættismenn borgarinnar um þetta mál, væntanlega í næstu viku eða þar næstu, og þá hafa líka full- trúar frá Kópavogi sýnt því áhuga að ræða við okkur um framkvæmd sundkeppninnar. Breyta dagskrá leikanna Ef Sundsambandið treystir sér ekki til að framkvæma keppnina hér verður kannski að breyta dag- skrá leikanna þannig að það verði einni greininni færri eða að bæta einhverri inn í. Það heldur ekki ólympiunefnd íslands sem tekur ákvörðun um það heldur stjórn smáþjóða Evrópu. Þessar stjómir hittast á fundi í Reykjavík í vor,“ sagði Júlíus. - Finnst ykkur ekki vonbrigði að ekki verði reist 50 metra innisund- laug fyrir Smáþjóðaleikana? „Það er okkur mikil vonbrigði og ég er ekkert að leyna því. Við vor- um komnir með góðar vonir um að borgin mynda ráðast í þessa bygg- ingu. Borgin vann ákveðna hönnun- arvinnu í haust en tók síðan ákvörðun um að gera þetta ekki,“ sagði Júlíus Hafstein. -JKS UÍA vora það UMSK og Fjölnir. Næsta landsmót verður haldið í Borgarnesi á komandi ári, 1997. Unglingalandsmót verður næst haldið árið 1998 en mótsstaður verð- ur ákveðinn í október á þessu ári. -VS Frjálsar íþróttir: Enn fýkur heims- metið í stöng Heimsmetið í stangarstökki kvenna innanhúss var bætt eina ferðina enn í gær þegar Sun Cai- yun frá Kína sveif yfir 4,27 metra á móti í Erfurt í Þýskalandi. Caiyun mætti Danielu Bar- tovu, helsta keppinaut sínum, á mótinu. Síðasta sunnudag stökk Caiyun yfir 4,21 metra og bætti þá fjögurra daga met Bartovu um fióra sentímetra. Báðar fóru yfir 4,22 metra en þá fór Caiyun í 4,27 og það réð sú tékkneska ekki við. Vala Flosadóttir stökk 4 metra slétta á dögunum og á greinilega ekki langt í land með að ná þeim allra bestu. -VS íslandsmótið í badminton Meistaramót íslands í bad- minton fer fram í húsum TBR við Gnoðarvog um helgina. Allt besta badmintonfólk landsins er á meðal keppenda og má búast við spennandi keppni. Á sunnu- dag klukkan 14 hefiast úrslit í meistaraflokki. í eins árs bann Breski knattspymumaðurinn Roger Stanislaus, leikmaður með enska 3. deildar liðinu Layton Orient, var í gær úr- skurðaður í eins ár keppnisbann af enska knattspymusamband- inu en kókaín fannst í þvagi hans þegar hann gekkst undir lyfiapróf fyrir nokkru. Noregur vann Norðmenn komu á óvart í gær og lögðu Júgóslava á Lottó-mót- inu í hándknattleik. Lokatölur urðu 24-23 og skoruðu Norð- menn sigurmarkið úr aukakasti á lokasekúndunni. Júgóslavar höfðu lengst af undirtökin og voru mest 7 mörkum yfir en Norðmenn áttu frábæran enda- sprett og tryggðu sér sigur. Þá unnu Danir sigur á Rúmen- um, 20-16, en íslendingar mæta Rúmenum í kvöld. Barcelona slapp Barcelona náði aðeins jafntefli gegm 3. deildar liðinu Nu- mancia, 2-2, í fyrri leik liðanna í spænsku bikarkeppninni í knatt- spyrnu í gær. Herrakvöld Leifturs Herrakvöld Leifturs verbur haldið á laugardagskvöld í Dugguvogi 12 og hefst klukkan 20. Tvö þorrablót hjá HK Til að forðast misskilning skal tekið fram að herrakvöld og þorrablót handknattleiksdeildar HK verður i Hákoni digra laug- ardagskvöldið 3. febrúar, en þorrablót knattspymudeildar HK á sama stað 10. febrúar. Lakers og Chicago í beinni útsendingu? - á Stöö 2 í nótt Svo getur verið að Stöð 2 sýni í beinni útsendingu leik Los Ang- les Lakers og Chicago Bulls í NBA-deildinni í körfuknattleik í í nótt. Forsvarsmenn stöðvarinn- ar vinna öllum árum að ná þess- um leik enn eins og körfu- boltaunnendur vita mætast þama tveir af frægustu körfu- boltamönnum heims, Micael Jor- dan hjá Chicago og Magic John- son hjá Lakers. „Við erum þokkalega bjartsýn- ir á að þetta takist. Þetta ætti að koma endanlega á ljóst þegar líð- ur á fóstudaginn," sagði Valtýr Björn Valtýsson, iþróttatjóri Stöðvar 2, við DV í gær.-GH Landsmótið 2001 verður haldið á Egilsstöðum Stig Skallagríms: Alexander Ermolinskij 25, Bragi Magnússon 17, Tómas Holton 8, Grétar Guð- laugsson 6, Ari Gunnarsson 5, Sveinbjöm Sigurðs- son 4, Sigmar Egilsson 2, Hlynur Leifsson 2. Fráköst: Haukar 52, Skallagrímur 30. 3ja stíga körfur: Haukar 2, Skallagrímur 4. Dómarar: Bergur Þór Steingrimsson og Eggert Þór Aðalsteinsson, sæmilegir. Áhorfendur: 100. Maður leiksins: Jason Williford, Haukurn. 123 Ferða vinnmgar IKM t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.