Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1996, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1996, Side 18
26 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 Iþróttir unglinga Snorri F. Welding, framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna, í viðtali við DV: „Boltinn er besta vopnið gegn vímunni“ Unglingaliðið, u-18 ára í knattspyrnu 1989, lagði fram vinnu við byggingaframkvæmdir í Krýsuvík nokkra daga sem mæltist vel fyrir. Þessi tengsl þurfa að komast á aftur. Frá vinstri: Lárus Loftsson, landsliðsþjálfari, Helgi Þorvalds- son, stjórnarmaður KSÍ, Sveinn Sveinsson, stjórnarmaður KSÍ, Flóki Halldórsson, KR, Kristinn Tómasson, Fylki, Arnar Gunnlaugsson, ÍA, atvinnumaður í Frakklandi, Þórhallur Dan Jóhannsson, Fylki, og Lárus Orri Sigurðsson, ÍA, atvinnumaður í Englandi. Sá sem er að ganga inn um dyrnar í baksýn (ef sést), er Þórður Guðjónsson, ÍA, atvinnu- maður í Þýskalandi. DV-myndir Hson Hér á eftir eru glefsur úr viðtali við framkvæmdastjóra Krýsuvíkur- samtakanna í desember 1989 og fer vel á því af ýmsum ástæðum. Því miður náðist ekki í Snorra, sem var í fríi. Laugardaginn 9. desember 1989 hélt unglingalandsliðið í knatt- spyrnu til Krýsuvíkurskólans. Tilef- nið var að leggja fram vinnu við uppbyggingu á húsnæði skólans, en sú bygging hafði í um 20 ár staðið auð og í mikilli niðurníðslu. Þessi ferð var farin að frumkvæði Lárus- ar Loftssonar landsliðsþjálfara. Árið 1986 festu Krýsuvíkursam- tökin kaup á hinu gríðarlega mikla húsi í Krýsuvík og var kaupverðið 7 milljónir króna. 1987 var síðan Krýsuvíkurskóli vígður. Krýsuvíkursamtökin hafa starfað af miklum dugnaði og hafa háleit markmið, - því á stefnuskrá þeirra er að sinna þeim unglingum sem hafa misstigið sig í þjóðfélaginu og þurfa hvað mest á hjálp að halda og eru þar efst á blaði þau ungmenni sem hafa ánetjast fíkniefnum. Árið 1989 dvöldust í Krýsuvík sex vistmenn og voru margir á biðlista. I dag eru vistaðir um 20 unglingar. „Boltinn besta vörnin" Framkvæmdastjóri Krýsuvíkur- samtakanna, Snorri F. Welding, var afar þakkláfur vegna áhuga ung- lingalandsliðsins og forsvarsmanna þess 1989 og sagði meðal annars við það tækifæri: Snorri Welding, framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna. „Boltinn er besta vopnið gegn ví- munni - er orðtak sem við hér í samtökunum höfum oftlega notað. Það er okkar skoðun og sjálfsagt fleiri að albesta forvarnarstarfið gegn neyslu vímuefna meðal ung- linga sé að þeir leggi stund á íþrótt- ir og þá ekki hvað síst boltaíþróttir. Það er mér þvi mikið gleðiefni að unglingalandsliðið í fótbolta er mætt hér til að leggja hönd á plóg- inn. í náinni framtíð er á dagskrá að hanna knattspyrnuvöll í Krýsuvík - svo samtökin vonast því eftir góðu samstarfi við knattspyrnuforust- una. Heimsóknir í Krýsuvíkur- skóla, af og til, af drengjum sem skara frarn úr í knattspyrnu myndi virka mjög hvetjandi á þá unglinga sem koma til með að dvelja í skólan- um - ekki myndi það síður hafa góð félagsleg áhrif á vistmenn, voru orð Snorra Welding 1989. Rétt er að komi fram að knatt- spyrnuvöllurinn er ekki enn orðinn að veruleika í Krýsuvík. Sveinn Sveinsson, þá stjórnarm- aður KSÍ, tók mjög jákvætt beiðni framkvæmdastjórans: „Þessari starfsemi sem er að fara af stað í Krýsuvík munum við liðsinna eftir mætti - og kæmu þá sterkast út samskipti á félags- og íþróttalegum grundvelli." Hvað um efndir? Hefur KSÍ haldið tengslum við Krýsuvíkursamtökin síðan 1989? Ekki hefur örlað á því og ,er það miður. Þarna er svo sannarlega verkefni fyrir knattspyrnuforystuna og kærkomið tækifæri til að leggja sitt þunga lóð á vogarskálina í hinni erfiðu baráttu gegn vágestinum. Umsjón Halldór Halldórsson Fátt gæti verið jafn hvetjandi fyr- ir hin ólánsömu ungmenni og að fá yngri landsliðsmenn annað slagið í heimsókn til skrafs og ráðagerða og taka eins og eina æfingu með vist- mönnum. Slík uppákoma ætti að vera mikil uppörvun fyrir þá. í sambandi við knattspyrnuvöll- inn ókomna væri það einnig hið besta mál ef KSÍ reyndi af öllum mætti að hjálpa við þá uppbyggingu í Krýsuvík. Það yrði knattspyrnu- sambandinu til ævarandi sóma. íþróttaiðkun er menning Mikil umræða hefur verið 1 gangi undanfarið um helgarsvall og of- beldi unglinga að næturlagi í miðborg Reykjavíkur sem annars staðar á landinu. Til er fólk sem hefur þá skoðun að allt sem þurfi til að leysa vandann sé að opna skemmtistaði fyrir þessa ólánsömu unglinga. En er það nokkur lausn? Er nokkur munur á því að svalla innan húss eða utan? Alls enginn. Eitt sterkasta mótefni gegn þessum ófógnuði er tvímælalaust efling á allri íþróttastarfsemi jafiit í Reykjavík sem annars staðar á landinu. Það er því skylda ríkis- og borgaryfirvalda að styðja af fremsta megni við bakið á því mikilvæga menningarhlutverki sem íþróttasamtökin i land- inu gegna. Ekki bara í íþróttalegu samhengi heldur einnig í félagslegu tilliti. íþróttafélögin spanna einnig yfir mjög breitt svið sem uppeldisstöð ungmenna. DV Handbolti kvenna: Valur taplaus Valsstúlkurnar unnu í 3. um- ferð 1. deildar. Þær gerðu eitt jafntefli gegn FH, 13-13. Úrslit leikja urðu annars þessi. Valur-Vikingur 11-9 Valur-FH 13-13 Valur-Stjarnan 16-10 Víkingur-Stjarnan 23-11 Víkingur-FH 17-11 FH-Stjarnan 15-10 Lokastaöan: Valur 3 2 1 0 40-32 5 Víkingur 3 2 0 1 49-33 4 FH 3 111 3M0 3 Stjaman 2 0 0 3 31-54 0 Handbolti - 4. flokkur: KR með forystu KR-strákarnir í 4. flokki eru efstir í 2. deiid eftir 3. umferð, gerðu þó jafntefli gegn Keflavík. KR-Þór, Þorlákshöfii26-12 KR-Keflavík 20-20 KR-ÍBV. 26-15 KR-HK 22-20 Þór, Þorlákshöfn-Keflavík 16-15 Þór, Þorlákshöfn-ÍBV 23-16 Þór, Þorlákshöfn-HK 20-19 Keflavík-ÍBV 26-12 Keflavík-HK 13-14 ÍBV-HK 7-23 Lokastaðan: KR 4 3 1 0 94-67 7 Þór, Þorl.h. 4 3 0 1 71-76 6 HK 4 2 0 2 76-72 4 Keflavík 4 1 1 2 74-62 3 ÍBV 4 0 0 4 60-98 0 Handbolti, 4. fl. kvenna: Fullt hús hjá ÍR ÍR-stúlkurnar sigruðu alla sína leiki i 3. umferð íslandmótsins í handbolta. Úrslit urðu þessi. ÍR-Grótta 20-13 ÍR-FH 15-14 ÍR-Selfoss 21-12 ÍR-Valur 16-10 Grótta-FH 16-16 Grótta-Selfoss 20-6 Grótta-Valur 16-15 FH-Selfoss 25-11 FH-Value 10-8 Valur-Selfoss 15-14 Lokastaðan: ÍR 4 4 0 0 72-49 8 FH 4 2 1 1 65-50 5 Grótta 4 2 1 1 65-59 5 Valur 4 1 0 3 48-56 2 Selfoss 4 0 0 4 45-81, 0 Handbolti 4. fl. kvenna: KR á toppnum í 3. umferð íslandsmótsins unnu KR-stelpurnar alla leii.i sína í 2. deild. Úrslit urðu þessi. KR-Stjarnan 18-12 KR-Haukar 9-8 KR-Fjölnir 21-5 Stjarnan-Haukar 9-14 Stjaman-Fjölnir 18-11 Haukar-Fjölnir 20-9 Lokastaöan: KR 3 3 0 0 48-25 6 Haukar 3 2 0 1 42-27 4 Stjarnan 3 1 0 2 3643 2 Fjölnir 3 0 0 3 25-59 0 Handbolti - 4. fl. karla: Hörð keppni Nokkuð jöfn keppni var í 3. um- ferð 3. deildar í 4. flokki karla. Úr- slit urðu þessi. Haukar-Fjölnir 27-14 Haukar-Selfoss 19-19 Fjölnir-Selfoss 18-18 Lokastaðan: Haukar 2 1 1 0 46-33 3 Selfoss 2 0 2 0 37-37 2 Fjölnir 2 0 1 1 32-45 1 Karfa - 8. flokkur karla: Keflavík (B) best Keflavík sigraði í 2. umferð ís- landsmótsins í RE-riðli. Urslit leikja urðu þessi. Fylkir(B)-Keflavík(B) 26-27 Keflavík(B)-KR(B) 38-26 KR(B)-Fylkir(B) 38-22 Lokastaðan: Keflavík(B) 2 2 065-52 4 KR(B) 2 1 164-70 2 Fylkir(B) 2 0 258-65 0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.