Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Side 18
18
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 JLlV
Já, mánudagar - það er eitthvað
skemmtilegt við þá og þessi mánu-
dagur var engin undantekning. Ég
var flogin út um dymar heima hjá
mér fyrir átta, niður í Kvenna-
skóla þar sem ég eyöi mínum
morgnum. Ég skellti mér á nem-
endaráösskrifstofuna þar sem ég
hlustaði á skilaboö símsvarans og
gramsaði í pappírum. Loks opnaði
ég skólabækur - líklega helst sam-
viskunnar vegna þar sem þær
verða svolítið útundan þessa dag-
ana!
Skrifkrampi og garna-
gaul
Um hálftíu tóku skólatímarnir
úr öllum áttum menntageirans.
Við kynntum tillögur um vegg-
spjöld sem okkur bárust frá Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands,
bækling sem við höfum þýtt úr
sænsku og ýmislegt fleira.
Himnaríki og helvíti
Þegar allir höfðu viðrað skoðan-
ir sínar hélt ég áfram fór minni
um miðbæinn og gekk sem leið lá
niður í skóla. Þar hitti ég árshátíð-
arnefnd skólans og sýningarhóp
sem var á stífri æfingu ásamt leik-
stjóra. Þann 7. mars verða herleg-
heitin frumsýnd í Loftkastalanum
og er þetta sprenghlægilegt
spunaleikrit um himnaríki og hel-
Dagur í lífi Sigríðar Maríu Tómasdóttur, formanns nemendafélags Kvennaskólans í Reykjavík og í stjórn jafningjafræðslu framhaldsskólanema:
Baríst fvrír jafningjafræðslu
við þar sem lá við skrifkrampa hjá
greinarhöfundi - svo mikið var
glósað. í matarhléinu hitti ég sam-
starfsmenn mína hjá nemendafé-
laginu og var mikið skeggrætt
enda nóg um að vera. Senn líður
að Tjarnardögum, árshátíð og
fleiru skemmtilegu. Matarhléið tók
hins vegar ekki tillit til þeirrar
umræðu og því var arkað með
tóman maga í tíma og fór garna-
gaulið fljótlega að ergja mig.
Ég rölti yfir í Hitt húsið en þar
hefur jafningjafræðsla framhalds-
skólanema aðsetur. Margir hafa
sýnt þessu verkefni mikinn áhuga
nú þegar en verkefnið er enn á
undirbúningsstigi. Þar hitti ég fyr-
ir starfsmann okkar, Magnús
Ámason, og biðu mörg verkefni
úrvinnslu. Niðurstöður kynning-
arfundar, sem haldinn var þá um
helgina, voru ræddar en á fundinn
mættu fulltrúar allra framhalds-
skóla á landinu. Síðan var sest fyr-
ir framan tölvuskjáinn og lögð
lokahönd á beiðni til borgarstjórn-
ar um styrk vegna starfshóps í
jafningjafræðslu næstkomandi
sumar. Er beiðnin tók á sig endan-
lega mynd var ekki seinna vænna
en að koma henni í réttar hendur.
Stefnan var þvi tekin á Ráðhúsið, í
blíðskaparveðri, þar sem beiðnin
fékk nýjan húsbónda.
Raunir námsmanna
Áfram voru „tveir jafnfljótir"
notaðir og gengið til baka á mitt
annað heimili þessa dagana, Hitt
húsið. Á svona dögum verður
manni oft hugsað til þess hversu
ljúft það er að sækja skóla í mið-
bænum því stutt er á alla helstu
staði - sérstaklega þegar um er að
ræða bláfátæka námsmenn eins og
mig sem hafa í mesta lagi efni á
ófullkomnu reiðhjóli sem farar-
tæki.
Annpíki dagsins ætlaði seint að
taka enda því klukkan hálfflmm
var ráðgerður fundur í mennta-
málaráðuneytinu. Þennan fund sit-
ur verkefnisstjórn jafningja-
fræðslu sem samanstendur af fólki
viti þar sem dansi, leik og söng er
fléttað skemmtilega saman.
Þegar ég hafði hlegið mig mátt-
lausa yfir atburðum í „helvíti" lá
leiðin heim þar sem kaldur kvöld-
matur beið mín, enda klukkan að
ganga tíu. Þá eyddi ég dágóðri
stund með uppáhaldsfrænku
minni sem er rúmlega fimm mán-
aða kríli. Fljótlega fór þreytan að
segja til sín enda er sú stutta sann-
kallaður orkuþjófur. Eftir sjóðandi
heitt freyðibað var því haldið bein-
ustu leið inn í draumalandið.
Finnur þú fimm breytingar? 346
- Það er einn galli við þetta. Ef ég veiði hana þá fæ ég hana í morg-
unmat, hádegismat og kvöldmat næstu mánuðina.
Nafn:____________________________________________________________
Heimili: -_______________________________________________________
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fertugustu og
fjórðu getraun reyndust vera:
1. Þorsteinn Karlsson 2. Ragna Lára Ragnarsdóttir
Bæjargildi 110 Sunnuflöt 19
210 Garðabæ 210 Garðabæ
Myndirnar tvær virðast
við fyrstu sýn eins en þeg-
ar betur er að gáð kemur í
ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum
verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu
merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og
senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilis-
fangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun:
ELTA útvarpsvekjari að verðmæti kr.
4.275, frá Bræðrunum Ormsson, Lág-
múla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1.790. Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú frnun breytingar? 346
c/o DV, pósthóif 5380
125 Reykjavík