Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Qupperneq 21
JJV LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996
21
Alexander Joseph er 59
ára gamall en langt frá
því dauður úr öllum
æðum. Hann býr í Big
Water í Utah í Bandaríkj-
unum með átta konum
sínum og elskar þær all-
ar. Allar eru konurnar á
framabraut og að eigin
sögn finnst þeim frábært
að deila karlmanni, hús-
verkunum og matargerð
hver með annarri.
Á seinustu 25 árum hef-
ur Alexander átt 20 konur
og hann er faðir 19 barna.
í dag er elsta konan hans
49 en sú yngsta 25. Þau
deila þó ekki öll sama
þaki en búa öll við sömu
götuna - Alexander í eig-
in íbúð en konurnar deila
með sér þremur íbúðum.
„Ég hef alltaf haft gott
auga fyrir konum og þar
að auki elska ég börn.
Auðvitað ræðum við mik-
ið um samband manns og
kvenna í fjölskyldunni en
þetta er bara þáttur í til-
verunni. Mér finnst ekk-
ert athugavert að karl-
maður sækist eftir félags-
skap hressra og gáfaðra
kvenna. En þetta er ekki
bara spurning um hvað
ég vil. Konunum mínum
átta finnst mjög gaman að
eiga mig,“ segir Alexand-
er.
Allt byrjaði þetta um
1970 þegar Alexander var
þegar giftur og tveggja
barna faðir. Hann hitti þá
Diönu og fyrsta konan
hans virtist ætla að sætta
sig við það. Þegar hann
hitti Margréti seinna,
konu númer þrjú, var
fyrstu konunni hans,
Shirley, hins vegar nóg
boðið og yfirgaf hann.
„Þegar mér datt fyrst í
hug að vera með fleiri en
einni konu í einu hélt ég
fyrst að það yrði erfitt að
finna nógu áhugaverðar
konur. Það hefur hins
vegar ekki verið skortur
á þeim,“ segir Alexander
sem vill að vísu ekki
ræða um kynlíf sitt og
kvenna sinna opinber-
lega.
„Ef einhver kvenna
minna vill eyða nóttu
með mér þá þarf hún
bara að segja mér af því.
Ef tvær þeirra óska hins
vegar eftir því að eyða
einni og sömu nóttinni
með mér verða þær hins
vegar að útkljá málin sín
á milli - það er ekki mitt
vandamál - svo einfalt er
það.“
Smá-
auglýsingar
DV
L L M \ R l> L A H O L L L M O G G O Ð L M R E T T I
ÞÚG/FTÍR UlVNIil
Vjtf JLjJLJlJL■. ^JlVllNJULr
rCDFl Tlf DADfCAD
Jt*JLjtÍJLl 1MJLf Ælm.JlM.íSlB.IÍ.
Vaka-Helgafell, Manneldisráð, Krabbameinsfélagið og Hjartavernd
efna til uppskriftasamkeppni þar sem leitað er að uppskriftum að
hollum og góðum réttum. í verðlaun eru glæsilegir vinningar,
m.a. ferð fyrir tvo til Parísar. Það er því sannarlega til mikils að vinna.
Verðlaunauppskriftirnar birtast í nýrri matreiðslubók sem er eins
konar framhald af bókinni AF BESTU LYST, en sú bók hefur algjöra
sérstöðu meðal matreiðslubóka á íslenskum markaði. Þar er sú
kenning afsönnuð að hollur matur sé lítt spennandi.
*
»* m
m
*
*lt
1
v
l ,
I inngangi bókarinnar
AF BESTU LYST er að finna ýmsar
góðar ábendingar um hvernig matreiða
má holla og Ijúffenga rétti.
Vaka-Helgafell áskilur sér allan rétt til að birta uppskriftir sem berast í keppnina.
1. VERÐLAUN
Helgarferð
fyrir tvo til Parísar
með Flugleiðum, flug og gisting.
2.-5. VERÐLAUN
Úttekt hjá Vöku-Helgafelli
að verðmæti 5.000 kr. hver.
Sendu okkur uppskrift að
hollum og góðum rétti og þú átt
möguleika á að vinna þér inn
glæsilega vinninga. Úrslit verða
birt í DV laugardaginn 16. mars.
ÞÁTTTÖKUFRESTUR
RENNUR ÚT 1. MARS.
Utanáskriftin er:
Vaka-Helgafell
AF BESTU LYST
Síðumúla 6,
108 Reykjavík.
VAKA-HELGAfHL
Síðumúla 6, 108 Reykjavík