Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Síða 23
JjV LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996
skák 23
Torfl Leósson, 17 ára gamall nem-
andi í Menntaskólanum við Hamra-
hlíð, sigraði glæsilega á skákþingi
Reykjavíkur sem lauk í byrjun mán-
aðarins. Torfi skaut 91 keppanda
aftur fyrir sig og mörgum reyndum
köppum þar á meðal. Sigur hans
kom á óvart en Torfi virðist hafa
tekið skjótum framforum, eins og
títt er um unga menn.
Torfi hlaut 9,5 vinninga af 11
mögulegum og slapp taplaus frá
mótinu. Einar K. Einarsson, Páll
Agnar Þórarinsson og Bergsteinn
Einarsson voru þeir einu sem héldu
jafntefli gegn honum en átta lágu í
valnum: Jónas Jónasson, Björn
Þorfinnsson, Sverrir Norðíjörð,
Bragi Halldórsson, Júlíus Friðjóns-
son, Sigurður Daði Sigfússon, Sæv-
ar Bjarnason og Hrannar Baldurs-
son.
Þetta er fyrsta „alvörumótið“ þar
Skák
Jón L. Ámason
sem Torfi býr einn að efsta sætinu
en áreiðanlega ekki það síðasta.
Torfi hefur stundað nám í fram-
haldsdeild Skákskóla íslands frá
upphafi og hefur sýnt skáklistinni
mikla ræktarsemi sem nú er að
skila árangri. Þekking Torfa á skák-
fræðum ristir dýpra en margra jafn-
aldra hans, sem sumir hafa faÚið í
þá gryfju að tefla of mikið á kostnað
bóklegrar menntar.
í eftirfarandi skák teflir Torfi
byrjunina frumlega en nýtir sér síð-
an kenningar hugsuðarins Arons
Nimzowitsch á skemmtilega hátt.
Mistök andstæðingsins kosta peð og
eftir það gefur Torfi engin grið.
Skák í stíl Nimzowitsch, eða Bents
Larsens, þar sem herfræðin heppn-
ast fullkomnlega og frumleikinn
svífur yfir vötnunum.
Hvítt: Sævar Bjarnason
Svart: Torfi Leósson
Indversk vörn.
1. c4 g6 2. Rc3 Bg7 3. d4 c5 4. d5
f5!?
Þetta sést ekki á hverjum degi.
Svartur skiptir yfir í eins konar
blöndu af Benóní-vörn og hollenskri
vöm.
5. g3 Bxc3!? 6. bxc3 d6.
Og nú eru fram komin ákveðin
einkenni Nimzo-indverskrar varnar
(1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4). Svart-
ur gefur biskup sinn gegn því að
riðla peðastöðu hvíts í anda
Nimzowitsch.
7. Rh3 Da5 8. Dd3?
Staðsetning drottningarinnar
reynist ekki vel. Betra er 8. Db3.
8. - Rd7 9. Bf4?
Sést yfir snjallt svar svarts. Betra
er 9. f4, því að riddaranum verður
að halda frá e5.
9. - h6! 10. Bg2 g5 11. Bcl.
Fórnin 11. Bxg5? er vindhögg
vegna millileiksins 11. - Re5 o.s.frv.
11. - Re5 12. Dc2 Rxc4.
Svartur hefur uppskorið ríkulega
en skákin er auðvitað ekki búin.
13. 0-0 Rf6 14. f4 g4 15. RÍ2 Bd7
16. Hbl 0-0-0 17. Db3 Rb6 18. Rdl
c4 19. Db2.
Endatafl með peði minna eftir 19.
Db4 er skiljanlega ekki að skapi
hvíts en engu að síður var þetta eini
raunhæfi kosturinn.
19. - Rfxd5 20. Re3 Bc6! 21. Rxd5
Rxd5 22. Bd2 Dc5+ 23. Hf2 e5 24. fxe5
dxe5 25. e4 fxe4 26. Bxe4 HdfB 27.
Bel.
27. - Rf4! 28. gxf4 Bxe4 29. Db4
Dc7.
Nú er engin ástæða til að skipta
upp á drottningum. Kóngsstaða
hvíts er afar hæpin.
30. Hdl exf4 31. Hd4 Bd3 32. Bd2 f3
33. Bxh6.
Flýtir fyrir endalokunum en 33.
Hxg4 Hhg8 34. Hxg8 Hxg8+ 35. Khl
Dg7 36. Dc5+ Kb8 37. Bf4+ Ka8 38.
Bg3 Dxc3 er einnig vonlaust.
33. - He8 34. Bd2 g3.
- Og hvítur gafst upp.
Staða efstu manna á skákþinginu
var þessi:
1. Torfi Leósson 9,5 v.
2. Sigurður Daði Sigfússon 9 v.
3. -4. Áskell Örn Kárason og Berg-
steinn Einarsson 8,5 v.
5.-7. Ögmundur Kristinsson,
Kristján Eðvarðsson og Sævar
Bjamason 8 v.
8.-9. Páll Agnar Þórarinsson og
Ólafur B. Þórsson 7,5 v.
10.-18. Júlíus Friðjónsson, Bjöm
Þorfinnsson, Einar Hjalti Jensson,
Hrannar Baldursson, Bragi Hall-
dórsson, Arnar E. Gunnarsson,
Bragi Þorfinnsson, James Burden
og Jóhann H. Ragnarsson 7 v.
o.s.frv.
Hraðskákmeistari Reykjavlkur
varð Ólafur B. Þórsson.
Kasparov og tölvan
Tölvuforritið „Deep Blue“ frá
IBM, eða Tölvan dimmbláa, sem svo
hefur verið nefrid í fjölmiölum, virð-
ist vera verðugur andstæðingur
Garrí Kasparovs. Eftir fjórar skákir
af sex í einvígi þeirra í Fíladelfíu er
staðan jöfn, 2-2. Einvígið hefur vak-
ið mikla athygli um allan heim,
enda geta bæði skák- og tölvuáhuga-
menn fylgst með leikjunum beint á
Intemetinu.
Tölvan vann fyrstu skákina og þá
var strax sýnt að Garrí yrði að hafa
sig allan við. Honum tókst þó að
jafna metin í 2. skákinni eftir langt
endatafl og tveimur síðustu skákum
hefur lyktað með jafntefli.
Skoðum fyrstu skákina, sem er
glettilega vel tefld af tölvunnar
hálfu. Garrí tapar a.m.k. ekki
svona, allt að því mótspyrnulaust, á
hverjum degi.
Hvítt: Deep Blue
Svart: Garrí Kasparov
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4.
d4 Rf6 5. Rf3 Bg4 6. Be2 e6 7. h3
Bh5 8. 0-0 Rc6 9. Be3 cxd4 10.
cxd4 Bb4 11. a3 Ba5 12. Rc3 Dd6
13. Rb5.
í þriðju skákinni breytti tölvan út
af með 13. Re5 en hafði ekki árang-
ur sem erfiði.
13. - De7 14. Re5 Bxe2 15. Dxe2
0-0?!
Betra er 15. - a6 og taflið virðist í
jafnvægi.
16. Hacl Hac8?
Betra er 16. - Hfc8.
17. Bg5! Bb6.
Ef 17. - Hfd8 18. BxfB DxfB 19.
11 #
A A A
A 4l Af
A
&
A W A
A A A
s s
ABCDEFGH
Rxc6 Hxc6 20. Hxc6 bxc6 21. Rxa7 og
svartur er í vondum máluni.
18. Bxf6 gxf6.
111 nauðsyn. Ef 18. - DxfB 19. Rd7
o.s.frv.
19. Rc4 Hfd8 20. Rxb6 axb6 21.
Hfdl f5 22. De3 Df6
23. d5! Hxd5 24. Hxd5 exd5 25.
b3!
Vel leikið. Svarta peðastaðan er í
molum og eitthvað hlýtur að falla.
25. - Kh8 26. Dxb6 Hg8 27. Dc5 d4
28. Rd6 f4 29. Rxb7 Re5 30. Dd5 f3 31.
g3 Rd3 32. Hc7 He8 33. Rd6 Hel+ 34.
Kh2 Rxf2 35. Rxf7+ Kg7.
Ef 35. - Dxf7 36. Dxd4+ og virinur.
36. Rg5+ Kh6 37. Hxh7.
- Og Kasparov gafst upp. Ef 37. -
Kg6 38. Dg8+ Kf5 er 39. Rxf3 einfalt
og gott, með vinningsstöðu.
-JLÁ
BLÖNDUNARTÆKI FRÁ TEKA í MIKLU ÚRVALI
Einnar handar,
fyrir handiaug,
með botnventli
og lyftitappa.
Einnarhandar
fyrir eldhúsvask.
Tveggja handa,
fyrir baðkar,
með handsturtu
og barka.
Tveggja
handa, fyrir
eldhúsvask.
Einnar handar,
fyrir baðkar, með
handsturtu og
barka.
Tveggja handa, fyrir
handlaug, með botn-
ventli og lyftitappa. -
tryggi
SÍÐUMÚLA 34 (Fellsmúlamegin) SÍMI 588 7332 OPIÐ: MÁNUD.-FÖSTUD. 9-18 LAUGARDAGA 10-14