Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Qupperneq 30
laUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996
Björgvin Halldórsson tekur við einu platínuplötunni sem afhent var á íslensku tónlistarhátíðinni. DV-myndir ÞÖK
íslensku tónlistarverðlaunin:
Ein platína og gullplöturegn
Ákveðið var að afhenda platínu-
og gullplötur í fyrsta sinn á íslensku
tónlistarhátíöirini og gera það að ár-
legum viðburði. Björgvin Halldórs-
syni og Jóni Ólafssyni var afhent
platínuplata fyrir sölu á geislaplöt-
unni Þó líði ár og öld á fimmtudags-
kvöld en hún seldist í yfir tíu þús-.
und eintökum.
Tíu gullplötur voru afhentar og
fengu Bubbi Morthens, Emiliana
Torrini, íslandsklukkur, Sigrún Eð-
Kristinn og Jónas við afhendingu verðlaunanna. Jónas segir Kristin vera
stóran og hann vaxi einnig við kynningu. DV-myndir ÞÖK
Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson:
Anægðir með
að klassíkin
skuli fá sess
„Ég er óskaplega lukkulegur með
þetta og sérstaklega þegar tekið er
tillit til þess hversu margar góðar
klassískar plötur komu út á síðasta
ári. Ég hef alltaf aðsetur hér á landi,
það er bara svolítið lengra í vinn-
una fyrir mig heldur en aðra,“ sagði
Kristinn Sigmundsson stórsöngvari
en hann fékk verðlaun ásamt Jónasi
Ingimundarsyni píanóleikara fyrir
geislaplötuna Schwanengesang eða
Svanasöng og fjögur sönglög. Þetta
er í fyrsta sinn sem íslensku tónlist-
arverðlaunin eru veitt fyrir klass-
íska geislaplötu.
„Þetta er mjög ánægjulegt og ég
fagna því að klassíkin sé komin inn
í íslensku tónlistarverðlaunin. Á
þriðjudag ætlum við Kristinn að
halda stórtónleika í Borgarleikhús-
inu. Við erum líka búnir að taka
upp Vetrarferðina eftir
Schubert,“sagði Jónas Ingimundar-
son.
Kristinn er í vetrarfríi hér á landi
og fer í mars til útlanda þar sem
hann mun syngja víða á tónleikum
og í óperum.
-em
valdsdóttir og Selma Guðmunds-
dóttir, Björk, Hærra til þín og Páll
Óskar Hjálmtýsson gullplötur.
Bubbi Morthens var ekki viðstadd-
ur hátíðina.
-em
Óskar Guðjónsson:
Mezzoforte
miðlar
reynslu
„Ég þakka drengjunum í
Mezzoforte fyrir að fá að spila
með þeim. Það er mjög lærdóms-
rikt að fá að leika með strákum
sem hafa verið í þessu í 15-20
ár,“ sagði Óskar Guðjónsson,
blásturshljóðfæraleikari ársins.
Óskar er nýfarinn að spila með
meisturunum í Mezzoforte en
hann er fyrsti íslenski saxófón-
leikarinn sem leikur með strák-
unum í langan tíma.
Óskar lék á saxófóninn í
Rocky Horror og Cats og einnig
inn á geislaplötu með hljóm-
sveitinni Messoforte. Einnig hef-
ur hann leikið djass með hinum
og þessum. Hann hefur leikið á
saxófóninn frá ellefu ára aldri og
lærði hjá Sigurði Flosasyni, en
drengurinn er aðeins 22 ára.
-em
Jóhann Ásmundsson:
Geramig
hamingju-
saman
„Verðlaunin breyta svo sem
engu fyrir mig nema þau gera
mig hamingjusaman og ánægðan
með lífið. Mér líður mjög vel en
ég bjóst ekki við þessu, kannski
vegna þess að ég var ekki að spá
í þetta,“ sagði bassaleikari árs-
ins, Jóhann Ásmundsson, í sam-
tali við DV eftir að úrslitin voru
kunn.
Jóhann sló út Eið Amarsson
en hann hefur sigrað undanfarin
tvö ár. Jóhann leikur um þessar
mundir með Mezzoforte en
hljómsveitin gefur út plötu í apr-
íl.
-em
Eyþór Gunnarsson:
íslensku tónlistarverðlaunin:
söngvararnir
- Páll Óskar og Björk
en hún var einmitt söngkona ársins
í fyrra. Dúettinn Súkkat söng af
mikilli innlifun og var vel fagnað af
gestum. Vilhjálmur Goði steig á
stokk ásamt kór úr Súperstar. Gert
var hlé á afhendingu verðlaunanna
á meðan Radíus bræður fengu að
láta móðinn mása við góðar undir-
tektir viðstaddra. Rokktríóið Botn-
leðja lék og söng en strákarnir í
tríóinu voru einmitt valdir
bjartasta vonin. Ragnar Bjamason
var heiðursverðlaunahafi síðasta
árs og hann lék og söng fyrir gesti.
Að sögn Jónatans Garðarssonar var
kvöldið vel heppnað og allir fóm
ánægðir heim.
-em
Björk Guðmundsdóttir og Páll
Óskar Hjálmtýsson voru fólk
kvöldsins þegar íslensku tónlistar-
verðlaunin vora afhent í Borgar-
kjallaranum. Helgi Pétursson setti
hátíðina og síðan hélt Jónatan
Garðarsson, formaður fram-
kvæmdanefndar, ræðu. Margt var
til skemmtunar og má þá fyrst
nefna Pál Óskar Hjálmtýsson sem
kom gestum hátíðarinnar í ljóm-
andi skap með því að fara í gervi
Bjarkar Guðmundsdóttur. Páll hafði
æft handahreyfingar og látbragð
Bjarkar í viku og samkvæmt fagn-
aðarlátum viðstaddra tókst honum
nokkuð vel upp.
Meðal skemmtiatriða léku Emil-
iana Torrini og Jón Ólafsson saman
Kitlar hégómagirnina
„Þetta er gaman og kitlar hé-
gómagirnina. Ég hjóst ekki við þess-
um verðlaunum því ég fékk verð-
laun í fyrra og hittifyrra. Það er
kominn tími til að þetta fari að
rótera svolítið," sagði Eyþór Gunn-
arsson sem valinn var hljómborðs-
leikari ársins og djassleikari ársins
1995.
Eyþór sagði verðlaunin ekki
breyta neinu í hans ferli þar sem
hann væri búinn að vera í þessum
„bransa" allt sitt líf.
„Ég hef aldrei unnið ærlegt hand-
tak á ævinni en þeir sem vita af mér
géra það þó ég hefði ekki fengið
verðlaunin. Mezzoforte er alltaf á
bakvakt og við komum saman alltaf
öðru hverju. Við gerðum plötu í
fyrra en hún kemur ekki út fyrr en
í vor. Platan er það besta sem ég
gerði á síðasta ári en hún er ekki
komin út enn þá. Strákarnir í
Mezzoforte koma víða við og það
eru greinilega einhverjir sem
kunna að meta það sem við gerum.
-em