Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Page 50
5« afmæli
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 DV
Halldóra Jónsdóttir
Halldóra Jónsdóttir útgeröar-
maður, Ljósheimum 16, Reykjavík,
verður fertug á morgun.
Starfsferill
Halldóra fæddist á ísafirði en
flutti tvegggja ára til Reykjavíkur
og ólst þar upp i Vogahverfinu hjá
móður sinni og fósturföður, Héðni
Hjartarsyni.
Halldóra stundaði gagnfræða-
skólanám við Vogaskólann en fór
síðan á unglingsárunum vestur á
ísafjörð þar sem hún var hjá
frænda sínum og konu hans, Reyni
Torfasyni og Gígju Tómasdóttur.
Eftir að Halldóra kynntist eigin-
manni sínum flutti hún á Flateyri
1977. Þar stundaði hún húsmóður-
störf en síðan jafnframt ræstingar
við Grunnskólann og pósthúsið á
Flateyri og var bankastarfsmaður í
Sparisjóði Önundarfjarðar 1990-94
er þau hjónin fluttu til Reykjavíkur.
Fjölskylda
Eiginmaður Halldóru er Reynir
Traustason, f. 18.11. 1953, frétta-
stjóri við DV og skipstjóri. Hann er
sonur Jóns Trausta Sigurjónsson-
ar, sem lést 1978, starfsmanns við
Kaupafélag Önundarfjarðar, og k.
h., Sigríðar Sigursteinsdóttur, um-
boðsmanns íslandsflugs á Flateyri.
Börn Halldóru og Reynis eru Ró-
bert Reynisson, f. 26.7. 1974, sjó-
maður á Flateyri; Hrefna Sigríður
Reynisdóttir, f. 27.9. 1977, starfar í
Skelvinnslunni á Flateyri; Jón
Trausti Reynisson, f. 11.4. 1980,
nemi við Vogaskóla; Símon Örn
Reynisson, f. 6.4. 1988.
Albróðir Halldóru er Símon Jó-
hann Jónsson, f. 26.3. 1953, stýrim-
aður á Örfirisey RE, búsettur í
Reykjavík.
Hálfsystur Halldóru, sammæðra,
eru Margrét Héðinsdóttir, f. 17.8.
1960, starfsmaður við álverið í
Straumsvík, búsett í Reykjavík;
Ásrún Guðríður Héðinsdóttir, f.
15.1. 1969, búsett í Reykjavík.
Hálfsystur Halldóru, samfeðra,
eru Jórunn Helena Jónsdóttir, f.
31.7. 1965, nemi við Samvinnuhá-
skólann á Bifröst og húsmóðir í
Borgarnesi; Jóna Rakel Jónsdóttir,
f. 20.8. 1966, húsmóðir á Hólmavík;
Linda Jónsdóttir, f. 10.2. 1972, fisk-
vinnslukona á ísafirði.
Foreldrar Halldóru: Jón Kr. Sím-
onarson, f. 6.11. 1930, skipstjóri á
ísafirði, og Hrefna M. Hallgríms-
dóttir, f. 24.4.1934, d. 17.7.1992, hús-
móðir.
Ætt
Bróðir Jóns er Jóhann, skip-
stjóri á ísafirði. Jón er sonur Sím-
onar, sjómanns á ísafirði og síðar
vagnstjóra í New York, Jóhanns-
sonar, Símonarsonar, b. á Stað í
Grunnavík, Eldjárnssonar, b. í
Hlöðuvík í Sléttuhreppi, Sigurðs-
sonar. Móðir Eldjárns var Anna
Barna-Snorradóttir, b. á Höfn í
Sléttuhreppi, Einarssonar. Móðir
Jóhanns var Sigríður, systir Þóru,
langömmu Jóns Baldvins Hanni-
balssonar. Sigríður var dóttir Rós-
inkrans, b. á Svarthamri, bróður
Sigurðar, afa Jóns Baldvinssonar,
fyrsta formanns Alþýðuflokksins,
og langafa Ingigerðar, móður Þor-
steins Pálssonar sjávarútvegsráð-
herra. Rósinkrans var sonur Haf-
liða, b. í Kálfavík, bróður Jóhann-
esar, langafa Hannibals Valdimar-
sonar. Hafliði var sonur Guðmund-
ar sterka Sigurðssonar, forfoður
Ólafs Þ. Þórðarsonar og Sverris
Hermannssonar. Móðir Símonar
yngri var Matthildur Björnsdóttir,
b. í Miðhúsum við Breiðafjörð.
Móðir Jóns var Guðrún María,
systir Haralds, skipstjóra og for-
manns Skipstjóra- og stýrimannfé-
lagsins Bylgjunnar. Guðrún María
7
Halldóra Jónsdóttir.
var dóttir Guðmundar, pósts á ísa-
firði, Jónssonar.
Hrefna var dóttir Hallgríms,
lengi vinnumanns í Ósi í Bolungar-
vík, Jónssonar og Halldóru Hjálm-
arsdóttur. Móðurbróðir Halldóru
var Pétur, afi Helga Ágústssonar
sendiherra.
Halldóra og Reynir verða að
heiman á afmælisdaginn.
lil hamingju með
afmælið 17. febrúar
85 ára
50 ára
Lárus Scheving Ólafsson,
Dalbraut 27, Reykjavík.
Sigríður Jónsdóttir,
i Torfnesi Hlíf, þjónustud., ísafirði.
\ 80 ára_________________________
Kristinn Hóseasson,
Ofanleiti 17, Reykjavík.
75 ára
Anna Bjömsdóttir,
Laugarvegi 30, Siglufiröi.
Pálína Þórólfsdóttir,
Finnbogastöðum, Árneshreppi.
Jóhann Eyþórsson,
Sléttuvegi 17, Reykjavík.
70 ára___________________
* HaUa Sigurðardóttir,
Miðstræti 8 a, Neskaupstað.
Eyvindur Árnason,
Hegranesi 11, Garðabæ.
60 ára
i Berghreinn Guðni Þorsteinsson,
Dalseli 34, Reykjavík.
Þórður Mart-
einsson,
Suðurbraut 12,
Hafnarfirði.
Hólmfriöur Snæbjörnsdóttir,
Eiðistorgi 17, Seltjarnamesi.
Guðmundur Ágústsson,
Stangarholti 7, Reykjavík.
Halldóra Karlsdóttir,
Klettavík 11, Borgarnesi.
Hildur Helgadóttir,
Aðalstræti 80, Akureyri.
Margrét Kristjánsdóttir,
Brekkulæk 4, Reykjavík.
Friðrik Magnússon,
Holtsbúð 31, Garöabæ.
Unnur G. Jónsdóttir,
Háhæð 9, Garðabæ.
Sigríður Ágústsdóttir,
Mánagötu 29, Grindavík.
40 ára
Axel Thorarensen,
Höfðahlíð 5, Akureyri.
Sigurður Júlíusson,
Úthlíð 11, Reykjavík.
Þóra Skúladóttir,
Hafþórsstöðum, Borgarbyggð.
Gróa Hreinsdóttir,
Njarðvíkurbraut 33, Njarðvík.
Margrét Jónsdóttir,
Dalaiandi 8, Reykjavík.
Jón Jóel ögmundsson,
Valbraut 1, Gerðahreppi.
Erla Halldórsdóttir,
Hólmgarði 37, Reykjavík.
Guðbjörg H. Sigursteinsdóttir,
Túngötu 25, Vestmannaeyjum.
Júlíana Brynja Erlendsdóttir,
Laugarásvegi 25, Reykjavík.
Hans Kristjánsson,
Björk, Garðabæ.
Kristján Kristjánsson,
Háaleitisbraut 15, Reykjavík.
Sigurþór Hallbjörnsson,
Grettisgötu 2, Reykjavík.
Margrét Katrín Jónsdóttir,
Heiðargerði 108, Reykjavík.
Konráð Hinriksson,
Brekkubraut 9, Keflavík.
Þarfnast Afríka þín?
Vilt þú skipta máli og skilja eftir þig spor? Vilt þú nota reynslu þína? Vilt þú nýta krafta þina
og gáfur í starfi sem gagnast íbúum Afríku?
Komdu þá sem sjálfboðaliði í barnastarf þróunarhjálpar Þjóðar til þjóðar
í Mósambík eða Angóla.
Verkefni þín verða til dæmis þessi: Stofna barnaklúbba. Kenna fólki að nota hreint
drykkjarvatn. Kenna hvernig forðast má alnæmi og malaríu.
Fræða um næringu og hreinlæti.
Þú tekur þátt í 12 mánaða ferli: 5 mánaða lýðskólanámskeiði í fjölþjóðlegum
félagsskap á Den rejsende Hojskole í Danmörku: 6 mánaða starf í Afríku; mánaðar nám
og fræðsla í Evróþu. Þú getur byrjað 4. maí eða 4. nóvember.
Starfið er launalaust en þú færð frítt húsnæði og fæði og vasapeninga í Afríku.
Mögulegt er að fá styrk að hluta í tengslum við skólann í Danmörku.
Við höldum upplýsingafund í Reykjavík 9. mars.
Skrifaðu okkur eða sendu heimilisfangið í símbréfi og við sendum þér nánari upplýsingar.
Den resjende Hojskole, EU-IS- Postbox 131, 2630 Tastrup, Denmark.
Bréfsími: +45 43 99 59 82. ,
Eyvindur Amason
Eyvindur Árnason plastiðnaðar-
maður, Hegranesi 11, Garðabæ, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Eyvindur fæddist að Bifröst í
Vestmannaeyjum. Hann flutti um
fermingaraldur með fjölskyldu
sinni að Klöpp á Seltjarnarnesi
1940, lauk gagnfræðaprófi í Reykja-
vík og vélstjóranámskeiði 1945.
Fjölskylda Eyvindar byggði
frystihús í Kópavoginum sem hún
vann við, festi síðan kaup á hol-
steinagerð 1955 og bætti loks plast-
vinnslu við. Var fyrirtækið nefnd
Vibro hf. en þar starfaði Eyvindur
til 1989. Þá var fyrirtækið selt en
húsnæðið leigt.
Eyvindur og kona hans keyptu
húsið Díla í Kópavogi 1949, byggðu
síðan hús við Löngubrekku í Kópa-
vogi þar sem þau bjuggu til 1978 en
byggðu þá og fluttu í Garðabæinn
þar sem þau hafa átt heima síðan.
Eyvindur hefur verið félagi í
Lionsklúbbi Hafnarfjarðar í nokk-
ur ár.
Fjölskylda
Eyvindur kvæntist 8.10. 1948
Margréti Gestsdóttur, f. 15.6. 1929,
húsmóður. Hún er dóttir Gests
Árnasonar frá Ólafsfirði og Kristj-
önu Einarsdóttur.
Börn Eyvindar og Margrétar eru
Árni Eyvindsson, f. 16.2. 1949, plas-
tiðnaðarmaður í Garðabæ, og eru
börn hans Eyvindur, f. 26.12. 1968,
tölvufræðingur í New York, og
Fjóla Valdís, f. 16.9. 1974; Páll Ey-
vindsson, f. 4.7. 1951, flugstjóri hjá
Cargolux, kvæntur Helgu Rögnu
Ármannsdóttur íþróttakennara og
eru börn þeirra Björg Ragnheiður,
f. 17.3. 1977, Ármann Jakob, f. 28.1.
1980, og Sverrir, f. 5.4. 1981; Krist-
jana Eyvindsdóttir, f. 8.8.1953, hús-
móðir í Garðabæ, gift Sigurði Hólm
Guðbjartssyni lagerstjóra og eru
börn þeirra Guðbjörn Þór, f. 19.1.
1974, Margrét, f. 17.1. 1975 og Tinna
María, f. 20.9. 1981; María Le
Tarouilly, f. 5.9.1954, starfsmaður á
lögfræðistofu, búsett á Jersey, Eng-
landi og er dóttir hennar Lisa
Marie, f. 17.9. 1980; Hannes Ey-
vindsson, f. 30.7. 1957, fram-
kvæmdastjóri, kvæntur Eddu Vig-
fúsdóttur húsmóður og eru synir
þeirra Atli Þór, f. 25.12. 1979, Birk-
ir, f. 2.4. 1982, og Þorfinnur, f. 26.10.
1990.
Foreldrar Eyvindar: Árni S.
Eyvindur Árnason.
Böðvarsson, rakarameistari og út-
gerðarmaður í Vestmannaeyjum,
og María Wilhelmína Heilmann
Eyvindardóttir húsmóðir.
Eyvindur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Erlendur Björnsson
Erlendur Björnsson, prentari og
verkstjóri hjá Gutenberg hf.,
Hjallaseli 20, Reykjavík, verður
fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Erlendur fæddist í Reykjavík en
ólst upp á Seltjarnarnesinu.
Hann hóf prentnám í Félags-
prentsmiðjunni 1962 og lauk
sveinsprófi 1966.
Erlendur starfaði í Prensmiðju
Jóns Helgasonar frá 1966 og þar til
hún var seld Ríkisprentsmiðjunni
Gutenberg 1973, hóf þá störf hjá
Gutenberg og hefur verið verk-
stjóri þar frá 1974.
Fjölskylda
Erlendur kvæntist 7.11. 1970 Að-
alheiði Jónsdóttur, f. 29.1. 1948,
tannsmið. Hún er dóttir Jóns B.
Hjálmarssonar, prentsmiðjustjóra í
Reykjavík, og Laufeyjar Karlsdótt-
ur húsmóður.
Börn Erlends og Aðalheiðar eru
Laufey, f. 6.12.1972; íþróttakennari;
Björn, f. 21.1. 1975, nemi.
Systkini Erlends eru Jón Þórar-
inn Björnsson, f. 2.4.1936, yfirkenn-
ari og organisti í Borgarnesi; Garð-
ar Haraldur, f. 26.7. 1941, tækni-
fræðingur í Danmörku; Björn, f.
14.6. 1938, lögreglumaður í Kefia-
vík; Erla, f. 18.6. 1944, kennari í
Reykjavík.
Foreldrar Erlends voru Björn
Jónsson, f. 14.6. 1904, d. 8.6. 1995,
framkvæmdastjóri Byggingarsam-
vinnufélags ríkisstaifsmanna, og
HOdur Pálsdóttir, f. 11.8. 1905, d.
9.7. 1993, ljósmóðir.
Erlendur tekur á móti gestum í
sal Karlakórsins Þrasta, Flata-
hrauni 21, Hafnarfirði, í dag, laug-
ardaginn 17.2., eftir kl. 20.00.
Erlendur Björnsson.
I