Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Síða 56
X
Gríska flutningaskipið:
Rispur á
botninum
Athugun á botni gríska flutninga-
_skipsins Anakan hefur leitt í ljós að
rispur eru á botninum og bendir því
flest til að skipið hafi tekið niðri í
botni Eskifjarðar eins og sjónarvott-
ur hefur borið.
Kafað var niður að skipinu í Nes-
kaupstað. Sjópróf hafa farið fram
síðustu daga en útgerð loðnubátsins
Alberts GK ætlar að gera kröfu um
björgunarlaun eftir aðstoð við flutn-
ingaskipið í nauðum fyrr í mánuð-
inum. Minni háttar skemmdir urðu
þá á Alberti. -GK
Vatnsberinn
situr í Höfn
Mál Þórhallar Ölvers Gunnlaugs-
- sonar, fyrrum framkvæmdastjóra
Vatnsberans, er enn óafgreitt hjá
dómsyfirvöldum í Kaupmannahöfn.
Þórhallur situr enn í gæsluvarð-
haldi ytra en varðhald yfir honum
rennur út í næstu viku.
Tafir hafa orðið við framsal á
Þórhalli vegna pappírsvinnu hjá
Dönum. -GK
Aili riki sækir
að Síldar-
vinnslunni
Hörð keppni ríkir milli Síld-
arvinnslunar í Neskaupstað og
Hraðfrystihússins á Eskifirði, fyrir-
tækis Aðalsteins Jónssonar eða Alla
ríka, um toppsætið í loðnulöndum á
vertíðinni.
Síldarvinnslan hafði í gær vinn-
inginn en aðeins munaði 67 tonn-
um. í Neskaupstað höfðu 35.736 tonn
borist á land en 35.669 tonn á Eski-
firði. Tæp 30 þúsund tonn höfðu
borist að landi á Seyðisfirði sem er
í þriðja sætinu. -GK
rafverktakar
r a f k ó p
samvirki
Skemmuvegi 30 - 200 Kóp.
Sími 5544566
Sími 533 2000
Ókeypis heimsending
ÞAÐ ER EKKERT
SLOR AÐ
VERA RÍKUR!
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö i DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996
Fíkniefnasmyglari aðstoðaði við að koma upp um „samstarfsmann“ sinn:
Leyfði lögreglu að setja
upptökubúnað í íbúðina
- fékk vægari dóm fyrir vikið en hinn var sakfelldur þrátt fyrir neitun hans
Tveir karlmenn, Engilbert Run-
ólfsson, 31 árs, og Gunnar Valdi-
marsson, 34 ára, hafa í Héraðs-
dómi Reykjavíkur verið dæmdir i
2íi árs og 2 ára fangelsi fyrir að
hafa staðið saman að því að fjár-
magna og flytja inn 313 grömm af
amfetamíni í október 1994. Engil:
bert neitaði ávallt sakargiftum en
Gunnar féllst á að upplýsa málið
með flkniefnalögreglunni. Þannig
heimilaði hann lögreglu að koma
fyrir upptökubúnaði á heimili
sínu eftir að hann kom sjálfur tfl
landsins með efnin og áður en
EngObert var handtekinn. Gunnar
fékk því vægari refsingu en ella.
Dómurinn tók hins vegar til þess
að Engilbert væri „fullorðinn mað-
ur“ sem ekki hefði látið af afbrot-
um þrátt fyrir eldri fikniefnadóm
og „bæri það vott um styrkan og
beittan brotavOja hans“. Þetta var
því virt honum til refsihækkunar.
Upphaf málsins var að ToOgæsl-
an á Keflavíkurflugvelli fann 313
grömm af amfetamíni á Gunnari
er hann kom tO landsins. Hann
benti strax á að þeir EngObert,
sem átti að koma til landsins dag-
inn eftir, væru saman um að fjár-
magna kaupin og flytja efnin inn.
Gunnar féUst síðan á að láta koma
upptökubúnaði fyrir í íbúð sinni
áður en EngObert vitjaði „pakk-
ans“ hjá honum. Taka átti upp
samtöl og mynda það sem fram
fór. Gunnar sagði að þegar Engil-
bert kom heim tO hans og hann
ætlaði aö afhenda honum pakkann
hefði hann leitað að upptökutækj-
um á sér - hann hefði „grunað
eitthvað" því pakkinn sem lögregl-
an hafði útbúið heföi litið öðruvísi
út en sá sem Engilbert hafði sjálf-
ur útbúið er þeir voru báðir ytra.
EngObert tók ekki við pakkanum
og fór út en þá var hann handtek-
inn. Svo fór hins vegar að upptaka
lögreglunnar brást.
Dómurinn taldi framburð Gunn-
ars frá upphafi stöðugan og trú-
verðugan og byggði mikið á hon-
um við sakfellingu Engilberts.
Einnig var stuðst við framburð
vitnis sem sagði að Engilbert hefði
fengið sig til að fylgjast með hvort
Gunnar hefði verið handtekinn er
hann kom til landsins, gögn með
símanúmeri í HoOandi þar sem
efnin voru keypt, leðurhanska
sem notaðir voru við að pakka inn
efnunum og fleira.
í niðurstöðu Guðjóns Marteins-
sonar héraðsdómara kemur fram
að styrkleiki efnisins sem menn-
irnir stóðu saman að því að flytja
inn í hagnaðarskyni væri mikifl
og hættueiginleikar eöiisins í sam-
ræmi við það. Brotin þóttu stór-
fefld.
-Ótt
Seðlabankastjorar og raðherrar rikisstjornarinnar hittust í gær tii að þrýsta á viðskiptabankana að lækka vexti og má
sjá þá Davíð Oddsson forsætisráðherra og Steingrím Hermannsson seðlabankastjóra í vangaveltum sínum. Eftir
vaxtahækkun viðskiptabankanna nýlega reið Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra á vaðið í síðustu viku og taldi for-
sendur vera til þess að lækka vexti fremur en að hækka þá. Hinn 21. febrúar kemur svo í Ijós hvort eitthvað gerist í
þá áttina. DV-mynd BG
29 ára Hafnfirðingur:
Ákærður fyrir
tilraun til
manndráps
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur 29 ára Hafnfirðingi
fyrir tilraun til manndráps og hús-
brot með því að hafa ruðst heimild-
arlaust inn á heimili íbúa við
Strandgötu í Hafnarfirði, farið inn í
svefnherbergi og skorið svöðusár á
háls húsráðanda snemma að morgni
nýársdags síðastliðins.
Hér er um að ræða líkamsárás sem
engar viðhlítandi skýringar hafa ver-
ið gefnar á. Árásarmaðurinn og fórn-
arlambið þekktust ekki. Sá fyrr-
nefndi hefur á hinn bóginn sagt við
yfirheyrslur að hann hafi átt eitthvað
sökótt við annan mann sem var bú-
settur úti á landi. Þær sakir áttu að
hafa verið „viðskiptalegs eðlis“ sam-
kvæmt upplýsingum RLR í gær.
Maðurinn kann því ekki skýring-
ar á því hvers vegna hann fór inn til
mannsins sem svaf við hlið konu
sinnar, settist klofvega yfir hann og
skar fyrirvaralaust á háls honum.
Maöurinn var fluttur í skyndi á
slysadeild og lifði árásina af. -Ótt
Suðvestlæg átt og hlýnandi veður
Á sunnudag verður fremur hæg breytileg eða norðlæg átt og víða bjartviðri, einkum vestanlands.
Erost verður 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum.
Á mánudaginn verður suðvestlæg átt og hlýnandi veður, þykknar upp vestanlands, bjartviðri um austanvert landið.
Veðrið í dag er á bls. 61