Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1996, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1996
Fréttir
pv
Opinberir starfsmenn stofna sameiginlega aðgerðanefnd:
Stefnir í alvarleg átök ef
keyra á frumvörpin í gegn
- segja Elna K. Jónsdóttir, formaður HÍK, og Eiríkur Jónsson, formaður KÍ
„Auðvitaö stefnir í alvarleg átök
ef ríkisstjórnin ætlar að keyra
frumvörpin óbreytt í gegn. Það seg-
ir sig alveg sjálft. Þetta er miklu al-
varlegri aðför að kjörum okkar en
ég hef upplifað hingað til og hef ég
þó verið mörg ár í starfl fyrir Hið
íslenska kennarafélag. En maður
veröur að hafa borð fyrir báru i
yfirlýsingum því við erum með
kjarasamning út þetta ár. Þó hljóta
menn að velta því fyrir sér hvort og
þá hvenær forsendur kjarasamn-
inga eru brostnar. Sú skerðing sem
boðuð er á lífeyrisrétti kennara
snertir auðvitað kjarasamningana.
Allur umbúnaður um okkar ráðn-
ingarkjör, eins og hann er í lögun-
um um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna, er hluti af
kjarapakkanum. Og lífeyriskjörin
voru notuð hér áður fyrr til að rétt-
læta lakari laun og því eru þau
hluti af kjarapakkanum," sagði
Elna K. Jónsdóttir, formaður Hins
íslenska kennarafélags, í samtali
við DV.
Nú virðist stefna í átök vegna
frumvarpa ríkisstjórnarinnar um
réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins og kennara vegna flutnings
grunnskólans til sveitarfélaga. Elna
segir að allt kjarasamningaum-
hverfi opinberra starfsmanna fari á
flot viö áform ríkisstjórnarinnar
um skerðingu á réttindum fólks.
„Ég held að lífeyrisrétturinn sé
kennurum svo heilagur að þeir séu
tilbúnir að ganga mjög langt til að
verja hann. Ég hygg að þeir taki
undir með forystumönnum sínum
um að þessi fyrirhugaða réttinda-
skerðing muni kasta okkur til baka
um áratugi. Ég tel að fólk sé að
Elna K. Jónsdóttir, formaður Hins íslenska kennarafélags. DV-mynd GS
vakna tU meðvitundar um þetta
þessa dagana. Ég sé fyrir mér mik-
inn óróa og átök og mótmæli þegar
það rennur upp fyrir venjulegu
fólki í þjónustu hins opinbera hvað
er að gerast. Það mun sjá að það er
alvara á ferðum," sagði Elna K.
Jónsdóttir.
„Ég útiloka ekki að það geti ver-
ið átök í aðsigi haldi ríkisstjómin
fast viö stefnu sína í þessum mál-
um,“ sagði Eirikur Jónsson, for-
maður Kennarasambands íslands, í
samtali við DV í gær.
Hann sagði að næstu dagar færu
í það hjá forystumönnum BSRB,
BHMR og kennarafélögunum að
halda fundi og upplýsa félaga sína
um hvað þau frumvörp snúast ná-
kvæmlega sem ríkisstjórnin er að
leggja fram um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins. -S.dór
Nýtt leikrit Cartwrights:
Heims-
frum-
sýning
í Borgar-
leikhúsinu
- á undan West End í London
Nú er ljóst að um heimsfrum-
sýningu verður að ræða í Borg-
arleikhúsinu í sumar þegar nýtt
leikrit eftir Jim Cartwright, Sto-
ne free, verður frumsýnt á stóra
sviðinu. Til stóð að heimsfrum-
sýningin yrði í West End í
London í vor en þar verður
verkið ekki sýnt fyrr en i lok
júlí.
Þetta verða að teljast ánægju-
leg og stór tíðindi fyrir íslenskt
leikhúslíf þar sem Cartwright er
eitt vinsælasta nútímaleikskáld
Evrópu um þessar mundir. Þrjú
leikrit eftir hann hafa verið
sýnd hér á landi fram að þessu
og öll fyrir troðfullu húsi hjá
Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóö-
leikhúsinu og Leikfélagi Akur-
eyrar. Þetta eru Stræti, BarPar
og Taktu lagið Lóa.
Leikstjóri verður Magnús
Geir Þórðarson sem unnið hefur
í náinni samvinnu viö
Cartwright að undirbúningi
verksins. Hann vann að forsýn-
ingum á verkinu í Englandi í
fyrra ásamt höfundinum. Tón-
listarstjórn verður í höndum
Jóns Ólafssonar. Stone Free er
dramatískt gamanleikrit þar
sem brugðið er upp svipmynd-
um af mannlífi á rokkhátíð.
Tónlist sjöunda áratugarins er
gert hátt undir höfði enda er tit-
ill verksins vísun í samnefnt lag
eftir Jimi Hendrix. -bjb
Haröar deilur um breytingu Pósts og síma í hlutafélag:
Sauður í sauðar-
gæru og skeggjúði
- uppnefndu Össur Skarphéðinsson og Halldór Blöndal hvor annan
Stuttar fréttir
Þegar í upphafi 1. umræðu á Al-
þingi um stjórnarfrumvarp um
stofnun hlutafélags um rekstur
Pósts og síma hófst karp og stóryrði
voru látin fjúka. Össur Skarphéð-
insson kallaði Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra „sauð í sauðargæru"
og Halldór kallaði Össur
„skeggjúða“ í lok deilu þeirra um
réttindi starfsfólks Pósts og síma
við breytinguna.
Það var samgönguráðherra sem
mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í
gær. Hann sagði ástæðuna fyrir því
að frumvarpið væri flutt vera þá að
gera Pósti og síma auðveldara að
starfa og taka ákvarðanir i harðri
samkeppni örrar þróunar í fjar-
Teppa í Bakka-
selsbrekkunni
Hjálparsveit var kölluð út í
gærkveldi til að geiða úr umferð-
arteppu sem myndaðist í
Bakkaseisbrekkunni á Öxnadals-
heiði. Laust fyrir átta barst
hjálparbeiðni þaðan en þá voru
nokkrir bílar fastir í brekkunni
og m.a. stóð vörubíll þar þvers-
um.
Blindbylur var á heiðinni í
gær og olli það vegfarendum erf-
iðleikum. Færð var erfið víða
norðanlands í gærkveldi vegna
skafrennings en þó er óvíða mik-
ill snjór. -GK
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já jJ
Nel zj
,r ö d d
FOLKSINS
904-1600
Á biskup íslands að segja
af sér?
skiptatækni. Ráðherra sagði að
tryggt væri að aðeins yrði til eitt
hlutabréf og það yrði í eigi ríkisins.
Það væri sinn vilji að Póstur og
sími hf. yrði ekki selt og alla vega
ekki án samþykkis Alþingis.
Guðni Ágústsson stjórnarþing-
maður sagðist ekki sjá tilganginn
með því að breyta Pósti og síma í
hlutafélag. Hann sagðist ekki gera
sig ánægðan með svar samgöngu-
ráðherra.
Össur Skarphéðinsson gerði að
umræðuefni réttindi starfsfólks
Pósts og síma við breytinguna.
Minnti hann á nýfallinn hæstarétt-
ardóm um biðlaunarétt starfsmanns
Síldarverksmiðju ríkisins þegar því
fyrirtæki var breytt í hlutafélag og
síðan selt. Starfsmaðurinn vann
málið, fékk dæmd biðlaun því starf
hjá hlutafélagi væri ekki þaö sama
og hjá ríkinu.
Um þetta deilu Össur og Halldór
Blöndal og varð þeim nokkuð heitt í
hamsi og notuðu þeir stór orð.
Ragnar Arnalds gagnrýndi ýmis-
legt í frumvarpinu og ekki síst það
að breyta fyrirtækinu í hlutafélag,
sagði ýmis önnur form kom til
greina.
Magnús Stefánsson tók undir það
sjónarmið að fleiri form en hlutafé-
lagaformið kæmi til greina.
Síðdegis í gær var á annan tug
þingmanna á mælendaskrá. -S.dór
Lögreglan kom til hjálpar í gær þegar lítið barn lokaðist inni í bíl við Tjörn-
ina. Barnið gat ekki opnað sjálft innan frá og því varð að „plokka" upp lás-
inn. DV-mynd S
Vill taka upp aftur
Fangaprestur vill að Guð-
mundar- og Geirfinnsmál
verði tekin upp að nýju því
sakbomingar hafi verið beitt-
ir harðræði. Stöð 2 greindi
frá.
Ekki kvóti á lax
ESB setur ekki kvóta á lax
frá Noregi en gefur engin lof-
orð um kærur fyrir undirboð.
Sjónvarpið sagði frá.
Taka ekki viö
skólanum?
Borgarstjóri segir að sveit-
arfélögin geti ekki tekið við
rekstri grimnskólans ef kenn-
arar verða með lausa samn-
inga. Sjónvarpið greindi frá.
Virkja fyrir
15 miiyaröa?
V irkj unarframkvæmdir
Landsvirkjunar næstu árin
kosta 15 milljarða, skv. Stöð
2.
Próf í 4. og 7. bekk
Samræmd próf í íslensku
og stærðfræði verða i fyrsta
sinn lögð fyrh' 4. og 7. bekk
grunnskólans í haust. RÚV
greindi frá.
Ábyrgöargjald
hækkar
Áhyrgðargjald á raögreiðs-
lusamninga hjá Visa-íslandi
hækkar á næstunni. Stór-
kaupmenn mótmæla. RÚV
sagði frá.
Gervitungli
skotiö upp
Jarðstöö verður sett upp á
Héraði. Gervitungli verður
skotið á loft og því beint inn
á réttar brautir í geimnum,
skv. Stöð 2. -GHS
Vetrarleiðangur Hafrannsóknastofnunar:
Almennt gott árferði í sjónum
í Austur-íslandsstraumi djúpt
Árferði í sjónum allt í kringum
landið er almennt gott samkvæmt
heildarniðurstöðum vetrarleiðang-
urs rannsóknaskipsins Bjama Sæ-
mundssonar. Skipið var í leiðangri
5. til 20. febrúar.
Sjávarhiti úti fyrir Suður- og
Vesturlandi var 5 til 7 stig, sem er í
góðu meðallagi, en seltan var frem-
ur lág eins og undanfarin ár. Áhrifa
hlýja sjávarins gætti í vetur einnig
fyrir Norðurlandi, allt frá Kögri að
Langanesi, með 3 til 5 stiga hita. Er
það mikil breyting frá því sem var
veturinn og vorið 1995 þegar ískald-
ur svalsjór og pólsjór ríkti á norður-
og austurmiðum í meira mæli en
áður hafði mælst. Fyrir Austurlandi
var hitastig í vetur einnig hátt eða 2
til 3 stig. ,
norður og austur af landinu
hitastig í vetur einnig tiltölule
hátt, 0 til 2 stig, en seltan aftur lá
Gefur það vísbendingu um að lo
kuldi geti enn kælt sjóinn. Ástand
er á mörkum þess að geti frosifi
frosthörkum. Hafishætta úr þeii
átt virðist þó mjög ósennileg úr þ
sem komið er.