Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1996, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1996
5
Fréttir
## Sérfræöingar um Hvalfj arðargöngin:
Oryggi í fyrirrúmi og lítil
engin skjálftahætta
- litlar líkur sagðar á jarðhræringum næstu 50 árin
sem
Sú hönnun Hvalfjarðarganga sem
snýr að eldvörnum er byggð á
norskum reglum og stöðlum eins og
mælt er fyrir um í samningi Spalar
hf. og samgönguráðuneytisins.
Norskir og breskir sérfræðingar
gerðu úttekt á öryggismálunum,
bæði eldvörnum og sjálfum umferð-
arþættinum. Ef miðað er við norska
staðla verða öryggismál í Hvalfjarð-
argöngum betur tryggð en almennt
gerist í göngum með álíka umferð
og þar er gert ráð fyrir.
Ef miðað er við reynslu Norð-
manna og áhætta metin út frá for-
sendum í sambærilegum samgöngu-
mannvirkjum erlendis má gera ráð
fyrir að bíll stöðvist í göngunum
vegna bilunar einu sinni á hverjum
tveimur mánuðum, einnig að fólk
meiðist í óhappi í göngunum einu
sinni á sex árum og að kvikni í bíl í
göngunum einu sinni á 8 til 9 ára
fresti. Þá er átt við smávægilegan
eld í einkabíl sem bílstjóri slekkur
sjálfur.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra segir að farið verði eftir þeim
almennu reglum sem í gildi eru þeg-
ar öryggismál eru annars vegar og
að sýslumanni viðkomandi svæðis
beri að fylgja eftir þeim óhöppum
sem upp kunna að koma.
Félagsmálaráöherra:
Kennarar og
skólastjórar
ekki
vanhæfir
Félagsmálaráðherra hefur sent
frá sér álit þar sem fram kemur að
kennarar og skólastjórar eru al-
mennt ekki vanhæfir til setu í sveit-
arstjórnum eftir yfirfærslu grunn-
skólans til sveitarfélaganna 1. ágúst
frekar en aðrir starfsmenn sveitar-
félaga vegna starfstengslanna einna.
Álit ráðherra er svar við fyrirspurn
frá Samtökum sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu.
Félagsmálaráðuneytið telur eðli-
legt að sveitarstjórnir leitist við að
skipa ekki starfandi kennara í
skólanefndir þar sem líklegt er að
þeir hafi hagsmuna að gæta við úr-
lausn margra mála í skólanefnd. í
álitinu segir einnig að skólastjórar
og aðrir skólastjórnendur verði
ekki kjörgengir í skólanefndir eftir
1. ágúst.
Að auki geta skólastjórar og
kennarar verið vanhæfir þegar ein-
stök mál sem varða grunnskólann
eða starfsmenn hans eru til umfjöll-
unar í sveitarstjórn.
______________________-GHS
Stórt fall
Bjarkar
DV, Akranesi:
Það fór ekki eins og breskir popp-
sérfræðingar höfðu spáð að Hypper-
ballad, nýja lagið hennar Bjarkar
Guðmundsdóttur, myndi hækka á
smáplötulistanum. Lagið var í 8.
sæti í síðustu viku en féll niður í 28.
sæti á listanum sem var birtur um
helgina.
Sérfræðingarnir telja að barsmíð
Bjarkar á breskri blaðakonu í Bang-
kok hafi haft þessi áhrif.
Plata Bjarkar, Post, hækkaði hins
vegar um eitt sæti - fór úr 38. sæti í
það 37.
-DÓ
Beint samband
við slökkvilið
I göngunum verður komið fyrir
40 öflugum viftum til að hreinsa
mengun frá bílum. Neyðarsímar
verða með 500 metra millibili, i út-
skotum sem eru nægilega stór til að
hægt sé að snúa við flutningabílum.
Sólarhringsvakt verður í gjaldskýli
við norðurenda ganganna og þaðan
verður beint simasamband við
slökkvilið.
Slökkvitæki verða með 250 metra
millibili og slökkviliðið fær sjálf-
krafa boð úr göngunum ef slökkvi-
tæki er tekið af sínum stað. Vörnum
verður haldið í hámarki og t.d.
reynt að passa að ekki verði straum-
ur olíubíla eða annarra bíla með
hættuleg efni í gegnum göngin. Inn-
an við 10 mínútur tekur fyrir
slökkviliðið á Akranesi að koma á
vettvang þar sem göngin munu
koma upp í Innri-Akraneshreppi.
Slökkvibíll er einnig á Grundar-
tanga og Kjalarnesi, auk þess sem
Slökkvilið Reykjavíkur er ekki
langt undan.
Skjálftar afar ólíklegir
Það er álit sérfræðinga að afar
ólíklegt sé að jarðskjálftar valdi al-
varlegum skemmdum í Hvalfjarðar
göngum. Þessi ályktun er meðal
annars dregin af reynslu erlendis
eftir stóra jarðskjálfta sem riðið
hafa yfir undanfarin ár. Einnig er
um að ræða niðurstöður Páls Hall-
dórssonar jarðeðlisfræðings og
norskra sérfræðinga. Páll telur nær
engar líkur á miklum jarðhræring-
um næstu 50 árin sem raskað gætu
rekstri Hvalfjarðarganga.
Að mati Hagfræðistofnunar Há-
skóla íslands eru göngin ein hag-
kvæmasta stórframkvæmd í sam-
göngumálum á Islandi. Stofnunin
áætlar að þjóðhagslegur ávinningur
af þeim verði um 7 milljarðar
króna, þar af sé ávinningur neyt-
enda um 4,5 milljarðar. -brh
This announcement appears as a matter of record only.
FJÖLMIÐLUN HF
THE ICELANDIC BROADCASTING CORPORATION INC.
DM 53,000,000
Term Loan
Arranged by:
Chase Investment Bank Limited
Provided by:
The Chase Manhattan Bank, N.A.
The MitsubishiTrust & Banking Corporation
NM Rothschild & Sons Limited
MeesPierson N.V.
Búnaðarbanki íslands
Sparisjóðabanki íslands HF
FacilityAgentand Security Trustee:
The Chase Manhattan Bank, N.A.
February1996