Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1996, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1996, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1996 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1996 33 íþróttir Skíði: Hart barist í Bláfjöllum Glsli Reynisson, Ármanni, varð sigurvegari í flokki karla á tveimur bikarmótum SKÍ í svigi í Bláfjöllum. Gísli kom í mark á 1:32,48 mín. í öðru sæti varð Sigurður M. Sigurðsson, Ármanni, en hann fékk tímann 1:32,53 mín og þriðji Ármenningurinn, Ingvi Geir Ómarsson, varð í þriðja sæti á 1:33,22 mín. Gísli sigraði svo aftur á 1:25,19 mín og þá varð Vilhelm Þorsteinsson, SRA, annar á 1:25,85 mín og Pálmar Pétursson, Ármanni þriðji á 1:27,08 mín. í flokki kvenna fóru einnig fram tvö svigmót. Þar sigraði Hrefna Óladóttir, SRA, á 1:34,76 mín. Hallfríður Hilmarsdóttir, SRA, varð önnur á 1:36,94 mín og Ása Bergsdóttir, Ármanni, þriðja á 1:37,23 mín. Sama röð varð á síðara svigmótinu. -SK Yfirburðir hjá Hauki nyrðra Haukur Eiríksson, Akureyri, varð sigurvegari í 15 km göngu karla á bikarmóti SKÍ sem fram fór á Akureyri. Haukur, sem sigraði í flokki karla 20 ára og eldri, gekk vega- lengdina á 45,18 mínútum. Ann- ar varð Kristján Hauksson, Ólafsfirði, á 46,49 mín og Einar Ólafsson, Akureyri, þriðji á 47,57 mín. í flokki kvenna, 16 ára og eldri sigraði Svava Jónsdóttir, Ólafsfxrði. Hún gekk 5 km á 20,43 mín. -SK Sund: Logi náði góðum tímum Logi Jes Kristjánsson, sund- maöur frá Vestmannaeyjum, náði góðum tímum í 50 metra laug á móti í Arizona á dögun- um en þar stundar hann há- skólanám. Logi synti 100 metra baksund á 59,46 sekúndum, sem er aðeins 0,55 sekúndum frá hans besta, og 200 metra baksund á 2:09,24 mínútum, sem er 1,33 sek. frá hans besta. Logi var óhvíldur þegar mótiö fór fram, enda synti hann um 175 km á æflngum í janúar, og tímamir lofa því góðu. Hann stefhir á að ná lágmörkum fyrir ólympíuleikana í Atlanta eins og fleiri íslenskir sundmenn. Magnús og Eydís í Lúx Systkinin Eydís og Magnús Konráðsbörn stefna einnig á ólympíuleikana og gera atlögu aö lágmörkum á alþjóölegu móti í Lúxemborg um næstu helgi. Eydís er næst því af íslenska sundfólkinu að komast til Atl- anta því hana vantar aðeins 2/10 úr sekúndu til að ná lág- marki. Blak: HK og Þróttur í bikarúrslitum HK sigraði KA, 3-1, í undan- úrslitum í bikarkeppni karla í blaki á sunnudagskvöldið. Það verða þvi HK og Þróttur R. sem leika til úrslita. Sfjaman vann ÍS, 3-2, í 1. deild karla og náði þar með Þrótti R. að stigum á toppi deild- arinnar en Þróttur á einn leik til góða. Víkingur vann ÍS, 3-2, í 1. deild kvenna. Hakeem Olajuwon afgreiddi Toronto Knattspyrna: Leiftur fer til Hollands og Færeyja Leiftursmenn á Ólafsfirði verða á faraldsfæti áður en 1. deildar keppnin í knattspyrnu hefst í vor. Þeir fara í æfingabúðir til Hoflands í apríl og snemma í maí fara þeir til Færeyja og leika væntanlega þar gegn tveimur 1. deildar liðum. Leiftur verður komið með allan sinn leikmannahóp saman um miðjan mars, sem er mjög óvenjulegt á þeim bænum. Slobodan Milisic er kominn frá Júgóslaviu, Rastislav Lazorik er væntanlegur frá Slóvakíu eftir tíu daga og Pétur Björn Jónsson er á leið heim frá námi í Bandaríkjunum nokkru fyrr en ráð var fyrir gert. -VS Hakeem Olajuwon átti stórleik og skoraði 35 stig þegar Houston Rockets vann nýliða Toronto á heimavelli sín- um í NBA-deildinni í nótt. Hakeem tók auk þess 16 fráköst í leiknum og sigur Houston, sem virð- ist vera að rétta úr kútnum, aldrei í hættu. Úrslitin í NBA-deildinni í nótt: NJ Nets-Miami...............90-93 Cleveland-Golden State......92-80 Indiana-Portland...........101-87 Chicago-Minnesota .........120-99 Milwaukee-Charlotte.........84-88 Dallas-76ers............. 115-121 Houston-Toronto...........105-100 Denver-Washington ..........96-92 LA Clippers-SA Spurs........95-90 Leikur Milwaukee og Charlotte var mikill baráttuleikur. Milwaukee hafði 16 stiga forskot í leikhléi eftir að Charlotte hafði aðeins skorað 6 stig í öðrum leikhluta sem er nálægt meti í sögu NBA. Glen Rice skoraði 23 stig fyrir Charlotte og Johnny Newman 27 stig fyrir Milwaukee. Jordan skoraði 35 stig fyrir Chicago gegn Minnesota og Toni Kukoc 23. Vinningshlutfall Chicago er nú 50-6 og liöið þarf að vinna 20 af þeim 26 leikjum sem eftir eru á tímabilinu til að slá met Lakers í NBA frá 1971-1972 og vinna 70 leiki. David Robinson skoraði 28 stig fyr- ir Spurs gegn Clippers og Charles Smith 15. -SK Helgi Kolviðsson hefur staðið sig vel í þýsku knattspyrnunni: Mannheim og Niirnberg hafa sýnt mikinn áhuga - útsendari frá Kaiserslautern hefur einnig fylgst með honum Hakeem Olajuwon og félagar hans í Houston áttu ekki í miklum erfiðleikum með að sigra nýliða Toronto í NBA-deildinni i nótt. Hakcem átti stórkostlegan leik og skoraði 35 stig fyrir lið sitt. NBA-deildin í körfuknattleik í nótt: Helgi Kolviðsson, sem lék sína fyrstu A-landsleiki í knattspymu á al- þjóðlega mótinu á Möltu á dögunum, hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í þýsku knattspym- unni í vetur og mörg þekkt félög hafa fylgst grannt með honum. Að undanfömu hafa 2. deildar liðin Mannheim og Númberg sýnt Helga mikinn áhuga og sömuleiðis Stuttgart Kickers, sem er efst í 3. deild. Enn- fremur hafa fleiri lið úr 3. deildinni falast eftir honum. Á dögunum sendi svo hið kunna 1. deildar lið Kaisers- lautem mann á leik með Pfullendorf til að fylgjast með honum. Helgi á mikla framtíð fyrir sér, segir umboðsmaðurinn „Helgi á mikla framtíð fyrir sér héma 1 Þýskalandi og getur náð langt. Hann er tilbúinn í efri deildimar og frami hans er ótrúlegur miðað við það að á íslandi lék hann í 3. og 4. deild og eitt ár i 2. deild. Hans mál era í vinnslu fyrir næsta tímabfl og spum- ingin er aðallega hvort sé betra fyrir hann að fara fyrst í 3. deildina eða þá Landslið karla í handknattleik: Sviss vill leiki í sumar - Þorbjörn Jensson heldur sætum opnum fyrir Japansferðina Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálfari í hand- knattleik, hefur ákveðið aö vera með landsliðið við æfingar í þrjár vikur í sumar. Liðið kemur sam- an 10. júní og æfir til mánaðamóta. Eins og fram hefur komið heldur landsliðið til Japans strax og íslandsmótinu lýkur í maí. Fleiri verkefni hanga á spýtunni að sögn Þorbjamar. „Við munum að öllum líkindum þiggja boð um að leika tvo landsleiki við Færeyinga 11.-12. maí í Þórshöfn. Enn fremur hafa Svisslendingar óskað eftir leikjum við okkur í byrjun jfflí. Að mínu mati væri æskilegt að fara til Sviss en þetta veltur alltaf á fjármagni. Þessi ferð er í umræðunni og fljótlega verður tekin ákvOrðun um hvað gert veröur. í ágúst er það hugmynd mín að kalla landsliðið saman til æfinga tvær helgar í röð og ná þannig sex æfingum á hvorri helginni. Annað hefúr ekki verið ákveðið í und- irbúningi liðsins fýrir undankeppni heimsmeist- aramótsins sem hefst í byrjun október," sagði Þorbjöm Jensson, lands- liðsþjálfari, í samtali við DV í gær. Það kemur í ljós þann 2. júní hvaða þjóðir verða með íslendingum í riðli undankeppni heimsmeist- aramótsins. Drátturinn verður á Spáni daginn eft- ir að úrslitakeppni Evr- ópumótsins lýkur. Þorbjörn Jensson sagðist í viðtalinu við DV fljótlega tilkynna hópinn sem væri til Japans. „Ég hef ákveðið að halda eftir opnum þremur sætum. Ég vfl sjá hvemig menn standa sig í leikjum sem eftir era í 1. deildinni og eins í úrslitakeppn- inni,“ sagði Þorbjöm. -JKS beint í 2. deildina, en þangað á hann fullt erindi," sagði Heinz Gruler, um- boðsmaður Helga, í samtali við DV í gær. Gruler er með viðurkenningu frá FIFA sem umboðsmaður og hefur marga þekkta leikmenn á sínum snær- um, svo sem Krassimir Balakov hjá Stuttgart og Oliver Bierhoff hjá Udi- nese. Helgi er að leika sitt annað ár með Pfullendorf. Hann kom til félagsins frá HK um áramótin 1194-95 og lék með liðinu í 5. deild í fyrra. Það vann sér sæti í 4. deild og er þar nú meðal efstu liða. Helgi hefur leikið geysilega vel sem varnarmaður og á drjúgan þátt í því að liðið hefur aðeins fengið á sig 9 mörk á tímabflinu. -VS Helgi Kolviðsson, sem er hér til hægri á myndinni ásamt félaga sínum f liðinu, hefur átt góðu gengi að fagna með Pfullendorf í Þýskalandi og líklegt er að hann verði kominn í efri deiidirn- ar innan skamms. Úrslit í gærkvöldi 1. deild kvenna í körfuknattleik: Grindavik-Valur.................80-47 2. deild karla í handknattleik: Ármann-fjölnir...................16-22 England-bikarkeppnin: Port Vale-Leeds United............ 1-2 1-0 Naylor (37.), 1-1 Garry McAUister (64.), 1-2 Garry McAllister (88.) England 1. deild: Bamsley-Millwall...................3-1 Cr.Palace-Birmingham...............3-2 Luton-Reading......................1-2 WBA-Oldham........................1-0 Southend-Sunderland................0-2 Þýska bikarkeppnin undanúrslit: Kaiserslautem-Leverkusen.......... 1-0 italska bikarkeppnin: Atalanta-Bologna...................2-0 Franska 1. deildin: Paris SG-Lens.....................1-0 Auxerre-Metz.......................0-0 Guingamp-Monaco....................0-0 Lille-Montpellier..................1-1 tam England: Hver leikmaður fær 7 milljónir Það verður vel þess virði fyrir enska knattspymumenn að kom- ast í enska landsliðið sem keppir í úrslitakeppni Evrópumóts landsliða í sumar. Hver sá leikmaður sem kemst í enska liðið fær 7 milljónir króna fyrir þátttökuna eina saman og meira ef góður ár- angur næst. Dalglisli vill Sinclair Kenny Dalglish, yfimjósnari hjá Blackbum Rovers, hefur lengi haft augastað á Trevor Sinclair hjá QPR enda á ferð afar snjall knattspyrnumaður. Nú er sagt að Dalglish sé orðið mikið niðri fyrir og tilboð í Sinclair frá Blackbum sé yfirvofandi. Japanir réðu Ola Olsen Japanska handknattleikssam- bandið hefur ráðið Svíann Ola Olsen sem landsliðsþjálfara fram yfir heimsmeistarakeppnina þar í landi á næsta ári. Olsen er ætl- að að rifa japanskan handbolta upp en hann þjálfaði Lugi til margra ára. Wunderlich skotfastur Japanir hafa hafið undirbún- ing sinn að fullum krafti fyrir heimsmeistarakeppnina í hand- bolta 1997. Þeir hafa gefið út stórt blað til að kynna keppnina og er þar að finna ýmsa fróð- leiksmola. Meðal annars þann sem segir að Þjóðverjinn Erhard Wunderlich sé sá skotfastasti sem sögur fara af. Skot hans sum mældust á 145 km hraða, segir í blaði keppninnar. Fýrsta almenn- ingshlaupið Fyrsta almenningshlaupið á þessu ári fer fram á morgun en það er svokallað Hlaupárshlaup Máttar. Hlaupið hefst klukkan 18.30 á hominu á Miklubraut og Skeiðarvogi. Tvær brautir verða um Elliða- ádal. Önnur 4,2 km en hin 8,7 km að lengd. Þátttökugjald er krón- ur 500 fýrir fullorðna og 250 krónur fyrir böm, 12 ára og yngri. Allir þátttakendur fá sér- hannaðan verðlaunapening og bol og einnig verða dregin út vegleg aukaverðlaun. Hlauparar og aðrir era hvatt- ir til þess að koma með alla fjöld- skylduna og skrá sig tímanlega. Nánari upplýsingar fást hjá Mætti í síma 568 9915 og þar er hægt að skrá sig. íþróttir Hrökklast ÍBV upp á land? - óvissa meö Evrópuleikinn í Eyjum Horfur era á að ÍBV muni ekki spila á heimavelli sínum í Eyjum í UEFA-bikarnum í knattspyrnu í haust og að leikið verði á höfuð- borgarsvæðinu í staðinn. Það yrði þá væntanlega á Laugardalsvelli, Kópavogsvelli eða.Kaplakrika. „Búningsaðstaðan hjá okkur er ekki nógu góð og það er hæpið að hún fáist viðurkennd hjá UEFA. Það átti að bæta hana í sumar en það gengur illa að koma málinu í gegnum íþróttahreyfinguna hér í Eyjum og bæjaryfirvöld halda að Óvíst er hvort FH-ingar geta teflt fram Héðni Gflssyni i ná- grannaslagnum gegn Haukum í kvöld. Héðinn hefúr átt við meiðsli að stríða í hné og sagði Guðmundur Karlsson, þjálfari FH, að það skýrð- ist ekki fyrr en á fimmtudag hversu alvarleg meiðslin væra. „Það er sennilegt að þetta sé liðþófinn og ef svo er verður hann að fara í aðgerð en hann á ekki að missa af úrslita- keppninni. Hann verður liklega í hópnum í kvöld en ég veit ekki hvort ég tefli honum fram. Óheppn- in hefur elt okkur í vetur,” sagði Guðmundur. sér höndum þar til hún er búin að komast að niðurstöðu. Á meðan líð- ur tíminn," sagði Jóhannes Ólafs- son, formaður knattspyrnuráðs ÍBV, við DV í gær. Hugmyndir Jiafa verið uppi um að byggja við Týsheimilið og bæta aðstöðuna þannig en að sögn Jó- hannesar er andstaða við það frá Þórurum. „Það er mjög slæmt fyrir bæjarfélagið ef við missum þennan Evrópuleik frá okkur, og hreinlega til skammar fyrir bæinn,“ sagði Jó- hannes Ólafsson. -VS Guðmundur: „Valsmenn vinna fyr- ir norðan. Þeir era sterkastir í dag og hafa verið það lengi. KA-menn hafa heldur verið að gefa eftir eins og úrslitin í síðustu tveimur leikj- um gefa til kynna. Til gamans má geta þess að í nýjasta hefti íþróttablaðsins segir Guðmundur orðrétt: „Mér finnst FH í rauninni eina liðið í deildinni, með fullri virðingu fyrir hinum, sem hefur burði til að sigra KA og Val. Og þegar hann er spurður hvort KA verði meistari segist hann hafa trú á því að það verði FH. Golf: Sigurjón stóð sig vel Sigurjón Arnarsson, kylfing- ur í GR, stóð sig vel á tveimur golfmótum atvinnumanna um síðustu helgi. Mótin fóru fram á Mission Inn golfvellinum í Orlando í Florída. Völlurinn er par 72 og erfiðleikastuðullinn 73. Fyrra mótið var 36 holu tveggja daga höggleikur en hið síðara 18 holu höggleikur á einum degi. Sigurjón lék á 143 höggum á fýrra mótinu. Fyrri 18 holurnar lék hann á 71 höggi og þær síð- ari á 72 höggum, samtals því á höggi undir pari vallarins. Þetta skor gaf Sigurjóni 45. sæti á mótinu en keppendur voru alls 137. Þess má geta að sigurvegari mótsins lék á 130 höggum sem er frábært skor. Sigurjón lék 18 holumar á síðara mótinu á 73 höggum. Hann hafnaði í 18. sæti en kepp- endur voru 65. Árangur Sigur- jóns á mótunum tveimur er mjög góður og ljóst að hann er líklegur til að gera góða hluti í framtíðinni. -SK Guðmundur íþróttamaður Grindavíkur DV, Suöurnesjum: Körfuknattleiksmaðurinn Guðmundur Bragason hefur verið útnefndur íþróttamaöur ársins í Grindavik fyrir árið 1995. Grindvíkingar unnu bikar- meistaratitil í meistaraflokki karla í fyrra og þar lék Guð- mundur stórt hlutberk. Guð- mundur hlaut 850 stig í fyrsta sæti. Annar í kjörinu varð knattspymumaðurinn Milan Jankovic með 700 stig og þriðji félagi hans úr knattspymuliöi Grindvíkinga, Albert Sævarsson markvörður. -SK/-ÆMK Anderton í vanda Darren Anderton, leikmaður Tottenham i ensku knattspym- unni, er ekki líklegur til að leika meira með Tottenham á þessu leiktímabili. Hann hefur átt við þrálát meiðsli aö striða og Gerry Francis, stjóri Totten- ham, hefúr sagt að hann vilji að Anderton fari sér aö engu óðs- lega og jafni sig vel fyrir næsta tímabil. Rush fer frá Liverpool Ian Rush sagði í gær að hann fengi frjálsa sölu frá Liverpool eftir þetta tímabil. Rush, sem þjónað hefur Liverpool í 15 ár og skorað 404 mörk fyrir félagiö, er orðinn 34 ára gamall og segir að hann verði að hugsa um framtíð sína en hann hefur ekki komist í byrjunarliðið. Rush segist eiga 2-3 ár góð ár eftir en mörg lið hafa viljað fá hann. íkvöld Nissandeildin: KR-Stjaman ..............20.00 FH-Haukar................20.00 KA-Valur.................20.00 Selfoss-Víkingur.........20.00 ÍR-Afturelding ..........20.00 ÍBV-Grótta ..............20.00 1. deild kvenna: KR-Fram..................18.15 FH-Haukar................18.15 Valur-Víkingur...........18.15 Fylkir-ÍBV ..............20.00 -GH Um stórleikinn á Akureyri sagði Höfum skotið okkut i fótinn - sjá viötal viö Þóri Jónsson bls. 34 CuBSSBOÐ Tölvuleikjakeppni í tilefni af útgáfu totvuleiksins NBA Live '96 verður haldin keppni í spilun leiksins dagana 29. febrúar til 3. mars í Megabúð Skífunnar, Laugavegi 96. , \ Skráning er hafin. Undanúrslit hefjast 'A á morgun, 29. febrúar, kl. 16.00. ;i Vinningar: Glæsilegur eignarbikar, Nike körfuboltaskór,..:.. Nike keppnisbolti, 24 dósir af Sprite, 1 kássr OLW snakk og NBA Live '96 tölvuleikur. % • .** Nike keppnisbolti, 24 dóslr af Sprite, 1 kassi /V OLW snakk og NBA Live '96 tölvuleikur. /+ 24 dósir af Sprite, 1 kassi OLW snakk og NBA Live '96 tölvuleikur. NBA Live '96 tölvuleikur. Allir keppendur fá NBA Live '96 bol og skráningar- skírteini er keppnin hefst á morgun kl. 16.00. Takmarkaður fjöldi þátttakenda. SPORTS J Héðinn ekki með í kvöld? -þjálfari FH spáir Val sigri á Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.