Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1996, Síða 26
42
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1996
Afmæli
Gísli Valtýsson
Gísli Valtýsson framkvæmda-
stjóri, Höfðavegi 42, Vestmanna-
eyjum, varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Gísli fæddist í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Vestmannaeyja, lauk námi frá
Iðnskólanum í Vestmannaeyjum,
lærði prentiðn hjá Prentsmiðj-
unni Eyrúnu í Eyjum, lauk þar
sveinsprófi 1966 og er meistari í
prentiðn, lærði um skeið renni-
smíði en hóf síðan nám í húsa-
smíði, lauk sveinsprófi í þeirri
grein og er húsasmíðameistari.
Gísli starfaði við Prentsmiðjuna
Eyrúnu til 1969 og vann í fiski hjá
ísfélagi Vestmannaeyja. Að loknu
trésmíðanámi starfaði hann sjálf-
stætt við trésmíðar. í Vestmanna-
eyjagosinu vann hann hjá Við-
lagasjóði úti í Eyjum við ýmis
björgunarstörf og það sem til féll.
Þá starfaði hann einnig hjá Hrað-
frystistöð Vestmannaeyja.
Gísli tók við rekstri Prentsmiðj-
unnar Eyjaprents í Vestmannaeyj-
um 1982. Hann var jafnframt rit-
stjóri blaðsins Frétta í Eyjum
1982-94 er hann lét af ritstjórn-
inni en tók við starfi fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins auk
þess sem hann er stærsti hluthafi
þess.
Gísli situr í stjórn sjónvarpsfyr-
irtækisins Fjölsýnar, er félagi í
Kiwanisklúbbnum Helgafelli, er
formaður Lunch United, félags sí-
ungra knattspyrnumanna, hefur
setið i stjórn íþróttafélagsins Þórs
í tuttugu og tvö ár, í þjóðhátíðar-
nefndum, handknattleiksráði og
gegnt ýmsum öðrum trúnaðar-
störfum á vegum Þórs, situr nú í
stjórn íþróttabandalags Vest-
mannaeyja, var í stjóm Iðnnema-
félags Vestmannaeyja og síðar í
stjórn Sveinafélags bygginga-
manna, er í fulltrúaráði Sjálfstæð-
isflokksins, er einn af stofnendum
Samtaka bæjar- og héraðsfrétta-
blaða og hefur setið í stjórn sam-
takanna.
Fjölskylda
Gísli kvæntist 31.12.1966
Hönnu Þórðardóttur, f. 18.8. 1947,
föndurleiðbeinanda. Hún er dóttir
Þórðar Stefánssonar, fyrrv. skip-
stjóra og útgerðarmanns í Eyjum,
og k.h., Ingibjargar Haraldsdóttur
húsmóður.
Börn Gísla og Hönnu: óskírð
Gísladóttir, f. 12.1. 1965, d. 13.1.
s.á.; Erla Gísladóttir, f. 2.8.1969,
húsmóðir í Eyjum en maður
hennar er Óskar Örn Ólafsson
stýrimaður og eiga þau eina dótt-
ur, Gígju; Hrund Gísladóttir, f.
13.6.1974, verslunarmaður í Eyj-
um en unnusti hennar er Guð-
mundur Óli Sveinsson vélstjóra-
nemi; Þóra Gísladóttir, f. 17.6.
1979, nemi í foreldrahúsum.
Systkin Gísla: Friðbjörn Ólafur
Valtýsson, f. 20.2. 1950, fram-
kvæmdastjóri í Vestmannaeyjum;
Valtýr Þór Valtýsson, f. 25.5. 1955,
framkvæmdastjóri í Vestmanna-
eyjum; Snæbjöm Guðni Valtýs-
son, f. 31.8.1958, innkaupastjóri í
Reykjavík; Kolbrún Eva Valtýs-
Gísli Valtýsson.
dóttir, f. 23.5. 1960, húsmóðir í
Vestmannaeyjum.
Foreldrar Gísla: Valtýr Snæ-
bjömsson, f. 24.4. 1923, fyrrv.
byggingameistari og síðar bygg-
ingaifulltrúi í Vestamannaeyjum,
og k.h., Erla Jóhanna Elísabet
Gísladóttir, f. 26.10. 1927, þjónustu-
fulltrúi.
Til hamingju með afmælið 28. febrúar
85 ára
Guðný Guðnadóttir,
Melagötu 10, Neskaupstað.
80 ára
Hörður Haraldsson
húsasmíðameistari,
Langholtsvegi 165 A, Reykjavik.
Hörður tekur á móti gestum að
heimili sínu laugardaginn 2.3. eft-
ir kl. 16.00.
Haraldur Gíslason,
Grenimel 23, Reykjavík.
Sigrún Jensdóttir,
Hvanneyrarbraut 56, Siglufirði.
75 ára
Sigurjón Kristbjörnsson,
Glaðheimum 12, Reykjavík.
70 ára
Gunnþór
Bender
verslunarmaður,
Skipholti 45,
Reykjavík.
Eiginkona hans
er Soffía H. Jóns-
dóttir,
stöðvarstjóri hjá
Pósti og síma.
Gunnþór og Soffía eru í útlöndum.
Kristján J. Kristjánsson,
Engjavegi 21, ísafirði.
60 ára
Sigríður Einarsdóttir,
Kársnesbraut 133, Kópavogi.
Sigríður er að heiman.
Ámundi Ólafsson,
Smárahvammi 9, Hafnarfirði.
Bjamey Valgerður
Tryggvadóttir,
Stekkjarflöt 5, Garðabæ.
Páil Gunnlaugsson,
Hvanneyrarbraut 61, Siglufirði.
Gunnlaug Björk Þorláksdóttir,
Sólheimum 27, Reykjavík.
Ingibjörg Einarsdóttir,
Norðurgarði 3, Keflavik.
50 ára
Páll Stefánsson,
Fellstúni 12, Sauðárkróki.
Hilmar Jónsson,
Nesbalika 12, Neskaupstað.
Kaj Anton Larsen,
Rjúpufelli 48, Reykjavík.
40 ára
Kristján Bjarni Sigmundsson,
Lyngholti 4, ísafirði.
Gunnar Kristinsson,
Ránargötu 5, Akureyri.
Kári Guðbjörnsson,
Kársnesbraut 88, Kópavogi.
Guðbjörg Vernharðsdóttir,
Reynimel 38, Reykjavík.
Valgerður Björg Ólafsdóttir,
Brekkubæ 1, Reykjavík.
Birgir Hólm Ólafsson,
Bollatanga 7, Mosfellsbæ.
Jóhanna Elka Geirsdóttir,
Dverghömrum 38, Reykjavík.
Sigurður Hinriksson,
Amarsmára 26, Kópavogi.
Valdimar Erlingsson,
Álfholti 24, Hafnarfirði.
Axel Bragi Bragason,
Einilundi 2 A, Akureyri.
Axel tekur á móti gestum í KA-
heimilinu fóstudaginn 1.3. kl.
20.30.
Brynjolfur Gunnar
Brynjólfsson
Brynjólfur Gunnar Brynjólfsson
framkvæmdastjóri, Bæjartúni 12,
Kópavogi, varð fertugur á mánu-
daginn.
Fjölskylda
Gunnar fæddist á Akureyri og
ólst þar upp. Hann er fram-
kvæmdastjóri og eigandi Vélsleða-
þjónustunnar, Skemmuvegi 28,
Kópavogi.
Gunnar kvæntist 18.9.1980 Eddu
Láru Guðgeirsdóttur, f. 24.9. 1954,
fótaaðgerðarfræðingi og eiganda
snyrtistofunnar á Hótel Sögu. Hún
er dóttir Hrefnu Ólafsdóttur og
Guðgeirs Sumarliðasonar frá
Bitru í Hraungerðishreppi í Ár-
nessýslu.
Börn Gunnars og Eddu Láru
eru Helena Dögg Harðardóttir, f.
23.7. 1973; Geir Gunnarsson, f.
23.12. 1982; Arnar Gunnarsson, f.
8.12. 1988.
Systkini Brynjólfs: Hólmgeir
Brynjólfsson, f. 26.9.1951, búsettur
í Kaliforníu í Bandarlkjunum;
Rannveig Kristín Brynjólfsdóttir,
Brynjólfur Gunnar Brynjólfsson.
f. 24.2.1960, búsett á Akureyri;
Sigurður Magnús Brynjólfsson, f.
22.2. 1962, búsettur á Akureyri.
Foreldrar Gunnars: Brynjólfur
Brynjólfsson, f. 1.5. 1926, mat-
reiðslumeistari, og Kristín Krist-
jánsdóttir, f. 18.6. 1929, húsmóðir.
Gunnar og Edda Lára eru í út-
löndum.
Kristinn S. Antonsson
Kristinn Sigurjón Antonsson
verkamaður, Hlíðarvegi 56, Njarð-
vík, varð sextugur á mánudaginn.
Starfsferill
Kristinn fæddist á Dalvík, ólst
þar upp og gekk í Barnaskóla Dal-
víkur. Hann flutti tO Njarðvikur
1959, hóf þar störf hjá Röstinni og
starfaði þar í tuttugu og fimm ár.
Hann stundaði síðan ýmis störf
tengd sjávarútvegi, m.a. hjá Axel
Pálssyni og Stafnesi hf., en síðari
árin hefur hann stundað ýmis
verkamannastörf.
Fjölskylda
Kristinn kvæntist 1.6. 1958 Elín-
borgu Ósk Elisdóttur, f. 10.4. 1935,
húsmóður. Hún er dóttir Jens Elís
Jóhannssonar, f. 10.2.1904, d. 2.4.
1989, bónda í Sælingsdal í Dala-
sýslu, og Guðrúnar Valfríðar
Oddsdóttur, f. 31.12. 1916, hús-
freyju.
Börn Kristins og Elínborgar eru
Jens Elis, f. 21.2. 1959, veðurathug-
unarmaður, kvæntur Magneu
Garðarsdóttur og eiga þau þrjú
börn; Anton Gunnlaugur, f. 30.10.
1960, starfsmaður snjóruðnings-
deildar varnarliðsins, kvæntur
Kristjönu Vilhelmsdóttur og eiga
þau þrjár dætur; Kolbrún, f. 13.2.
1962, starfsmaður Flugleiða, gift
Jóhanni K. Lárussyni og eiga þau
þrjú börn; Berglind, f. 11.10. 1969,
ritari, í sambúð með Georg E.
Friðrikssyni og eiga þau tvö börn;
Kristín Sesselja, f. 22.6. 1976, hús-
móðir, í sambúð með Snorra
Pálmasyni og eiga þau einn son.
Systkin Kristins: Þröstur, f.
1938, d. 1995; Flóra, f. 1940; Felix, f.
1940; Ingvi, f. 1942; Ragnhildur, f.
1943; Sesselja, f. 1946; Jónas, f.
1949.
Foreldrar Kristins: Anton
Gunnlaugsson, f. 19.8. 1913, verka-
maður og trillukarl á Dalvík, og
Kristinn Sigurjón Antonsson.
Jóna Kristjánsdóttir, f. 10.8. 1910,
húsmóðir.
Kristinn og Elínborg taka á
móti gestum í húsi Hjálparsveitar
Suðumesja, laugardaginn 2.3. eftir
kl. 16.
Lárus Hinriksson
Lárus Hinriksson rithöfundur,
Gömlubúð, Svalbarðsstrandar-
hreppi, er fertugur í dag.
Starfsferill
Lárus fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Kópavogi. Hann stund-
aði sjómennsku á síðutogaranum
Sigurði RE, stundaði nám við Iðn-
skólann í Reykjavík og var síðan
húsasmiður um skeið.
Lárus flutti til Öxarfjarðar 1978
þar sem hann stundaði smíðar í
héraðinu og kenndi við Grunn-
skólann í Lundi. Hann stundaði
síðan búskap og var formaður
Loðdýraræktarfélags Norður-Þing-
eyinga.
Frá 1988 hefur Lárus starfað á
Akureyri, fyrst hjá Aðalgeiri
Finnssyni við húsasmíðar en
stofnaði síðan, meö stuðningi Ak-
ureyrarbæjar og Iðnþróunarfélags
Eyjaijarðar, fyrirtækið Dettifoss
hf.
Undanfarin ár hefur Lárus helg-
að sig ritstörfum og unnið hjá
Listasafni Akureyrar. Eftir hann
hafa komiö út bækurnar Gátuhjól-
ið, skáldsaga 1993; Lúpína, skáld-
saga 1994; Bergmál tímans Brotið
gler, ljóðabók, 1995. Lárus er fé-
lagi í Gilfélaginu og Rithöfunda-
sambandi íslands
Fjölskylda
Lárus kvæntist 7.8. 1982 Frey-
gerði Baldursdóttur, f. 21.9. 1955,
starfsmanni Valsárskóla. Hún er
dóttir Baldurs Snorrasonar og
Guðrúnar Sigurðardóttur frá Vest-
ara- Landi í Öxarfirði.
^ Börn Lárusar og Freygerðar eru
Baldur Lárusson, f. 12.4. 1978;
Guðrún Lárusdóttir, f. 29.8. 1980.
Systkini Lárusar eru Sigurður,
f. 28.2. 1956; Guðbjörg, f. 2.10. 1959;
Bryndís, f. 6.7. 1961; Sigrún, f. 2.8.
1962; Ingibjörg, f. 3.12. 1963.
Foreldrar Lárusar eru Hinrik
Lárusson, verslunarmaður í Kópa-
vogi, og Ingibjörg Sigurðardóttir,
hjúkrunarfræðingur og kennari.
Ætt
Hinrik er sonur Lárusar Hin-
Anna María Sampsted
Anna María Sampsted, móttöku-
ritari á Kvennadeild Landspítal-
ans, Hraunbæ 11, Reykjavík, er
fimmtug í dag.
Fjölskylda
Anna María fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hún gifti sig 5.3.
1965 Garðari V. Guðmundssyni, f.
19.5.1942, verslunarstjóra og
söngvara. Hann er sonur Kristín-
ar Gísladóttur og Guðmundar
Agnarssonar sem lést 1989.
Börn Önnu Maríu og Garðars
eru Kristín Birna Garðarsdóttir, f.
25.8. 1962, búsett í Reykjavík en
hennar maður er Guðbergur Guð-
bergsson og eru böm þeirra Anna
Björk, f. 1987 og Viktor, f. 1992;
Kamilla Björk Garðarsdóttir, f. 8.5.
1966, búsett á Miami í Flórída en
hennar maður er Friðrik Þór
Göethe og er sonur þeirra Andri
Þór, f. 1994; Lilja Garðarsdóttir, f.
18.7. 1980; Linda Garðarsdóttir, f.
18.7. 1980.
Systkini Önnu Maríu: Harrý
Sampsted, f. 1935, kvæntur Önnu
Alfonsdóttur; Louise Sampsted, f.
1939, gift Ragnari L. Sólonssyni;
Erna Sampsted, f. 1940, gift Hauki
V. Guðmundssyni; Hanna íris
Sampsted, f. 1951, gift Hákoni Sig-
urjónssyni.
Hálfbróðir Önnu Maríu, sam-
feðra, er Óskar Gunnar Sampsted,
f. 1930 en kona hans er Stefanía
Karelsdóttir.
Foreldrar Önnu Maríu: Hannes
Óskar Sampsted, f. 12.8. 1908, d.
Lárus Hinriksson.
rikssonar, bílstjóra á Akureyri, og
Guðnýjar Hjálmarsdóttur húsmóð-
ur.
Ingibjörg er dóttir Sigurðar Ey-
leifssonar, skipstjóra í Reykjavík,
og Ólafiu Ingimundardóttur hús-
móður.
Lárus tekur á móti gestum í
Deiglunni, Listargilinu á Akur-
eyri, laugardaginn 2.3. eftir kl.
20.00.
Anna María Sampsted.
1982, vélsmiður, og Camilla Þor-
geirsdóttir, f. 4.7. 1913, d. 1976,
húsmóðir.
Anna og Garðar taka á móti
gestum á heimili sinu eftir kl.
20.00 í kvöld.